Morgunblaðið - 29.08.2011, Blaðsíða 27
MENNING 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2011
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Söngvarinn grískættaði, George
Michael, hefur ekki átt sjö dagana
sæla hin síðustu ár. Í fyrra ók hann
Range Rover-bifreið sinni inn um
búðarglugga í Lundúnum, undir
áhrifum kannabisefna, og hlaut fjög-
urra vikna fangelsisdóm fyrir. Mich-
ael hefur nú ákveðið að breyta lífi
sínu til hins betra, fangelsisvistin
gerði honum það ljóst að hann væri á
rangri braut og skal engan undra.
Nú, tæpu ári eftir að hann ók inn í
verslun í kannabis-vímu, birtist
fimm stjörnu dómur í hinu virta dag-
blaði Guardian um tónleika Michaels
með tékknesku sinfóníuhljómsveit-
inni í Prag, 22. ágúst sl. Fullt hús
stiga. Á tónleikunum flutti Michael
m.a. sinfónískar útgáfur af smellum
sínum, lögum sem hann hefur flutt
með tilþrifum í gegnum árin og má
þar nefna „Kissing a Fool“ og „Free-
dom“. Lagalista sem spannar 30 ára
feril þessa farsæla tónlistarmanns
auk laga sem honum eru kær. Gagn-
rýnandi Guardian lýkur sinni rýni
með þeim orðum að Michael hafi
vissulega átt skilið það fimm mín-
útna lófatak sem hann laut að lokn-
um tónleikum. „Ég verð að segja
ykkur að ég er að gera í brækurnar
hérna,“ sagði popparinn lífsreyndi
eftir að hafa sungið fyrstu fjögur
lögin á efnisskránni. Óstyrkar
taugar hjá svo sjóaðri poppstjörnu
og tónleikarnir tilfinningaþrungnir,
ef marka má lýsingar. Allt var gefið í
flutninginn, sungið af lífi og sál.
Tónleikar þessir eru þó aðeins
einir af mörgum sem Michael heldur
með sinfóníuhljómsveit á næstu
mánuðum, auk níu manna popp-
hljómsveitar. Í kvöld og næstu daga
heldur hann tónleika í Danmörku og
þá er förinni heitið til Þýskalands,
Ítalíu, Póllands, Ungverjalands,
Króatíu, Frakklands, Spánar, Belgíu
og Sviss og svo aftur til Þýskalands,
Bretlands og fleiri Evrópulanda. Já,
Michael er snúinn aftur með látum.
Wham! og farsæll sólóferill
George Michael heitir réttu nafni
Georgios Kyriacos Panayiotou,
fæddur 25. júní árið 1963. Hann er
einn söluhæsti tónlistarmaður sög-
unnar, hefur selt yfir 100 milljónir
hljómplatna á heimsvísu en fyrsta
sólóplatan hans, Faith, frá árinu
1987, seldist gríðarlega vel, ríflega
Níu líf Georges Michael
Þrátt fyrir áföll í einkalífinu og fangelsisvist snýr George Michael aftur og
það með tilþrifum Heldur í tónleikaferð með sinfóníuhljómsveit um Evrópu
Reuters
Svart Michael svartklæddur á tónleikum í Prag. Eftir vandræðagang seinustu ára virðist bjart framundan.
25 milljónir eintaka höfðu selst í
fyrra. Michael skaust upp á stjörnu-
himininn þegar hann var í dúettnum
Wham! með félaga sínum Andrew
Ridgeley. Wham! stofnuðu þeir árið
1981 og náði dúóið gríðarlegum vin-
sældum, einkum meðal tánings-
stúlkna. Wham! háði harða baráttu
við hljómsveitina Duran Duran um
aðdáun ungmenna, hér á Íslandi
skiptust ungmenni í fylkingar, ýmist
fylgdu þau Wham! eða Duran Dur-
an. Wham! lagði upp laupana árið
1986 en Michael hóf þá farsælan
sólóferil. Hann hefur hlotið fjölda
verðlauna á þeim 25 árum sem liðin
eru frá endalokum Wham!, m.a.
þrenn Brit-verðlaun
og tvenn Grammy-
verðlaun. Hin síð-
ustu ár hafa þó per-
sónuleg vandræði
Michaels skyggt á
afrek hans á tónlist-
arsviðinu, m.a. til-
raun til þess að hafa
mök við óeinkennis-
klæddan lögreglumann á salerni í al-
menningsgarði í Beverly Hills sem
leiddi til handtöku. Lögreglumaður-
inn tældi að vísu Michael, eða þannig
hefur söngvarinn a.m.k. lýst því. Og
það má telja Michael til tekna að
hann hefur gengist við öllum sínum
glappaskotum og rætt um þau af
einlægni. Michael sló þessu tiltekna
atviki upp í grín nokkrum mánuðum
síðar með laginu „Outside“ en í
myndbandi við það má m.a. sjá lög-
reglumenn kyssast og strjúka hvor
öðrum. Já, söngvarinn hefur oftar en
einu sinni komist í kast við lögin,
vegna eiturlyfjanotkunar og meintr-
ar ósæmilegrar hegðunar. Hann hef-
ur samt sem áður alltaf lent á fót-
unum þó fallið hafi verið hátt.
