Morgunblaðið - 29.08.2011, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2011
✝ Hanna LiljaValsdóttir
fæddist á Fæð-
ingarheimilinu í
Reykjavík 22.
apríl 1975. Hún
lést af barns-
förum á Land-
spítala í Foss-
vogi 14. ágúst
2011.
Valgerður
Lilja Gísladóttir
fæddist 13.
ágúst 2011. Hún lést 20. ágúst
2011.
Foreldrar Hönnu Lilju eru
Guðrún Sigurðardóttir heim-
ilisfræði- og útikennari við Var-
márskóla, f. 16. janúar 1951, og
Valur Steinn Þorvaldsson
búfræðikandídat, bóndi og fv.
ráðunautur, f. 15. apríl 1945,
þau búa á Minna-Mosfelli í Mos-
fellsdal. Systkini Hönnu Lilju
eru: 1) Sigríður Þóra Valsdóttir
viðskiptafræðingur og fjár-
málastjóri, f. 9. mars 1977,
maki 20. júlí 2002 Ingólfur
Kristján Guðmundsson við-
skiptafræðingur og fjár-
málastjóri, f. 28. nóvember
1975. 2) Sigurður Már Valsson
verkfræðingur hjá Geovest-
Haugland í Molde í Noregi, f. 2.
ágúst 1982, maki 25. júlí 2009
Dröfn Helgadóttir B.Sc. í um-
hverfis- og byggingaverkfræði
og byggingafulltrúi í Molde í
Noregi, f. 22. mars 1984.
Hanna Lilja giftist 1. febrúar
Lilja var lífsglöð og mjög fé-
lagslynd og búin listrænum
hæfileikum. Hún lagði um tíma
stund á nám í klassískum söng,
málaði myndir og var listrænn
og snjall ljósmyndari. Hún var
hugmyndarík, áræðin og kraft-
mikil og hafði jafnan mörg járn
í eldinum. Hún kom að ráðgjöf
og rekstri margra fyrirtækja
og sá fyrir stór verkefni í fram-
tíðinni. Hanna Lilja kom víða
við í atvinnulífinu og skaraði
gjarnan fram úr. Á sumrum frá
fermingu til tvítugs vann hún
hjá Hótel Eddu á Laugarvatni,
síðan hjá söluskrifstofu Flug-
leiða í Reykjavík og hjá flug-
félaginu SAS í Stavanger í Nor-
egi, hún var um tíma hótelstjóri
Hótels Eddu á Laugarbakka í
Miðfirði, á Hellissandi og í
Skógum undir Eyjafjöllum. Hún
var ferðasölumaður hjá Íslensk-
um ævintýraferðum og Activity
Group og þjónustustjóri hjá ISS
á Íslandi. Hún kenndi börnum
fyrst sem leiðbeinandi í Kárs-
nesskóla, en varð síðar kennari
í Sæmundarskóla og Folda-
skóla. Með öðrum stofnaði hún
og rak lítið netfyrirtæki á sviði
húsaleigumiðlunar, en starfaði
sjálfstætt við sölu á Zinzino-
kaffivörum þegar hún lést.
Útför Hönnu Lilju og dóttur
hennar Valgerðar Lilju fer
fram frá Grafarvogskirkju í
dag, 29. ágúst 2011, kl. 15.
Mæðgurnar verða jarðsettar í
Mosfellskirkjugarði.
2003 Gísla Kristbirni Björns-
syni lögfræðingi hjá Lagarök-
um, f. 8. janúar 1971. Foreldrar
hans eru Anna Filippía Sigurð-
ardóttir þroskaþjálfi, f. 13. júní
1954, og Björn Ottó Hall-
dórsson iðnskólakennari, f. 7.
september 1953.
Börn Hönnu Lilju og Gísla
eru: 1) Þorkell Valur, f. 15.
ágúst 2003, 2) Guðrún Filippía,
f. 18. apríl 2007, 3) Valgerður
Lilja, f. 13. ágúst 2011, d. 20.
ágúst 2011, og 4) Sigríður
Hanna, f. 13. ágúst 2011.
