Morgunblaðið - 29.08.2011, Síða 16

Morgunblaðið - 29.08.2011, Síða 16
16 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2011 ✝ Dr. Philos.Hjálmar Vil- hjálmsson fæddist á Brekku í Mjóafirði 25. september 1937. Hann lést á Land- spítalanum 20. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans eru Vilhjálmur Hjálmarsson, fv. al- þingismaður og ráðherra, f. 20.9. 1914, og Anna Margrét Þorkels- dóttir, húsfreyja, f. 15.2. 1914, d. 21.4. 2008. Systkini Hjálmars eru Páll, f. 23.5. 1940, Sigfús Mar, f. 28.11. 1944, Stefán, f. 11.9. 1949, og Anna, f. 7.3. 1954. Eiginkona Hjálmars er Kol- brún Sigurðardóttir, f. 2.3. 1940. Þau eignuðust fjögur börn: 1) Sigurður Stefán, f. 2.4. 1961, m. Jóhanna Erlingsdóttir, f. 14.12. 1962. Börn þeirra: A) Tómas, f. 24.1. 1987, B) Hjálmar, f. 25.8. 1988, og C) Marteinn f. 15.7. 1990. 2) Kristín Anna, f. 23.9. 1962, m. Jón Þór Geirsson, f. 9.2. 1962. Börn þeirra: A) Þórhildur Ögn, f. 21.12. 1981. Sonur hennar er Úlfur Ægir Halldórsson, f. 4.7. 2006. B) Kolfinna, f. 6.12. 1995, 3) Ína Björg, f. 28.11. 1963, m. Sig- urður Þór Jónsson, f. 25. 4. 1963. Börn þeirra: A) Kolbrún, f. fundnalandi og varði í kjölfarið doktorsritgerð sína um loðnu- stofninn við Ísland við Háskólann í Bergen 1994. Auk starfa á Hafrannsóknastofnuninni sinnti Hjálmar ýmsum verkefnum bæði innan lands og utan í tengslum við vísindastörf sín. Hann sat í ýmsum sérfræðinganefndum Alþjóða-hafrannsóknaráðsins (ICES) og nefndum á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar. Hjálmar var félagi í Vísindafélagi Íslendinga frá 1994. Hann var einn höfunda og ritstjóra kafla um fiskveiðar og fiskeldi í skýrslu vinnuhóps (ACIA) um áhrif veð- urfarsbreytinga á Norðurheims- skautssvæðinu. Hann var enn- fremur einn af aðalhöfundum og ritstjórum kaflans um fiskveiðar á norðurslóðum í fjórðu skýrslu Milliríkjanefndar um loftslags- breytingar (IPCC) sem hlaut frið- arverðlaun Nóbels 2007. Hjálmar fékk sérstaka viðurkenningu Nóbelsnefndarinnar fyrir fram- lag sitt. Í janúar 2010 var Hjálmar sæmdur riddarakrossi hinnar ís- lensku fálkaorðu fyrir rannsóknir í fiskifræði og hafvísindum. Útför Hjálmars fer fram frá Hallgrímskirkju í dag, mánudag- inn 29. ágúst 2011, og hefst at- höfnin kl. 13. 23.2.1988, B) Jón, f. 26.11. 1993, og C) Stefanía Helga, f. 2.12. 1998. 4) Vil- hjálmur, f. 1.2. 1967. Hjálmar ólst upp á Brekku. Hann gekk í Barnaskóla Mjóafjarðar og Al- þýðuskólann á Eið- um og lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum á Laugarvatni árið 1957. Síðan lagði hann í fyrstu stund á heim- speki við Háskóla Íslands. Þaðan lá leiðin í Háskólann í Glasgow í dýrafræðinám, með áherslu á fiskifræði, sem hann lauk 1965. Á námsárum sínum, sumrin 1957- 1959, var Hjálmar vegaverkstjóri í Mjóafirði þegar gert var akfært yfir Mjóafjarðarheiði til Héraðs. Að námi loknu vann Hjálmar hjá Hafrannsóknastofnuninni alla sína starfsævi. Viðfangsefni hans á löngum starfsferli voru fjöl- breytt en voru einkum rannsóknir á útbreiðslu uppsjávarfiska, mæl- ingar á stofnstærð, viðkomu og veiðanleika tegundanna og tengslum þeirra við umhverf- isþætti í lífkerfi sjávar. Veturinn 1989-1990 var Hjálm- ar í rannsóknaleyfi við hafrann- sóknastofnunina í St. John’s á Ný- Mig