Morgunblaðið - 22.08.2011, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2011
Hallur Már
hallurmar@mbl.is
Nú er væntanleg önnur breiðskífa
jazz-sveitarinnar ADHD. Platan
hefur hlotið titilinn adhd2 en upp-
tökur fóru fram í Island hljóð-
verinu sem staðsett er í Vest-
mannaeyjum síðastliðið vor.
Sveitin er skipuð einvalaliði hljóð-
færaleikara sem hafa verið áber-
andi í íslensku tónlistarlífi um ára-
bil. Ómar Guðjónsson leikur á
gítar og bassa, Óskar Guðjónsson
á saxafón, Davíð Þór Jónsson leik-
ur á ýmis orgel, píanó og bassa og
Magnús Tryggvason Eliasen leik-
ur á trommur.
Sem hljóðfæraleikarar hafa
meðlimir sveitarinnar komið fram
með mörgum af þekktustu hljóm-
sveitum og listamönnum landsins
t.a.m. Mezzoforte, Moses Highto-
wer, amiinu, Latínsveit Tómasar
R. Einarssonar, Flís, Jagúar, Stór-
sveit Samúels J. Samúelssonar og
svo mætti lengi telja.
Hljómsveitin var stofnuð árið
2008 og ári síðar kom út platan
adhd sem hlaut góðar viðtökur
tónlistaráhugamanna og var valin
jazz-plata ársins á íslensku tónlist-
arverðlaununum árið 2010.
Matarsvall og einangrun í
Eyjum
Ómar segir að það hafi verið
góð reynsla að fara til Vest-
mannaeyja til að taka upp. „Við
fórum í viku og bjuggum saman á
efri hæð stúdíósins en tókum upp
á hæðinni fyrir neðan. Ívar
„Bongó“ Ragnarsson hljóðmeistari
fór með okkur og á þessari viku
unnum við með efni sem hefur
fylgt bandinu alveg frá stofnun.
Eitthvert efni varð svo til á staðn-
um. Þetta var frábær reynsla og
við reyndum að nýta það vel að
vera bara einir úti í Vest-
mannaeyjum og geta einbeitt okk-
ur algerlega að upptökunum. Á
milli þess að vera í tökum fórum
við í göngutúra og drukkum í okk-
ur kraftinn úr náttúrunni til að
skapa.“
Í stúdíóinu var mikil áhersla
lögð á að skapa góðan anda og
Ómar segir Óskar bróður sinn
vera einkar liðtækan í eldhúsinu
og hafa reitt fram sælkeramáltíðir
á milli þess að spila. „Þegar Óskar
byrjar að elda þá verður afrakst-
urinn alltaf eins og á fimm stjörnu
veitingahúsi. Það var stór þáttur í
stemningunni sem myndaðist
þarna úti í Eyjum. Það var líka
ákveðin ró sem myndaðist innan
bandsins og við gátum verið alveg
heilir í verkefninu. Það er yfirleitt
mikið að gera hjá okkur og þarna
náðum við allir að stilla okkur
saman og vorum ákveðnir í að
skapa gott verk.“
Meiri vídd byggð á sama
grunni
Ómar segir enga meðvitaða
áherslubreytingu vera að finna á
nýju plötunni. „Þó væri hægt að
segja að við séum að sýna á okkur
fleiri hliðar en heyrðist á fyrri
plötunni. Nú kláruðum við t.a.m.
að vinna lög sem okkur fannst eig-
inlega ekki henta á síðustu plötu.
Þau lög þótti okkur á þeim tíma
vera of glaðleg til að passa inn í
heildarmyndina á síðustu plötu. Í
þetta skiptið leyfðum við okkur að
gera tónlist sem var hressari ef
svo má að orði komast. Síðasta
pata var náttúrulega frekar lág-
stemmd þannig að á nýju plötunni
verður að finna hraðara tempó án
þess þó að tapa einkennum hljóm-
sveitarinnar.“
Að sögn Ómars spilar hljóm-
sveitin lögin inn þar til þeir eru
komnir með tökur sem þeim finnst
vera nógu góðar og búi yfir góðri
orku. „Á þessari plötu leyfðum við
okkur þó að leika okkur aðeins
meira með upptökurnar. Í einu
lagi eru t.d. þrír saxófónar og
tveir bassar. Þannig bættum við
einhverjum hljóðfærum við eftir
að hafa tekið lagið upp. Þetta er
svona tilraunastarfsemi sem við
fórum minna út í á seinustu plötu.
Í þeim skilningi vorum við að fara
leiðir sem við höfum ekki farið áð-
ur og í einum kafla má meira að
segja heyra þrjá mismunandi
bassa.“
Tónleikaferð um
landið í vetur
Eitt og annað er í pípunum hjá
sveitinni að sögn Ómars þó með-
limirnir séu flestir með fjöldann
allan af verkefnum í gangi. „Út-
gáfutónleikarnir verða á þriðju-
daginn í Hörpunni og það lítur út
fyrir að það verði einu tónleikarnir
fram á vetur. Við höfðum hugsað
okkur að fara hringinn í nóvember
og spila úti á landi, vonandi náum
við því.“
Plötuna gefa þeir út sjálfir en
dreifingin verður í höndum Kima.
Næsta sumar er stefnan svo tekin
á lítinn Evróputúr og Ómar vonast
til að einhver dreifing verði hafin
á þeim markaði. „Í raun höfum við
jazz-tónlistarmennirnir ekki verið
nægilega duglegir að koma okkur
á framfæri erlendis en það er þó
eitthvað að breytast í þeim efn-
um,“ segir Ómar og nefnir í því
samhengi að hópur íslenskra jazz-
tónlistarmanna ferðist til London í
nóvember þar sem íslenskt svið
verður á London Jazz Festival.
