Morgunblaðið - 29.08.2011, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 29.08.2011, Blaðsíða 19
Ég tel það hafa verið forrétt- indi að kynnast slíkum mann- kostamanni, sem Gunnar var. Heimurinn er fátækari nú þegar hann er allur. Vilhjálmur Eyþórsson. Minn gamli vinur, Gunnar Dal, er dáinn. Segja má að kynni okkar hafi hafist óbeint, kringum 1967, er ég var bekkjarfélagi Jónasar, sonar hans, nú sálfræðings, í Landsprófsbekk í Gagnfræða- skóla Kópavogs. En þá kynnti Jónas mig fyrir smáritum föður síns; svo sem Varnarræðu Só- kratesar eftir Platón. Seinna, í menntaskóla, kring- um 1972, minnist ég þess að hafa verið mjög innblásinn af sýn Gunnars Dal á vægi menn- ingar og lista í þjóðfélaginu. Gunnar hitti ég þó ekki í eigin persónu fyrr en ég tók rithöf- undaviðtal við hann kringum 1982, sem birtist svo í Morg- unblaðinu. Árið 1983 fékk ég að sitja í verklegum tíma hjá honum er hann kenndi heimspeki í Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti, er ég nam uppeldis- og kennslu- fræði til kennsluréttinda við HÍ. Gustaði þar mikið af honum. Og það var mikils virði fyrir mig þegar hann bar alúðlegt lof á fyrstu ljóðabókina mína, 1989, sem og þær næstu á eftir. Frá þeim tíma gerðist ég einnig þaulsætinn í sama kaffi- húsahópi og hann, æ síðan. Var sá hópur mjög kenndur við nafn Gunnars Dal, enda lagði hann mikið upp úr honum í almenn- ingstengslum sínum sem rithöf- undur. Var sá hópur þá á Kaffi Hressó, og síðan á Kaffi París, en Gunnar taldi sig muna eftir þessum hópi óslitnum á stöðum kringum Austurvöll allt síðan á fjórða áratugnum. Á árunum í kringum 1998 þáði hann síðan að vera í upp- lestrarfélagi skálda, því er ég nefndi Hellasarhópinn, og var sá hópur þá skilgreindur þannig, að þar væru þau skáld sem hefðu vitnað mikið í menningu forn-Grikkja í ljóðum sínum. Auk okkar tveggja voru fasta- félagar þeir Sigurður A. Magn- ússon og Kristján Árnason. (En sá hópur lifir áfram enn, í frjáls- legra formi, undir nafninu Hell- as-hópurinn.) Gunnar Dal átti ríkastan þátt í að breyta kaffihúsahópnum okkar í skáldahóp. Af samtölum hans eru mér minnisstæð efni svo sem: um tunglið sem tákn í evrópskri goðsögu; um samfélag apakattanna á Indlandi; kynni hans af goðsagnarithöfundinum Robert Graves á Spáni; og reynsla hans af mötuneytum á Spáni á æskuárum sínum. Einn- ig hreifst ég af raunsæislegum tökum hans á lífshlaupi fólks í fræðibókinni hans Grískir heim- spekingar. Mér er ljúft að minnast hans með því að birta brot úr ljóði mínu Blómið svarta, vegna þess að titillinn minnir mig á ljóð úr forn-indversku bókmenntasög- unni, en innihaldið fjallar um gríska goðsögu. En í sínu bundna formi, í bók minni Kvæðaljóðum og sögum (2008), endar það á þessu erindi: Dísina svo örmagna burt dregur, og loks við tekur dimmur Heljar- vegur. Vetrarlangt mun móðir hennar leita, miður sín og kornvöxt ekki leyfa. Tryggvi V. Líndal. Ég hef verið aðdáandi Gunn- ars Dal áratugum saman og á nokkrar af bókum hans. Vissi að hann sat á morgnana niðri á Café París og langaði oft að fara og hitta hann til að ræða heim- spekina og trúmálin. Eitt sinn er ég var með Spiri- tual Emergency eftir heilabæð- ingu og uppskurð árið 2004, eða kundalini-krafturinn var kominn upp yfir höfuðið á mér, stóð ég fyrir utan Borgarspítala og hringdi í hann. Var einnig með