langar til að minnast tengdaföður míns og vinar Hjálmars Vilhjálmssonar með nokkrum orðum. Leiðir okkar lágu saman í rúma þrjá áratugi og við hjónin hófum okkar sam- búð á loftinu hjá Hjalla og Kollu. Þau voru boðin og búin að að- stoða okkur unga fólkið þegar von var á fjölgun í fjölskyldunni og vildu allt til vinna svo við gæt- um haldið áfram námi. Þar bjuggum við í ár og bæði hann og Kolla tóku þátt í að hugsa um ögnina eftir að hún kom í heim- inn. Hún var alltaf kölluð agnar- ögnin eða Agga og mikið var hann glaður þegar hún fékk að halda Agnar-nafninu sem hann hafði mikið dálæti á. Næstu árin bjuggu við í kjall- aranum á Ásvallagötu 16, íbúð sem við Hjalli gerðum upp sam- an. Hann var listasmiður og kenndi mér að vanda til verka. Hjá honum var engu verki lokið fyrr en handbragðið var fullkom- ið. Það var því stutt fyrir Öggu að skjótast í heimsókn til ömmu og afa, og reyndar líka langömmu og langafa, sem bjuggu í kjallaran- um á 18 og pössuðu þá stuttu meðan mamma og pabbi voru í skólanum. Hjalli var mikill barnakall og hafði dálæti á öllum sínum barnabörnum. Hann gaf sér alltaf tíma til að snúast í kringum þau, spjalla, segja sögur og skemmta þeim með ýmsum uppátækjum og vitleysisgangi. Úlfur Ögguson sem búið hefur í kjallaranum á 18 frá fæðingu fékk einnig sína athygli og þeir félagarnir spjölluðu margt og hlógu oft dátt saman. Það er óhætt að segja að Hjálmar hafi gefið mér mikið í gegnum tíðina. Í gamla daga hafði hann til dæmis alltaf tíma til að aðstoða mig við námið ef á þurfti að halda. Hann var líka góður vinur og félagi og við spjölluðum margt, ekki síst um sjómennskuna og fiskveiðar enda ég lengi sjómaður á loðnuskipum. Ég áttaði mig fljótt á því að sjó- menn báru mikla virðingu fyrir honum, ekki síst loðnuskipstjór- ar. Þær voru líka margar Mjófirð- ingasögurnar sem hann sagði mér og vísurnar sem hann fór með fyrir mig. Þá var oft hlegið dátt enda Hjalli mikill húmoristi. Hann benti mér meðal annars á það strax í upphafi sambúðar okkar Stínu að ef ég ætlaði að búa með konu úr sinni fjölskyldu ætti ég að taka upp þann sið að segja alltaf „já, elskan mín“ og gera svo það sem mér sýndist. Það hefði reynst honum vel í áratuga sam- búð með Kollu. Það vita hins veg- ar allir sem til þekkja að þannig gengu nú hlutirnir ekki alltaf fyr- ir sig á Ásvallagötunni. Húmor- inn kom líka fram í smáum hlut- um. Hann lét til dæmis smíða fyrir sig kofa í bakgarðinum, tveggja herbergja, sem hann not- aði bæði sem geymslu og til að dunda sér í við smíðar. Einu sinni kom ég til hans til að fá lánaða vatnsdælu. „Hún er á kamrin- um,“ sagði hann og glotti við. Þá hafði, honum til mikillar ánægju, leynst kamar í kofapakkanum og auðvitað var hann settur á sinn stað. Þær eru margar sögurnar og minningarnar um hann Hjalla og þær munu lifa og gleðja okkur öll um ókomna tíð. Hans mun verða sárt saknað og minning hans mun alltaf lifa í hjörtum okkar allra. Elsku Kolla, megi Guð gefa þér styrk og æðruleysi á þessum erfiðu tímum. Jón Þór Geirsson (Nonni.) Elskulegi, yndislegi tengda- pabbi minn er fallinn frá. Fréttin kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Þegar ég hitti hann í sumar þá lék hann á als oddi, stjanaði í kringum mig og var eins og