Þegar talið berst að nafni sveit-
arinnar segir Ómar að það sé til-
komið af þeirri orku sem sé á milli
hljómsveitarmeðlima. „Á þeim
tíma sem við höfum verið starf-
andi hefur verið erfitt frekar erfitt
fyrir okkur að finna fókus. Þegar
við hittumst erum við vanalega
saman í tvo til þrjá tíma en ein-
hvern veginn náum við bara að
spila í korter. Bróðurparturinn af
tímanum fer í að fíflast og gera
eitthvað allt annað en við eigum að
vera að gera. Við erum allir sam-
mála um að það búi smá athygl-
isbrestur í okkur öllum en það er
nú samt eitthvað sem okkur finnst
í raun og veru bara mjög já-
kvætt.“
Band Hljómsveitin fór til Vestmannaeyja og dvaldi þar í viku við upptökur á nýju plötunni.
Athyglisbresturinn er bara jákvæður
Kvartettinn ADHD gefur út nýja plötu0 Upptökur fóru fram í ró og næði úti í Eyjum
Mögnuð stórmynd um upphafið á stríði
manna og apa sem seinna meir
mun gjöreyða mannkyninu
H H H
„ÞÚ FINNUR EKKI BETRI MYND HANDA KRÖKKUNUM
ÞÍNUM UM ÞESSAR MUNDIR. SUMIR FULLORÐNIR
GÆTU JAFNVEL FENGIÐ SMÁ NOSTALGÍUFIÐRING"
-TÓMAS VALGEIRSSON,
KVIKMYNDIR.IS/SÉÐ OG HEYRT
Hvar í strumpanum
erum við ?
HÖRKU SPENNUMYND FRÁ LEIKSTJÓRA IRON MAN
HHH
M.M.J. - KVIKMYNDIR.COM
HHH
„BRÁÐSKEMMTILEGUR HRÆRIGRAUTUR
AF SCI-FI Í SPIELBERG-STÍL OG
KLASSÍSKUM VESTRA.
CRAIG OG FORD ERU EITURSVALIR!“
T.V. -KVIKMYNDIR.IS/SÉÐ OG HEYRT
LARRY CROWNE
FRÁBÆR RÓMANTÍSK GRÍNMYND
HHH
BoxOffice Magazin
HHH
PRÝÐILEG MEÐ POPPINU
VÍSIR.IS
LARRY CROWNE kl. 5:50 - 8 - 10:20 2D 7
LARRY CROWNE kl. 8 - 10:20 2D VIP
COWBOYS AND ALIENS kl. 5:30 - 8 - 10:30 2D 14
GREEN LANTERN kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D 12
HORRIBLE BOSSES kl. 8 - 10:20 2D 12
HORRIBLE BOSSES kl. 5:30 2D VIP
BÍLAR 2 M. ísl. tali kl. 5:30 3D L
BÍLAR 2 M. ísl. tali kl. 5:30 2D L
HARRY POTTER 7 kl. 8 - 10:40 2D 12
/ ÁLFABAKKA
STRUMPARNIR Ísl. tal kl. 5:20 3D L
STRUMPARNIR Ísl. tal kl. 5:20 2D L
COWBOYS & ALIENS kl. 5:20 -8-10:40 2D 14
GREEN LANTERN kl. 10:45 3D 12
BÍLAR 2 Ísl. tal kl. 5:20 2D L
HORRIBLE BOSSES kl. 8 2D 12
CAPTAIN AMERICA kl. 10:20 3D 12
HARRY POTTER 7 kl. 8 3D 12
PLANET OF THE APES kl. 8 - 10:30 2D 12
LARRY CROWNE kl. 5:50 - 8 - 10:10 2D 7
LAST DAYS OF THE ARTIC kl. 6 - 8 2D L
STRUMPARNIR Ísl. tal kl. 5:50 3D L
GREEN LANTERN kl. 10:30 3D 12
HORRIBLE BOSSES kl. 10 2D 12
HARRY POTTER 7 kl. 8 3D 12
GREEN LANTERN kl. 5:40 - 10:30 3D 12
LARRY CROWNE kl. 8 2D L
BÍLAR 2 M. ísl. tali kl. 5:40 2D L
HORRIBLE BOSSES kl. 8 2D 12
HARRY POTTER 7 kl. 10:10 2D 12
LARRY CROWNE kl. 8 2D 7
COWBOYS & ALIENS kl. 10:20 2D 14
HORRIBLE BOSSES kl. 8 2D 12
BAD TEACHER kl. 10:10 2D 14
/ EGILSHÖLL
/ KRINGLUNNI
/ AKUREYRI
/ KEFLAVÍK
/ SELFOSSI
CONAN THE BARBARIAN kl. 8-10:20 2D 16
COWBOYS & ALIENS kl. 10:20 2D 14
FRIENDS WITH BENEFITS kl. 8 2D 12SÝND Í EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL,
OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL,
KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KELFAVÍK OG SELFOSSI
FRÁ HÖFUNDUM
SÝND Í KRINGLUNNI
FRÁÁ
ÁBÆR
GAM
ANM
YND
91/100
- ENTERTAINMENT WEEKLY
100/100
- ST.PETERSBURG TIMES
RYAN REYNOLDS , BLAKE LIVELY,
MARK STRONG,GEOFFREY RUSH
ÞAÐ GETUR VERIÐ ERFITT AÐ LOSA SIG VIÐ
LEIÐINLEGAN YFIRMANN EN ÞEIR ÆTLA AÐ REYNA...
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL,
KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í EGILSHÖLL