höfuðkúpubrot efst á höfðinu sem læknarnir á B-2 uppgötv- uðu aldrei. Ég var að reyna að fá að leggjast aftur inn á Borg- arspítalann, en sagt var að ekk- ert pláss væri til á allri stofn- uninni. Ég hringdi til Gunnars og talaði við hann í klukkutíma í gemsann minn fyrir framan spítalann og sagði honum alla sögu mína, að ég hefði verið dul- fræðinemi frá 12 ára aldri. Stjórn Ganglera hringdi alltaf í mig þegar út kom bók eftir Gunnar og ég keypti þær. Sagði honum hver meistari minn væri og að ég hefði fengið margar hugljómanir og innri lögmál í vitundina. Í lok samtalsins sagði Gunnar við mig: „Þú ert barn ljóssins.“ Í júní sl. heimsótti ég Gunnar á Hrafnistu í Hafnarfirði með bók frá námskeiði þar sem öll mýstíkin er útskýrð út frá geó- metríu, stærðfræði, Binary se- quences og Fibernocci sequen- ces ásamt blómavendi. Í bókinni eru ótal teikningar af hinum ýmsu vitundum skv. geómetr- ískum teikningum. Ekki var haft fyrir að snyrta Gunnar svo ég fékk lánuð skæri og snyrti gráu augabrýrnar hans, sem uxu nán- ast niður fyrir augun og augn- hárin. Við settumst inn á setu- stofu og spjölluðum saman í tvær klukkustundir. Þegar ég sýndi honum hið geómetríska form Kristvitundarinnar sagði Gunnar: „Ég er í Kristvitund- inni nú þegar.“ „Já,“ svaraði ég, „ég veit það“, en Kristvitundin er alhvít með bleikum tón og þangað var ég einu sinni tekin. Þar er óumræðanlega mikill kærleikur og viska. Nú er Gunn- ar, okkar merkilegasti heim- spekingur síðustu og þessarar aldar, farinn í Ljósið. Ég er svo þakklát fyrir að hafa drifið mig í þessa heimsókn til hans á DAS. Munurinn á Gunnari og Páli Skúlasyni, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands, er að í heim- speki Páls er enginn Guð til, en Aristóteles klauf Guð frá heim- spekinni. Að lokum vil ég senda honum ljóð eftir mig er ég orti eftir að hafa byrjað á öðrum kafla um Ljósið eftir Richard P. Feyn- mann nóbelsverðlaunahafa. Bók- in er um skammtafræði Ljóss- ins. Ljóðið heitir Skammtafræði vitundarinnar: Vitundin drakk í sig Ljósið og mettaðist. Endurvarpaði og endurgaf Myrkrinu. Þannig var Gunnar Dal. Gaf ætíð frá sér Ljós og nú er hann kominn til sjálfs Krists í Krist- vitundinni. Sennilega var þetta síðasta líf Gunnars, nema hann ákveði að koma aftur til að kenna mannkyninu visku og kærleika Krists. Sigfríð Þórisdóttir. Gunnar Dal, minningin um þig, orð þín til mín, mun lifa í huga mér og hjarta alla mína daga. „Ég er ekki jafnfús til farar og vind- urinn, samt verð ég að kveðja. Við förumennirnir, sem leitum jafnan hins fáfarna vegar, hefjum engan dag, þar sem við gistum að kveldi, ekkert sólris kemur til okkar, þangað sem sólsetrið kvaddi okkur. Við ferðumst, meðan jörðin sefur. Við erum fræ hinnar lífseigu jurtar, og þegar blóm hennar opnast, kemur vindurinn og ber okkur um jörðina. Fáir voru dagar mínir meðal ykkar og orð mín enn færri. En hætti rödd mín að hljóma í eyrum ykkar og fölni ást mín í minn- ingu ykkar, þá mun ég koma aftur með auðugra hjarta og tungu sem auðsveipari er andanum, og tala til ykkar.