hann átti að sér – bara yndislegur og vildi allt fyrir alla gera. Það var Hjálmari alltaf mikilvægast að aðrir hefðu það sem best. Ég var 17 ára þegar ég kom fyrst á Ásvallagötuna. Hjálmar var oft á sjónum – það þurfti að finna og telja loðnu – en það leið ekki á löngu áður en ég var orðin ein af krökkunum hans. Hjálmar og Kolbrún tóku mér með opnum örmum, hlýjan og vinsemdin var ríkjandi á heimili tengdaforeldra minna. Þegar ég fór á eftir Sigga til Kaliforníu í skóla þá var það Hjalli sem hjálpaði til við undir- búning ferðarinnar. Þegar heim var komið úr nám- inu þá lá leið mín á Hafró þar sem ég vann við hlið tengdapabba í 12 ár. Það tók ekki margar vikur að átta sig á því að það var ekki bara heima við sem Hjalli var vinur allra og alltaf boðinn og búinn að rétta hjálparhönd; hann var virt- ur vísindamaður, yfirmaður og félagi allra starfsmanna, bæði á sjó og á landi. Barnabörnin komu síðan eitt af öðru og auðvitað varð Hjalli afi, eins og hann var ávallt kallaður heima hjá okkur, uppáhald strák- anna. Hann kom iðulega snemma á sunnudagsmorgnum og náði í þá og fór með þá í einhvern leið- angur, oft í feluleik í Öskjuhlíðina eða í sund í Vesturbæjarlaugina og svo auðvitað á Bæjarins bestu á eftir. Hann hafði einstakt lag á strákunum. enda kom hann fram við þá eins og félaga og jafningja. Tengdaforeldrar mínir hafa alltaf verið mikið bókmenntafólk svo það var auðvitað tekið snemma upp á því að lesa fyrir strákana. Þegar Hjalli og Kolla voru í ár á Nýfundnalandi þá voru keyptar enskar myndabækur og svo las Hjalli afi þessar fínu bæk- ur inn á kassettur, auðvitað sett- ar yfir á íslensku, og svo voru bækurnar og spólurnar sendar heim til Íslands með reglulegu millibili. Það var unun að fylgjast með Tomma og Hjalla litla hlusta á rödd afa síns – bækurnar og spólurnar voru svo mikið notaðar að þær duttu í sundur. Og þegar strákarnir eltust þá mætti afi bara heim til okkar nokkrum sinnum í viku og þá voru það ekki myndabækur heldur Jules Verne sem var snarað af ensku yfir á ís- lensku í beinni; Matti var ekki gamall en hann hlustaði af mikilli athygli, hann hefur ekki skilið mikið en bara að hafa afa hjá sér var nóg fyrir unga menn. Oftar en ekki þurfi að biðja afa að hætta að lesa því að strákarnir yrðu bara að fara að sofa. Hvað þeir elskuðu hann afa sinn. Eftir að við fluttum til Svíþjóð- ar þá kom Hjalli afi oft í heim- sókn. Hann var ekkert að víla það fyrir sér að mæta nokkrum dög- um fyrir jól til að hjálpa strákun- um sínum að mála herbergin í nýja húsinu eða að byggja raf- magnsbíla, nú eða flugvélar. Allt- af að bralla eitthvað með frænd- um sínum eins og hann kallaði þá sem voru honum kærir. Hann var einstakur, hann Hjalli afi. Við geymum minninguna um yndislegan pabba, tengdapabba og afa. Hjalli afi: við elskum þig og við eigum öll eftir að sakna þín sárt. Jóhanna. Síðastliðinn laugardag kom sonur minn fimm ára til mín og spurði: „Eftir hverju ertu að bíða mamma? Þú ert eitthvað skrítin núna.