Morgunblaðið - 04.10.2011, Side 22

Morgunblaðið - 04.10.2011, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2011 ✝ Margrét Árna-dóttir fæddist í Reykjavík 26. febr- úar 1953. Hún lést á krabbameins- deild Landspít- alans 25. sept- ember. Margrét var dóttir hjónanna Guðrúnar Borg- hildar Steingríms- dóttur, f. 5.10. 1925, og Árna V. Gíslasonar, fyrrverandi forstjóra, f. 2.6. 1928. Systkini Margrétar eru: 1) Steinunn Kristín, f. 24.2. 1950, gift Sigurði Guðmunds- syni, f. 22.10. 1949. Þau eiga þrjá syni og tvö barnabörn; 2) Gísli, f. 24.1. 1955, giftur Unni Úlfarsdóttur, f. 13.2. 1955. Þau eiga eiga þrjú börn og þrjú barnabörn; 3) Bogi Guð- 3) Kristín Ýr nemi, f. 4.8. 1993. Margrét lauk verslunarprófi og samhliða vinnu, heim- ilishaldi og uppeldi lauk hún stúdentsprófi frá Versl- unarskóla Íslands árið 1990. Hún starfaði hjá Landsbanka Íslands um árabil en tók síðan við framkvæmdastjórastöðu í fyrirtæki fjölskyldu sinnar sem hún gegndi þar til það var selt árið 2007. Eftir það starfaði hún hjá flugfélaginu Bláfugli. Margrét var dugnaðarforkur til hugar og handa eins og hún á ættir til. Hvers kyns hannyrðir léku í höndum hennar. Þau Gilli höfðu mikla ánægju af því að dvelja í sumarbústað sínum í Svínadalnum sem hún hafði bú- ið miklu úrvali muna sem hún hafði yndi af. Þau hjónin höfðu einnig búið sér glæsilegt heim- ili í Seljahverfinu. Margrét varð þrisvar sinnum Íslands- meistari í línudansi hópa og var varaformaður Félags línudans- ara þegar hún lést. Útför Margrétar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 4. október 2011, og hefst athöfnin kl. 13. mundur, f. 9.10. 1966, giftur Krist- ínu Hlíðberg Rafnsdóttur, f. 12.8. 1972. Þau eiga tvö börn. Hinn 16. ágúst 1975 giftist Mar- grét eftirlifandi eiginmanni sínum, Gísla Örvari Ólafs- syni, bifreiðasmið og bílamálara, f. 30.12. 1953. Gísli er sonur Mar- íu Gísladóttur, f. 1.12. 1933, hún lést 2.1. 1994, og Ólafs A. Ólafssonar málarameistara, f. 27.1. 1931. Margrét og Gísli eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Steinar Freyr sölumaður, f. 13.2. 1976, kvæntur Kristínu Guðrúnu Jónsdóttur deild- arstjóra, f. 2.7. 1980. 2) Rúnar Bogi flugmaður, f. 11.6. 1982. Ó elsku mamma. Nú er mamma farin. Farin frá okkur úr þessum veraldlega heimi á vit hins óþekkta. Orð geta ekki lýst því hve mikill söknuðurinn er, söknuður sem mun fylgja okkur til hins síðasta sólarlags. Það mun ekki líða dagur þar sem við hugsum ekki um mömmu og allt sem við gerðum saman. Samvera okkar mömmu er nokkuð sem aldrei gleymist, hlátur, grátur og fræknir sigrar. „Farin“ er hins vegar afstætt í okkar huga, því minning hennar og andi munu verma hjörtu okkar. Mamma var ekki bara sú sem skapaði okkur, heldur var hún vinur í raun, ráð- gjafi og leiðbeinandi í lífinu. Ef það var einhver vafi um eitthvað ráðfærðum við okkur við mömmu og útkoman var okkur alltaf til hagsbóta. Þegar lífið reyndist erfitt og ósanngjarnt kom hún okkur til varnar og sýndi okkur leiðina heim. Við systkinin höfðum öll okkar ólíku en sérstöku tengsl við mömmu. Það skipti ekki máli hvert okkar leitaði til hennar, öll fengum við óskipta athygli henn- ar, og þegar við lítum til baka getum við ekki fundið eitt atriði sem hún klikkaði á í garð okkar. Allt sem við erum höfðum við frá henni. Meiri dugnaðarfork og reglusamari manneskju höfum við ekki þekkt, hún var mikill náttúruunnandi, lista- og hann- yrðakona og vinur vina sinna. Arfleifð hennar erum við börnin hennar, fjölskylda og vinir og það sem hún skilur eftir sig eru ynd- islegar minningar sem myndu fylla dýpstu dali. Hún hafði skilað sínu og svo miklu meira en það, en hennar tilgangur í lífinu er á endastöð kominn og við tekur