“ (Spámaðurinn bls. 91) Kæri vinur, hvíl í faðmi Drottins og blessuð sé ávallt minning þín. „Því að hvað er það að deyja annað en standa nakinn í blænum og hverfa inn í sólskinið … Og þegar jörðin krefst líkama þíns, muntu dansa í fyrsta sinn “ (Úr Spámanninum) Sá Guð sem við trúum á er Guð allrar huggunar. Jónína Benediktsdóttir. Hönd er stirð, og hjartað slær ei meir. Harpan er þögnuð, brostinn strengur hver. Í týndan grafreit lík mitt lögðu þeir. Ljóð mitt skildi ég eftir handa þér. Úr fortíðinni, minni gleymdu gröf, af gulum blöðum flýgur kveðja mín á vængjum tímans yfir aldahvörf, og einhvern tíma kemur hún til þín. (Gunnar Dal) Ég er mikill gæfumaður að hafa kynnst Gunnari Dal fyrir 20 árum. Hann tók mig strax fagnandi í fangið og frá þeirri stundu urðum við nánir vinir og sálufélagar. Gunnar átti meiri þátt í að mennta mig og móta en nokkur annar maður frá þeim tímamótum. Við áttum mjög langar samverustundir bæði í Hveragerði og á Hringbrautinni. Hann miðlaði af þekkingu sinni og reynslu um alheiminn, þroskaferil mannsins og tilgang lífsins. Þess á milli sátum við að tafli. Köllun Gunnars var að fræða og mennta. Að sá fræjum fróð- leiks og visku. Hann leit á sig sem sáðmann eins og hann orð- aði það sjálfur: „Rithöfundur er sáðmaður ef hann er nokkurs virði. Hann þarf að dreifa fræj- um og vindurinn dreifir fræj- unum, sama hvort hann blæs með eða móti.“ Hann sagði um sitt lífsstarf: „Ég byrjaði að skrifa um indverska hugsun og austurlenska hugsun vegna þess að hún var upphafið í tíma. Síð- ar skrifaði ég ekki minna um gríska hugsun og enn síðar um hugsun Vesturlandabúa. Ég hef reynt að sýna fram á að þetta er eðlileg samfelld þróun.“ Ég átti nokkur viðtöl við Gunnar í ríkisútvarpinu 1997 og 1998, m.a. um upphaf og enda- lok alheimsins, þróun mannsins, heimspeki og trúarbrögð og kristna kirkju. Árið 1999 kom síðan út samtalsbók okkar fé- laga þar sem við ræddum um eðli mannsins og tilgang lífsins. Að því verki loknu dró Gunnar saman niðurstöðu af lærdómi sínum og rannsóknum og bað mig að koma henni á framfæri hvenær sem færi gæfist. Hún er þessi þrjú mikilvægu orð: Guð er til. Úr lindunum djúpu leitar ást guðs til þín yfir öll höf. Hún ferjar þig yfir fljótið og færir þér lífið að gjöf. Og söngnum sem eyrað ei nemur þér andar í brjóst. Dreymi þig rótt, liljan mín hvíta sem opnast á ný í nótt. (Gunnar Dal) Baldur Óskarsson. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2011 Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi PÁLL KRISTINSSON Vélstjóri Njarðvíkurbraut 32 Innri-Njarðvík Lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 26. ágúst. Útför auglýst síðar. Kristinn Pálsson, Björg Valtýsdóttir, Elín Margrét Pálsdóttir, Sigurður S. Guðbrandsson, Vilhelmína Pálsdóttir, Ingólfur Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma RAGNHEIÐUR JÓNA JÓNASDÓTTIR Hraunbæ 76 lést á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn 26 ágúst. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju miðvikudaginn 31 ágúst kl 13. Þeir sem vilja minnast hennar er bent á FAAS. Þorsteinn S. Ólafsson, Ólafur J. Þorsteinsson, Hanna D. Gunnarsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson, Guðrún Guðmundsdóttir, og barnabörn. ✝ Þuríður Guð-mundsdóttir fæddist 22. apríl 1921 í Reykjavík. Hún lést á Drop- laugarstöðum 18. ágúst 2011. Foreldrar Þur- íðar voru Ásrún Jónasdóttir hús- móðir og Guð- mundur Þor- grímsson trésmíðameistari. Ásrún fædd- ist á Halldórsstöðum í Reykja- dal í Þingeyjarsýslu 1892 og lést í Reykjavík 1985. Guð- mundur fæddist í Efri-Rauðs- dal á Barðaströnd 1888 og