Morgunblaðið - 04.10.2011, Síða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2011
✝ Hafdís Jón-steinsdóttir
fæddist í Reykjavík
22. ágúst 1951.
Hún lést á líkn-
ardeild Landspít-
alans í Kópavogi
23. september
2011.
Foreldrar henn-
ar eru Jónsteinn
Haraldsson frá
Eskifirði, f. 4.3.
1924, og Halldóra Kristjáns-
dóttir frá Vopnafirði, f. 2.6.
1928. Bróðir Hafdísar er Borg-
ar Jónsteinsson, f. 19.5. 1960,
kona hans Þórunn Inga Sigurð-
ardóttir, f. 30.6. 1965.
Hinn 26.1. 1974 gekk Hafdís
unarstörf hjá bókabúð Máls &
menningar frá 1969 til 1973.
Frá árunum 1973 til 1990 vann
hún ýmiss konar skrifstofu- og
verslunarstörf og má þar nefna
húsgagnaverslunina Línuna,
verslun föður hennar, Skák-
húsið og Leiklistarskóla Íslands.
Á árunum 1990 til 1995 bjó hún
ásamt fjölskyldu sinni í Växjö,
Svíþjóð og stundaði þar nám í
vuxen pedagogik við Växjö Uni-
versitet. Árið 1995 flutti hún
ásamt fjölskyldu sinni til
Reykjavíkur og hóf þá störf sem
fjármálastjóri hjá bókaversl-
unum fjölskyldunnar. Við sölu á
þeim, árið 2000, hóf hún störf
hjá Íslensku menntasamtök-
unum sem skrifstofustjóri og
eftir það hjá Félagi leiðsögu-
manna þar sem hún starfaði
meðan kraftar leyfðu.
Útför Hafdísar fer fram frá
Víðistaðakirkju í dag, 4. októ-
ber 2011, og hefst athöfnin kl.
15.
að eiga Ólaf Örn
Jónsson. Foreldrar
hans eru Jón Gest-
ur Jónsson, f. 26.9.
1926, og Rósa-
munda Alda Arn-
órsdóttir, f. 30.6.
1929. Börn Hafdís-
ar og Ólafs Arnars
eru 1) Rósa Ólafs-
dóttir, f. 31.7. 1973,
d. 24.8, 1973. 2)
Halldóra Ólafs-
dóttir, f. 10.11. 1974, dóttir
hennar er Ísold Braga Hall-
dórudóttir, f. 11.8. 1996. 3) Ólaf-
ur Örn Ólafsson, f. 19.10. 1986, í
sambúð með Ástrós Ósk Jóns-
dóttur, f. 6.7. 1985.
Hafdís vann við versl-
Ég vildi ég gæti andað yl
inn í þig, vinur minn.
Ég vildi ég gæti klappað og kysst
kjark í svipinn þinn.
Ég vildi ég gæti sungið sól
í særða hjartað þitt,
sem að gæti gefið þér
guðdómsaflið sitt.
Ég vildi ég gæti vakið upp
vonir í þinni sál,
og látið óma, enn á ný,
allt þitt hjartans mál.
Ég vildi ég gæti gert þig barn,
sem gréti brot sín lágt,
og vaggað þér í væran svefn,
– ég veit, hvað þú átt bágt.
Á meðan gæti ég sagt þér sögu,
– en sagan er á þá leið,
að til er sá guð, sem gleymir engum,
en gætir vor bezt í neyð.
Ég hlýt að vitja þín, vinur minn,
og verma þinn hjartastað,
af því ég veit, að enginn maður
annar gerir það.
(Jóhannes úr Kötlum)
Ólafur Örn Jónsson.
Kæra systir, nú ertu farin frá
okkur eftir harða baráttu við
krabbameinið, stríð sem hefur
staðið með hléum undanfarin 20
ár.
Að vera litli bróðir og eiga
stjórnsama systur getur stund-
um verið erfitt þegar maður er
krakki en hún passaði mig oft og
gerði það svikalaust jafnvel þótt
hún þyrfti að drösla mér með til
vina eða koma mér í háttinn und-
ir dynjandi Bítlatónlist. Hún var
alla tíð ákveðin og skipulögð sem
kom fram í leik og starfi og skipu-
lagði jafnvel þennan dag í dag.
