Morgunblaðið - 10.10.2011, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.10.2011, Blaðsíða 23
DAGBÓK 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2011 Sudoku Frumstig 3 4 8 1 1 9 2 8 4 9 6 3 5 1 3 9 2 9 8 3 8 4 1 6 5 3 4 3 7 9 1 1 2 8 7 2 1 3 5 8 3 4 9 5 1 9 8 1 4 8 4 3 6 7 4 7 8 2 2 1 5 8 3 5 8 9 4 5 1 3 9 5 8 3 7 4 9 7 2 5 1 3 8 9 6 4 8 3 4 9 2 6 7 1 5 1 6 9 4 5 7 2 8 3 3 9 7 6 1 2 4 5 8 5 1 8 3 9 4 6 7 2 6 4 2 7 8 5 1 3 9 2 7 3 5 6 9 8 4 1 4 8 1 2 7 3 5 9 6 9 5 6 8 4 1 3 2 7 6 8 1 5 4 3 2 7 9 9 5 2 1 7 6 8 3 4 7 3 4 9 2 8 5 6 1 3 1 9 6 5 2 7 4 8 5 6 8 7 1 4 9 2 3 2 4 7 3 8 9 6 1 5 4 7 6 8 9 1 3 5 2 8 2 3 4 6 5 1 9 7 1 9 5 2 3 7 4 8 6 5 2 6 7 3 4 8 9 1 1 9 4 2 8 6 3 7 5 3 7 8 9 1 5 6 2 4 4 8 7 1 6 9 5 3 2 9 3 5 8 7 2 4 1 6 2 6 1 4 5 3 9 8 7 7 4 3 6 9 1 2 5 8 8 5 2 3 4 7 1 6 9 6 1 9 5 2 8 7 4 3 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er mánudagur 10. október, 283. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.) Mikið finnst Víkverja nú indæltað það sé að koma fram í miðj- an október án þess að jólaauglýs- ingar séu farnar að tröllríða öllu hans nær- og fjærumhverfi. Það er vonandi að svo verði áfram allavega fram í nóvember. Póstkassinn fái frið fyrir þessu og hægt verði að fletta dagblöðum og horfa á sjón- varpið án þess að verið sé að selja vörur með skírskotun til jólanna. Nú er hætt við að einhver fái það á tilfinninguna að Víkverji sé einhver Trölli sem þoli ekki jólin. En það er nú aldeilis ekki svo. Víkverja er al- veg ágætlega við jólin þó að honum þyki óþarfi að stór hluti af árinu sé lagður undir þau, annaðhvort beint eða óbeint. Og einhvern veginn efast Víkverji um að hann sé einn um að hafa þá afstöðu til málsins. x x x Víkverji man hins vegar eftir því íhvaða farveg þessir hlutir voru komnir fyrir bankahrun. Þá var helst eins og eins og eitthvert kapp- hlaup væri í gangi á milli kaup- manna. Hver yrði nú fyrstur til þess að byrja að auglýsa vörur sínar með skírskotun til blessaðra jólanna það árið. En hvernig sem þetta var nú ná- kvæmlega þá byrjuðu jólaauglýsing- arnar almennt alltaf fyrr og fyrr. Eitt árið minnist Víkverji þess að hafa séð jólaauglýsingar í ágúst, mörgum mánuðum áður en blessuð jólin renndu í hlað. x x x Þetta er að minnsta kosti að matiVíkverja kannski eitt af því já- kvæða sem gerðist í kjölfar banka- hrunsins. En það er svo sem fleira þó að nógu margt slæmt hafi gerst líka eins og allir Íslendingar þekkja. En það er eins og landsmenn hafi áttað sig á ýmsu eftir hrun sem þeir ekki kannski komu auga á þegar neyslukapphlaupið var sem mest. Til að mynda það að margt er mikilvæg- ara en það sem hægt er að kaupa fyrir peninga. Víkverji er þannig ekki frá því að mannleg samskipti hafi þrátt fyrir allt að einhverju leyti batnað síðan allt fór hér á hliðina. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 stirðbusaleg, 8 vagga, 9 kvenmönnum, 10 kvendýr, 11 álögu, 13 að því búnu, 15 gruggs, 18 brúnar, 21 blása, 22 bögguls, 23 ull, 24 léttadrengs. Lóðrétt | 2 helga, 3 slétt, 4 hosu, 5 atvinnugrein, 6 lof, 7 hneisa, 12 kaðall, 14 dimm- viðri, 15 næturgagn, 16 inn- heimti, 17 vitra, 18 fiskur, 19 þvingað til, 20 ljómi. Lausn síðustu krossgátu Lárétt 1 renta, 4 fersk, 7 ylinn, 8 líður, 9 ill, 11 drag, 13 grun, 14 Aspar, 15 foss, 17 árás, 20 err, 22 grugg, 23 elgur, 24 nudda, 25 temji. Lóðrétt 1 reynd, 2 neita, 3 asni, 4 fell, 5 ríður, 6 kýrin, 10 lipur, 12 gas, 13 grá, 15 fegin, 16 skuld, 18 rögum, 19 sorpi, 20 egna, 21 reit. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Dýr ábót. Norður ♠106 ♥Á54 ♦1097 ♣86432 Vestur Austur ♠D9753 ♠G842 ♥G72 ♥1098 ♦K3 ♦86542 ♣KD10 ♣9 Suður ♠ÁK ♥KD63 ♦ÁDG ♣ÁG75 Suður spilar 3G. Í sveitakeppni flokkast það undir fífldirfsku að hætta spili fyrir yfirslagi. En eitt er að spila af öryggi til vinnings og annað að þiggja ekki fría ábót. Slíkt er hreint meinlæti og þótt suður væri fjarri því að vera glanni var hann held- ur enginn meinlætamaður. Hann fékk út spaða og lagði niður ♣Á í öðrum slag. Sómakær sveitakeppnisspilari byrj- ar á því að taka þrjá slagi á hjarta, þann síðasta í blindum. Ef liturinn brotnar þarf aðeins einn slag í viðbót og öruggt að sækja hann á tígul. Ella verður að spila laufi og vonast eftir 2-2 legu. Þetta var upphafleg áætlun suð- urs, en hann skipti um kúrs þegar vest- ur fylgdi lit í laufásinn með kóngnum! Þá var orðið „öruggt“ að fara inn í borð á ♥Á til að spila laufi að gosanum … 10. október 1946 Mikill fjöldi vígahnatta (gló- andi loftsteina) sást víða á Norðurlandi og Austurlandi. Á Kópaskeri töldu menn 400 vígahnetti á tuttugu mínútum. 10. október 1972 Skyri var slett á þingmenn og fleiri sem voru á leið frá Dóm- kirkjunni í Alþingishúsið til þingsetningar. 10. október 1983 Byggingarnefnd Reykjavíkur samþykkti götunöfn í Grafar- vogshverfi, en þau tóku mið að kvæðum Bjarna Thorarensen, sem bjó í Gufunesi. Tillög- urnar þóttu „allfrumlegar, þótt ekki sé meira sagt“, eins og það var orðað í Tímanum. 10. október 2001 Smáralind í Kópavogi var opn- uð, 10.10. kl. 10.10. Þar eru tugir verslana, auk veitinga- húsa o.fl. Byggingin er yfir sextíu þúsund rúmmetrar og kostnaður var um níu millj- arðar króna. Framkvæmda- stjóri verslunarmiðstöðvar- innar sagði að Smáralind væri „yfirbyggður miðbær Ís- lands“. Fyrstu fimm dagana komu meira en 250 þúsund gestir. 10. október 2008 Minningartónleikar um Vil- hjálm Vilhjálmsson söngvara voru haldnir í Laugardalshöll- inni, en þá voru þrjátíu ár síð- an hann lést. „Lífleg stemn- ing,“ sagði Morgunblaðið. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Gyða Björgvinsdóttir, kennari og söngkona, hefur eiginlega engan tíma til að halda upp á 35. ára af- mælið sitt í dag. Hún kennir við Hvolsskóla, þar sem hún er umsjónarkennari 3. bekkjar, síðan hjá Fræðsluneti Suðurlands um kvöldið og þarf þar að auki að fara á stjórnarfund hjá Starfsmannafélagi Hvolsskóla. Líklega muni þó hún og sjö ára gamall sonur hennar, Arnar Högni, borða eitthvað gott. Gyða er grunnskólakennari en hún er einnig sprenglærð söngkona. Hún lauk 8. stigi í söng á Ís- landi og var í framhaldsnámi við Tónlistarháskól- ann í Vínarborg 2002-2003. Aðspurð segir hún að lífið í stórborginni togi þó ekkert meira í hana en lífið á Hvolsvelli. „Þetta er allt gott í bland,“ segir hún og hlær við. Á Hvolsvelli hafi hún sest að til framtíðar, þar sé gott að búa, mikið og vaxandi menn- ingarlíf og sérlega gott að ala þar upp börn. Gyða prófaði að kenna söng en fannst það starf ekki eins heillandi og kennsla