lést í Reykjavík 1962. Bræður Þur- íðar voru Jónas Guðmundsson deildarstjóri á Ritsímanum, f. 1918, d. 1997. Hann var kvæntur Helgu Ó. Jóhannsdóttur, f. 1922 á Seyðisfirði. Gunnar Guð- mundsson gull- smiður, f. 1930, d. 1964. Fyrrverandi maki Þuríðar var Búi Petersen kaupmaður, f. 1919 í Reykjavík, d. 1973. Þau slitu samvistir 1963. Dóttir þeirra er Ásrún Lilja Petersen, f. 1953 í Reykjavík. Maki hennar er David John McClean, f. í Londonderry 1955. Sonur þeirra er John Búi McClean eðlisfræðingur, f. í Lond- onderry 1985. Útför Þuríðar fer fram í kyrrþey. Lítil stúlka sem ólst upp á sjötta áratugnum átti sér uppá- haldsfyrirmynd í vinahópi for- eldra sinna. Það var falleg kona, ljóshærð og með einstak- lega blíð, brún augu. Í huga stúlkunnar líktist konan einni skærustu kvikmyndastjörnu þess tíma, henni Kim Novak, hvorki meira né minna! Síðan var þessi kona svo góð við stúlkuna, veitti henni mikla at- hygli þegar hún kom í heim- sókn, en því var ekki alltaf að heilsa hjá fullorðnum gestum. Að auki var hún líka frænka hennar! Átta ára átti telpan síðan því láni að fagna að fá að dvelja hjá fallegu konunni og manni henn- ar í heilar sex vikur, því for- eldrarnir voru erlendis. Heimili hjónanna var einstaklega fal- legt og svo áttu þau líka hund, hana Siggí. Frúin var að auki með mikil verkefni heima, en hún litaði ljósmyndir á listileg- an hátt og var mjög eftirsótt sem slík, en þetta var fyrir tíma litmynda. Telpan drakk í sig þá list og reyndar allt sem vinkona hennar, eða öllu heldur fóstra, gerði. Þau hjónin voru þá barnlaus en þráðu að eign- ast barn. Því voru gælurnar enn meiri í þessu stutta fóstri, sem lifir í minningunni eins og gerst hafi í gær. Þau Þuríður Guðmundsdótt- ir, eða Didda, og Búi Petersen voru sjálfsagður hluti æsku minnar enda tíðir gestir á heimilinu og við hjá þeim. Stuttu eftir að fóstri mínu lauk, fengu þau heitustu ósk sína uppfyllta, þegar Ásrún Lilja dóttir þeirra kom til sög- unnar. Mikil var gleði vina minna. Ásrún og móðir hennar áttu afar fallegt samband. Fékk ég að fylgjast með uppvexti Ás- rúnar – allt þar til hún komst á táningsárin og ég orðin upp- tekin móðir og námsmaður. Ég uggði ekki að fyrr en Ásrún var orðin fullvaxta, stúdent og komin á erlenda grundu. Ásrún giftist á Írlandi og býr þar enn með fjölskyldu sinni, en afar trygg móðurjörðinni.. Þuríður var mikil vinkona móður minnar og Búi einn besti vinur föður míns, enda hesta- maður eins og hann. Búi rak verslun við hlið ljósmyndaversl- unar Hans Petersen, kennda við föður hans, en Búi verslaði á sumrin aðallega með allt sem veiðimenn vanhagaði um, á vetrum með leikföng og tóm- stundavörur. Ég fékk tækifæri til að vinna sumarlangt og um jól hjá Búa, sem var skemmti- leg og góð reynsla. Langt er síðan Búi Petersen féll frá. Þuríður – Didda, eins og ég þekkti hana, lét sér annt um mig alla tíð. Alltaf fann ég sömu elsku frá henni og hvatn- ingu. Þær móðir mín héldu góðu sambandi allt fram að því að móðir mín féll frá fyrir fjór- um árum. Þuríður var sjúkling- ur síðustu áratugi en ég fékk reglulega frásagnir af líðan hennar, því móðir mín var iðin við heimsóknir. Sjálf skammast ég mín fyrir að hafa ekki sótt meira til hennar. Fyrir skömmu skaut niður í kollinn á mér að ég yrði strax, á stundinni, að heimsækja fóstru mína. Hún var orðin afar