Hafdís var alltaf forvitin, ófeimin,
mannglögg og kynntist góðu fólki
og kannaðist við marga en ég
hafði sérstaklega gaman af því að
stríða henni á að viðkomandi
hefði hún örugglega hitt í
Glaumbæ um miðja síðustu öld.
Hennar stóra gæfa í lífinu var
að kynnast Óla Erni, manninum
sínum til fjörutíu ára, sem hefur
alla tíð staðið eins og klettur við
hlið hennar og nú undanfarið ár
gert henni kleift að vera sem
mest heima við. Þeirra samband
hefur alltaf verið fallegt og sú
þolinmæði og væntumþykja sem
Óli hefur sýnt gegnum árin er
einstök. Þegar Hafdís og Óli
„mávur“ fóru að skjóta sér saman
eignaðist ég vin og svo langþráð-
an bróður þegar þau bjuggu á
Rauðalæknum hjá mömmu og
pabba.
Árin liðu við leik og störf, Haf-
dís vann við verslunar- og skrif-
stofustörf. Þau fluttu til Svíþjóð-
ar um nokkurra ára skeið og þar
gafst loks tími til að setjast á
skólabekk með vinnu. Eftir heim-
komuna starfaði Hafdís í bóka-
búðum fjölskyldunnar í nokkur
ár en undanfarin ár hjá félagi
leiðsögumanna. Fjölskyldan var
alla tíð efst í huga Hafdísar, bæði
börnin hennar og ömmustelpan,
en ekki síður foreldrar okkar sem
hún bar mikla umhyggju fyrir.
Undanfarin ár átti ljósmynda-
áhuginn hug hennar allan en hún
hafði næmt auka fyrir fallegu
myndefni og því liggur nú eftir
hana fjöldi fallegra mynda sem
við eigum eftir að njóta um ókom-
in ár. Hafdís hafði gaman af líf-
inu, lifði því af gleði og kunni að
sjá og meta það smáa sem gefur
lífinu gildi.
Mig langar til að þakka þér,
kæra systir, fyrir alla þína vænt-
umþykju til mín og fjölskyldu
minnar, þín er sárt saknað. Kæri
Óli, Halldóra, Ísold, Óli Örn og
Ástrós – hugur okkar er með
ykkur á þessum erfiðu tímum en
minningin mun lifa með okkur.
Borgar.
Í dag kveðjum við hana Dísu
okkar. Óli kynnti hana fyrir okk-
ur; „þetta er bara Dísa“ en hún
varð okkur svo miklu meira en
bara Dísa. Hún varð strax ein af
fjölskyldunni og eigum við marg-
ar ljúfar minningar, eins og hlát-
ur sem kom löngu eftir að skond-
in saga hafði verið sögð, öll
fallegu kortin frá henni sem voru
svo fallega skrifuð persónulega
til hvers og eins.
Hún var ákveðin í skoðunum
og var ófeimin að koma þeim á
framfæri en gat alveg sætt sig við
að aðrir væru ekki á sama máli.
Þau Óli fengu að reyna heilmikið
í sinni sambúð en stóðu saman í
gegnum súrt og sætt og sást það
vel núna á síðustu mánuðum þar
sem þau voru svo samstillt og
sterk eins og klettur. Það var allt-
af stutt í brosið og húmorinn. Þau
gáfu okkur styrk á sama tíma og
styrkurinn hefði átt að koma frá
okkur til þeirra. Vonandi getum
við gefið Óla og krökkunum eitt-
hvað til baka á þessum erfiðu
stundum.
Við erum ákaflega þakklát fyr-
ir að hafa fengið að kynnast Dísu
og teljum okkur ríkari af þeim
kynnum.
Þegar litið er til baka yfir lífsins veg,
minnumst við hinna gáfuðu, hugvits-
sömu og snjöllu – en fyrst og fremst
minnumst við hinna góðu.
(Pamela Dugdale)
Elsku Óli okkar, Halldóra, Ís-
old Braga, Óli Örn og Ástrós,
Halldóra og Jónsteinn.
Við sendum ykkur hugheilar
samúðarkveðjur
Rósa, Jón Gestur, Sigrún,
Áslaug og fjölskyldur.
