Morgunblaðið - 29.08.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.08.2011, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 9. Á G Ú S T 2 0 1 1  Stofnað 1913  201. tölublað  99. árgangur  Í MIÐJU MORGUNBLAÐSINS Í DAG » DÆGURLAGA- MENNING 1950-1970 SPENNANDI LEIKÁR FRAMUNDAN ERFITT AÐ HÁTTA EFTIR ÁTTA ÍÞRÓTTIR ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN 26LJÓSANÓTT 10 Morgunblaðið/Árni Sæberg Refur Gerir víða usla í Borgarfirði og hefur meðal annars étið gæsarunga í Skorradal.  Refur flæðir nú fram um byggðir í Borgarfirði þar sem hann hefur lítt sést áður og er nú jafnvel farinn að sjást í sumarhúsabyggð. Þetta segir Páll Snævar Brynjarsson, sveitarstjóri í Borgarbyggð. Hefur sveitarfélagið ákveðið að hætta stuðningi við refaveiðar í sparnað- arskyni en þær kostuðu það alls um 10 milljónir árið 2008. Áhrifanna af minni veiði sér víða stað og í sumar át refurinn upp hvert einasta gæsahreiður í Skorradal, en oft voru um fimmtíu gæsapör á vappi í dalnum. Deilt er þó um hvort refurinn sé eini áhrifa- valdurinn hvað varðar fækkun gæs- arinnar og benda vísindamenn meðal annars á að vorið hafi verið sérlega kalt. »7 Vargurinn flæðir fram en veiðinni hefur verið hætt Reuters Skemmdir Hreinsunarstarf eftir fellibylinn Írenu verður töluvert. Fellibylurinn Írena gekk yfir New York í gær en olli minni usla en ótt- ast var í fyrstu. Afar rólegt var þó í borginni og fáir á ferli en almenn- ingssamgöngur eru í lamasessi í borginni. Hlynur Guðjónsson, ræðismaður í New York, segir borgaryfirvöld hafa tekið yfirvofandi hættu mjög alvar- lega og var fjölmörgum íbúum gert að rýma hús sín á þeim svæðum sem talin voru í meiri hættu en önnur. Hann segir fólk hafa verið dálítið stressað en taki því nú rólega. Hlyn- ur segir ástandið ekki gott á mörgum svæðum fyrir utan borgina og líka í Queens, Brooklyn og inni á Staten Island. Þar er mikið um flóð og ein- hvern hluta neðanjarðarlestakerfis- ins hefur flætt. Engir Íslendingar höfðu lent í vanda eða hættu samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins en þeir sem búa á hættusvæðum höfðu leitað skjóls hjá vinum og vandamönnum. Upp úr hádegi í gær hafði fellibyl- urinn gengið yfir og voru íbúar farnir að tínast út á göturnar til að athuga hvort einhverjar skemmdir hefðu orðið á nánasta umhverfi þeirra. »13 Mikil flóð og eyðilegging  „Fólk var dálítið stressað,“ segir Hlynur Guðjónsson Guðný Vala Tryggvadóttir var ánægð með sig- urinn á Alþjóðlegu hundasýningunni í Reiðhöll- inni í Víðidal í gær. Hundurinn heitir Berna- garden Prince of Thieves en er kallaður Kevin í höfuðið á leikaranum misgóða Kevin Costner. Með sigrinum í tegundarhópi tvö komst hann í hóp tíu bestu hunda sýningarinnar en 691 hund- ur af 81 tegund tók þátt. Guðný á fjóra sankti Bernharðshunda til viðbótar. Hoppað af gleði á Alþjóðlegu hundasýningunni í Víðidal Morgunblaðið/Eggert  Staðan á fjar- skiptamarkaði hefur jafnast og ef fram fer sem horfir er líklegt að Póst- og fjar- skiptastofnun geti í skrefum af- létt kvöðum af markaðsráðandi að- ilum á næstu árum, að sögn Hrafn- kels V. Gíslasonar, forstjóra PFS. Við taki samkeppni án sérstakra kvaða af hálfu PFS. Síminn er enn með sterkustu markaðsstöðu en önnur fyrirtæki sækja á. »6 Símafélög í sam- keppni án kvaða Brottflutningur » 695 einstaklingar fluttu til Noregs fyrstu sex mánuði árs- ins. Er það svipuð þróun og undanfarin þrjú ár. » Fleiri flytja heim frá Dan- mörku en þangað fara. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það er kyrrstaða á öllum hlutum eins og er og ef nokkuð er þá finnst mér útlitið heldur verra en verið hef- ur,“ segir Vilmundur Jósefsson, for- maður Samtaka atvinnulífsins, um stöðuna á vinnumarkaði. Vísar hann til þess að störfum fækki hjá ríki og sveitarfélögum og til talna um lang- tímaatvinnuleysi. Álíka margir fluttu til Noregs á fyrri hluta ársins og undanfarin ár. Undanfarin þrjú og hálft ár hafa tæplega 2700 einstaklingar flutt til Noregs umfram þá sem hingað hafa komið. Samsvarar það íbúafjölda stórra staða úti á landi, svo sem eins og Ísafjarðar og Sauðárkróks. Margir iðnaðarmenn hafa farið til Noregs í atvinnuleit og segir Finn- björn A. Hermannsson, formaður Samiðnar, að lítið dragi úr því. „Þeir vilja vinnu. Menn framfleyta sér ekki lengi af atvinnuleysisbótum en einnig hefur dregið úr yfirvinnu og laun lækkað.“ Finnbjörn segir að segir hann. Það eina sem Vilmundur bindur vonir við er að deilur um orku fyrir álver í Helguvík leysist með gerðardómi og framkvæmdir hefjist. Það gæti breytt andanum í sam- félaginu sem hann segir bráðnauð- synlegt. Finnbjörn hefur áhyggjur af því að þeir sem hafa fest sig í vinnu er- lendis verði svo vantrúaðir á ástand- ið hér að þeir komi ekki nógu fljótt til baka þegar framkvæmdir hefjast. Kyrrstaða á öllum hlutum  Fólksflóttinn til Noregs heldur áfram af sama krafti og undanfarin ár  Brottflutningurinn frá hruni samsvarar íbúafjölda Ísafjarðar eða Sauðárkróks MJafnmikill fólksflótti »4 engin verkefni komist af stað. „Menn eru í þrætubókarlist með alla hluti,“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.