veikburða og blundaði, svo fal- leg en þreytt. Tók ég um hönd hennar, kyssti enni, þakkaði fyrir umhyggju og elsku og bað fyrir henni. Nú er mál að þakka aftur fyrir sig og fela vinkonu og fóstru almættinu. Lára Margrét Ragn- arsdóttir. Látin er í hárri elli Þuríður Guðmundsdóttir eða Didda eins og hún var jafnan kölluð. Didda var konan hans Búa Petersen, móðurbróður okkar, og var því ein af þeim fullorðnu manneskjum sem vörðuðu bernsku okkar og annarra barnabarna Guðrúnar móður- ömmu okkar. Búi var þriðji elstur af sex systkinum, fæddur 1919 og látinn 1973. Þau systk- in eru nú öll látin og einnig makar þeirra. Didda var sú þeirra sem lifði lengst og hefur hún einnig lifað flestar vinkon- ur sínar. Hún var ljúf í um- gengni og barngóð, hafði fallegt bros, fríð og glæsileg og bar sig vel og var ævinlega smekklega klædd. Didda var ungleg fram eftir öllum aldri, óvenju slétt í andliti, orðin níræð, með ljósan háralit sem hélst óbreyttur. Samt voru síðustu árin henni oft erfið vegna ýmissa kvilla þó að vel væri hugsað um hana á Droplaugarstöðum. Fjölskylda Diddu var samheldin og ástrík, móðir hennar Ásrún var fé- lagslynd og söng í kór, mynd- arleg húsmóðir og gestrisin enda tíður gestagangur af skyldfólki utan af landi. Fað- irinn hæglátur og ljúfur, spilaði á orgel, mikill listasmiður og skar út og smíðaði húsgögn sem prýddu heimilið og síðar heimili Diddu. Gott samband var milli Diddu og bræðra hennar Jón- asar og Gunnars. Foreldrar Diddu áttu sumarbústað við Hafravatn sem okkur börnun- um þótti langt uppi í sveit en þangað var okkur stundum boðið í berjamó. Bústaðurinn stóð uppi í hlíð og við fengum að skríða í berjaleit um brekk- una sem okkur þótti brött. Í minningunni var ævinlega sól í þessum berjamó. Ásrún mamma Diddu bað svo mág- konur hennar að færa sér aftur hratið þegar þær höfðu lagað krækiberjasaftina sem þá var gjarnan gerð og svo stráði hún hratinu um móann til að fá meira berjalyng. Didda og Búi ferðuðust til suðrænna landa löngu áður en það varð algengt og tóku þá gjarnan kvikmyndir á 8mm vél af ferðum sínum. Það þótti æv- intýralegt. Bæði voru þau handlagin, Búi áhugasamur og góður smiður og gerði skartgripi í tómstundum og einnig mikill hestamaður og Didda vann um tíma, löngu fyrir daga lit- mynda, við að lita stækkaðar svarthvítar ljósmyndir, talsvert nákvæmnisverk. Einn veturinn fékk Hans bróðir að dvelja hjá þeim hjónum nokkrar vikur þegar foreldrar okkar fóru utan og voru þau honum mjög góð. Didda og Búi eignuðust eina dóttur 1953, Ásrúnu Lilju, og var hún þeim og móðurforeldr- unum mikill gleðigjafi. Guð- mundur afi gætti þess ávallt að vera nýrakaður þegar hún kom í heimsókn svo að skeggbrodd- arnir styngju hana ekki. Ásrún hefur búið erlendis undanfarna áratugi, lengst af á Norður-Ír- landi, en hefur komið heim til Íslands reglulega með manni sínum John og syni þeirra John Búa til að sinna móður sinni. Didda bjó lengi ein eftir að þau Búi slitu samvistir og hann lést. Hún vann þá hjá Símanum en fór síðar á Droplaugarstaði þar sem hún dvaldi frá árinu 2004 og naut góðrar umönn- unar. Við systkinin sendum Ás- rúnu og fjölskyldu hennar inni- legar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning góðrar konu. Guðrún, Hans, Elín og Júlíus Agnarsbörn. Þuríður Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.