Hanna Lilja ólst upp á Sel-
fossi og Laugarvatni fram til 12
ára aldurs, en síðan í Mos-
fellsbæ. Hún lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum við Sund
árið 1995 og námi í Ferðaskóla
Flugleiða 1996. Hún nam ferða-
málastjórnun við Stavanger
Hotel Högskole í Noregi og út-
skrifaðist þaðan 2000, og lauk
síðan kennaraprófi frá Kenn-
araháskólanum 2008. Hanna
Elsku hjartans Hanna mín,
ástin mín, engillinn minn, engin
orð fá því lýst hvað ég sakna þín
mikið, hvar ég er. Ég hef aldrei,
fyrr en nú, skilið hvað einskis-
mannsland er, upplifi mig þar, al-
veg týndan, aleinan án þín og
sakna þín svo ólýsanlega mikið.
Söknuðurinn er endalaus, og
hann er svo sár. Sárari en nokkuð
getur lýst.
Svo sár að mig verkjar. Í
hjartað og alls staðar. Að lifa án
þín er erfitt, örugglega erfiðasta
hlutverk sem ég hef og mun
nokkurn tíma takast á við. Minn
mesti styrkur er minningin um
þig, allt sem við áttum saman, líf-
ið sem við lifðum, sem við biðum
með nýjum degi. Þessi fallega
minning sem ég á í hjartanu. Um
þig og mig, okkur saman hönd í
hönd, með Þorkel Val og Guð-
rúnu Filippíu. Þau eru svo sterk,
en sakna mömmu sinnar og syst-
ur óendanlega mikið. Stundum
tölum við um ykkur, og þau
spyrja hvar þú sért. Af hverju þú
hafir þurft að fara. Og ég veit
ekkert hverju ég á að svara, ekki
heldur spurningunum mínum.
Minningin um framtíðina sem við
plönuðum, með öllum börnunum
fjórum. Og minningin um þig
mun lifa, ég gæti þess og ásamt
okkar fólki passa ég upp á Þor-
kel, Guðrúnu og Sigríði Hönnu,
alltaf og að eilífu. Og þú passar
Valgerði Lilju. Það veitir mér
hugarró að vita af ykkur saman,
en angistin er samt eins, sökn-
uðurinn er eins.
Að fá og vinna ást þína var
mitt mesta afrek í lífinu, mitt
mesta stolt, mín mesta ást. Það
er sama hvert ég lít, mér finnst
oft að ég sjái þig. Þig með þitt
geislandi bros, fallegu augu og
mjúku varir og þitt fallega, tign-
arlega fas. Svo „absolútlí fabjú-
löss og svo absolútlí gordjöss“ …
Svo einstök. Þú ert með svo fal-
legt hjarta, svo mjúkt, svo fal-
legt. Yndislegt hjartalag, hisp-
urslaust, göfugt og hlýtt. Þannig
var hjartað þitt, þannig var ást
þín. Þannig minnist ég þín. Fyrir
það greipstu hjarta mitt. Fyrir
það elska ég þig. Alltaf. Fyrir það
sem þú ert. Og ég veit að ég hitti
þig aftur, seinna.
Haustið blæs um kalið hjarta,
þar sem eitt sinn lifði framtíðin bjarta,
og áttum þar saman, ég og þú,
okkar ævikvöld, í ást, von og trú.
Eftir stendur mynd, en enginn hljómur,
hjartað mitt er kalið, ég er tómur.
Þar birtist ætíð falleg hilling,
og lifir skært þín fagra minning.
(Gísli)
Elsku hjartans litla dóttir mín,
Valgerður Lilja, ég á engin orð
yfir ást mína á þér eða söknuð
minn til þín. Þú varst svo falleg,
svo fullkomin, svo lítil. Svo björt.
Með þitt mikla, ljósa hár. Ég
þakka Guði eilífum þökkum fyrir
að hafa fengið að kynnast þér
þennan tíma, sem þó var allt, allt
of stuttur. Að fá að halda á þér,
finna mjúka hárið þitt, halda í
hönd þína og finna hjartað þitt
slá. Það gaf mér von. Von um að
þú lifðir, og sú von var svo sæt,
svo dýrmæt. Hún veitti mér hlýju
í þessum mikla harmleik. En þú
fórst til mömmu, og ég veit að þú
gefur henni þessa sömu hlýju og
ást og þú gafst mér. Og færð alla
hennar hlýju og ást, sem er sú
mesta sem til er. Það veit ég.