Í dag verður til moldar borin
kær vinkona okkar, Hafdís Jón-
steinsdóttir, – Dísa hans Óla
bróður, eins og við sögðum svo
oft. Dísa, sem var ekki bara mág-
kona og svilkona, heldur líka og
ekki síst hjartahlý vinkona sem
lét sér annt um allt og alla, bar
hag fjölskyldunnar sinnar og vina
fyrir brjósti, gladdist eða syrgði
vegferð hvers þess sem með
henni gekk, Dísa, sem sagði sínar
skoðanir umbúðalaust, „leið-
beindi“ á sinn hátt ef það átti við
og gladdist með ef það átti við en
var umfram allt einlæg og traust-
ur vinur og félagi til margra ára.
Dísa og Óli höfðu gengið sam-
an veginn í nær 40 ár og það var
ávallt unun að sjá hve samband
þeirra var náið og gott og byggð-
ist á innilegri vináttu og virðingu
hvors gagnvart öðru og ekki síst
þeim sem þau umgengust hverju
sinni.
Þeim varð þriggja barna auðið,
en sitt fyrsta barn, Rósu, misstu
þau skömmu eftir fæðingu henn-
ar. Þau Halldóra og Óli Örn sjá
nú á eftir móður sinni. Það er
þeim sem eftir lifa huggun harmi
gegn að nú hefur hún fengið frið-
inn og hvíld frá erfiðum veikind-
um og þrautum þeim sem fylgdu
veikindunum undanfarin ár.
Aldrei heyrðist hún kvarta og
ávallt var stutt í brosið og
gleðina. Hún ætlaði að sigra. Hún
barðist hetjulega svo aðdáunar-
vert var að sjá allt fram á síðustu
stundu er vágesturinn mikli lagði
hana sigraða að velli.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
(Bubbi Morthens)
Elsku Óli bróðir. Þakka þér
fyrir þann styrk, þann innri styrk
og þá huggun sem þú sýndir og
sem þú deildir og gafst svo rík-
mannlega af þér til okkar við frá-
fall ástkærrar eiginkonu þinnar
og vinkonu okkar allra.
Þinn var missirinn mestur og
þín var sorgin mest, en samt
varst það þú sem tókst að þér
hlutverk huggarans er kallið
kom. Þú styrktir og þú sefaðir
sorgir okkar þegar við öll þörfn-
uðumst þess mest. Til þess þarf
sérstaka menn, slíkur maður ert
þú. Okkur er heiður að því að eiga
þig að og við þökkum fyrir þau
sérréttindi.
Elski Óli minn, Halldóra, Ísold
Braga, Óli Örn og Ástrós. Megi
góður guð styrkja ykkur og leiða
á þessum erfiðu stundum. Minn-
ingin um elskulega mág- og svil-
konu og elskulega vinkonu lifir í
hjörtum okkar beggja.
Hrafnhildur Jónsdóttir
Guðjón Grétarsson.
Hún Hafdís okkar var yndisleg
kona, litrík og glæsileg persóna.
Hún var gjafmild og glaðbeitt
enda man ég varla eftir henni
öðruvísi en brosandi. Hún sagði
hlutina eins og þeir voru og lá
ekki á skoðunum sínum, eigin-
leiki sem mér þótti alveg ómet-
anlegur enda var það hreinskilni
hennar og réttsýni sem beindi
mér rétta leið fyrir nokkrum ár-
um þegar ég stóð á krossgötum í
lífinu. Hún tók svo vel á móti
Gísla mínum í fyrsta skipti sem
ég dró hann með mér í fjölskyldu-
boð hjá Rósu ömmu og Donna afa
en tók það þó fram að hann yrði
að vera góður við mig og börnin,
annars væri henni að mæta. Þau
Óli frændi voru okkur svo góð
þegar við fluttum utan yfir jóla-
tímann að lána okkur fallegu
íbúðina sína og Dísa bauð börn-
unum mínum að koma og skreyta
með sér jólatréð svo þau fengju
að hafa aðeins meiri jól það árið.
Ég held að ég hafi séð alveg jafn-
mikla ánægju skína úr augum
Dísu eins og barnanna á meðan
þau hengdu saman skrautið á
trjágreinarnar.
