Morgunblaðið - 29.08.2011, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 29.08.2011, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2011 Aflahæsti báturinn á strandveiðun- um í sumar var Sædís ÞH með 42,6 tonn. Af afla Sædísar voru um 30 tonn af þorski, óslægðum, og um 12 tonn af ufsa. Hefðu sambærilegar heimildir verið leigðar á kvótamark- aði hefðu þær kostað útgerðina rúm- lega ellefu milljónir króna. Er þá miðað við að kíló af þorski í leigu fari á 320 krónur og ufsinn á 120 krónur. Fram kom í Morgunblaðinu á þriðju- dag að ætla mætti að brúttóverð- mæti afla Sædísar hefði verið 11,5 milljónir króna. Meðalaflinn var um 12,4 tonn Hefðu þessar heimildir verið keyptar varanlega hefði útgerðin þurft að greiða fyrir þær hátt í 70 milljónir króna. Miðað er við að greiddar séu tvö þúsund krónur fyrir kíló af þorski og rúmlega 500 krónur fyrir kíló af ufsa. Alls úthlutaði sjáv- arútvegsráðherra 8.500 tonnum í strandveiðarnar í sumar og stund- uðu hátt í 700 bátar þessar veiðar. Meðalafli á bát var um 12,4 tonn. Algengt var að strandveiðibátar færu í um og yfir 20 róðra, en það var misjafnt eftir svæðum. Aflahæstu bátarnir fóru í mun fleiri róðra og Sædís ÞH fór í 50 róðra á strand- veiðunum og þrettán aflahæstu bát- arnir fóru allir í 40 róðra eða fleiri á þeim fjórum mánuðum sem veiðarn- ar voru leyfðar. Aðeins mátti veiða fjóra daga í viku, frá mánudegi til og með fimmtudegi, og mest mátti koma með 650 þorskígildistonn í land á dag. aij@mbl.is Morgunblaðið/RAX Veiðar Sjávarútvegsráðherra úthlutaði 8.500 tonnum í strandveiðarnar í sumar og stunduðu hátt í 700 bátar veiðar. Meðalaflinn var 12,4 tonn. Aflaheimildir hefðu kostað ellefu milljónir Kristján Jónsson kjon@mbl.is Hrun í stofnum lunda og annarra sjó- fugla við landið veldur sem kunnugt er miklum áhyggjum. En einnig þyk- ir ljóst að víða um land sé refurinn farinn að þrengja að mófuglum. Refa- veiðar hafa minnkað vegna lægri framlaga eftir 2008 og hefur niður- staðan að mati skotveiðimanna orðið sú að fuglavarp líður fyrir ágang tóf- unnar. Refaskytta segir að í sumar hafi það gerst í fyrsta sinn í manna minnum að refur hafi étið úr öllum gæsahreiðrum í Skorradal. Í ársriti Skotveiðifélags Íslands, Skotvís, er mynd af læðu sem var skotin á Vaðlaheiði snemma í júlí í sumar. Var hún með 23 þúfutittlings- unga í kjaftinum! Bóndi hennar var einnig skotinn, hann var með sjö þúfutittlingsunga, einn fullorðinn þúfutittling og eina hagamús. Hjónin hafa veitt þetta allt saman á einum sólarhring. Ekki eitt einasta par með unga Rætt er í Skotvís við Birgi Hauks- son, refaskyttu úr Skorradal, sem hefur veitt meira en 100 refi það sem af er árinu. „Yfirleitt voru um 50 gæsapör með unga á Skorradalsvatni en nú er ekki eitt einasta par með unga,“ segir Birgir í viðtalinu. „Sama er að segja af RAMSAR-fuglafriðlandinu við Hvanneyri þar sem var mesta gæsa- framleiðsla í Borgarfirði. Þar var étið úr nánast öllum hreiðrum í sumar,“ segir Birgir. Hann segir að tófan hafi lagst á lömb í Ausu, næsta bæ við friðlandið, og þegar ábúendur hafi kvartað hafi Borgarbyggð veitt „smáaurum“ til að fækka ref. Birgir hafi verið kallaður til. „Þarna var algjör auðn, eitt kjóa- par með hreiður og búið. Þarna skaut ég fjórar tófur og vissi af alla vega einni í viðbót. Ég held að engir gæs- arungar hafi komist þarna upp í sum- ar.“ Páll S. Brynjarsson sveitarstjóri segir það rétt að vegna kreppunnar hafi orðið að minnka mjög fjárveit- ingar til refaveiða og heimildarmenn segi að refurinn virðist nú víða vera að flæða yfir svæði þar sem lítið hafi verið um hann áður. Hann sæki jafn- vel í sumarhúsabyggð. Menn hafi ákveðið að leggja meiri áherslu á vetrarveiði en sumir álíti skilvirkara að eyða grenjunum. „Þetta nær hámarki hjá okkur frá hausti 2007 fram á vorið 2008, þá drápum við 470 refi og það kostaði sveitarfélagið um 10 milljónir króna,“ segir Páll. „Við fengum stuðning upp á tæpar tvær milljónir frá ríkinu, alls fóru því um 12 milljónir í verkefnið. Síðustu árin hefur Borgarbyggð látið drepa 270 refi. Kostnaðurinn hefur verið tæpar fjórar milljónir en svo höfum við fengið eina milljón frá rík- inu. En ríkið hefur nú ákveðið að hætta alveg að styrkja refaveiði.“ Björn Þorsteinsson, líffræðingur og rektor kennslumála á Hvanneyri, segir að ekki hafi enn verið gerð vís- indaleg rannsókn á ástandi gæsa- varpsins á RAMSAR-friðlandinu, en 1. september verði Ragnheiður Sig- urðardóttir vistfræðingur í fullu starfi forstöðumanns Votlendisset- ursins sem friðlandið heyri undir. Er stefnt að því að setja upp vöktun þannig að hægt verði að fylgjast með stöðu mála ár frá ári og fá raunhæfan samanburð. Brandöndum hefur fjölgað Björn er mikill áhugamaður um líf- ríkið en segist ekki geta staðfest frá- sögn Birgis af stöðu gæsavarpsins þótt vitað sé að refir hafi sést á svæð- inu og verið drepnir. Hann segir að óvenjumikið hafi verið af gæs á svæð- inu í sumar. En gera verði talningu og stunda aðrar rannsóknir og ekki megi gleyma að margt hafi áhrif á viðkomuna, breyturnar margar, þannig hafi vorið verið óvenju kalt. Sjálfur hafi hann talið brandendur á svæðinu og þeim hafi fjölgað geysi- mikið. Tófan sögð eyða fuglalífi Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Rebbi Snjóhvítur í vetrarhárum.  Mikið étið úr hreiðrum í Borgarfirði  Refaveiðar hafa minnkað vegna lægri framlaga  Tófa í sumarhúsabyggð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.