Morgunblaðið - 29.08.2011, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 29.08.2011, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2011 Fellibylur í New York » Fellibylurinn Írena gengur yfir New York-borg og ná- grenni. » Hluti af samgönguleiðum sem liggja inn í borgina er al- gjörlega undir vatni. » Ráðstafanir í borginni vel skipulagðar og íbúarnir með á nótunum. » Ljóst er að nokkra daga mun taka að koma daglegu lífi í borginni og nágrenni í eðlilegt horf. María Ólafsdóttir maria@mbl.is Fellibylurinn Írena er nú genginn yfir New York og varð minna tjón af honum en óttast var í fyrstu. Felli- bylurinn hefur verið flokkaður sem hitabeltislægð en þó létu 12 manns hið minnsta lífið þar sem hann gekk yfir. Þá hef- ur orðið töluvert eignatjón á aust- urströnd Banda- ríkjanna og raf- magnsleysi fylgdi einnig óveðrinu. Hlynur Guð- jónsson, ræðis- maður í New York, sagði í samtali við Morgunblaðið um hádegisbil að bandarískum tíma að ekki væri margt fólk á götum úti þó einhverjir væru farnir að tínast út. Undir venjulegum kringumstæðum væru margir á leið í morgunmat eða „brunch“ á þessum tíma dags en fáir veitingastaðir væru opnir. „Upp úr klukkan 22 í gærkvöldi (laugardagskvöld) voru göturnar orðnar tómar hérna. Það er afskap- lega óvanalegt að í borginni sem aldrei sefur séu engir á ferli. Lög- reglan keyrði um megingötur borg- arinnar til að fylgjast með þannig að borgin var vel skipulögð og fólk með á nótunum,“ segir Hlynur en borg- arstjórinn í New York, Michael Blo- omberg, greip til víðtækra varúðar- ráðstafana í borginni og lét meðal annars 370.000 manns rýma heimili sín. Samgöngur í lamasessi Búast má við því að nokkurn tíma muni taka að koma samgöngum á að nýju í borginni. Hlynur segir hluta af mikilvægum samgönguleiðum sem liggja inn í borgina eins og t.d. Hud- son Parkway og þjóðveg 87 vera al- gjörlega undir vatni. „Ástandið er ekki gott á mörgum svæðum fyrir utan borgina og líka í Queens, Brooklyn og á Statham Isl- and. Þar er mikið um flóð og einhver hluti neðanjarðarlestakerfisins hef- ur flætt. Því var lokað í gær (laug- ardag) en ég sá myndir í sjónvarpinu þar sem vatnið náði upp að braut- arpallinum á lestarstöðinni. Það lítur því út fyrir að erfitt verði með sam- göngur næstu dagana. Þá er raf- magn farið af stórum svæðum og á meðan það heldur áfram að rigna er erfitt fyrir orkufyrirtækin að koma því í lag,“ segir Hlynur. Fólk tekur því rólega Hlynur segir að þeir Íslendingar sem hafi verið á hættusvæðum hafi- farið til vina og vandamanna. Þá hafi íslenskir ferðamenn í borginni birgt sig upp af vatni og mat til vonar og vara. „Fólk var dálítið stressað en heldur sig nú innandyra og tekur því rólega. Í nótt fór ég á fætur til að kíkja aðeins á ástandið og það var ansi góður strekkingur. Hér þar sem ég bý er aðeins hærra uppi og hér geymir borgin öll hreinsitæki. Hérna í götunni eru raðir af ökutækjum frá sorphirðunni þannig að allt er vel undirbúið,“ segir Hlynur. „Ég held að okkur hafi tekist að standa af okkur storminn,“ sagði Jo- seph Bruno, yfirmaður almanna- varnanefndar New York-borgar, í viðtali við sjónvarpsstöðina CNN í gær. Ljóst er þó að nokkra daga mun taka að koma daglegu lífi í borginni og nágrenni hennar í eðlilegt horf. Reuters Samgönguleið Kona hjólar eftir götu á neðri Manhattan en víða um New York og nágrenni flæddi yfir götur. Afar fáir á ferli í borg- inni sem aldrei sefur  Óvanalegt ástand í New York eftir að fellibylurinn Írena gekk yfir Hlynur Guðjónsson PI PA R\ TB W A • SÍ A • 11 21 87 MENNTUN OG KENNSLA Á 21. ÖLD Teaching and Learning for the 21st Century Dr. Linda Darling-Hammond er prófessor í menntavísindum við Stanford-háskóla og leiðandi í mótun menntastefnu núverandi stjórnvalda í Bandaríkjunum. Fyrirlesturinn er í röð öndvegisfyrirlestra á aldarafmæli Háskóla Íslands og fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands, Aðalbyggingu, fimmtudaginn 1. september nk. kl. 15.00. