Morgunblaðið - 04.10.2011, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 4. O K T Ó B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 232. tölublað 99. árgangur
FRÁBÆRIR TÓN-
LEIKAR MUGISONS
Í FRÍKIRKJUNNI
OURLIVES LAGÐI
SIG 100% FRAM
KÚNST AÐ BLANDA
MARAÞONI VIÐ VINNU
OG FJÖLSKYLDULÍF
GEFA ÚT NÝJA PLÖTU 32 MARAÞONIÐ VAR HLIÐARVERKEFNI 10ÁREYNSLULAUS SJARMI 31
Íslandsbanki
hyggst gefa út
sértryggð
skuldabréf, með
veði í fast-
eignalánum, fyr-
ir allt að fimm
milljarða króna
fyrir áramót.
Verður það að
líkindum fyrsta
skuldabréfaút-
gáfa nýs aðila í kauphöll frá því fyr-
ir hrun 2008.
Bankinn hyggst til að byrja með
bjóða innlendum fjárfestum skulda-
bréfin til sölu. Að sögn Birnu Ein-
arsdóttur, bankastjóra Íslands-
banka, er það meðal annars gert til
að styrkja fjármálamarkaðinn. »14
Gefur út bréf fyrir
allt að 5 milljarða
Birna
Einarsdóttir
Umræður á þingi
» Ræðumönnum varð tíðrætt
um mótmælendur fyrir utan al-
þingishúsið og gerðu fjölmarg-
ar tilraunir til að túlka mót-
mælin sér í hag.
» Þá gagnrýndi forsætisráð-
herra bankana og sagði sam-
félagslega skyldu þeirra að
skila hagnaði aftur til sam-
félagsins.
Andri Karl
andri@mbl.is
Forseti Íslands kom nokkuð við sögu í
umræðum um stefnuræðu forsætis-
ráðherra á Alþingi í gærkvöldi. Ann-
ars vegar lagði Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra honum
línurnar þegar kemur að því að tjá sig
opinberlega og hins vegar gagnrýndi
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráð-
herra málflutning forsetans við þing-
setningu á laugardag.
Svandís sagði forsetanum ætlað að
flytja boðskap samstöðu og samein-
ingar með þjóðinni. Það hefði hann
ekki gert við þingsetninguna. „For-
setinn tók til máls sem stjórnmála-
maður en ekki forseti. Þingheimur
átti þess ekki kost að svara honum á
sama vettvangi heldur sátum við eins
og þægur skólabekkur undir lestrin-
um.“
Að lokum hvatti Svandís þingmenn
til að láta ekki Ólaf Ragnar spilla fyrir
þeim góða vilja til samstöðu sem ríki í
stjórnarskrármálinu og ríkti í stjórn-
lagaráði.
Áður sagði Jóhanna að ekki væri
hægt að ráða það af stjórnskipun
landsins að forsetinn talaði fyrir öðr-
um áherslum í pólitískum álitamálum
en þeim sem stjórnvöld hefðu mótað.
Hann þyrfti aukinheldur að vera yfir
dægurþras stjórnmálanna hafinn.
Þegar leitað var eftir viðbrögðum
forseta í gærkvöldi sagði Örnólfur
Thorsson forsetaritari í samtali við
Morgunblaðið að Ólafur Ragnar
myndi ekki tjá sig að svo komnu máli.
Að því er kom fram í sjónvarpsfrétt-
um Ríkisútvarpsins í gærkvöldi voru
ágreiningsmál ríkisstjórnarinnar og
forsetans ekki rædd á ríkisráðsfundi
sem fram fór á Bessastöðum í gær.
Forseta lagðar línur
Forsætisráðherra og umhverfisráðherra gerðu forseta Íslands að umtalsefni
Ekki forsetans að tala fyrir öðrum áherslum en þeim sem stjórnvöld ákveða
MHagnaði verði skilað »2
Andri Karl
andri@mbl.is
„Fyrsti liðurinn var sýnu óljósast-
ur og víðtækastur; eiginlega alls-
herjarákæra. Náttúrlega er mik-
ilvægt að fá þessa liði út því þeir
voru svo óljósir að ekki var hægt
að átta sig á því hvernig bregðast
ætti við þeim,“ sagði Andri Árna-
son, verjandi Geirs H. Haarde, eft-
ir að Landsdómur vísaði fyrstu
tveimur ákæruliðunum af sex frá í
gærdag.
