Morgunblaðið - 29.08.2011, Síða 11
leiðinni. Grænmeti, nokkrar ólífur
sem eru eftir í krukku, vínber sem
liggja undir skemmdum og ostbiti.
Þessu má öllu henda saman í gott
salat og búa til góða dressingu með.
Góð og sterk súpa
Góða og kröftuga súpu er líka auð-
velt að búa til úr alls konar grænmeti.
Gulrætur, sætar kartöflur og venju-
legar er t.d. gott að sjóða og mauka
síðan með töfrasprota. Svo er bara
að krydda dálítið vel með chilli eftir
smekk, salti og pipar og öðru sem
þér finnst passa. Súpur eru mjög
drjúgar svo þú getur fryst afganginn
og átt þannig nokkur box til að taka
með þér í vinnuna eða nota á dögum
þegar enginn tími er til að elda.
Morgunblaðið/Kristinn
Góð Úr græn-
metisafgöngum
er tilvalið að búa
til súpu.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Ljósanótt Frá setningu Ljósanætur fyrir nokkrum árum síðan. Skólabörn slepptu saman blöðrum.
myndina, en Arnór sagðist aðeins
hafa þurft að hugsa málið. „Já, ég
þurfti að melta þetta. Þetta er mikill
vendipunktur frá fyrri hátíðartón-
leikum en ég er mjög hrifinn af
þessum tíma og veit að tónlist þess-
ara áratuga er mjög vinsæl. Ég get
nefnt lög systkinanna frá Merkinesi
í Höfnum, Ellýjar og Vilhjálms.
Þessar vinsældir koma ekki síst
fram í kirkjunni,“ sagði Arnór sem
starfar sem organisti í Keflavík-
urkirkju. Hann sagðist jafnframt
hafa séð fyrir að þetta yrði gríðarleg
vinna, sem reyndist rétt og hvergi
nærri lokið þegar þetta er skrifað.
Tónlistarfólkið allt af
Suðurnesjum
Arnór hefur útsett öll lögin sem
flutt verða fyrir einsöngvara og 14
manna slagverks-, strengja- og blás-
arasveit, ásamt því að stjórna flutn-
ingi. Kristján hefur sett sig inn í
tónlist og tíðaranda áratuganna
þriggja og sett saman í handrit þar
sem margmiðlunartækni verður
m.a. notuð til að varpa fram ljós-
myndum, texta og tónum. „Þarna
verða þekktar útvarpsraddir enda
var þetta tímabil gullöld Ríkis-
útvarpsins,“ sagði Kristján. Söngv-
ararnir verða heldur ekki af verri
endanum, en hópur samanstendur
af bæði ungu tónlistarfólki sem á
miklum vinsældum að fagna í dag,
s.s. Valdimar Guðmundssyni, Jönu
Maríu Guðmundsdóttur og Fríðu
Dís Guðmundsdóttur en einnig eldri
reynsluboltum, s.s. Guðmundi Her-
mannssyni og Guðmundi Sigurðs-
syni, sem hafa alið af sér nokkra
þekktustu tónlistarmenn dagsins í
dag.
„Þeir sem koma fram á þessum
tónleikum eru allt Suðurnesjamenn
og við tengjum tónlistarflutninginn
við tíðarandann hér á þessum árum,
hvað var að gerast í bæjarlífinu,
hvaða áhrif bandaríski herinn hafði
á mannlíf og menningu, hvaða tón-
listarmenn og hljómsveitir voru vin-
sælust,“ sagði Kristján. Arnór bætti
við að af því að tónleikarnir væru
sögulegir, væri reynt að hafa hljóm-
inn í lögunum eins og hann var á
þessum tíma, m.a. með notkun
hljóðfæra eins og harmonikku og
víbrafóns. „Dægurlagamenningin er
að ryðja sér til rúms þarna upp úr
1950 og stórhljómsveitir voru að
stíga fram. Dægurlögin eru fáguð
en á sama tíma er stór hugsun í
gangi. Allt var útsett og vel æft og
snyrtimennskan í fyrirrúmi. Fólk
klæddi sig upp áður en það fór á
svið og hljómsveitir létu jafnvel gera
á sig hljómsveitarbúninga.“
Flytja aðeins þekkt lög
– Með blik í auga er vísun í
þekkt lag sem Haukur Morthens
flutti kringum 1960. Hvaða önnur
þekkt lög verða flutt á hátíðartón-
leikunum?