Elsku Dísa mín. Mér þótti svo
gott að koma í heimsókn til þín í
sumar upp á sjúkrahús og geta
hvíslað í eyra þitt hversu mikið
mér þætti vænt um þig. Ég á sér-
staklega eftir að sakna þín í jóla-
boðunum og fjölskylduhitting-
um, því þrátt fyrir hversu falleg
og björt fjölskylduheildin er þá
mun vanta litríka regnbogann
sem skein yfir fallegan og bjart-
an sumardaginn.
Við haustsins innlit og litadýrð
Kvöldsólar roði, kyrrðin
Tíminn tekur alltof fljótt
Því lífið fellur lauf, fellur tár
Við endalokin mun ljósbrot þverra.
Elsku Óli, Halldóra, Ísold, Óli
Örn og Ástrós. Við sendum ykk-
ur okkar allra innilegustu sam-
úðarkveðjur og megi guð styrkja
ykkur á þessum erfiðu tímum.
Guðrún Þóra, Gísli og börn.
Mér er þungt um hjartarætur
að kveðja æskuvinkonu mína,
hana Hafdísi. Hún lést eftir löng
og erfið veikindi 23. september
sl., aðeins sextug að aldri. Örlög-
in höguðu því þannig að þegar
við vorum litlar stelpur tóku for-
eldrar okkar á svipuðum tíma þá
ákvörðun að koma sér upp húsi í
Laugarneshverfinu, nánar tiltek-
ið á Rauðalæknum og vildi þann-
ig til að þau voru staðsett hlið við
hlið. Mín fyrsta minning um Haf-
dísi er þegar við hittumst sex ára
gamlar í kjallaranum á Rauða-
læk 57 þar sem allt var á fullu við
framkvæmdir og þar gerðist það
– ég var búin að eignast vinkonu.
Það var skemmtilegt að alast
upp í Laugarneshverfinu á þess-
um árum, svolítið eins og að búa í
sveit því náttúran var þá enn
ósnortin að mestu leyti með tún-
um, skurðum og steinum sem
komu upp úr húsgrunnunum allt
í kring. Þetta var því ævintýra-
heimur fyrir okkur krakkana.
Unglingsárin liðu með öllum
þeim skemmtilegu uppátækjum
sem tilheyra þeim árum. Eitt var
það sem við áttum þó sérstaklega
sameiginlegt í þá daga, það var
hrifning okkar á Bítlunum. Við
vorum reyndar alveg forfallnar
og lögðum gjarnan eyrun upp að
hátölurunum á flottu gramma-
fónsmublunni sem staðsett var í
stofunni heima hjá Hafdísi,
svona til að heyra enn betur í
goðunum.
Og svo kom Óli..
Þau urðu óaðskiljanleg frá
fyrstu stundu og sá ég fljótt að
heppin var hún með lífsförunaut.
Þau voru ævinlega mjög sam-
stiga í lífinu og finnst mér eft-
irfarandi orð lýsa sambandi
þeirra vel.
Sveifla í takti
ekki endilega dans
en hreyfing og samstilling.
Að ferðast saman um lífið
um stund.
Finna gleðina í tengslunum
nándina
og hvernig má fara mjúkum höndum
um hamingjuna.
(Alda Ármanna Sveinsdóttir.)
Öll okkar fullorðinsár höfum
við Hafdís ávallt verið í góðu
sambandi og höfum verið við-
staddar alla helstu viðburði í fjöl-
skyldum okkar, jafnt í gleði sem
sorg. Lífið fór ekki alltaf blíðum
höndum um hana Hafdísi vin-
konu mína og þurftu þau hjónin
að upplifa veikindi og þá miklu
sorg að missa frumburðinn sinn,
hana Rósu, aðeins nokkurra
vikna gamla. Aðdáunarvert var
að fylgjast með hvernig þau tók-
ust á við þær aðstæður og þá
gerðu þau það eins og endranær
– samstiga. En svo kom Halldóra
og síðan Óli og að síðustu ömmu-
stelpan hún Ísold og mikið elsk-
aði hún þau öll. Hún Hafdís vin-
kona mín var á margan hátt alveg
einstök manneskja. Traust, vel-
viljuð, góður penni, orti falleg
ljóð, tók gullfallegar ljósmyndir,
hafði alltaf ráð undir rifi hverju
og síðast en ekki síst var hún góð
manneskja. Ég mun sakna henn-
ar allt mitt líf.