Hún passar þig. Þið passið hvora
aðra.
Ég elska ykkur, alltaf,
elskandi eiginmaður og pabbi,
að eilífu,
Gísli.
Fyrir réttum tíu árum varð
hamingjan á vegi hans Gísla, son-
ar míns. Hanna Lilja gekk inn í
hans líf á fallegu ágústkvöldi og
frá þeirri stundu vissi ég að
þarna var hún komin, konan hans
Gísla míns, svo falleg, glaðleg og
skemmtileg. Það er með sárum
trega sem ég sest og skrifa þessi
kveðjuorð um hana Hönnu Lilju,
tengdadóttur mína, og hana litlu
Valgerði Lilju, dóttur þeirra
Gísla, sem kaus að kveðja okkur
aðeins sex daga gömul og fara
ásamt móður sinni þangað sem
þeim er ætlað hlutverk sem við
hin skiljum ekki. En mitt í allri
þessari þungbæru sorg og órétt-
læti þá finn til þakklætis til henn-
ar Hönnu minnar fyrir að hafa
verið hamingjan hans Gísla míns,
þó aðeins væri þennan stutta
tíma. Og ég er þakklát henni
hjartans yndislegu Valgerði Lilju
minni fyrir að hafa gengið með
okkur þennan stutta spöl.
Hanna Lilja var sterk kona og
saman voru þau Gísli sterk heild.
Það er fallegur dagur í minn-
ingunni, brúðkaupsdagur þeirra
Hönnu og Gísla, þann 1. febrúar
2003. Það voru hamingjusöm
hjón sem hófu göngu sína saman
til móts við lífið. Fjölskyldan
stækkaði og tvö sterk og yndisleg
börn, Þorkell Valur og Guðrún
Filippía, litu dagsins ljós og ólust
upp í öryggi og ástúð foreldr-
anna.
Hanna hafði byrjað í kennara-
námi í fyrra barneignarleyfi sínu
og lauk því svo í því seinna.
Hanna Lilja var nefnilega ekki í
barneignar„fríi“. Þessi tími
skyldi nýttur til gagns! Við áttum
margar skemmtilegar samræður
um kennslu- og uppeldismál því á
þeim hafði hún sterkar skoðanir,
eins og á velflestu öðru.
Skömmu eftir áramótin sögðu
þau Hanna og Gísli mér að nú
væru væntanleg fleiri barnabörn;
ekki eitt, heldur tvö. Það var ynd-
islegt að fá að fylgjast með því
hvernig fjölskyldan undirbjó
komu nýrra einstaklinga undir
dyggri stjórn Hönnu. Allt var
undirbúið af alúð og röggsemi.
Í hvert skipti sem ég kom í
heimsókn var verið að huga að
einhverju; stóru eða smáu.
Stundum fékk amman að taka til
hendinni, t.d. við að brjóta saman
pínulitlar flíkur og það var svo
falleg sjón að fylgjast með henni
Hönnu brjóta saman, raða og
ganga frá. Fyrir þessar stundir
er ég svo þakklát nú þegar þær
eru horfnar á braut, hún Hanna
Lilja mín og elsku litla Valgerður
Lilja. Litla Sigríður Hanna glím-
ir enn við að reyna að dafna á
vökudeild og við þökkum Guði
fyrir hverja stund. Eftir sitjum
við og höfum engin svör við því
hvers vegna yndisleg móðir fjög-
urra barna er hrifsuð frá þeim.
Og engin svör við því hvers vegna
lítið barn þarf að kveðja þennan
heim. En eitt veit ég þó; þær
munu ávallt lifa með okkur.
Hér gæti ég setið lengi og
skrifað um þær góðu stundir sem
við áttum saman elsku Hanna
mín og um hana litlu Valgerði
Lilju. En ég læt þessi fáu orð
nægja sem kveðjuorð til ykkar.
Ég bið góðan Guð að vaka yfir
ykkur og leiða til nýrra heima og
gefa Gísla mínum, börnunum
ykkar og öðrum ástvinum styrk í
þessari miklu sorg.
Hvílið í friði elsku Hanna Lilja
og Valgerður Lilja.
