Morgunblaðið - 04.10.2011, Side 11
Kátir Kristinn (lengst til hægri) ásamt félögum sínum að nýloknu maraþoni,
f.v. Pétur Smári Sigurgeirsson, Eyþór Kristjánsson, Friðleifur Friðleifsson.
strákarnir sem hafa verið með
mér í liði í liðakeppni í þrekmóta-
röð voru allir búnir að hlaupa
maraþon. Þeir hvöttu mig til að
hlaupa Laugaveginn sem ég gerði
núna í sumar. Ég var sáttur við
árangurinn en ég náði að vera í
fyrsta sæti í sveitakeppninni og
11. sæti í hlaupinu. Fljótlega eftir
það voru nokkrir úr Boot Camp
farnir að skrá sig í Berlínar-
maraþonið. Ég ákvað að slá til og
er heppinn að konan mín hljóp
líka og við fengum að upplifa
þetta saman,“ segir Kristinn.
Lítill tími til að finna lausn
Kristinn byrjaði að æfa hlaup
eftir prógrammi hlaupaþjálfara í
mars og lauk síðasta hlaupinu í
því nú um helgina en það hlaup
var eftirfylgni eftir maraþonið.
Hann segir að með réttum undir-
búningi hafi ekki verið svo erfitt
að hlaupa Laugaveginn, jafnvel þó
að vegalengdin sé lengri en í
maraþoni. Maraþonhlaupið sem
slíkt hafi hins vegar verið erfiðara
en hann hélt og reynsluleysið hafi
komið honum nokkuð í koll. Hann
lauk þó hlaupinu á 3:06:12 sem
teljast má mjög góður árangur.
„Þar sem ég hafði ekki mikla
hlaupareynslu að baki fann ég að
ég hafði lítinn tíma til að finna
rétta lausn á þeim vandamálum
sem komu upp. Maður hefur ein-
faldlega ekki möguleika á að
bregðast nógu skjótt við og taka
réttar ákvarðanir. Í 30 km mark-
inu fékk ég t.d. heiftarlegan
magaverk af orkugeli og mér datt
ekkert í hug til að losna við verk-
inn nema bíða eftir að ég fengi
vatn. Reynslumeiri hlaupari hefði
hins vegar kannski bara verið með
vatn á sér til að eiga möguleika á
að leysa slíkt vandamál hratt. Það
kom mér líka á óvart hvað maður
þarf að drekka mikið þegar á
hólminn er komið og hversu marg-
ir voru í hlaupinu. Ég og félagar
mínir tveir úr Boot Camp lögðum
saman upp hlaupaplan og náðum
að halda því að einhverju leyti. En
keppendur voru það margir að það
tók miklu meiri orku en maður
reiknaði með að komast að og
maður þurfti að vera pínulítið
frekur,“ segir Kristinn.
Líkamlegur veggur
Kristinn segist hafa verið
sáttur við árangurinn þó að hann
hafi ætlað sér að ná þriggja tíma
markinu. Hann hafði þó verið var-
aður við að líklega væri það nokk-
uð bjartsýnt miðað við fyrri
reynslu. Hann segist ekki hafa
hlaupið á vegg eins og stundum er
talað um en telur það hafa bjargað
sér hvað hann drakk mikið eftir
magaverkinn. Veggurinn sé ekki
endilega andlegur heldur frekar
að gríðarlega mikið af mjólkur-
sýru losni út í líkamann og drekki
fólk ekki nóg byrji vöðvarnir að
stífna upp.
Eftirvænting í hópnum
Kristinn segir það hafa verið
skemmtilega upplifun að taka þátt
í Berlínarmaraþoninu.
„Það er feikilega gaman að
vera í hóp þar sem allir eru með
sama markmið. Það var mikil
eftirvænting í loftinu og allir svo
glaðir og spenntir. Svo er magnað
að upplifa svona stórt hlaup. Við
héldum saman nokkur í hóp en 90
Íslendingar voru skráðir í hlaupið
og þarna var meðal annars stór
hópur frá Árbæjarskokki. Það
ríkti mikil samkennd og ég lærði
mikið af þeim sem höfðu hlaupið
áður og lærði hluti sem mér hefðu
aldrei dottið í hug, bara t.d. eins
og að hlaupa ekki í svörtu,“ segir
Kristinn.
Langt æfingatímabil
að baki
Þó að Kristinn hafi mikla
ánægju af hlaupunum segist hann
þó ekki ætla að einbeita sér ein-
göngu að þeim hér eftir heldur
halda áfram í Boot Camp og
hlaupa í og með. Þannig haldi
hann sér í góðu jafnvægi styrks
og úthalds og best sé að vera í al-
hliða góðu formi
„Ég er byrjaður aftur núna í
Boot Camp og er að æfa fyrir mót
í þrekmótaröðinni sem heitir 5x5
og verður haldið í Vestmanna-
eyjum um miðjan október. Svo
ætla ég til Berlínar aftur á næsta
ári og vonandi til Boston 2013.
Ætli maður reyni ekki að taka eitt
maraþon á ári en það er dálítil
kúnst að blanda þessu við vinnu
og fjölskyldulíf þar sem undirbún-
ingur fyrir hlaup er miklu tíma-
frekari en ég hafði ímyndað mér í
byrjun,“ segir Kristinn.
Morgunblaðið/Golli
Tekið á Þau eru heilmikil átökin í Boot Camp eins og sjá má hér á Kristni í hádegistíma í gær.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2011