Ég votta Óla, Halldóru, Óla,
Ísold, foreldrum, bróður, tengda-
foreldrum og öðrum ástvinum
mína dýpstu samúð.
Kristín Hjálmarsdóttir.
Góð kona hefur kvatt okkur
hinstu kveðju, allt of fljótt. Leiðir
okkar Hafdísar lágu fyrst saman
upp úr 1980, þegar við Óli unnum
bæði hjá Blaðaprenti. Fyrir um
fimm árum hittumst við í
tengslum við sameiginlegt
áhugamál; ljósmyndun. Ég var
þá nýbúin að stofna netsíðu á
flickr-vefnum, sem eingöngu er
ætluð íslenskum konum til að
deila myndum og spjalla um ljós-
myndun. Hafdís var ein af þeim
fyrstu sem skráðu sig í hópinn.
Hún rifjaði upp fyrir mér þegar
við skemmtum okkur saman á
árshátíðunum í „den“ og fljótlega
urðum við ágætis vinkonur. Það
var gaman að fylgjast með því
næstu árin hvernig Hafdís þrosk-
aðist og efldist sem ljósmyndari.
Hún hafði næmt auga fyrir um-
hverfi sínu, bæði mannlífi og
landslagi. Hún tók þátt í ljós-
myndasýningum á vegum
flickr@iceland-hópsins og einnig
með okkur konuhópnum, þegar
við héldum samsýningu árið 2009
í Kringlunni.
Kvennahópurinn hefur farið í
margar ljósmyndaferðir saman.
Hafdís var alltaf hrókur alls fagn-
aðar í þessum ferðum. Hitting-
arnir eru líka margir utan ferð-
anna og ég minnst þess
sérstaklega þegar Hafdís bauð
okkur heim til sín í Hafnarfjörð-
inn. Það var mikið hlegið og gam-
an þá kvöldstund. Síðasta ferðin
sem Hafdís mætti í með hópnum
var réttar- og fjölskylduferð á
Reykjanes haustið 2010.
Hún var svo yndislegur grall-
ari hún Hafdís. Ein af skemmti-
legustu samverustundum okkar
var fyrir tæpu ári. Þá hélt hún
matarboð fyrir nokkrar vinkonur
og spurði hvort ég væri til í að
koma sem leynigestur. Þetta var
heilmikið plott, en vandlega und-
irbúið hjá henni. Eftir miklar get-
gátur og mikinn hlátur kom
leynigesturinn í ljós og þá var
mér boðið að njóta þess sem eftir
var kvöldsins með þessum góða
hópi. Yndislegt kvöld, sem aldrei
gleymist.
Minningarnar leita á hugann
við kveðjustund; þær eru eilífar.
Myndirnar hennar Hafdísar eru
hluti af hennar arfleifð. Þær eru
líka eilífar. Ég þakka fyrir að
hafa kynnst þessari frábæru
konu og átt með henni góðar
stundir undanfarin ár. Fjöl-
skyldu Hafdísar votta ég mína
dýpstu samúð.
Guðmunda Jónsdóttir
(Gúnna).
Báran kyssir sandinn
sandurinn kyssir goluna
golan kyssir sveininn
sveinninn kyssir meyna
og nú ætlar sólin að fara að hátta
og kyssir okkur öll.
Svo dettur allt í dúnalogn
– hvítt segl úti á vognum roðnar
og segir niðurlútt við árarnar:
ég er alveg að sofna.
Svo er róið í land.
(Jóhannes úr Kötlum)
Okkar innilegustu samúðar-
kveðjur og megi guð styrkja ykk-
ur í sorginni.
Þórunn Eva, Baldur Geir,
Örnólfur Þór og Urður Eir.
Látin er kær vinkona, Hafdís
Jónsteinsdóttir, eftir erfið veik-
indi. Hafdís var mikill fagurkeri,
listræn, hlý,
ákveðin og stjórnsöm. Hafdís
hafði gott auga fyrir fallegum
munum. Hún var vel gefin og fljót
að greina hismið frá kjarnanum.