Anna Filippía Sigurð-
ardóttir, tengdamóðir og
amma.
Elsku Hanna mín. Ég þakka
þér fyrir allar þær yndislegu
stundir sem við áttum saman.
Áður en ég hitti þig fyrst hafði ég
miklar væntingar um að framtíð-
areiginkona hans Gísla bróður
míns yrði að vera falleg, fyndin
og skemmtileg kona. Svo þegar
ég hitti þig fyrst í Hlíðarásnum,
níu ára gömul, þá var ég viss um
að þú uppfylltir allar þessar
væntingar mínar. Þú varst bæði
undurfögur, bráðfyndin og stór-
skemmtileg. Þú varst augljóslega
konan hans Gísla bróður míns.
Ég veit að þín bíður mikilvægt
hlutverk hvar sem þú ert og ég
veit að þú munt klára það með
stæl eins og allt sem þú hefur
tekið þér fyrir hendur. Valgerður
Lilja, litla fallega stelpan þín, lifir
nú hjá þér og báðar munuð þið
alltaf lifa í minningu minni.
Ég gæti englanna þinna
þriggja; Kela, Duggú og Sigríðar
Hönnu, og held hlýjum örmum
utan um hann Gísla þinn. Takk
fyrir að vera yndislega eiginkon-
an hans Gísla og hjartahlýja
mamma barnanna ykkar.
Þú hafðir alltaf ákveðnar hug-
myndir um hvað væri mér fyrir
bestu í framtíðinni og þó að ég
færi aðrar leiðir þá studdir þú
mig og tókst þátt í gleðinni með
fjölskyldunni yfir velgengni
minni. Fyrir það verð ég þér allt-
af þakklát og ég veit að þú munt
alltaf vera mér nálæg og styðja
mig í því sem ég tek mér fyrir
hendur.
Megi englar guðs vaka yfir þér
og Valgerði litlu og styrkja Gísla
og börnin í sorginni. Þú munt
alltaf lifa í hjarta mínu; minningu
mína um þig mun ég alltaf varð-
veita.
Elsku Hanna Lilja mín og
elsku litla Valgerður Lilja mín.
Ég kveð ykkur með söknuði en
jafnframt djúpu þakklæti.
Fanney Ósk.
Elsku Hanna Lilja. Það voru
ákaflega slæm tíðindi sem okkur,
á Miðbrautinni, bárust að morgni
14. ágúst síðastliðinn. Ég trúi því
varla enn að svona hafi farið en
það er viss huggun í því að sjá
hversu sterkir þínir nánustu eru
á þessum erfiðu tímum. Til að
takast á við sorgina hef ég leitt
hugann að góðum minningum
gegnum árin. Mér hefur orðið
ljóst að af nógu er að taka. Minn-
ingarnar tengjast gleði og ham-
ingju sem var án efa aðalsmerki
þitt. Ég man sérstaklega eftir
skíðaferð í Kerlingarfjöll þar sem
þú hélst gleðinni uppi. Til að létta
ferðafélögum þínum lundina
dróstu upp úr fórum þínum
snældu með Patsy Cline. Þetta
var eina tónlistarefnið í ferðinni
enda langt fyrir tíma nýjustu
tækni.
Við, á Miðbrautinni fylgdumst
náið með skólagöngu þinni. Sög-
urnar frá Menntaskólanum við
Sund voru ófáar og ljóst að ýmsir
kynlegir kvistir urðu á mennta-
vegi þínum. Það má með sanni
segja að þú hafir haft einstakt lag
á að gera góða sögu enn betri.
Þegar þú varst við nám og störf í
Noregi var það fastur viðburður
þegar þú komst í heimsókn, í
skóaleyfum, að þú greindir frá af-
rekum þínum þar ytra. Á þessum
tímum varð það einnig að sið að
horfa á afdrif Clark Griswold og
fjölskyldu um hver jól.
Það var ákaflega gaman þegar
Gísli kom inn í líf þitt. Ég minnist
líka þeirrar stundar þegar þið
greinduð okkur, á Miðbrautinni,
frá því þegar þú varst ólétt og
áttir von á Þorkeli Val. Ég vil að
lokum þakka þér fyrir allar góðu
stundirnar. Ég vona að þér líði
vel á nýjum stað og að þú getir
fylgst vel með þínum nánustu.
