Morgunblaðið - 29.08.2011, Side 32
MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 241. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. United skoraði átta gegn Arsenal
2. Undraverður glerhjúpur
3. La Primavera hættir
4. Ætlaði að ráðast á Önnu Lindh
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Bandaríska stórstjarnan, „cult“-
leikarinn og kvikmyndagerðarmaður-
inn Crispin Glover er væntanlegur til
landsins um miðjan september og
mun verða viðstaddur sýningu á
tveimur mynda sinna í Bíó Paradís og
jafnframt svara spurningum gesta og
flytja eigið lifandi leikverk.
Crispin Glover
kemur til Íslands
Sarah Wiggles-
worth arkitekt
mun fjalla um
manngert um-
hverfi fyrir við-
burði daglegs lífs
í fyrirlestraröð
Hönnunarmið-
stöðvar Íslands,
Listasafns
Reykjavíkur og Listaháskóla Íslands,
annað kvöld í Hafnarhúsi Listasafns
Reykjavíkur. Aðgangur er ókeypis og
allir velkomnir.
Sarah Wigglesworth
í Hafnarhúsinu
Anna Jónsdóttir sópran og Bryn-
hildur Ásgeirsdóttir píanóleikari
verða með tónleika annað kvöld í
Listasafni Sigurjóns. Á dagskránni er
meðal annars Evrópufrumflutningur
á verkinu As Far As The Eye Can See,
eftir Jeffrey Lependorf við ljóð Ann
Lauterbach. Einn-
ig flytja þær
innlend og er-
lend sönglög.
Sumartónleikar í
Sigurjónssafni
Á þriðjudag Suðaustlæg átt, 5-10 með rigningu eða súld, en hæg-
ari og bjart með köflum á Norður- og Austurlandi. Hiti 10 til 17 stig.
Á miðvikudag Suðlæg átt, 3-10 m/s og rigning sunnan- og vest-
anlands, en skýjað með köflum og þurrt að mestu N- og A-lands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan 3-8 vestanlands en hæg vestlæg átt
austanlands. Úrkomulítið. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast austanlands.
VEÐUR
Birkir Bjarnason, landsliðs-
maður í knattspyrnu, er á
leið frá norska félaginu Vik-
ing Stavanger eftir að hafa
verið í röðum þess í sjö ár.
Birkir reiknar með því að
yfirgefa bæði Viking og Nor-
eg fyrir miðvikudagskvöldið
þegar lokað verður fyrir fé-
lagaskiptin. Hann hefur
væntanlega spilað sinn
síðasta leik með Viking. »1
Birkir burt frá
Viking í vikunni?
Usain Bolt, fljótasti maður heims,
missti heimsmeistaratitilinn í 100
metra hlaupi úr höndum sér í gær
þegar hann þjófstartaði í úrslita-
hlaupinu í Suður-Kóreu. Landi hans
frá Jamaíku, Yohan Blake, nýtti tæki-
færið og varð heimsmeistari í
greininni. Keppinautar
hans segja ekki sann-
gjarnt að fella menn úr
keppni fyrir eitt þjóf-
start. »2
Ekki sanngjarnt að falla
úr leik á einu þjófstarti?
Júdókappinn Þormóður Árni Jónsson
skellti Eyjaálfumeistaranum á aðeins
53 sekúndum á heimsmeistara-
mótinu í júdó í París. Það voru óvænt
úrslit því Ástralinn var 45 sætum fyr-
ir ofan Þormóð á heimslistanum. Síð-
an varð íranskur beljaki á vegi Þor-
móðs, sá sami og felldi hann á ÓL í
Peking fyrir þremur árum. »8
Skellti álfumeistara á
53 sekúndum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Fólk var létt á fæti og með sól í sinni
þegar lagt var á brattann á árlegum
Esjudegi Ferðafélags Íslands sem
haldinn var í gær. Um það bil 300
manna hópur lagði af stað laust eftir
hádegi og lét hvorki rigningu né
þokuslæðing í efstu brúnum fjallsins
á sér bíta. Yngstu göngugarparnir,
sem fóru á fjallið undir merkjum
Ferðafélags barnanna, létu sér yfir-
leitt nægja að ganga í svonefndar
grunnbúðir sem voru neðarlega í
fjallinu en hinir vösku og reyndari
fóru alla leiðina upp á efsta hjalla,
þar sem Þverfellshorn heitir.
Hvað er svo glatt
„Esjudagurinn er einn af há-
punktunum í starfi okkar. Veðrið
veldur því að þátttakendur nú eru
færri en vanalega en stundum hafa
þeir verið nærri tvö þúsund manns.
Esjan hefur alltaf mikið aðdráttar-
afl,“ sagði Páll Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Ferðafélags Íslands, í
samtali við Morgunblaðið. Hann var
þá nýkominn úr gönguferð á Mósk-
arðshnjúka með fjörutíu manna hóp
sem lagði af stað um klukkan sex
um morguninn. Ámóta stór hópur
fór svo á fyrrnefnt Þverfellshornið á
laugardagskvöldið.
„Það var
skemmtilegur hóp-
ur og með höfuð-
ljós kom ekki að
sök að fara á fjallið
þó komið væri kol-
niðamyrkur,“ segir far-
arstjórinn, Ólafur Örn
Haraldsson forseti FÍ.
Hann segir stemn-
inguna í hópnum
hafa verið sér-
staklega góða og
á tindinum hafi
fólk tekið lagið
og allir sungið lög
eins og Íslands er
það lag og Hvað er svo glatt sem
góðra vina fundur. Yngstu göngu-
garparnir sem á fjallið fóru í gær
fengu hins vegar í upphafi gott
veganesti frá Ingó veðurguði sem
raulaði dægurslagara af ýmsum
toga.
Tveir tímar á efstu brún
Meðal útivistarfólks er gildandi
viðmið að gott sé að ná upp á efstu
brún Esjunnar á tveimur klukku-
stundum – sem aftur þýðir að reikna
verður sér þrjá tíma í ferðina. „Esj-
an er fjall fyrir alla. Er rétt við
borgarmörkin og er auðkleif,“ segir
Páll. „Í raun þarf fólk ekkert að
gera nema binda á sig gönguskóna
og leggja af stað. Nái maður svo
ekki settu marki í fyrstu tilraun
koma tímar og ráð en mest um vert
er að fá hreyfingu og loft í lungun.“
Loft í lungu og lagt á brattann
Hundruð á fjallið
á Esjudegi Ferða-
félags Íslands
Morgunblaðið/Eggert
Esjan Fjallaprílarar voru á öllum aldri og áður en lagt var af stað var teygt á vöðvum svo ganga mætti greitt.
„Esjan er vinsælasta útivistarsvæði landsins. Áætlað
er að um hverja helgi, frá vori til hausts, gangi
minnst þúsund manns á fjallið og yfir árið skrifa um
20 þúsund manns nafn sitt í gestabók sem er í sér-
stöku hólfi í útsýnisskífunni á Þverfellshorni,“
segir Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri FÍ.
Inntakið í starfi Ferðafélags Íslands er að
vekja áhuga fólks á landinu og greiða fyrir ferða-
lögum þess. Að þessu er unnið meðal annars með
reglulegum ferðum á Esjuna árið um kring, þar
sem arkað er á borgarfjallið með þaulreyndum
fararstjórum, sem velja leiðir við hæfi, bæði fyrir
byrjendur og þrautþjálfaða göngumenn því Esjan
er fjall sem hæfir öllum.
TUGIR ÞÚSUNDA GANGA Á ESJUNA ÁRLEGA
Borgarfjall við allra hæfi
Páll
Guðmundsson.