Morgunblaðið - 04.10.2011, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2011
skarst í leikinn áður en eldurinn varð
að báli.
Svo virðist sem áætlunarflugi
Flugfélagsins hafi verið beint yfir
Austurvöll því að minnsta kosti þrjár
farþegavélar merktar fyrirtækinu
flugu beint yfir alþingishúsið svo
mikill hávaði skapaðist.
Fólk úr öllum stigum samfélags-
ins virtist þarna samankomið og á
dreifðum aldri.
Mótmælaspjöld voru áberandi og
á þau var búið að rita skilaboð ætluð
ráðamönnum Íslands. Slagorð á borð
við „Ég borða ekki fögur fyrirheit“,
„Þarf ég að flytja úr landi til að eign-
ast mannsæmandi líf?“, „Þjóðinni
blæðir út“ og „Lýðræði – réttlæti“
mátti sjá á Austurvelli í gærkvöldi.
Mótmælin fóru að mestu friðsam-
lega fram en þó voru einhverjir sem
grýttu eggjum og öðru matarkyns í
átt að alþingishúsinu.
Morgunblaðið/Júlíus
Austurvöllur Mótmælendur stóðu flestir við girðingu sem sett hafði verið upp framan við þinghúsið. Nokkrir kveiktu á blysum og tunnur voru barðar.
Friðsamlegur hávaði
Vel á annað þúsund manns kom saman til að mótmæla á Austurvelli Mótmæl-
in fóru að mestu friðsamlega fram Fólk úr flestum stéttum samfélagsins mætti
BAKSVIÐ
Róbert B. Róbertsson
robert@mbl.is
Vel á annað þúsund manns safnaðist
saman fyrir framan Alþingi á Aust-
urvelli í gærkvöldi í tilefni af stefnu-
ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur for-
sætisráðherra.
Þingfundurinn hófst rétt fyrir
klukkan átta, en töluverður fjöldi
mótmælenda var kominn nokkru
fyrir þann tíma. Eftir því sem leið á
kvöldið fjölgaði fólki og hávaðinn
magnaðist.
Flugeldar og flugvélar
Búið var að koma fyrir fjölda
tómra tunna sem fólk barði á svo
glumdi um allan miðbæinn. Flugeld-
um var skotið upp og eldur lagður að
vörubretti úr tré, en lögreglan
,,Ég er að mót-
mæla því að búið
er að rústa öllu
hjá heimilunum.
Margt fólk er bú-
ið að missa aleig-
una og það er
ekkert verið að
gera fyrir þetta
fólk,“ sagði Guð-
mundur Ingi
Kristinsson.
Hann sagðist vera búinn að fá
nóg, en Guðmundur er einn þeirra
sem eru búnir að missa mikið.
,,Ég er búinn að missa íbúðina
mína og það eina sem ég gerði er að
ég lenti í umferðarslysi og er í dag
100% öryrki. Það var 82 ára gamall
maður sem ók yfir á öfugan veg-
arhelming og keyrði bílinn minn í
klessu. Þetta gerðist fyrir 10 árum
og ég er búinn að fá allt í allt 400
þúsund í bætur.“
Bara glæpamenn
sem fá gjafsókn
,,Ég er búinn að bíða og bíða og
biðja um gjafsókn. Þeir lofa öllu
fögru, en það gerist ekki neitt. Ög-
mundur lofaði mér gjafsókn og það
gerist ekkert. Öllu er logið og fals-
að. Það fær enginn gjafsókn í dag
nema glæpamenn.“
Missti íbúðina
sína eftir að hafa
lent í bílslysi
Guðmundur Ingi
Kristinsson
Ein þeirra sem létu í sér heyra í
mótmælunum á Austurvelli í gær
var Elínborg Valdórsdóttir. Hún
mótmælti að eigin sögn þeirri
meðferð sem gamla fólkið, ör-
yrkjarnir og fátæka fólkið hefur
sætt.
„Það er búið að fara svo illa
með gamla fólkið, öryrkjana og
fátæka fólkið, taka af því eigur og
mér finnst það vera óréttlæti,“
sagði Elínbjörg, sem stóð í
fremstu röð mótmælenda. Hún
sagði jafnframt að boða þyrfti til
kosninga strax.
„Leyfið okkur að kjósa strax. Út
með þessa ríkisstjórn.“
„Leyfið okkur
að kjósa strax“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Læti Elínborg lét í sér heyra á Austurvelli.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Enn er ekkert farið, nema smávegis til Jap-
ans, en það getur komið pöntun á morgun. Ég
hef ennþá trú á þessu,“ segir Jón Árni Sig-
urðsson, eigandi Gullsteins á Reykhólum, sem
framleiðir þaratöflur. Hann stefnir að útflutn-
ingi og hefur lagt mikið undir en markaðs-
starfið hefur tekið lengri tíma en reiknað var
með.
