Morgunblaðið - 22.08.2011, Qupperneq 23
DAGBÓK 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2011
Sudoku
Frumstig
8
1 3 5 4
3
1 2 3 9
5 4 8 2
8 6 9 5
2 3 9
4
6 4 8
7 8 1 2
9 8
2 4
4 5 9 7
4 5
8 2 9 7 1 3
9 8
1 4
3 9 8
2 8 9 6
7 2 4
8 5
1 2 3 7
4 6 2 8
4 7 1
8 6 3 5
9
1 4 5 3 7 6 2 9 8
8 6 2 9 1 4 3 5 7
3 7 9 2 5 8 4 1 6
2 3 6 1 8 7 9 4 5
5 9 8 4 3 2 6 7 1
4 1 7 6 9 5 8 2 3
9 2 1 5 6 3 7 8 4
7 5 3 8 4 9 1 6 2
6 8 4 7 2 1 5 3 9
9 5 2 6 8 7 1 3 4
1 3 4 9 5 2 8 7 6
6 7 8 1 4 3 2 5 9
7 2 6 3 9 1 4 8 5
8 9 3 4 2 5 7 6 1
5 4 1 7 6 8 3 9 2
3 6 5 2 7 4 9 1 8
2 8 7 5 1 9 6 4 3
4 1 9 8 3 6 5 2 7
3 4 8 9 5 1 6 2 7
5 6 1 3 7 2 4 9 8
7 9 2 8 6 4 1 5 3
6 2 9 7 4 3 5 8 1
8 3 5 1 9 6 2 7 4
1 7 4 5 2 8 3 6 9
9 5 6 4 3 7 8 1 2
4 1 7 2 8 5 9 3 6
2 8 3 6 1 9 7 4 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 22. ágúst,
234. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Þú hefur elskað réttlæti
og hatað ranglæti. Því hefur Guð,
þinn Guð, smurt þig gleðinnar olíu
fram yfir þína jafningja. (Hebr. 1, 9.)
Víkverji hélt líkt og flestir menn-ingarþyrstir íbúar höfuðborg-
arsvæðisins – og einhverjir af lands-
byggðinni að sjálfsögðu – í miðborg
Reykjavíkur á laugardag í tilefni
Menningarnætur. Svo vel vill til að
Víkverji býr í póstnúmeri 101 og
lenti því ekki vandræðum með bíla-
stæði en blöskraði engu að síður
hvernig gestir miðborgarinnar
björguðu sér.
x x x
Í götu Víkverja, sem er í nokkurramínútna göngufæri frá mið-
bænum, voru ekki aðeins þar til gerð
bílastæði notuð heldur einnig lagt
upp á gangstétt og nánast inni í
garði hjá fólki sem þar býr. Þetta er
að mati Víkverja óhæfa og með ólík-
indum að fólk haldi að í lagi sé að
leggja ólöglega þó svo mannfjöldi sé
í miðborginni. Má þess geta að þeg-
ar gleðiganga Gay pride fór fram
voru ökumenn mun tillitssamari.
x x x
Að því sögðu kom ekki á óvartþegar fréttir bárust af því, og
haft eftir lögreglumönnum, að öku-
menn hafi sjaldan verið frekari og
ágengari en á laugardag. Umferð-
armerkingar og lokanir á vegum hafi
ítrekað verið fjarlægðar og umferð
ökutækja flæddi um götur sem áttu
að vera lokaðar. Engin ástæða er til
að vera stoltur af náungum sem
hegða sér á þennan veg.
x x x
Að öðru leyti skemmti Víkverjisér hreint út sagt frábærlega á
Menningarnótt. Sótti hvern menn-
ingarviðburðinn á fætur öðrum og
þó þeir væru jafn misjafnir og þeir
voru margir, og gæðin eftir því, fór
hann heim með bros á vör.
x x x
Sérstaklega þótti Víkverjaskemmtilegt að sjá metnað
sumra, en allmargir voru með bak-
poka á öxl og dagskrá Menning-
arnætur í hönd, hlaupandi á milli
viðburða og merktu við þegar þang-
að var komið. Það er vel af sér vikið í
jafn mikilli mannmergð.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 vænlegur, 8 bein í
fingri, 9 hljóðfæri, 10 sefi,
11 verða feitari, 13 tekur, 15
bifa, 18 viðbragðsfljót, 21
eyktamark, 22 lítilfjörleg,
23 frek, 24 geðfelldur.