„Þetta eru allt þekkt lög sem
flutt verða og við þræðum þessa þrjá
áratugi í tímaröð. Ef við eigum að
nefna eitt af vinsælustu lögum hvers
áratugar sem flutt verða á sunnudag
þá eru það án efa „Þrek og tár“,
„Heyr mína bæn“, „Bíddu pabbi,
bíddu mín“ og „Án þín“,“ sögðu Arn-
ór og Kristján að lokum. Auk
Reykjanesbæjar kemur Tónlistar-
félag Reykjanesbæjar að fram-
kvæmd tónleikanna, en Arnór og
Kristján eru báðir stjórnarmenn þar.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2011
Bandarískir framhalds-skólanemar eru ekki nóguduglegir að borða ávexti og
grænmeti ef marka má nýjustu
rannsóknir. Ríkisháskólinn í Ore-
gon gerði nýverið rannsókn sem
leiddi í ljós að sumir nemarnir
borða alls ekki neitt af þessari holl-
ustu á degi hverjum, en mælt er
með því að fólk borði fimm
skammta af ávöxtum og grænmeti
á dag.
Stelpurnar stóðu sig betur
Rannsókin var gerð á 582 fram-
haldsskólanemum sem flestir voru
á sínu fyrsta ári og var lítill munur
á neyslunni eftir kynjum. Karlkyns
nemar sögðust að meðaltali borða
um fimm skammta á viku en kven-
kyns nemar fjóra skammta. Þá
vantaði helst trefjar í mataræði
stelpnanna en strákarnir neyttu að
jafnaði of mikillar fitu. Í heild var
mataræði stelpnanna betra því það
var reglulegra og þær slepptu ekki
eins mörgum máltíðum úr og strák-
arnir. Einnig skipti þær meira máli
að lesa innihaldslýsingar á því sem
þær lögðu sér til munns.
Þurfa að verða meðvitaðri
Í grein um rannsóknina, sem birt
er á vefsíðunni foodconsumer.org,
er vitnað í Brad Cardinal, íþrótta-
og heilsufræðing við Oregon-
ríkisháskólann, einn þeirra sem
stóðu að rannsókninni. „Nemendur
slepptu nokkuð reglulega mál-
tíðum, sem gæti haft sín áhrif á
neyslu grænmetis og ávaxta. Við
þurfum að sjá til þess að krakk-
arnir verði meðvitaðri um það sem
þau borða og búi sér það meira til
sjálf heima fyrir. Þannig sjá þau
betur hvað mætti betur fara.“ En
þeir nemar sem tóku þátt í rann-
sókninni borða oft úti og borða
skyndibitamáltíð að meðaltali einu
sinni í viku. Það kemur því kannski
ekki á óvart að meira en 30% af
þeim kaloríum sem þau innbyrða
kemur úr fitu en það er yfir þeim
mörkum sem hæfilegt þykir. Cardi-
nal segir að fræðsla um það sem sé
hollt sé nauðsynleg til að unga kyn-
slóðin kunni að velja rétt. Ekki
megi vanrækja slíka kennslu í skól-
um en í Texas er heilsu- og næring-
arfræði til að mynda ekki lengur
kennd lögum samkvæmt.
Rannsókn um mataræði
Hollusta ekki það vinsælasta
hjá bandarískum nemum
Morgunblaðið/Einar Falur
Biti Unga fólkið í Bandaríkjunum er sumt hvað sólgið í skyndibita.