Starfsemi Gullsteins er í húsnæði sem áður
hýsti útibú Kaupfélags Króksfjarðar. Jón
Árni keypti húsið upphaflega til að verka grá-
sleppuhrogn en leigði það síðan til frumkvöðla
sem hófu framleiðslu á þaratöflum. „Bjarni P.
Magnússon var byrjaður að framleiða þara-
töflur fyrir Heilsu og ég sat uppi með vélina
þegar hann hætti,“ segir Jón Árni um upphaf-
ið. Hann hefur haldið áfram framleiðslu fyrir
Heilsu og undir eigin vörumerki, lengst af
samhliða starfi hjá Þörungaverksmiðjunni.
Vélarnar hefur hann allar endurnýjað, frekar
tvisvar en einu sinni.
Einnig framleiðir hann hunda- og katta-
nammi úr harðfiskmulningi fyrir Fisk-
söluskrifstofuna í Hafnarfirði, undir vöru-
merki hennar. Salan hefur aukist jafnt og þétt
og Fisksöluskrifstofan gert tilraunir með út-
flutning.
Sölusamningar í undirbúningi
Að undanförnu hefur Jón Árni lagt mesta
áherslu á að búa sig undir útflutning. Hann
hefur samið við tvö útflutningsfyrirtæki, ann-
að reynir að selja vöruna til Japans og fleiri
Asíulanda og hitt vinnur meira á Evrópu-
markaði. Töflurnar fengu góðar viðtökur og
stórir sölusamningar hafa verið í burðar-
liðnum. Jón Árni ákvað að hætta í Þörunga-
verksmiðjunni í vor og helga sig alfarið upp-
byggingu eigin fyrirtækis. „Þetta virtist ætla
að verða það mikið og ég hef ennþá trú á því,“
segir Jón Árni.
Hann segir stöðugt unnið að sölumálunum
og hefur trú á að það sé að bera árangur þótt
tafir hafi orðið á að pantanir bærust frá stór-
fyrirtækjum. „Þetta eru fyrirtæki með mörg
þúsund verslanir og mikið mál þegar það ger-
ist,“ segir hann.
Á meðan heldur Jón Árni áfram að fram-
leiða þaratöflur á lager og nýtir öll þau ílát
sem hann á kost á. Ekki er langt að sækja
hráefnið því mjölið fær hann frá Þör-
ungaverksmiðjunni. Það er unnið úr hrossa-
þara.
Þörungar eru steinefnarík fæða. Jón Árni
segist heyra margar sögur um góð áhrif
þeirra á líkamann en sé sjálfur ekki í aðstöðu
til að fullyrða um ágæti vörunnar.
Hann hefur einnig verið að prófa sig áfram
með að búa til krydd úr þörungunum, í stað
salts, og íbúar Reykhóla og fleiri vinir og
kunningjar hafa verið tilraunadýr hans. Bind-
ur Jón Árni vonir við að geta komið kryddinu
á markað áður en langt um líður.
Þaratöflur unnar til útflutnings
Jón Árni Sigurðsson hætti í Þörungaverksmiðjunni til að einbeita sér að framleiðslunni
Varan fær góðar viðtökur en markaðsstarfið hefur tekið lengri tíma en reiknað var með
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Nýsköpun Jón Árni fyllir allar kirnur meðan
hann bíður eftir stóra sölusamningnum.
„Ég er að mótmæla því hvernig
fjármálavaldið hefur leikið fólk-
ið,“ sagði Júlíus Valdimarsson.
Hann sagði jafnframt að hann
vildi mótmæla því hvernig bank-
arnir, ríkisstjórnin og Alþingi
hefðu komið fram. Þá fór hann
fram á það að leyst yrði úr
vanda heimilanna ekki síður en
strax og að verðtryggingin yrði
afnumin.
„Ég vil að völdin verði tekin af
bönkunum þannig að fólkið sjálft
myndi sína banka og við losnum
úr klóm fjármálavaldsins. Ég
segi að við
séum þessi
99% sem þræla
í þrælakistunni
fyrir þetta 1%
sem þá er eftir.
Þá á ég við að
Ísland, eins og
önnur lönd, er
hluti af alþjóð-
legu fjármála-
kerfi sem er að níðast á fólk-
inu,“ sagði Júlíus og lyfti upp
skilti sínu sem á stóð: „Mennska
framtíð.“
Mennska framtíð
MÓTMÆLI
Júlíus
Valdimarsson