Kristján Þorvaldsson.
Hanna Lilja var fjögurra ára
gömul, sæt lítil stelpa, þegar ég
kynntist henni haustið 1979. Ég
fékk það verkefni að passa þær
systur hana og Siggu Þóru hluta
úr degi. Á þeim tíma var ég að
vinna í Húsmæðraskólanum að
Laugarvatni en Guðrún mamma
þeirra systra var kennari við
skólann.
Næstu ár á eftir deildum ég og
Tóti mörgum stundum með Guð-
rúnu og Val og börnum þeirra.
Öll vorum við flutt á Selfoss og
samgangur var mikill.
Hanna Lilja var einstaklega
lífleg og skemmtileg strax frá
unga aldri, það háði henni þó í
æsku að hún var með barnaexem
sem olli henni bæði sársauka og
erfiðleikum. Foreldrar hennar
gerðu allt sem hægt var til að
henni mætti líða sem best, oft var
aðdáunarvert að fylgjast með
því. Leitað var til færustu sér-
fræðinga til að hún fengi sem
bestu meðferð og sem betur fer
lagaðist þetta eftir því sem hún
eltist. Hún átti annars góða
æsku, alin upp í skjóli einstak-
lega góðra foreldra og fjölskyldu.
Fyrir rúmum 20 árum flutti
fjölskyldan frá Selfossi og við það
urðu samskiptin minni. Alltaf var
gaman að hitta Hönnu Lilju og er
okkur t.d. minnisstæðar móttök-
urnar þegar við heimsóttum
hana þegar hún var hótelstýra á
Laugarbakka, þá var tekið á móti
okkur með myndarskap. Eins
þegar hún kíkti við á Víðivöllun-
um, það fylgdi henni frískandi
blær, gleði og húmor sem gott er
að minnast.
Nú er allt í einu öllu snúið á
hvolf í lífi fjölskyldu og ástvina
Hönnu Lilju og enginn skilur til-
ganginn.
Kæru Guðrún, Valur, Sigga
Þóra og Siggi Már. Eiginmaður,
börn og aðrir ástvinir Hönnu
Lilju, megi allar góðu og
skemmtilegu minningarnar sem
hún skilur eftir, veita ykkur
styrk í sorginni.
Ég og Tóti sendum ykkur okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Anna Guðmundsdóttir.
Maður á ekki að skilja allt,
sagði pabbi gjarnan við mig þeg-
ar ég var ekki sáttur við lífsins
óvæntu stefnur á yngri árum.
Þótt ég hafi oft reynt að sættast
við þessa lífsvisku er það stund-
um svo óskaplega erfitt. Þannig
var það og er nú eftir að ég
heyrði að þú hefðir farið svo svip-
lega frá okkur elsku vinkona.
Spurningarnar eru þungar og
margar og svörin engin. Margt
fer í gegnum hugann, gamalt og
nýrra af okkar samferð og langar
mig að minnast nokkurs af okkar
tíma saman.
Þú fluttir í Mosfellssveitina
okkar á tólfta ári, rétt í þann
mund sem hún varð bær. Mér
varð fljótlega ljóst að þú varst
hress og skemmtileg stelpa og
ekki í nokkrum vandræðum að
koma fyrir þig orði. Ég vissi vel
af þér en þú bjóst í öðrum hluta
bæjarins sem við krakkarnir úr
strjálbýlinu fórum lítð til. Okkar
leiðir lágu því meira saman þegar
við afréðum að mennta okkur á
hagfræðibraut í MS. Það voru
góð ár hjá okkur saman. Við
skiptumst stundum á að keyra í
skólann og það kerfi virkaði vel.
