Morgunblaðið - 29.08.2011, Blaðsíða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2011
Það stefnir í mjög gott haust í
bíóhúsum borgarinnar, því
margar íslenskar bíómyndir
verða frumsýndar á næstunni.
Í lok vikunnar verður myndin
Á annan veg eftir Hafstein G.
Sigurðsson frumsýnd og viku
seinna verður nýjasta Sveppa-
myndin í leikstjórn Braga Hin-
rikssonar frumsýnd. Búast má
við að Græna ljósið verði með
einhverja hátíð í haust en
stærsti viðburðurinn er Al-
þjóðlega kvikmyndahátíðin í
Reykjavík sem verður núna í
seinni hluta septembermán-
aðar. Á hátíðinni verður mynd-
in Eldfjall í leikstjórn Rúnars
Rúnarssonar frumsýnd en þar
verður úr mörgum góðum er-
lendum bíómyndum að velja,
flestallt myndir sem íslensk-
um áhorfendum gæfist
annars ekki kostur á
að sjá. Hrönn Mar-
inósdóttir hefur
stýrt hátíðinni
með sóma frá
upphafi en það
var árið
2003 sem
hún var
haldin í
fyrsta
sinn.
Bíóveisla
HAUSTIÐ
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Það er mikil veisla í Kringlunni
þessa dagana þarsem Sambíóin
halda hátíð sem þeir nefna Kvik-
myndadagar í Kringlunni. Margar
perlur verða til sýningar, einsog
The Tree of Life, Red Cliff, Baaria,
Rabbit Hole og fleiri.
The Tree of life hefur lengi verið
beðið eftir, en það er nýjasta mynd
hins sérlundaða leikstjóra, Terrence
Malick. Hann vakti mikla athygli
með bíómyndunum Badlands (1973)
og Days of Heaven (1978) sem hann
vann leikstjóraverðlaunin fyrir árið
1979. En svo hvarf hann af sjón-
arsviðinu og gerði ekki bíómynd í
heil tuttugu ár, allt þar til hann
gerði The Thin Red Line árið 1998
sem sló líka í gegn. Síðan þá hefur
hann komið með myndir á nokkurra
ára fresti og þessi síðasta er búin að
vera lengi í framleiðslu. Upphaflega
var stefnt að frumsýningu árið 2009
en svo var því frestað um eitt ár og
svo enn eitt ár. Hún var loksins
frumsýnd í vor á Cannes-hátíðinni
og gerði sér lítið fyrir og vann að-
alverðlaunin. Aðalleikarar mynd-
arinnar eru Brad Pitt, Sean Penn
og Jessica Chastain. Myndin er
óskaplega falleg en erfið fyrir
marga áhorfendur þarsem fáum
reglum um framvindu söguþráðar
er fylgt. Myndin hefst á tilvitnun í
Jobsbók: „Hvar varstu þegar ég
grundvallaði jörðina? ... þegar
morgunstjörnurnar sungu saman
gleðisöng og allir synir Guðs fögn-
uðu?“ Myndin fjallar um fimm
manna fjölskyldu í Texas um miðja
síðustu öld, hjón og þrjá stráka sem
þau eiga. Myndin hefst á því að
móðirin fær tilkynningu um andlát
eins sonar síns. Sean Penn sem
leikur einn strákanna, Jack
O’Brien, uppkominn segir föður sín-
um sem leikinn er af Brad Pitt að
hann hugsi um bróður sinn á hverj-
um einasta degi. Fyrir utan bygg-
inguna hjá Jack er verið að gróð-
ursetja tré og myndin fer alla leið
aftur til uppruna lífsins og alheims-
ins. Uppruni plánetna og lífsins á
jörðu er umfjöllunarefnið í þónokk-
urn tíma áður en farið er aftur til
fjölskyldunnar í Texas. Uppvexti
strákanna er síðan lýst en foreldr-
arnir sem báðir elska börn sín mik-
ið, sýna samt ást sína misjafnlega.
Faðirinn er strangur en móðirin er
það ekki.
