Morgunblaðið - 29.08.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.08.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2011 www.noatun.is Nóatúni Nýttu þér nóttina í Verslanir Nóatúns eru opnar allan sólarhringinn Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.  Segir að niðurskurður hljóti fremur að fara fram í þéttbýli  Vinda ofan af óráðsíu í rekstri heilbrigðisstofnana í landinu „Ég trúi ekki öðru en samstaða hljóti að verða um að hlífa heil- brigðisstofnunum á dreifbýlasta svæði landsins við frekari niður- skurði. Fólkið þar borgar sama hundraðshluta af launum sínum til samneyslunnar og þeir sem á höf- uðborgarsvæðinu búa og hefur fyr- ir vikið sama rétt og aðrir lands- menn til sjálfsagðrar öryggis- þjónustu,“ segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylk- ingar og fulltrúi í fjárlaganefnd Al- þingis. Við fjárlagagerð í fyrra var hluta niðurskurðar í heilbrigðis- kerfinu frestað um eitt ár vegna heilbrigðisþjónustu. Því hljóti nið- urskurðurinn fremur að fara fram í þéttbýlinu, þar sem tiltölulega mörg sjúkrahús séu á litlu svæði. „Þetta sjónarmið hljóta jafnaðar- menn að fallast á. Verði önnur leið farin í niðurskurði er það ekki sú jafnaðarstjórn sem ég styð í dag,“ segir þingmaðurinn sem bætir við að heilt yfir hafi verið þörf á tiltekt í ranni heilbrigðisstofnana í land- inu. Kostnaður við rekstur þeirra hafi á árunum fyrir hrun farið tugi milljarða fram úr fjárheimildum í fullkomnu agaleysi í ríkisfjármál- um. Þeirri óráðsíu þurfi að vinda ofan af. sbs@mbl.is mótmæla. Heil- brigðisstofnun Þingeyinga var í brennidepli þá en nú er reiknað með 140 millj. kr. niðurskurði þar á næsta ári. Almennt er litið svo á að skera þurfi niður úti á landi ellegar á stóru sjúkrahúsunum syðra. Sigmundur Ernir, sem er þing- maður Norðurausturkjördæmis, segir að úti á landi þurfi að vera sterkir þjónustukjarnar með góðri Sigmundur Ernir Rúnarsson Yrði „ekki sú jafnaðarstjórn sem ég styð“ Útlit er fyrir suðlægar áttir út vikuna og úrkomu, ekki síst sunnanlands og vestan. Með hverjum deginum stytt- ist í fyrstu haustlægðina. Höfuðdagur er í dag. Sú þjóðtrú hefur lengi lifað að veður breytist á höfuðdag og haldist þannig í þrjár vikur. Því lögðu bændur kapp á að ljúka heyskap fyrir höfuðdag, ef tíð var góð, en bundu annars vonir við breytingar. Umskiptin urðu í gær, eins og Ein- ar Sveinbjörnsson segir frá á veður- bloggi sínu. Suðvestanátt er komin í stað norðaustlægra vinda sem verið hafa á landinu frá því í byrjun ágúst. Skýjað um landið vestanvert en rofar til eystra og hlýnar. Veðurstofa Íslands spáir svipuðu veðri út vikuna, suðlægum áttum með úrkomu. Votviðri í stað norðaustanáttar  Styttist í fyrstu haustlægðina Morgunblaðið/Ómar Fólk gæti þurft að nota regnhlífar í september, gangi þjóðtrúin eftir. Kristín Soffía Jónsdóttir, borg- arfulltrúi Samfylkingarinnar og varaformaður umhverfis- og sam- gönguráðs Reykjavíkur, segir skýrslu um fuglalíf við Reykjavík- urtjörn hafa fallið á milli skips og bryggju hjá borgaryfirvöldum. „Þetta var tekið út af fundi vegna fjölda aðkallandi mála sem þurfti að afgreiða. Svo líður tími og málið var ekki tekið inn á fund að nýju. Þetta voru bara heiðarleg mistök sem urðu til þess að málið gleymdist þar sem áhugaleysi var ekki um að kenna,“ segir Kristín Soffía um með- ferð borgarinnar á skýrslu Ólafs K. Nielsen vistfræðings og Jóhanns Óla Hilmarssonar fuglafræðings. Skýrslan var afhent garðyrkjustjóra í janúar en var ekki tekin fyrir af umhverfis- og skipulagsráði fyrr en í ágúst eins og kom fram í Morg- unblaðinu sl. laugardag. Skýrsluhöfundar gera ár hvert út- tekt á fuglalífi við Tjörnina að beiðni garðyrkjustjóra sem leggur hana svo fyrir borgaryfirvöld. Vanalega hefur verið fjallað um skýrsluna fljótlega eftir að hún er lögð inn. Eftir að hafa talað fyrir daufum eyr- um í mörg ár nefndu skýrsluhöf- undar einn kafla hennar „Er einhver þarna úti sem hlustar og skilur?“ hallurmar@mbl.is Gleymdist hjá borgar- yfirvöldum  Harðorð skýrsla Ávextir hins íslenska sumars, hunang, epli og heimagerðar sultur, voru kynntir gestum Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Laugardal um helgina. Býflugnabændur kynntu búskap sinn, sem æ fleiri stunda og framleiða þannig vax og svo hunang sem þykir alveg herramannsmatur. Hunangið og heimagerðu sulturnar Morgunblaðið/Eggert Íslenskir ávextir kynntir í Laugardalnum Barnshafandi kona slasaðist alvar- lega í umferðarslysi í Mýrdal í gær- kvöldi. Bíll fór út af í Mýrdal, rétt austan við Múlakvísl, upp úr kl. níu og valt. Þyrla Landhelgisgæslu sótti kon- una en meiðsli voru ekki talin lífs- hættuleg. Tvennt var í bílnum. Vegna eðlis meiðsla konunnar var óskað eftir þyrlunni. Hinn var flutt- ur með sjúkrabíl á heilsugæslustöð. Slasaðist í bílveltu Fjöldi funda verður í þingnefndum á Alþingi í dag. Alls er boðað til funda í níu nefndum. Í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd verður fjallað um frumvarp til heildarlaga um stjórn fiskveiða. Í utanríkismálanefnd verður fjallað um frumvarp um frið- lýsingu Íslands fyrir kjarnorku- vopnum og bann við umferð kjarn- orkuknúinna farartækja. Annir hjá þingnefndum „Við eigum að fara milliveg og skera jafnt niður á heilbrigðisstofnunum úti á landi og sjúkrahúsum í Reykjavík. Annað er ósanngjarnt að mati fólks nyrðra sem hefur þó skilning á að hagræða verði. Í fyrra var hlutfallslega meira skorið niður úti á landi og það mis- vægi verður að leiðrétta,“ segir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokks. Heildarkostnaður á ári hverju við rekstur Landspít- alans er um 30 milljaðar króna. Spítalinn þjónar landinu öllu og er endastöð heilbrigðiskerfisins alls. Segir Hösk- uldur að þessarar sérstöðu njóti Landspítalinn enda renni ekki jafn miklir fjármunir til nokkurs annars sjúkrahúss í landinu. Mikilvægt sé sömuleið- is að horfa á heildarmyndina þegar sparnaðaráform séu sett fram. Nið- urskurður síðustu ára hafi litlu öðru skilað en að flytja kostnað til milli pósta. Slík vinnubrögð séu miður. Misvægið þarf að leiðrétta ÞURFUM MILLIVEGINN, SEGIR ÞINGMAÐUR FRAMSÓKNAR Höskuldur Þórhallsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.