Lóðrétt | 2 viðmótsþýtt, 3
bik, 4 fjallsbrúnin, 5 rúll-
uðum, 6 dúsk, 7 þrjóskur, 12
nægilegt, 14 hress, 15 skott,
16 gljúfrið, 17 hrella, 18
drengs, 19 dáin, 20 not.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt 1 nepja, 4 kútur, 7 fullu, 8 úlfúð, 9 rós, 11 rýrt, 13 fann,
14 ýkjur, 15 flór, 17 álfs, 20 brá, 22 knæpa, 23 lykta, 24 nýtin, 25
auðna.
Lóðrétt 1 næfur, 2 pílár, 3 alur, 4 krús, 5 tafla, 6 ræðin, 10 ósjór,
12 Týr, 13 frá, 15 fíkin, 16 óhætt, 18 lokað, 19 skapa, 20 bann, 21
álka.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Önnur varnarperla Brunners.
Norður
♠G874
♥Á5
♦ÁG
♣ÁD1074
Vestur Austur
♠K95 ♠32
♥G1094 ♥K762
♦9543 ♦D1087
♣86 ♣K93
Suður
♠ÁD106
♥D83
♦K62
♣G52
Suður spilar 4♠.
Lesendur helgarblaðsins minnast
varnar Michelle Brunner (1953-2011) í
7♣, þar sem hún afhenti sagnhafa inn-
komu í borð til að taka misheppnaða
svíningu yfir á blankan kóng makkers.
Hér er annað dæmi um frumleika
Brunners, ekki ósvipað. Brunner var í
austur og eiginmaðurinn, John Hol-
land, í vestur. Suður vakti á 12-14
punkta grandi og varð svo sagnhafi í
spaðageimi eftir hálitaspurningu norð-
urs. Holland kom út með ♥G og Brun-
ner átti fyrstu slaginn á ♥K. Og hvað?
Brunner spilaði ♣9 eins og hún væri
að sækja stungu! Hún sá fyrir sér ná-
kvæmlega þessa stöðu: ♠Kxx hjá
makker og tvílit í laufi. Sagnhafi kok-
gleypti: spilaði ♠Á og spaða, svínaði
svo laufinu sem kom til baka og datt af
stólnum þegar Brunner drap á kóng-
inn og gaf eiginmanninum stungu.
22. ágúst 1922
Jón Kaldal setti Íslandsmet í
5.000 metra hlaupi, 15 mín-
útur og 23 sekúndur. Það stóð
í áratugi.
22. ágúst 1945
„Fyrsta íslenska farþegaflugið
til Norðurlanda,“ sagði Al-
þýðublaðið um ferð Catalina-
flugbáts Flugfélags Íslands til
Kaupmannahafnar þennan
dag, með millilendingu í Skot-
landi. Farþegar voru alls tíu.
Flugið tók tólf klukkustundir.
„Glæsilegasta langflug sem Ís-
lendingar hafa farið,“ sagði
Þjóðviljinn.
22. ágúst 1953
Eldur kom upp í bandarískri
herflutningaflugvél af gerð-
inni Boeing C-97 Strato-
freighter við lendingu á Kefla-
víkurflugvelli. Einn lést en níu
björguðust, sumir mikið slas-
aðir.
22. ágúst 1992
Vestnorrænu kvennaþingi á
Egilsstöðum lauk með því að
hlaðin var varða úr grjóti frá
Grænlandi, Færeyjum og Ís-
landi.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Ég var að koma upp í bústað sem ég tók á leigu
hjá Gljúfur-bústöðum í Ölfusi og ætla að vera hér
um helgina með börnum, tengdabörnum, barna-
börnum og langömmubörnum en við verðum 22 í
heildina,“ segir Sesselja Eiríksdóttir. „Svo ætla ég
á mánudaginn að vera með heitt á könnunni heima
ef einhver vill kíkja til mín.“ Sesselja vann sem
deildarstjóri ræstingardeildar á Landspítala Há-
skólasjúkrahúsi í 30 ár en er nú hætt að vinna.
„Samstarfsfólkið mitt var alveg yndislegt og þetta
var mjög góður vinnustaður. Mér finnst bara æð-
islegt að vera komin á ellilífeyri, geta verið bara
að njóta lífsins,“ segir Sesselja. „Ég er formaður skemmtinefndar
eldri borgara í Grafarvoginum og er mikið að vinna með gler, prjóna
og er að byrja að skera út í tré, þannig að það er nóg að gera. Mér
leiðist sko aldrei. Félagið ætlar að vera með grill þann 24. ágúst næst-
komandi en það er uppselt þar sem ég seldi miða fyrir hundrað
manns.“ Veislan verður haldin í Hlöðunni í Gufunesbæ. „Ég ætla svo
að einbeita mér að útskurðinum fram að áramótum en ég á líka hest
og fór í valkyrjuferð í sumar með nokkrum konum,“ segir Sesselja
sem á þrjú börn, sjö barnabörn og tvö langömmubörn. mep@mbl.is
Sesselja Eiríksdóttir 70 ára í dag
„Mér leiðist sko aldrei“
Hlutavelta
Sóley Gísladóttir
og Sóley Ólafs-
dóttir ásamt Áróru
Davíðsdóttur,
héldu tombólu efst
á Skólavörðustíg
til styrktar Barna-
spítala Hringsins.