“ Afi minn var dáinn og auð- vitað skildi hann ekki alveg hvað hafði gerst. Þetta var samt alveg rétt hjá honum. Ég var í raun að bíða eftir því að afi myndi rölta inn í stofu, setjast í stólinn sinn, krossleggja lappirnar, kveikja sér glottandi í einni camel og segja: „Var ég búinn að segja þér frá …“ og svo kæmi saga inni í Hjálmar Vilhjálmsson Íslensk heimili eiga undir högg að sækja. Við höfum í einfeldni okkar treyst því að bankar, sem áður voru rík- isbankar, urðu einkavæddir og fengu ríkisbankalöggjöf í vöggugjöf, færu að lögum og reglum. Verðum við að gæta sjálf að fjárhagsöryggismálum okkar. Það er ekkert að því að spyrja og grennslast fyrir um hvort rétt sé staðið að útreikn- ingum fjármálastofnana á Ís- landi. Ekki er ólögmætt að „spyrja vitlausu“ spurning- anna eins og sumir prófess- orar, m.a. við Háskóla Íslands, vilja vera láta að sé óhæfa. Hafa þeir sjálfir margir hrap- að í eigin ályktunum, m.a. um gengistryggð lán. Útreikningar á verð- tryggðu jafngreiðsluláni Varðandi verðtryggð lán skal áréttað fyrst að hér á eftir fara útreikningar sem miðast við aðferðafræði Íbúðar- lánasjóðs við útreikninga á jafngreiðslulánum (einnig kallað annuitetslán). Flestir bankar reikna jafngreiðslulán með allt öðrum hætti en Íbúðalánasjóður til að auka heimtur og álögur á við- skiptavini sína. Það er sér- stakt rannsóknarefni. Svo virðist sem jafngreiðslulán séu ekki öll reiknuð eins og alveg sjálfsagt mál að það sé skoðað og lögmæti slíkra útreikninga kannaðir. Gerum ráð fyrir að ein- staklingur hafi í mars árið 1995 tekið lán til um 17 ára (al- gengast þó 25, 30 og 40 ára lán) að fjárhæð kr. 20.000.000 til kaupa á fasteign og vextir hafa verið ákvarðaðir 4,15% (ath.: hér ekki endilega gert ráð fyrir kjörum Íbúðalána- sjóðs á þessum tíma). Árið 2001 voru sett ný vaxtalög nr. 38/2001 og ný lög um Seðla- banka Íslands nr. 36/2001. Vaxtalögin heimiluðu verð- tryggingu fjárskuldbindinga í krónum með því að miðað yrði við vísitölu neysluverðs til verðtryggingar. Lög um Seðlabanka Íslands voru stefnumarkandi varðandi peningastjórn og farið úr fastgengisstefnu í fljótandi gengi með verðbólgumarkmið þar sem 12 mánaða verðbreyt- ingar skv. vísitölu neysluverðs máttu ekki skv. lögunum fara umfram 2,5% nema sem næmi 1,5% vikmörkum í hvora átt. Vitum við öll mæta vel að bankinn réð ekki við þetta. Má m.a. kenna um óstjórn í peningamálum, röngum skráningum lána í stór- greiðslukerfi Seðlabankans, lánum Íbúðalánasjóðs m.a. til SPRON sem enn hefur ekki verið rannsakað og margt, margt fleira. Hins vegar var greiða umfram verðbólgu- markmiðið. Ber hann alla áhættu af gengisþróun, olíu- verði, hækkandi fast- eignaverði sem og veldur meiri verðbólgu, hækkandi vöruverði t.d. í Húsasmiðjunni vegna veðsetningar síðustu ára, skattahækkunum og að auki á vel þekktu yfirmati á vísitölu neysluverðs. Þeir sem hins vegar tóku lán árið 2005 til íbúðarkaupa hafa orðið öllu verr úti en þeir sem tóku lán árið 1995. Þar hefur m.a. heil kynslóð ungs fólks orðið undir. Hver gætir þess á Alþingi að þessi ósköp verði leiðrétt afturvirkt fyrir þessa lántakendur sem og þorra íslenskra heimila? Mér sýnist sem svo að það sé ekki nokkur maður á Alþingi sem ætlar sér að láta leiðrétta þessi ósköp. Það verður a.m.k. mikil eftirspurn eftir slíku fólki í næstu kosningum til Al- þingis Íslendinga. Heiðarleika, meiri stöð- ugleika og minni álögur Hér fer saman aðallega þrennt. Í fyrsta lagi hefur ekki ríkt stöðugleiki í efnahags- málum og álögur