Morgunblaðið - 04.10.2011, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2011
Morgunblaðið/Eggert
Nauthólsvík Sumarið var sólríkt í borginni og sólskinsstundir margar.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Sólskinsstundir í Reykjavík mæld-
ust 836,5 í sumar en það er 224
stundum umfram meðallag. Segja
má að sólar hafi notið meira en mán-
uði lengur þetta sumar, þ.e. júní til
september, heldur en venjulegt er,
enda hefur annað eins sólskins-
sumar ekki komið síðan 1929.
Þetta kemur fram í yfirliti
Trausta Jónssonar veðurfræðings
um veðrið í sumar. Á Norðurlandi
var ekki jafn bjart. Þannig voru sól-
skinsstundirnar á Akureyri í sumar
10 færri en í meðalári.
Sumarið var hlýtt suðvestanlands.
Meðalhiti í Reykjavík var 1,2 stigum
ofan meðallags og er þetta sumar í
17. sæti frá upphafi mælinga hvað
hlýindi varðar. Jafnframt kemur
fram í yfirlitinu að þetta er 20. sum-
arið í röð sem hiti er yfir meðallagi í
Reykjavík. Um norðvestanvert land-
ið var hiti 0,7 til 0,8 stigum ofan með-
allags en kólnaði að tiltölu austur
eftir Norðurlandi. Munar þar mest
um óvenjukaldan júnímánuð. Á Ak-
ureyri var hiti aðeins 0,1 stigi ofan
meðallags, lítillega kaldara var sum-
arið 2005. Hiti var einnig 0,1 stigi of-
an meðallags á Dalatanga, en 0,4
stigum undir því á Egilsstöðum.
Úrkoma í Reykjavík var aðeins
68% af meðalúrkomu og er þetta þar
með þurrustu sumrum síðan 1985. Á
Akureyri var úrkoman 87% af með-
alúrkomu. Þar var úrkomusamt í
júní og september en sérlega þurrt í
júlí. Fyrstu 9 mánuðir ársins hafa
verið hlýir á landinu. Meðalhiti í
Reykjavík er 1,2 stigum ofan með-
allagsins 1961 til 1990, 1,1 ofan við í
Stykkishólmi og á Akureyri 0,9 stig-
um yfir sama viðmiði.
Nýliðinn september var hlýr hér á
landi en votviðrasamur. Hiti var vel
yfir meðallagi í öllum landshlutum
og hlýjast að tiltölu varð suðvest-
anlands.
Meðalhiti í Reykjavík var 9,4 stig
og er það 2,1 stigi yfir meðallagi ár-
anna 1961 til 1990. Er mánuðurinn
sá 14. í röðinni af 141 ári síðan mæl-
ingar hófust. Á Akureyri var með-
alhitinn 7,9 stig. Er það 1,5 stigum
ofan meðallags. Á Höfn í Hornafirði
var meðalhitinn 9,1 stig og 9,3 á
Stórhöfða í Vestmannaeyjum.
Sólríkasta sumarið í höfuðborginni í 82 ár
Sólskinsstundir í Reykjavík í sumar voru 224 umfram meðallag 20. sumarið í röð þar sem hiti er
yfir meðallagi í höfuðborginni Nýliðinn september var mjög hlýr en votviðrasamur á landinu öllu
BAKSVIÐ
Andri Karl
andri@mbl.is
„Náttúrlega er mikilvægt að fá þessa
liði út því þeir voru svo óljósir að
ekki var hægt að átta sig á því hvern-
ig bregðast ætti við þeim,“ segir
Andri Árnason, verjandi Geirs H.
Haarde, fyrrverandi forsætisráð-
herra, en Landsdómur vísaði í gær
frá dómi tveimur fyrstu ákæruliðun-
um á hendur honum. Eftir standa
fjórir ákæruliðir sem ljóst er að fara
fyrir dóm. Aðalmeðferð í málinu er
ráðgerð snemma á næsta ári.