eitthvað nýtt og framandi. Við vitum það að hún er í góðum höndum og því brosum við þegar við lítum upp til himna. Ávallt munum við minnast hennar af allri okkar hjartans ást og með kærleika hennar að vopni munu opnast nýjar gáttir, gáttir til nýrra tækifæra, nýrra minn- inga og nýrra sigra. Við viljum tileinka þetta brot út kvæði minningunni um mömmu: Jeg trúi því, sannleiki, að sigurinn þinn að síðustu vegina jafni. (Þorsteinn Erlingsson) Fyrir hönd barna, Steinar F. Gíslason. Ég trúi því varla enn að ég þurfi að setjast hér niður og skrifa minningargrein um hana tengdamúttu. Þó svo hún hafði barist lengi við erfið veikindi hafði hún aldrei hátt um það og kom dauðsfall hennar svolítið eins og þruma úr heiðskíru lofti og skildi það eftir sár sem aldrei mun gróa. Ég kynntist Möggu fyrst árið 1998 þegar ég og Steini byrjuð- um eitthvað að dúlla okkur sam- an. Hún var reyndar úti á Ítalíu fyrstu dagana og var Steini frek- ar lúsalegur þegar hann kynnti mig fyrir mömmu og pabba þeg- ar þau voru komin heim. Það var nú samt ekki að spyrja að því, hún og reyndar öll fjölskyldan tóku mér opnum örmum og létu mér strax finnast ég vera mik- ilvægur þáttur í tilveru þeirra. Við komumst fljótt að því að ég átti sameiginlegt áhugamál með fjölskyldunni, en það var mikil og sterk tenging við hana stóru Am- eríku og áttum við fjölskyldan margar yndislegar stundir þar saman. Við stelpurnar gátum leg- ið tímunum saman úti við sund- laug á meðan karlarnir spiluðu golf og svo seinnipartinn var kíkt í mollin og fengið sér að borða. Ég viðurkenni þó að ég var alls ekki eins dugleg og Magga í búð- unum, en hún bætti svo sem al- veg upp fyrir það með því að kaupa á mann föt þó svo hún hafi verið aðeins meira fyrir glingrið og glimmerið en ég. Árið 2004 ákváðum við Steini að gifta okkur og kom aldrei ann- ar staður til greina en að hafa veisluna í Jakaselinu. Þurfti Magga að skutla seinustu gest- unum heim klukkan 6 um morg- uninn og er það mjög gott dæmi um partíin sem Jakaselið bauð upp á. Við Steini fengum svo oft Jakaselið lánað fyrir okkur og héldum við meðal annars stóraf- mæli, útskriftarveislur og kveð- jupartí svo eitthvað sé nefnt. Við Steini fluttum til Ameríku árið 2006. Magga kom og heim- sótti okkur nokkrum sinnum og stundum fórum við og hittum þau í íbúðinni í Florida og eru þær stundir okkur Steina svakalega mikils virði. Stuttu eftir að við fluttum aftur heim varð Magga veik. Við vissum reyndar ekki al- varleika veikindanna fyrr en allt of seint og gerir það fráfall henn- ar enn erfiðara. Frá því við Steini fluttum heim vorum við mjög dugleg að fara með þeim upp í bústað og vorum við iðin við að betrumbæta og fegra umhverfið í hvert skipti. Magga skaut aldrei niður þær hugmyndir sem við fengum og erum við meðal ann- ars byrjuð á tréhýsi, búin að byggja risadanspalla og ryðja hálfan skóginn til að búa til gönguleiðir um svæðið. Eins erfiður og tíminn fram að þessu hefur verið veit ég að hann á ekkert eftir að skána. Tíminn læknar svo sannarlega ekki öll sár, en við lærum ef til vill að lifa með sársaukanum þegar á líður. Elsku Gilli, Rússi, Ýra, Steini minn, amma og afi og í raun öll tengdafjölskyldan mín. Við höld- um áfram að vera sterk eins og Magga vildi og munum svo sann- arlega halda áfram að skapa frek- ar minningar saman, hvort sem það er í Reykjavík, Svínadal eða Ameríku. Þín tengdadóttir, Kristín. Elsku amma, við söknum þín mikið. Þú varst alltaf svo góð við okkur. Leyfðir okkur að gista hjá þér og við fengum líka að fara með ykkur afa upp í sumarbú- stað. Í sumarbústaðnum fengum við oft að fara í nammiskápinn og svo fengum við líka alltaf pott-ís þegar við fórum í heita pottinn. Við fórum líka