Ég var á druslunni minni og þú á
rauða Pulsarnum. Eins og við
höfum oft rætt hafði ég mikið
aukna svefnþörf á þessum vaxt-
arárum og þú varst með afbrigð-
um ráðagóð að koma mér vel vak-
andi í skólann. Útvarpið var
þanið og ekki síður raddböndin
hjá söngelskri og hljómfagurri
unglingsstelpu. Það sem gerði al-
veg út um að ég byrjaði daginn
með blundi var aksturslagið. Ég
var fljótur að sjá að þessi sak-
leysislegi smábíll var úlfur í sauð-
argæru undir þinni stjórn. Í
bekknum hjá okkur má öllum
ljóst vera sem þig þekktu fyrr og
síðar að þar var mikill gleðigjafi á
ferð. Þú fannst spaugilega vinkla
á flestu því sem á okkar leið varð
yfir daginn og það hélt mér oft
gangandi í námi sem ég undi mér
ekkert of vel í. Þú gerðir líka góð-
látlegt grín að þér og mér jöfnum
höndum og ekki kom ég að tóm-
um kofunum við nauðsynlega
ráðgjöf í mínum helgustu málum.
Þegar ég horfi til baka er mikið
sem ég á þér að þakka frá þess-
um þroskatíma okkar saman
Hanna mín. Ég veit að þú barst
vel skyn á þörfina á því að styðja
við mig í gegnum námið okkar
eins og áður segir og ekki síður
að leggja grunninn að því að
kenna mér að gera grín að sjálf-
um mér og taka ekki of alvarlega.
Það er svo margs að minnast frá
þessum tíma sem rúmast ekki að
skrifa um hér. Ég mun alltaf
geyma þessar minningar tryggi-
lega í huga mér með breiða bros-
inu þínu og útgeislun. Þó svo að
samverutími okkar minnkaði eft-
ir menntó, mánuðir og jafnvel ár
liðu milli þess sem við hittumst,
skipti það svo litlu máli. Það var
ætíð eins og við hefðum heyrst
síðast í gær. Þegar við spjölluð-
um saman eftir að þú kynntist
honum Gísla þínum og þið eign-
uðust yndislegu börnin ykkar var
ætíð sami hamingjutónninn í þér.
Ég var aldrei í vafa um að þið
bæði hittuð algjörlega í mark að
finna hvort annað og ég sam-
gladdist þér mikið með ríkidæm-
ið þitt. Ég óska þess svo innilega
að allir þínir nánustu haldi styrk
áfram veginn án þín.
Það er komið að erfiðum leið-
arlokum. Við sjáumst einhvers
staðar, einhvern tímann aftur
elsku Hanna mín.
Þinn vinur,
Halldór Víglundsson.
Elsku Hanna Lilja, mikið sær-
ir það hjartað mitt að þurfa
skrifa um þig minningargrein.
Ég man hvað það var fyrsta sem
þú sagðir við mig eftir að við
höfðum samband aftur við hvort
annað sumarið 2008, sem var
eitthvað á þá leið hvað ég hefði
skrifað fallega minningagrein um
bekkjarbróður okkar sem lést
langt fyrir aldur fram eins þú.
Og nú sit ég í sömu sporum og
geri það við þig, hver hefði trúað
því.
Ég man þegar ég sá þig í
fyrsta skiptið sem hefur verið
haustið 1987, þegar þú fluttir í
Mosfellsbæinn frá Selfossi. Þú
geislaðir af orku og útgeislun og
fór það ekki fram hjá neinum að
það væri komin ný stelpa í hverf-
ið.
Við urðum samferða það sem
eftir var grunnskólans og eftir
það skildi leiðir eins og oft vill
verða þegar Menntaskólaárin
hefjast.
Það var svo um sumarið 2008
sem við hittumst aftur í gegnum
facebook.
Ég var svo þess heiðurs að-
njótandi að starfa með þér í
skipulagningu endurfunda fyrir
okkar árgang tvívegis. Þvílíkum
áhuga og metnaði hef ég varla
kynnst áður.
Þú varst alltaf hress og kát og
sátt við lífið og tilveruna og lífið
virtist blómstra hjá þér, orðin
gift tveggja barna móðir og tví-
burar á leiðinni, það er svo sárt
að kveðja þig að ég fæ engum
orðum að því komið.
Ég þakka þér fyrir samleiðina,
Hanna Lilja, og bið guð að
styrkja Gísla, börnin ykkar og
fjölskyldu á þessum erfiðum tím-
um.
Þinn vinur
Gestur Valur.
Elsku Hanna Lilja, hvar á ég
að byrja? Við hittumst fyrst sum-
arið 1989 þegar ég var að byrja
Hanna Lilja Valsdóttir og
Valgerður Lilja Gísladóttir