Krafa var gerð um það að málinu
yrði vísað frá í heild, m.a. vegna þess
að engin sakamálarannsókn hafi far-
ið fram. Landsdómur féllst ekki á
rök verjenda Geirs en bendir á í úr-
skurði sínum að „[r]eynist mat ákær-
anda, sem ákvörðun um útgáfu
ákæru er reist á, rangt og í ljós kem-
ur við meðferð máls fyrir dómi að á
skorti að það sé nægilega upplýst
eða rennt sé nægum stoðum undir
sakargiftir á hendur ákærða til að
þær teljist sannaðar, ber ákæruvald-
ið halla af því með þeim hætti að
ákærði verður sýknaður af sakar-
giftunum. Er sú niðurstaða ákærða
hagfelldari en frávísun máls, sem
getur leitt til þess að bætt sé úr ann-
mörkum á máli og ákært að nýju“.
Einnig var frávísunarkrafa reist á
því að slíkir annmarkar væru á
ákærunni að ekki væri hægt að halda
uppi viðhlítandi vörnum í málinu.
Landsdómur féllst ekki á það og seg-
ir í úrskurðinum að þegar efni ákær-
unnar er metið heildstætt verði það
skiljanlegt og ekki sé þörf á almenn-
um rökstuðningi í henni.
Gat ekki undirbúið vörn
Engu að síður kemst Landsdómur
að þeirri niðurstöðu að fyrsti liður
ákærunnar fullnægi ekki þeim kröf-
um sem gerðar eru í lögum um með-
ferð sakamála „um að greina svo
glöggt sem verða má hver sú hátt-
semi er sem ákært sé fyrir, enda
verður að fallast á með ákærða að
honum sé þess ekki kostur að und-
irbúa vörn sína gegn svo almennt
orðuðum sökum“.
Í ákæruliðnum er Geir borinn sök-
um um almenna vanrækslu en ekki
lýst einstökum brotum sem hann á
að hafa framið eða tilgreint til hvaða
aðgerða hann hafi átt að grípa svo
hann yrði ekki sakaður um þá van-
rækslu.
Þá vísaði Landsdómur einnig frá
dómi ákærulið 1.2 en í honum er Geir
ákærður fyrir að hafa látið „undir
höfuð leggjast að hafa frumkvæði að
því, annaðhvort með eigin aðgerðum
eða tillögum um þær til annarra ráð-
herra, að innan stjórnkerfisins væri
unnin heildstæð og fagleg greining á
fjárhagslegri áhættu sem ríkið stóð
frammi fyrir vegna hættu á fjár-
málaáfalli“.
Í úrskurðinum segir Landsdómur
að sú háttsemi að láta ekki vinna um-
rædda greiningu geti ekki talist ein
út af fyrir sig refsiverð. „Nauðsyn-
legt hefði því verið að rökstyðja frek-
ar í ákæru til hvers mætti ætla að
slík heildstæð greining hefði nýst og
hverju hefði mátt forða hefði hún
verið gerð.“
Andri segir að þeir ákæruliðir sem
standi eftir séu afmarkaðir og betra
sé þeim að verjast. „Málið þarf ekki
að snúast um þessi allsherjarvið-
brögð sem maður hafði áhyggjur af
að þurfa að verjast, því þar var eig-
inlega öll hagsagan undir. Gallinn við
þá liði sem eftir standa eru að í þeim
eru notuð hugtök eins og „virkar að-
gerðir“. Landsdómur virðist ekki
telja að það þurfi að útskýra það
nánar en ég geri við það verulega
fyrirvara. Það er mjög óljóst hvað
fellur undir „virkar aðgerðir“.“
Vildi vísa allri ákærunni frá
Einn dómari, Ástríður Grímsdótt-
ir, skilaði sératkvæði. Hún var þeirr-
ar skoðunar að vísa bæri málinu í
heild frá dómi, af þeirri ástæðu að
Sigríður J. Friðjónsdóttir, saksókn-
ari Alþingis, væri vanhæf í málinu
vegna aðkomu sinnar að því á fyrri
stigum. „Verður ráðleggingum sér-
fræðings á fyrri stigum málsins öld-
ungis jafnað við stöðu mats- eða
skoðunarmanns […] enda var þings-
ályktunartillagan, sem síðan var
samþykkt af Alþingi, meðal annars
byggð á þeim grunni sem saksóknari
Alþingis lagði til sem sérfræðingur,“
segir í sératkvæðinu. Ástríður taldi
því að Geir gæti með réttu dregið
óhlutdrægni Sigríðar í efa vegna að-
komu hennar við að leggja grunn að
þingsályktun Alþingis.