nokkrum sinnum í leikhús með þér. Þegar þú fórst til útlanda keyptirðu alltaf fullt af fötum á okkur, það fannst okkur gaman, sérstaklega Viktoríu. Þú varst líka svo dugleg að prjóna á okkur lopapeysur og kraga og legghlífar og eyrnabönd. Þegar við gistum hjá þér þá sögðum við alltaf bænina okkar: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Þín ömmubörn, Viktoría, Lúkas Magni og Jökull Gísli. Við systurnar vorum ekki líkar að eðlisfari þegar við vorum að alast upp. Ég vildi helst vera uppi í sófa að lesa en hún var rauð- hærður, freknóttur fjörkálfur sem fékk oft bágt fyrir prakkara- strikin. Eftir að við eltumst og stofnuðum heimili urðum við samrýndari og höfum í raun ekki getað án hvor annarrar verið svo áratugum skiptir. Ég man þegar ég kom heim frá Kanada eitt vorið meðan Siggi var í námi og hún kynnti mig fyr- ir kærastanum sínum, mér fannst hún hafa valið vel og okkur Gilla varð strax vel til vina. Við fórum með strákana okkar í útilegur, ferðir til Ítalíu, Bretlands og Bandaríkjanna. Eftir að mamma og pabbi og þau Gilli byggðu sumarbústaðina sína í Svínadaln- um vorum við æ oftar þar, feng- um að gista á háaloftinu. Síðar bættist Gísli bróðir við með sinn bústað og síðast við Siggi. Það var viðtekin venja að við borðuð- um saman í bústaðnum um helg- ar og þá var nú glatt á hjalla. Ekki spillti fyrir að Gilli er frá- bær kokkur og hún, hin hagsýna húsmóðir, sá að best og ódýrast var að gera allt sjálfur, allir muna eftir heimabökuðu brauðunum, snúðunum og eldbökuðu pítsun- um. Oft vorum við hátt í 20 að borða saman og þá skipti ekki máli þótt einhverjir bættust í hópinn, uppskriftin var bara stækkuð, allir voru velkomnir, alltaf nóg pláss í hjarta hennar. Við unnum saman hlið við hlið við rekstur fjölskyldufyrirtækis- ins í rúm 20 ár, þar unnum við öll systkinin, Gilli mágur og Unnur mágkona ásamt pabba og mömmu. Síðan þegar strákarnir okkar stækkuðu fengu þeir vinnu þar líka, þannig að stór- fjölskyldan var alltaf saman í leik og starfi. Magga systir var stórhuga, ákveðin, hjálpsöm, gjafmild, leiðbeinandi ráðgjafi, ættrækin og sannur vinur vina sinna. Hún hafði alltaf tíma fyrir þá sem þurftu á aðstoð að halda, hvort sem það var að hjálpa til við handavinnu, lærdóm eða fara í búðir. Þessi mikli orkubolti þurfti alltaf að hafa eitthvað fyr- ir stafni og dró mig með sér á alls konar námskeið. Nefna má búta- saum, leikfimi, keramikmálun, leirlistina og línudansinn. Nú í vor fékk hún mig meira að segja með sér á zumba-námskeið. Línudansinn veitti henni mikla ánægju, hún var búin að stunda hann í nokkur ár með Gilla þegar hún ákvað að ég yrði að kynnast þessum gleðigjafa líka. Hún fékk Huldu mágkonu sína til að fara með mér á byrjendanámskeið og eftir það varð ekki aftur snúið. Þarna sameinaðist góður fé- lagsskapur og gleðin að dansa við skemmtilega og fjölbreytta músík hjá Óla Geir. Hún var ein af stofnendum keppnishópsins Dívurnar og eins og venjulega dró hún mig með í hópinn. Þarna myndaðist sérlega góður kjarni af 12 hressum og jákvæðum kon- um sem hafði það markmið að vinna Íslandsmeistaratitilinn og það tókst síðustu þrjú árin, síðan var hist í sumarbústaðnum með makana til að fagna sigri og þar var sungið og dansað fram á morgun, yndisleg minningabrot. Við hneigjum höfuð í sorg eins og blómin sem verða að láta und- an haustlægðunum sem nú dynja á okkur, ég veit að ég á eft- ir að sakna hennar óumræðilega mikið um alla framtíð. Steinunn Árnadóttir. Í dag kveðjum við Möggu mágkonu mína, en margar góðar minningar koma upp. Það var stoltur bróðir sem kom með þessa fallegu rauðhærðu stúlku heim og því gleymi ég aldrei. Þau voru óþreytandi að taka mig með sér allt sem þau fóru, hvort