Morgunblaðið - 29.08.2011, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2011
Það er um að gera að nýta matar-
afganga vel. Sérstaklega eftir helgar,
þegar stundum er keypt dálítið meira
inn. Þá er oft til nóg í ísskápnum.
Gott kjúklingasalat
Það er mjög hagkvæmt að elda
heilan kjúkling því þá getur maður
auðveldlega notað afganginn í súpu,
salöt og ofan á brauð. Úr grófu
brauði, salati, tómötum og smá sinn-
epi er hægt að búa til holla og góða
samloku. Kjúklingasalat er líka snið-
ugt að gera og taka til í ísskápnum í
Matur
Veislumatur
úr afgöngum
Svanhildur Eiríksdóttir
svei@simnet.is
U
ndirbúningur ljósahá-
tíðar er nú í hámarki
og aðstandendur dag-
skrár duglegir að
kynna þá atburði sem
boðið verður upp á. Að venju munu
börn hefja ljósahátíð n.k. fimmtudag
með því að sleppa hundruðum lit-
skrúðugra blaðra upp í loft. Í kjöl-
farið rekur hver dagskrárliðurinn
annan og hátíðin nær hámarki á
laugardag, Ljósanótt. Hvert rými er
nýtt undir myndlistarsýningar og
uppákomur, dagskrárliðir eru fjöl-
breyttir og við allra hæfi.
Bæjarbúar njóta þess ekki síð-
ur en sjálfs hátíðardagsins, að eiga
rólegar stundir á fimmtudeginum,
föstudeginum og sunnudeginum,
njóta þess að fara á opnanir sýn-
inga, tónleika og upplifa stemmn-
inguna í bænum sem öll er hægari
en á laugardeginum. Einn þessara
viðburða eru hátíðartónleikar
ljósahátíðar, sem að þessu sinni
verða í tvígang sunnudaginn 4. sept-
ember n.k. Tónleikarnir bera yf-
irskriftina „Með blik í auga. Tónlist
og tíðarandi áranna 1950-1970“ og
verða fluttir í Andrews Theater,
Ásbrú.
Hrifinn af þessum tíma
Blaðamaður settist niður með
Arnóri Vilbergssyni tónlistarstjóra
og Kristjáni Jóhannssyni hönnuði
og framkvæmdastjóra til að fræðast
um hátíðartónleikana í ár, sem eru
einn af hápunktum ljósahátíðar.
„Þessari hugmynd laust niður í
kollinn á mér strax að loknum hátíð-
artónleikum fyrir ári síðan, þannig
að það má segja að ég hafi verið með
hugann við þetta í ár. Eftir að hafa
lagt áherslu á klassíska tónlist og
kóraflutning undanfarin tvö ár
fannst mér kominn tími á að breyta
til,“ sagði Kristján sem viðraði í
framhaldi hugmyndina við Valgerði
Guðmundsdóttur framkvæmda-
stjóra menningarsviðs Reykjanes-
bæjar. Hún tók strax vel í hug-
Dægurlagamenning
á hátíðartónleikum
„Okkur langaði til að bjóða upp á eitthvað nýtt á hátíðartónleikunum í ár. Tónlist
6., 7. og 8. áratugarins er vinsæl enn í dag og þetta var gullöld Ríkisútvarpsins.
Þetta eru ekki bara tónleikar, heldur sýning þar sem margmiðlunartækni verður
notuð,“ segja þeir Arnór Vilbergsson og Kristján Jóhannsson. Þeir eru stjórnendur
hátíðartónleika Ljósanætur sem fer fram í Reykjanesbæ 1. til 4. september.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Menning Arnór Vilbergsson og Kristján Jóhannsson, skipuleggjendur há-
tíðartónleika Ljósanætur í ár, einblína á dægurlagamenninguna 1950-1970.
Eins og það er margt í boði á netinu
þá er auðvelt að festast í sömu vef-
síðunum. Fara sama vefsíðurúntinn
dag eftir dag og gleyma að leita uppi
eitthvað nýtt.
Á vefsíðunni Someonewho-
cares.org/siteoftheday er valin ein
vefsíða dagsins á hverjum degi. Síð-
urnar sem verða fyrir valinu eru alls-
konar, skemmtilegar sem gagnlegar.
Nýja síðan kemur upp á miðnætti á
hverjum degi. Hægt er að sjá allar
vefsíður sem hafa orðið fyrir valinu
langt aftur í tímann eða allt til ársins
2000.
Það er maður að nafni Dan Pollock
sem nennir að standa í því að halda
þessari vefsíðu úti. Hann setur líka
inn ljósmyndir, tengla á stærð-
fræðivefsíður og fleira.
Someonewhocares.org/siteof-
theday er sniðug til að fá ábendingar
um nýjar vefsíður.
Vefsíðan www.someonewhocares.org/siteoftheday
Morgunblaðið/Ernir
Í tölvunni Það er meira í boði en bara Facebook í netheimum.
Ný vefsíða á hverjum degi
Ljóðabókin Svartar fjaðrir eftir Davíð
Stefánsson frá Fagraskógi hefur verið
endurútgefin í ritröðinni Íslensk klassík
hjá Forlaginu.
Fáar íslenskar ljóðabækur hafa notið
annarrar eins hylli og Svartar fjaðrir. Frá
frumprentun hefur bókin komið út hvað
eftir annað, ýmist ein og sér eða í ljóða-
söfnum Davíðs, og telst þetta vera 13. út-
gáfa hennar.
Davíð Stefánsson (1895-1964) var um
tvítugt þegar ljóð hans í tímaritum vöktu
athygli ljóðaunnenda, raunar svo mjög að
beðið var þessarar fyrstu bókar hans með
óþreyju. Hún kom út rétt fyrir jólin 1919.
Silja Aðalsteinsdóttir sá um útgáfuna
og ritaði formála.
Endilega …
… lesið Svartar
fjaðrir aftur
Ljóðskáldið Davíð með hrafn.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
fyrst og fremst ódýr
ÓDÝRT
Í NEST
IÐ