Jafnframt taldi hún að leggja ætti
allan sakarkostnað í málinu, níu
milljónir króna, á ríkissjóð.
Málinu vísað frá að hluta
Fyrstu tveimur ákæruliðum í máli á hendur Geir H. Haarde vísað frá Landsdómi
Verjandi Geirs telur frávísunina mikilvæga enda hafi ákæruliðirnir verið óljósir
Ákæran
» Málið var höfðað á hendur
Geir fyrir „brot framin af
ásetningi eða stórkostlegu
hirðuleysi í embættisfærslu
hans sem forsætisráðherra“.
» Við þingfestingu málsins 7.
júní sl. neitaði Geir sök í öllum
atriðum. Þá krafðist hann þess
að málinu yrði vísað frá við
þinghald 5. september.
» Nú er ljóst að orðið var við
þeirri kröfu að hluta.
Morgunblaðið/Golli
Þinghald Fimmtán dómara Landsdómur fer með og dæmir mál þau, er Alþingi ákveður að höfða gegn ráðherrum út af embættisrekstri þeirra.
Morgunblaðið/Golli
Skoðað Andri Árnason og Geir
H. Haarde fyrir Landsdómi.
„Þetta breytir
ekki miklu fyrir
undirbúning máls-
ins og máls-
meðferðina,“ segir
Sigríður J. Frið-
jónsdóttir, sak-
sóknari Alþingis, í
samtali við frétta-
vef Morgunblaðs-
ins, mbl.is. „Það
eru þarna tveir lið-
ir sem Landsdómur telur að hafi ekki
verið nægilega skýrir. Fyrri liðurinn,
þ.e. fyrsti liður ákærunnar, er til fyll-
ingar öðrum ákæruliðum eða eins og
segir í úrskurðinum, „litið verði á hina
almennu lýsingu á þessum lið sem
hluti af ákæru í öðrum liðum hennar“.
Þetta er því ekki sjálfstætt ákæruefni
að mati Landsdóms.
Seinna atriðið, liður 1.2. í ákærunni,
fer út en Landsdómur telur að hann
heyri að hluta til undir annan ákæru-
lið.“
Sigríður segir að Landsdómur hafi
farið í gegnum allar röksemdir verj-
anda Geirs um galla á málsmeðferð-
inni og segir málið því komið í skýrari
farveg.
Breytir ekki
miklu um
málsmeðferð
Saksóknari segir mál-
ið í skýrari farvegi
Sigríður J.
Friðjónsdóttir
„Ég lít á [frávís-
unina] sem
áfangasigur því
um er að ræða tvo
veigamestu
ákæruliðina og
jafnframt
þyngstu sak-
argiftirnar. Ég og
lögmaður minn
höfðum á hinn
bóginn talið tilefni til að vísa málinu
frá í heild og að því leyti veldur nið-
urstaðan vonbrigðum,“ segir Geir H.
Haarde í tilkynningu sem hann sendi
fjölmiðlum síðdegis í gær.
Geir segir að nauðsynlegt hafi ver-
ið að kalla fram með frávísunarkröfu
ákvörðun dómsins um það hvort
málsmeðferð hafi uppfyllt skilyrði
laga. „Það var nauðsynlegt m.t.t. þess
hvernig staðið verður að meðferð
mála sem þessara í framtíðinni.“
Geir segist sem fyrr bera fullt
traust til réttarkerfisins og þess albú-
inn að sýna fram á sakleysi sitt við
meðferð málsins. „Ég verð þá loks yf-
irheyrður fyrir dómi ásamt tugum
annarra einstaklinga sem málinu
tengjast. Vonandi gengur þá greið-
lega að leiða hið sanna í ljós í málinu.“
Áfangasigur
en vonbrigði
Geir H. Haarde