sem var á rúntinn niður á Hall- ærisplan, sveitaböll, útilegur o.fl. Hún ferðaðist alltaf mikið og þegar ég fór í fyrsta skipti til út- landa innan við tvítugt, þá var það vegna þess að hún bauð mér með sér til London ásamt Unni mágkonu sinni. Þetta var eitt- hvað sem ég hafði aldrei látið mig dreyma um og var ógleym- anlegt að vera 3 ungar stúlkur saman í heimsborginni. Hún var einstaklega myndar- leg í öllu sem hún gerði, búta- saumur, allskonar föndur og þær eru ófáar flíkurnar sem hún hef- ur prjónað og saumað, en hún var alltaf að skapa og gera eitt- hvað fallegt og margir nutu góðs af því. Hennar orð voru „þetta er ekkert mál, bara drífa sig“ og þær eru ófáar veislurnar sem hún og Gísli héldu og alltaf var það jafn glæsilega gert hvort sem það var maturinn eða skreytingarnar. Og aldrei stóð á Möggu að bjóða fram aðstoð sína við veislur eða bara hvað sem var. Magga elskaði að dansa og var alltaf jafn gaman að sjá þau hjónin dansa hvort sem það var samkvæmisdans eða línudans, en hún var búin að vera í línu- dansi í mörg ár. Magga elskaði að hafa fallegt í kringum sig, hvort sem það var heimilið eða sumarbústaðurinn og alltaf var jafn gaman og gott að koma til hennar. Það voru sérstök for- réttindi að fá að kynnast Möggu sem var bæði falleg að innan sem og að utan. Elsku Gísli, Steinar Freyr, Kristín, Rúnar Bogi og Kristín Ýr, megi góður Guð blessa ykkur og gefa ykkur styrk. Takk fyrir allt og hvíldu í friði. Valgerður Ólafsdóttir. Margrét Árnadóttir ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GÍSLI KRISTJÁNSSON, lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð laugar- daginn 1. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Gísli Már Gíslason, Sigrún Sigurðardóttir, Halldóra Gísladóttir, Eiríkur Líndal, Anna Gísladóttir, Kjartan Örn Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, BIRGIR JÓNSSON sjómaður, Frostafold 3, Grafarvogi, andaðist á líknardeild Landakotsspítala sunnudaginn 25. september. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Halla Bryndís Steinsdóttir, Oddur Steinar Birgisson, Anna Heiða Reynisdóttir, Aðalheiður Jóna Birgisdóttir, Guðjón Gíslason, Hrafnhildur Birgisdóttir, Hafþór Vattnes Sævarsson, Kolbrún Birgisdóttir, Magnús Einarsson, Magnea Þóra Erlingsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÉTUR HJÁLMSSON fv. ráðunautur, Borgarási 2, Hrunamannahreppi, varð bráðkvaddur sunnudaginn 2. október. Útförin verður auglýst síðar. Ólöf Sjöfn Gísladóttir, Sigríður Síta Pétursdóttir, Hilmar Þór Óskarsson, Unnur Pétursdóttir, Gunnar Benediktsson, Hjálmur Pétursson, Halla Gunnarsdóttir, Guðrún Pétursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn ✝ Okkar ástkæra, AÐALBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR, Lundi 1, Kópavogi, andaðist á heimili sínu sunnudaginn 2. október. Guðmundur Skaftason, Valgerður Guðmundsdóttir, Páll Svavarsson, Skafti Guðmundsson, Gro Kraft, Sigrún Guðmundsdóttir, Magnús V. Magnússon. ✝ Ástkær móðir, tengdamóðir, systir, amma og langamma okkar, GUÐRÚN A. BÆRINGSDÓTTIR, Miðvangi 41, Hafnarfirði, lést á Borgarspítalanum Fossvogi miðviku- daginn 28. september. Hún verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 7. október kl. 13.00. María Halldórsdóttir, Einar G. Jónsson, Einar Halldórsson, Ólafur Þ. Halldórsson, Ásgeir Valhjálmsson, Sigurlína Kristjánsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Systir mín, ANNA HALLSDÓTTIR frá Steinkirkju, Þórunnarstræti 108, Akureyri lést á Dvalarheimilinu Hlíð, þriðjudaginn 27. september. Útför hennar fer fram frá Illugastaðakirkju, föstudaginn. 7. október kl. 14.00. Elín Hallsdóttir og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.