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Dr. Linda Darling-Hammond, öndvegisfyrirlesari Menntavísindasviðs, flytur erindið: Uppreisnarmenn í Líbíu eru nú skammt frá því að yfirtaka bæinn Sirte, heimabæ Muammars Gad- dafi. En uppreinsarmennirnir reyna nú að koma nauðsynlegri þjónustu á að nýju í Trípólí. Hörð átök hafa einnig brotist út í vesturhluta lands- ins en þar mun hafa verið ráðist á uppreisnarmenn, sem reyna að ná yfirhendinni yfir svæðinu, úr laun- sátri. Talinn vera í Sirte Uppreisnarmennirnir voru í 30 km fjarlægð frá Sirte síðdegis í gær. Þeim hafði þá tekist að ná bænum Bin Jawad, í austurhluta Líbíu, aftur á sitt vald. Sirte er síð- asta eftirstandandi virki Gaddafis eftir að uppreisnarmenn buguðu her hans í Trípólí og náðu Bab al- Aziziya-höfuðstöðvunum á sitt vald. Uppreisnarmennirnir einblína nú á að handsama Gaddafi. Þó ýmsar kenningar séu á reiki um dvalarstað er almennt talið að hann hafist við í Sirte, sem er í 360 km fjarlægð frá Trípólí. Uppreisnarmennirnir reyna nú að semja um friðsamlega yfir- töku á borginni en haft er eftir Mahmud Shammam, talsmanni bráðabirgðastjórnar uppreisnar- manna, í frétt AFP-fréttaveitunnar að slíkar viðræður yrðu þó ekki látnar dragast á langinn. „Við eig- um nú í viðræðum við ættbálka í Sirte um friðsamlega yfirtöku. En þær munu ekki halda áfram enda- laust. Við viljum sameina Líbíu eins fljótt og kostur er,“ segir Sham- mam. Í höfuðborginni Trípólí er líf- ið aftur að færast í eðlilegt horf eft- ir sex mánaða blóðuga uppreisn til að binda enda á 42 ára langa harð- stjórn Gaddafi. maria@mbl.is Uppreisnarmenn í Líbíu nálgast Sirte  Semja um friðsamlega yfirtöku Reuters Bakað Brauð handa íbúum Trípólí. „Það er allt ró- legt hér og ég var bara sofandi þegar hvirfilbyl- urinn gekk yfir,“ segir Soffía Hlynsdóttir, hjúkrunarfræði- nemi, sem er í heimsókn hjá bandarískri vin- konu sinni. Hún býr í Astoria í Queens sem er í tveggja km fjar- lægð frá East River en fólkinu þar í grennd var gert að rýma hús sín. Þegar blaðamaður heyrði í Soffíu upp úr hádegi á bandarískum tíma var fólk farið að skjótast út í búð en enginn kemst langt þar sem al- menningssamgöngur eru í lama- sessi. „Við vorum búnar að fylla þrjá potta og risastóra könnu af vatni. Allt vatnið, epli og brauð voru búin í búðinni. Síðan límdum við til öryggis fyrir eina hurð og tókum allt af gólfinu í kjallaranum Ég held að fólk hafi búist við meira en þegar ég leit út um gluggann í morgun sá ég bara eitt brotið tré,“ segir Soffía sem átti að fljúga heim á laugardagskvöldið var en flýgur þess í stað heim í kvöld. Epli, vatn og brauð búið í búðinni Soffía Hlynsdóttir „Það er allt á floti í kjallar- anum hjá mér og ég er með viftu í gangi og handklæði og tuskur til að þurrka allt upp,“ segir Halldóra Ingthors, innanhússhönnuður, sem búsett er í Weehawken í New Jer- sey Hún segist að öðru leyti hafa orð- ið lítið vör við fellibylinn en það versta hafi gengið yfir um tvöleytið um nóttina. „Yfirvöld sendu út til- kynningu um hvernig bæri að haga sér og hér hinum megin við götuna er rafall sem fór strax í gang þegar rafmagnið fór af. Þetta hafði því lít- il áhrif á okkur en um leið og ég heyrði af þessu á fimmtudags- kvöldið fór ég út og keypti nóg af vatni og mat til að eiga í þrjá daga. Svo setti ég öll blómaker og annað lauslegt inn þannig að ekkert gæti fokið,“ segir Halldóra. Í óða önn að þurrka upp kjallarann Halldóra með börnin, Connor og Lillu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.