Morgunblaðið - 22.08.2011, Blaðsíða 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2011
» HeimildarmyndinAndlit norðursins
var frumsýnd í Bíó
Paradís sl. föstudag. Í
myndinni er Ragnari
Axelssyni ljósmyndara
fylgt eftir við störf sín
við að festa íbúa á norð-
urslóðum og lífshætti
þeirra á filmu. Frum-
sýningargestir
skemmtu sér vel og
voru ánægðir með út-
komuna en myndin er
líka framleidd fyrir er-
lendan markað.
Heimildarmyndin Andlit norðursins frumsýnd
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Kæti Jóhann Gestur, Svava, Sigurbjörg Jónsdóttir og Viðar Pétursson.
Gleði Páll Magnússon og Hildur Hilmarsdóttir létu sig ekki vanta. Sæla0 Þórunn Kristinsdóttir, Tinna Dögg Ragnarsdóttir voru á staðnum.
Bros Ilmur Kristjánsdóttir og
Hannes Pálsson voru alsæl.
Hvað ertu að hlusta á um þessar mundir?
Ég er með kynningareintak af Gentle Spirit með Jo-
nathan Wilson sem ég held að komi út í næsta mánuði,
draumkennd, seiðandi og mögnuð sýrukántríplata frá
upphafi til enda. Laufey vinkona kynnti mig fyrir Jo-
nathan fyrir svona sex árum og ég varð ástfangin við
fyrstu hlustun. Er líka að hlusta á íslensku plöturnar
Sagan með 1860, Arabian Horse með GusGus, Jukk
með Prinspóló og Winter Sun með Snorra Helgasyni –
allt frábærar plötur. Ég er búin að vera að hlusta mjög
mikið á íslenska tónlist undanfarið til að finna góð lög
fyrir mynd okkar Borgríki sem kemur út í október.
Hvaða plata er sú besta sem nokkurn tíma hefur verið
gerð að þínu mati?
Úff, þær eru svo margar en ég verð að segja að
Rumours með Fleetwood Mac og Mezzanine með Mas-
sive Attack tróna ofarlega hjá mér þegar ég spái í
heildstæðar plötur sem eldast afar vel.
Hver var fyrsta platan sem þú keyptir og hvar keyptir
þú hana?
Tango in the Night með Fleetwood Mac á vínyl í
Hljómvali, í heimabænum Keflavík, þegar ég var svona
11-12 ára
Hvaða íslensku plötu þykir þér vænst um?
Lítinn fugl, safnplötu með Ellý Vilhjálms, því það
minnir mig á eldhúsið hjá ömmu þegar ég var lítil.
Hvaða tónlistarmaður værir þú mest til í að vera?
Án efa Stevie Nicks. Röddin hennar og framkoma er
alltaf mögnuð og seiðandi. Ég fór á tónleika með
Fleetwood fyrir tveimur árum og hún er ennþá með
þetta!
Hvað fær að hljóma villt og galið á föstudagskvöldum?
Topp 5 lög fyrir næsta föstudagskvöld gætu verið
eftirfarandi: Saturday Love með Toro y Moi, I Can’t
Wait með Twin Shadow, Midnight City með M83, Wait
In The Dark (Jensen Sportag Remix) með Memory
Tapes, og Someone To Count On með hinum íslenska
Axfjörð – þetta væri svona létt upphitun á sum-
arkvöldi.
En hvað yljar þér svo á sunnudagsmorgnum?
Það gæti td. verið Jonathan Wilson, Last Train
Home platan hans
Kalla, soul með
William Bell eða smá ambient með Ulrich Schnauss.
Í mínum eyrum Kristín Andrea Þórðardóttir
kvikmyndaframleiðandi
Lítill fugl í eldhúsinu
hjá ömmu
Fólkið í kjallaranum (Nýja svið)
Fös 2/9 kl. 20:00 1.k Mið 7/9 kl. 20:00 3.k Fös 16/9 kl. 20:00 5.k
Lau 3/9 kl. 20:00 2.k Sun 11/9 kl. 20:00 4.k Sun 18/9 kl. 20:00 6.k
Mannleg og hrífandi sýning sem lætur engan ósnortinn
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið)
Fös 9/9 kl. 20:00 1.k Lau 17/9 kl. 20:00 3.k Lau 24/9 kl. 20:00 5.k
Lau 10/9 kl. 20:00 2.k Fös 23/9 kl. 20:00 4.k
Vinsælasta sýning síðasta leikárs snýr aftur
Zombíljóðin (Litla sviðið)
Fös 9/9 kl. 20:00 frumsýn Sun 11/9 kl. 20:00 3.k Þri 13/9 kl. 20:00 5.k
Lau 10/9 kl. 20:00 2.k Mán 12/9 kl. 20:00 4.k
Hábeittur og hrollvekjandi samfélagsspegill
Afinn (Stóra sviðið)
Fös 16/9 kl. 20:00 1.k Fim 22/9 kl. 20:00 3.k Fös 30/9 kl. 20:00 5.k
Sun 18/9 kl. 20:00 2.k Sun 25/9 kl. 20:00 4.k
Hlýlegt gamanverk með stórt hjarta
Eldfærin (Stóra sviðið)
Lau 24/9 kl. 13:00 1.k Sun 25/9 kl. 13:00 2.k
Leikhústöfrar fyrir börn á öllum aldri
Bjart með köflum (Stóra sviðið)
Fös 2/9 kl. 19:30 Br.
sýningartími
Fös 9/9 kl. 19:30 Fös 16/9 kl. 19:30
Lau 3/9 kl. 19:30 Br.
sýningartími
Lau 10/9 kl. 19:30 Lau 17/9 kl. 19:30
Svartur hundur prestsins (Kassinn)
Sun 18/9 kl. 19:30 Sun 25/9 kl. 19:30 Sun 2/10 kl. 19:30
Fös 23/9 kl. 19:30 Fös 30/9 kl. 19:30
Lau 24/9 kl. 19:30 Lau 1/10 kl. 19:30
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Sun 28/8 kl. 14:00 Sun 11/9 kl. 14:00 Sun 25/9 kl. 14:00
Sun 4/9 kl. 14:00 Sun 18/9 kl. 14:00
Fálkaorður og fjör - sýning fyrir alla fjölskylduna!