Michael á sér níu líf, hugsanlega
fleiri.
Og nú virðist hann vera að hefja
nýtt líf, skilinn við ástmann sinn og
farinn að snúa sér aftur að tónlist-
inni. Hvort hann mun lifa á fornri
frægð eða koma með eitthvað nýtt
og ferskt mun tíminn leiða í ljós.
Andrew Ridgeley flutti til
Mónakó eftir að Wham! hætti
og reyndi fyrir sér í
formúlu-kappakstri með lökum
árangri.
Hann reyndi einnig fyrir sér
í leiklist í Los Angeles en sneri
aftur til Bretlands árið 1990.
Hann er m.a. hluthafi í bresku
fyrirtæki
sem fram-
leiðir
brimbretta-
búnað og
mikill
umhverfis-
verndar-
sinni.
Formúla og
brimbretti
HVAR ER ANDREW?
Wham! Michael
og Ridgeley.
Karen O, söngkona hljómsveitar-
innar Yeah Yeah Yeah, hefur samið
óperu sem frumsýnd verður í New
York í haust og segir söngkonan að
það sé „sturlunarópera“ (e. psycho
opera). Meðal þeirra sem leika
munu og syngja í óperunni eru Mo-
ney Mark úr Raconteurs og leik-
konan Lili Taylor. Óperan ber tit-
ilinn Stop the Virgens og segir O
hana geðhreinsandi.
Alveg klikk ópera?
Reuters
O Karen O virðist hafa samið heldur
óvenjulega, geðhreinsandi óperu.
Bókin Life, æviminningar rokk-
arans Keith Richards, rennur hrað-
ar út en heitar lummur, nú hafa
fleiri en milljón eintök verið seld.
Bókin kom út í fyrra og er ein sú
mest selda í sögunni þegar ævisög-
ur rokkara eru annars vegar. Þetta
kemur fram á vef tímaritsins Roll-
ing Stone. Richards fékk sjö millj-
ónir dollarar greiddar fyrirfram
fyrir bókina, þ.e. áður en hann sett-
ist niður við skriftir. Annars er það
að frétta af kappanum að hann seg-
ist vera að reyna að draga hljóm-
sveit sína Rolling Stones í hljóðver
til að taka upp plötu.
Ævisagan rýkur út
Reuters
Rithöfundur Ævisaga Richards
selst gríðarlega vel.
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR
Í FYRSTA SINN Á ÍSLANDI! BÍÓMYND Í FJÓRVÍDD – 4-D!
MEIRA SPURT OG SVARAÐ
MEÐ MORGAN KL. 20 Í KVÖLD!
5%
THE CHANGE-UP KL. 6 - 8 - 10.10 14
SPY KIDS 4 4D KL. 6 - 8 L
CONAN THE BARBARIAN KL. 10 16
T.V. - KVIKMYNDIR.IS / SÉÐ OG HEYRT
THE CHANGE-UP KL. 5.30 - 8 - 10.30 14
THE CHANGE-UP LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 14
SPY KIDS 4 4D KL. 3.40 - 5.50 - 8 L
ONE DAY KL. 8 L
COWBOYS AND ALIENS KL. 10.30 14
STRUMPARNIR 3D ÍSL. TAL KL. 3.20 - 5.40 - 8 L
STRUMPARNIR 2D ÍSL. TAL KL. 3.20 - 5.40 L
RISE OF THE PLANETS OF THE APES KL. 10.20 12
FRIENDS WITH BENEFITS KL. 10.10 12
THE CHANGE-UP KL. 8 - 10.30 14
GREATEST MOVIE EVER SOLD KL. 5.30 - 8 - 10.10 L
SPY KIDS 4D KL. 5.50 L
CONAN THE BARBARIAN KL. 10.20 16
ONE DAY KL. 5.30 - 8 - 10.30 L
STRUMPARNIR 3D ÍSL.TAL KL. 5.40 L
FRIENDS WITH BENEFITS KL. 8 12
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
THE CHANGE-UP Sýnd kl. 5:45 - 8 - 10:20
SPY KIDS 4 4-D Sýnd kl. 6
STRUMPARNIR 3-D ÍSL TAL Sýnd kl. 5:30
CONAN THE BARBARIAN Sýnd kl. 8 - 10:20
CAPTAIN AMERICA 3-D Sýnd kl. 7:30
BRIDESMAIDS Sýnd kl. 10
HÖRKU SPENNUMYND
HANN ER FÆDDUR STRÍÐSMAÐUR
HEFURÐU EINHVERN TÍMANN
VILJAÐ VERA EINHVER ANNAR?
FRÁ LEIKSTJÓRA
WEDDING CRASHERS
OG HANDRITSHÖFUNDUM
THE HANGOVER
Í FYRSTA SINN Á ÍSLANDI!
BÍÓMYND Í FJÓRVÍDD!
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
Hvar í strumpanum
erum við ?
Sýnd í 3D með
íslensku tali