Heimili hennar bar þess alltaf
merki, réttur hlutur á réttum stað
þar sem allt naut sín sem best.
Hún var lífsnautnamanneskja og
lifði í núinu áður en það var upp-
götvað. Hún gerði vel við sig þeg-
ar hana langaði til þess og alltaf
með Óla sínum. Stundum þótti
þetta eyðslusemi en Hafdís lét
það ekki á sig fá og sagðist „vera
að lifa“. Hafdís hafði næmt auga
fyrir fegurð náttúrunnar. Hún
tók náttúrumyndir og sendi á
sýningar. Hafdís gaf góðar gjafir
en kortin sem fylgdu lýstu tilfinn-
ingaríkri konu sem elskaði málið
sitt og vildi miðla góðum ljóðum
eða textum til vina sinna og ætt-
ingja. Þetta gladdi þiggjendur og
hitti vel í mark en þetta var líka
aðferð Hafdísar til að tjá sig.
Þegar horft er til baka hafa
fjörutíu ár flogið hjá á örskots-
stundu. Það var mikið um að vera
á þessum árum eftir miðja síðustu
öld. Aðaláhugamálið okkar vin-
anna var hreiðurgerð. Hafdís og
Óli eignuðust fallegt heimili. Lífið
var dásamlegt. Svo kom fyrsta
skýfallið, Rósa, fyrsta barn Haf-
dísar og Óla, lést nokkurra vikna
gömul. Fleiri skýföll urðu á vegi
Hafdísar og Óla. En þá kom í ljós
að þau voru sterk, sterk saman en
einnig sem einstaklingar. Hafdís
lét ekki bugast. Hún eignaðist tvö
börn, þau Halldóru og Óla, sem
voru henni allt og ekki má gleyma
dótturdótturinni, henni Ísold
Brögu. Hafdís var fjölskyldu-
manneskja og þakklát að geta
verið með alla í kringum sig bæði
í gleði og sorg. Hafdís og Óli
heimsóttu mig eftir eitt skýfallið
til Gautaborgar. Þau léku á als
oddi, hraust, falleg og nutu dval-
arinnar. Hafdís og Óli þræddu
söfn, kynntust kínverskri matar-
gerð, Svíþjóð heillaði. Hafdís naut
þess að lesa úr Vísnabókinni sem
hún hafði með sér fyrir barnið á
heimilinu. Eftirminnilegust verð-
ur samt ferð í Ikea. Þar sá hún
óendanlega möguleika til að
prýða og skreyta heimilið. Það
var upplifun að vera með henni
því hún sá alltaf það sem ég sá
ekki þannig að þetta var sem
fyrsta ferð fyrir mig einnig. Haf-
dís og Óli fluttu síðar til Svíþjóðar
og nutu þess sem sænskt sam-
félag hefur að bjóða. Hafdís var
sérstök kona og á lokagöngu
hennar kom það svo vel í ljós. Ég
verð alltaf þakklát fyrir að hún
skyldi gefa mér hlutdeild í henni.
Við áttum góðar samræður um
lífið og tilveruna. Hún tók ekki
upp samræður um hvers vegna.
Hún gerði bara það sem rétt var;
hélt áfram. Hafdís tók til í gögn-
um sínum, skrifaði í fallegu bæk-
urnar sínar, ræddi við fólk og að
lokum kvaddi hún. Hún lét ekki
bugast. Hún kvaddi í faðmi fjöl-
skyldunnar á fögru haustkveldi.
Perlubandinu hennar lokað. Það
eru fallegar perlur á því bandi
enda valdi Hafdís perlurnar í sitt
perluband og þær skyldu vera fal-
legar. Þetta perluband skilur hún
eftir handa okkur hinum. Ástvin-
um öllum sendi ég innilegar sam-
úðarkveðjur. Ég kveð þig vin-
kona.
Anna Sigríður
Pétursdóttir.
Hafdís
Jónsteinsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Ég sat og orti um hana ljóð
og albjört vornóttin
sendi ilmblæ
inn um opinn gluggann,
hún settist niður við sæinn
og lék sér um stund
við blæinn
– það heyrðist aðeins
ölduhljóð.
(HHK)
Hjartans þakkir fyrir
allt sem þú varst okkur.
Mamma og pabbi.