Red Cliff
Kínverska bíómyndin Red Cliff
var gerð af John Woo árið 2008 en
rataði einhverra hluta vegna aldrei
á íslenskan markað. Um er að ræða
dýrustu mynd sem gerð hefur verið
í Asíu að sögn framleiðenda. Um-
fjöllunarefnið er fræg orrusta sem
var háð árið 208 og olli straum-
hvörfum í kínverskri sögu. Orrustan
varð í lok Han-tímabilsins og mark-
aði upphaf hinna þriggja konungs-
ríkja sem áttu eftir að vera allsráð-
andi í Kína í nokkurn tíma á eftir. Í
upprunalegri gerð myndarinnar er
hún tæpir fimm klukkutímar að
lengd og var sýnd í Asíu í tveimur
hlutum. En þegar hún var sýnd á
Vesturlöndum var hún sýnd í einum
hluta og mun styttri, aðeins rúmir
tveir klukkutímar. Það er sú útgáfa
sem er til sýningar á hátíðinni í
Kringlunni. Myndin sló öll aðsókn-
armet í Kína en gekk ekki eins vel á
Vesturlöndum. Woo sem leikstýrði
myndinni hefur sagt svo frá að hann
hafi ekki fylgt sögulegum stað-
reyndum nema að litlu leyti. Upp-
lifun nútíma áhorfenda hafi verið
látin ganga fyrir. Woo sem varð
heimsfrægur fyrir hasarmyndir
einsog Face/Off og Mission Imposs-
ible 2 lætur ekki staðreyndir vera
að þvælast fyrir sér þegar hann
gerir hasarmyndir.
Rabbit hole
Nicole Kidman kom þessari mynd
af stað og leikur eitt aðalhlutverkið
í henni. Myndin er gerð eftir sam-
nefndu leikriti eftir David Lindsay-
Abaire sem var frumsýnt árið 2005.
Bíómyndin var frumsýnd í desem-
ber á síðasta ári. Þetta er drama
sem fjallar um par sem reynir að
komast yfir andlát sonar síns. Þau
hafa mismunandi meiningar um
hvað sé besta aðferðin, en Becca
(Kidman) vill selja eða henda öllu
sem minnir á son þeirra en Howie
(Aaron Eckhart) vill það ekki. Hann
vill líka að þau eignist annað barn
og því er Becca andsnúin. Þetta er
drama sem fékk ágæta dóma en
ekki mikla aðsókn í Bandaríkjunum.
Baaria og fleiri
Á hátíðinni er ítölsk mynd sem
hljómar spennandi en hún nefnist
Baaria og var frumsýnd árið 2009.
Hún var opnunarmynd
Feneyjar-festivalsins það ár og
fjallar um lífið í þorpi á Sikiley á
síðustu öld. Tímabilið sem hún
spannar er ein sextíu ár eða frá því
um 1920 til 1980. Myndin fjallar um
þrjár kynslóðir á þessum tíma og er
öðrum þræði upphafning á baráttu
vinstri manna og öfga-vinstri
manna á Ítalíu.
Þá er bandaríska bíómyndin Fair
Game á hátíðinni en hún fjallar um
hið fræga njósnamál Valerie Plame.
Myndin er byggð á bókinni sem hún
gaf út um málið. Aðstoðarmaður
forsetans George Bush, Karl Rove,
kom upp um bandaríska njósnarann
Plame þegar eiginmaður hennar
hafði gerst svo ósvífinn að gagnrýna
stefnu forsetans. Málið vakti heims-
athygli og gaf Plame á endanum út
bók um málið en á henni byggir bíó-
myndin.
Bandaríska bíómyndin Hesher er
sýnd á hátíðinni með þeim Joseph
Gordon-Levitt og Natalie Portman í
aðalhlutverkum. Hún var frumsýnd
í vor og fékk misjafna dóma en seg-
ir frá einfara sem hefur gaman af
eldi og af því að hatast út í sam-
félagið. Um fyrstu bíómynd leik-
stjórans Spencers Susser er að
ræða.
Casino Jack er bandarísk bíó-
mynd með Kevin Spacey í aðal-
hlutverki. Þetta er pólitísk satíra
sem er byggð á sannsögulegum at-
burðum í Washington DC. En árið
2006 var Jack Abramoff, bissness-
maður og lobbýisti, dæmdur í
margra ára fangelsi ásamt embætt-
ismönnum í Hvíta húsinu fyrir ým-
iskonar svindl og svínarí.
Falleg Bíómyndin The Tree of Life er ekki fyrir alla, enda myndin löng og fylgir fáum reglum eða formúlum um frásagnarstíl en hún er óskaplega falleg.
Uppruni lífsins kominn á hvíta tjaldið
Margar metnaðarfullar myndir á Kvikmyndadögum Kringlunnar Allt frá hasarmyndum
til ljóðrænna og pólitískra mynda Stefnir í gott kvikmyndahaust í bíóhúsum borgarinnar
Hrönn Marinósdóttir