Sigríður J. Friðjónsdóttir, sak-
sóknari Alþingis, sagði niðurstöðu
Landsdóms litlu breyta fyrir und-
irbúning málsins og málsmeðferð-
ina. „Ef Sigríður metur það svo að
þetta hafi ekki þýðingu þá veltir
maður fyrir sér hvers vegna hún
ákærði undir þessum liðum,“ segir
Andri sem krafðist þess að málinu
yrði vísað frá í heild.
Gat ekki haldið uppi vörnum
Ákæruliðirnir sem vísað var frá
snúa annars vegar að því að Geir
hafi ekki brugðist við stórfelldri
hættu sem vofði yfir með því að
beita sér fyrir aðgerðum, löggjöf,
útgáfu almennra stjórnvaldsfyrir-
mæla eða töku stjórnvaldsákvarð-
ana og með því afstýrt fyrirsjáan-
legri hættu fyrir heill ríkisins. Hins
vegar fyrir að hafa ekki látið vinna
heildstæða og faglega greiningu á
fjárhagslegri áhættu.
Krafan um frávísun var í fimm
atriðum en henni hafnað að öllu
leyti, nema í áðurnefndum tilvik-
um. Fyrri ákæruliðurinn þótti ekki
nægilega skýr til að hægt væri að
halda uppi vörnum og í þeim síðari
þóttu sakargiftir, þ.e. að láta ekki
vinna greiningu, ekki refsiverðar.
MMálinu vísað frá að hluta » 4
„Mikilvægt að fá þessa liði út“
Fyrstu tveimur ákæruliðum í máli gegn Geir H. Haarde vísað frá Landsdómi
Geir H.
Haarde
Sigríður J.
Friðjónsdóttir
Á annað þúsund manns tóku þátt í mótmælum
við Alþingishúsið á Austurvelli á meðan umræð-
ur um stefnuræðu forsætisráðherra fóru fram
innandyra. Lögregla telur mótmælin hafa farið
friðsamlega fram, þó að ýmsu lauslegu hafi verið
grýtt í þinghúsið og eldur hafi verið kveiktur.
Enginn slasaðist og þurfti lögregla ekki að hafa
afskipti nema af sárafáum mótmælendum, og
engan að handtaka. »12
Taktfast slegið á tunnur við Alþingishúsið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verði samþykkt að lækka hlutfall
skattafrádráttar vegna séreign-
arsparnaðar úr 4% í 2%, er komið í
veg fyrir þann möguleika að fólk
leggi 4% af tekjum sínum til hliðar í
séreignarlífeyrissjóði. Talsmenn
lífeyrissjóða segja að með þessu
dragi úr langtímasparnaði. Enginn
hvati sé að leggja 4% af tekjum til
séreignarsparnaðar, þar sem um
tvískattlagningu yrði að ræða. »6
Draga mun úr
langtímasparnaði
Framkvæmda-
stjóri FÍB segir
að með 5,1%
hækkun bensín-
gjalds séu stjórn-
völd að ganga
þvert á þær yf-
irlýsingar að
ekki eigi að
hækka skatt á almenning. For-
svarsmenn fjármálafyrirtækja
gagnrýna boðaðan launaskatt
stjórnvalda á fjármálafyrirtækin og
segja áhrifin fara beint út í verðlag-
ið og á starfsmannahaldið. »6
Hefur áhrif á iðgjöld
og bensínverð
Forstöðumenn heilbrigðisstofn-
ana úti á landi segja að ekki sé
hægt að mæta niðurskurðarkröfum
án uppsagna og verulegrar skerð-
ingar á þjónustu. Það sé tvískinn-
ungur að ræða um atvinnu-
uppbyggingu á landsbyggðinni á
sama tíma og skorið sé niður og
stofnunum gert að segja upp. »16
Skert þjónusta
og uppsagnir
Prófessor í félagsfræði segir að
hafa þurfi í huga þá reiði sem mót-
mæli, líkt og við setningu Alþingis á
laugardag, byggist á. Fólk telji að
stjórnvöld hafi ekki forgangsraðað
rétt. Ofan á það bætist sár von-
brigði með að stjórnvöld sem marg-
ir töldu að myndu halda öðruvísi á
málum hafi ekki staðið undir vænt-
ingum. »8
Reiði og brostnar
vonir mótmælenda