hafa aukist. Í öðru lagi hafa fjármála- stofnanir brotið lög og reglur og glatað trúverðugleika sín- um hjá almenningi. Í þriðja lagi virðist sem þingheimur og ríkisstjórn gangi aðeins erinda kröfuhafa bankanna en ekki fjölskyldna í landinu. Hér þarf að koma til raunsæ leiðrétting lána og fjármálafyrirtæki þurfa að auka trúverðugleika sinn. Jafnframt þarf að tryggja að á Íslandi ríki eðlilegt sam- spil ávöxtunar og arðsemi í hagkerfinu. Bankakerfið er of stórt og þar þarf að hagræða. Það þarf að auka á skilning milli heimila og fjárfesta, m.a. vegna ávöxtunar á lífeyri landsmanna. Það þarf að ríkja heiðarleiki í bankakerfinu og eðlilegir búskapahættir í fjár- málum þar sem ekki er hægt að heimta af kotbóndanum meira en tún hans ber. ríkissjóður nánast skuldlaus á þessum tíma. Allt vekur þetta athygli og ber að hafa í huga þegar litið er á niðurstöðu eft- irfarandi útreikninga. Hvaða þátt áttu fulltrúar núverandi ríkisstjórnar á Alþingi í því að dregið hefði úr þenslunni á ár- um áður? Gerum ráð fyrir að lánið vari út árið 2011. Lánstíminn spannar tímabil sem hefur einkennst af stöðugleika fyrir 1995, óeðlilegri þenslu sem Seðlabankinn réð ekkert við 2006 til 2008 sem og hruni og kreppu á tímabilinu 2008 til 2011. Ef engin verðbólga hefði verið á öllu tímabilinu væri hér um að ræða heildar- greiðslu með vöxtum upp á um 28 milljónir kr. Ef Seðlabankinn hefði ráðið við verðbólguna og haldið henni að meðaltali í verð- bólgumarkmiði sínu, þ.e. 2,5%, væri um að ræða heildar- greiðslu með vöxtum og verð- bótum upp á um 34 milljónir króna. En raunin varð önnur. Þar sem Seðlabankinn réð ekki við verðbólguna varð heildargreiðslan um 40 millj- ónir kr. með vöxtum og verð- bótum. Um er að ræða 6 milljónir kr. sem lántakandinn þarf að Vort verðtryggða Ísland Eftir Svein Óskar Sigurðsson Sveinn Óskar Sigurðsson » Það er ekkert að því að spyrja og grennslast fyrir um hvort rétt sé staðið að útreikningum fjármálastofnanna á Íslandi. Höfundur er MSc í fjár- málum, MBA og BA í heim- speki og hagfræði. Lífeyrissjóðirnir ættu að sýna þann vilja og þrótt að kaupa aflandskrónurnar fyrir eign sína í gjaldeyri, en hún hefur að undanförnu að mestu verið í erlendum hlutabréfum, sem fallið hafa í verði á mörkuðum erlendis. Greinarhöfundur hefur áð- ur borið fram tillögur í þá átt að lífeyrissjóðirnir seldu gjaldeyri og keyptu af- landskrónur. Þær væru not- aðar til að kaupa auðar íbúðir hér heima, sem aftur væru leigðar fé- lags- mönnum lífeyr- issjóðanna. Þeir sætu fyrir sem mest hefðu greitt í líf- eyrissjóð og ætti þannig mest inni. Það er ótrú- legt hvað hagkerfið tekur við sér þegar fasteignir seljast. Það er í fréttum í dag (23/8) að Danir vinir okkar ætli að auka hagvöxtinn hjá sér með því að kaupa og selja fast- eignir. Svo verður viðhald aukið og íbúðir og stór hús gerð upp. Í þessum tillögum grein- arhöfundar er gert ráð fyrir því að greiðslur úr lífeyr- issjóðum verði gerðar skatt- frjálsar svo sem eftirlaun. Ríkið fær meira í virð- isaukaskatt og græðir á öllu saman með hærra útsvari til skólanna. LÚÐVÍK GIZURARSON hæstaréttarlögmaður. Enn um aflandskrónur Frá Lúðvík Gizurarsyni Lúðvík Gizurarson Bréf til blaðsins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.