Dagskrá ljósahátíðar má nálgast í heild á vef hátíð-
arinnar, www.ljosanott.is. Meðal nýjunga í ár er
Ljósanæturball, sem hefst strax upp úr miðnætti á
föstudagskvöld í Stapa. Þar mun Páll Óskar Hjálm-
týsson þeyta skífum fram til morguns, en stefnt er
að því að gera þennan lið að árvissum.
Guðrún Elfa Jóhannsdóttir er 10 ára Reykjavíkur-
mær sem þó er enginn nýgræðingur þegar kemur að
myndlist. Hún hefur alla tíð haft gaman af að
teikna og mála og hefur undanfarin ár fengið að
mála með móðurafa sínum, Bjarne P. Svendsen, í
bílskúrnum hans. Árið 2009 tók Guðrún Elfa þátt í
myndlistarkeppni Gallerís Foldar á Menningarnótt í
Reykjavík og sigraði í sínum aldursflokki. Það
hefur lengi blundað í henni að halda myndlist-
arsýningu og nú þegar Halla Harðardóttir,
ömmuvinkona Guðrúnar Elfu, er að halda sýn-
ingu á Ljósanótt bauð hún Guðrúnu Elfu að sýna
með sér. Sýningin verður á hár-
snyrtistofunni Fimum
fingrum og hefst kl. 18 á
fimmtudag.
Viðar Oddgeirsson kvik-
myndatökumaður hefur
tekið saman kvikmyndir
sem sýna lífið í bænum á
hinum ýmsu tímaskeiðum
og myndirnar voru sýndar
í Nýja bíói á bernskuár-
um Ljósanætur. Í ár verða
þær allar sýndar í sjón-
varpi á Bókasafni Reykja-
nesbæjar. Þar verður einnig stiklað
á stóru í sögu bíósýninga í Keflavík.
Hönnunarfyrirtæki Írisar Jónsdóttur og Ingunnar
Yngvadóttur, Spiral, hefur vaxið hratt á stuttum
tíma. Þær stöllur ætla að bjóða upp á „Klikkaðan
kærleik“ í Víkingaheimum á föstudagskvöld þar sem
teflt verður saman tónlist, leiklist, myndlist og
hönnun. Dagskráin hefst kl. 21.
Boðið verður upp á námskeið fyrir börn í töfra-
brögðum síðasta dag Ljósahátíðar. Það er töframað-
urinn Einar Mikael sem ætlar að bjóða upp á nám-
skeið í Íþróttaakademíunni kl. 13-15. Að loknu
námskeiði ættu allir að geta töfrað í anda Harrys
Potters.
Kjötsúpan góða frá Skólamat mun ylja há-
tíðargestum á föstudagskvöld um leið og
kvölddagskrá hefst á stóra sviðinu við Æg-
isgötu. Tónlistardagskrá verður einnig á
stóra sviðinu á laugardagskvöld og munu
margir þekktir tónlistarmenn stíga á svið
bæði kvöldið. Flugeldasýningin verður á
sínum stað kl. 22:15 á laugardags-
kvöld.
„Dúkka“ heitir sýning Valgerðar
Guðlaugsdóttur sem er ljósahátíð-
arsýning Listasafns Reykjanes-
bæjar í ár. Sýningin verður opnuð
á fimmtudag kl. 18 og stendur til
16. október. Á sýningunni varpar
Valgerður fram áleitnum spurn-
ingum um mannseðlið, hlutskipti
kynjanna og einnig samskipti
þeirra.
Glefsur úr dagskrá Ljósanætur
LJÓSANÓTT
Ung myndlistarkona Guðrún Elfa Jóhannsdóttir er
10 ára en hefur lengi haft áhuga á myndlist. Hér
heldur hún á verkinu Andlit vindsins.