Þær söfnuðu
21.088 krónum
sem þær færðu
spítalanum.
Flóðogfjara
22. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 5.25 1,4 11.53 3,0 18.08 1,6 5.40 21.22
Ísafjörður 1.00 1,6 7.26 0,8 13.54 1,7 20.14 1,0 5.34 21.38
Siglufjörður 3.57 1,1 9.42 0,6 16.24 1,2 22.51 0,7 5.17 21.22
Djúpivogur 2.20 0,8 8.46 1,6 15.10 0,9 20.59 1,4 5.07 20.54
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er sama hversu gamall þú verð-
ur, þú ert alltaf barn foreldra þinna. Haltu þig
við þinn eigin sannleika.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þér er alveg óhætt að láta eitthvað
smávegis eftir þér því þú hefur til þess unnið.
Farðu aðra leið heim úr vinnunni en venjulega
og kíktu í búð sem þú hefur ekki komið í áður.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú hefur skilað góðu verki og átt al-
veg skilið að njóta góðra stunda af því tilefni.
Í kvöld þarftu að klæða þig upp á við sérstakt
tækifæri.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Ekki freistast til þess að festast í ein-
hverju píslarvætti. Breyttu um stíl, hlustaðu á
aðra og líka þinn innri mann.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er ekki hægt að segja annað en að
þú sért áberandi í dag. Reyndu að horfa
gagnrýnum augum á sjálfa/n þig og fram-
komu þína.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Gerðu öðrum ljóst að þögn þín sé ekki
sama og samþykki. Hún gefur þér vissan
kraft, en rænir þig augnablikinu.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Ef þú ræktar sjálfan þig ertu miklu færari
um að gefa af sjálfum þér. Það er engin
ástæða til þess að vera með samviskubit.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það liggur í loftinu að þú öðlist
nú þá viðurkenningu sem þú svo lengi hefur
átt skilið. Til þín verður leitað með persónu-
legt málefni.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Vertu viss um að þú hafir lokið
öllum fyrirliggjandi verkefnum áður en þú
tekur ný að þér. Hugsaðu því fyrst og fremst
um sjálfan þig.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert í toppformi bæði andlega
og líkamlega og vekur almenna athygli.
Óþarfa misskilningur getur kostað þig pen-
inga og tíma.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Augnabliksfrægð kemur til skjal-
anna – nokkuð sem þú varst svo alls ekki að
reyna með vinnu þinni.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú hefur frumlegar hugmyndir um
það hvernig þú getir aukið tekjur þínar. Vertu
samstarfsfús og mundu að sjaldan veldur
einn þá tveir deila.
Stjörnuspá
Vigdís Birna Grétarsdóttir og
Andri Sveinn Grétarsson afhentu
Rauða krossi Íslands 3.493 kr. sem
þau söfnuðu með því að selja vina-
bönd og sekta fólk fyrir að blóta.
Söfnun
1. d4 g6 2. e4 Bg7 3. Rf3 c6 4. Bd3 d5 5.
Rc3 Bg4 6. O-O e6 7. h3 Bxf3 8. Dxf3
Re7 9. Bg5 O-O 10. Hfe1 Bxd4 11. exd5
cxd5 12. Bxe7 Dxe7 13. Rxd5 Dd8 14.
Re3 Rc6 15. Had1 Dc7 16. c3 Bg7 17.
Be4 Re5 18. De2 Hab8 19. Bc2 b5 20.
a3 a5 21. Bb3 h5 22. Rc2 Kh7 23. Rd4
Db6 24. Rf3 Rxf3+ 25. Dxf3 b4 26.
axb4 axb4 27. Bc2 bxc3 28. bxc3 Dc5
29. Hd7 Kg8 30. He3 Hb2 31. Bd3 Bh6
32. He2 Dxc3 33. Hxb2 Dxb2 34. h4
Staðan kom upp í A-flokki skákhá-
tíðarinnar í Pardubice í Tékklandi sem
lauk fyrir skömmu. Georgíski stór-
meistarinn Konstantine Shanava
(2535) hafði svart gegn spænskum
kollega sínum Jesus Maria Garcia de
la Villa (2490). 34… Da1+ 35. Kh2
Da4! og hvítur gafst upp enda getur
hann ekki varnað því að h4-peðið falli.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.