yngri barna. Hún hefur þó ekki lagt sönginn á hilluna og treður upp með tveimur vinkonum sínum. Önnur þeirra leikur á korn- ett en hin á píanó. Síðast sungu þær í fertugsafmæli og búið er að panta þær á þorrablót. runarp@mbl.is Gyða Björgvinsdóttir, kennari og söngkona Gott á Hvolsvelli og í Vín Hlutavelta Margrét Sól Sveins- dóttir, Sæunn Nanna Ægisdóttir, Elfa Björg Ægisdóttir og Aníta Rós Rafnsdóttir söfnuðu dósum og héldu tombólu til að safna fyrir börnin í Sómalíu. Þær söfnuðu 23.722 kr. sem þær hafa afhent Rauða krossi Íslands. Flóðogfjara 10. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 5.23 3,7 11.33 0,7 17.38 3,8 23.48 0,6 8.03 18.28 Ísafjörður 1.25 0,4 7.27 1,9 13.41 0,4 19.37 2,0 8.12 18.28 Siglufjörður 3.25 0,3 9.36 1,2 15.35 0,3 21.51 1,2 7.56 18.11 Djúpivogur 2.34 2,0 8.47 0,5 14.54 1,9 20.56 0,5 7.33 17.56 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Ekki láta koma þér úr jafnvægi í dag, ekki einu sinni í samskiptum við fjölskylduna. Þótt þú lendir í einhverju mótlæti um skeið máttu ekki láta það á þig fá. (20. apríl - 20. maí)  Naut Nautið þarf að taka sér pásu í dag. Njóttu þess frekar að hitta vini þína. Tíminn líður hratt og þú átt eftir að fagna því að hafa gefið þér tíma til að leika við börnin. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þið ættuð að finna ykkur tóm til þess að líta upp og virða fyrir ykkur fegurð himinsins. Sveigjanleiki og ákveðni eru kjör- orð dagsins sem og alla daga. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú þekkir nú þegar grunnþarfir þínar til að líða vel og líta vel út. Gerðu ráð fyrir óvæntum uppákomum í tengslum við börn og þína nánustu. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Það er alls ekki víst að vandamálin þín séu svo slæm. Láttu ekki brjóta á rétti þínum, sæktu það sem er þitt af öryggi og festu. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þér finnst í mörg horn að líta á heim- ilinu og þú ættir að láta það ganga fyrir öðru. Farið ekki út fyrir mörk sem þið settuð ykkur. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Nú er rétta tækifærið fyrir þig að koma málum þínum áfram. Sýndu lipurð og mundu að sjaldan veldur einn þá tveir deila. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú færð góð tækifæri til að bæta atvinnustöðu þína og heilsu í dag. Yfirburða- færni á félagssviðinu hjálpar til við að lægja öldur og útvega fría uppfærslu. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Nú á tímum er hægur vandi að bæta við þekkingu sína svo þú hefur enga af- sökun fyrir því að láta ekki undan þessari löngun þinni. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú ert hugsjónamanneskja og vilt trúa því að fólk sé í eðli sínu siðsamt. Kímni- gáfa þín mun kitla hláturtaugar fólks. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú ert búin/n að gera allt sem í þínu valdi stendur til að ná samningum í vinnunni. Ekki hafa áhyggjur af því sem þú ætlar að gera eða segja. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Hristu af þér alla hræðslu og helltu þér í það sem þig langar mest að gera. Láttu það ekki slá þig út af laginu. Stjörnuspá 1. e4 c5 2. c3 e6 3. d4 cxd4 4. cxd4 Rf6 5. Rc3 Bb4 6. Bd3 Rc6 7. Rge2 d5 8. e5 Rd7 9. 0-0 f5 10. Rf4 Rf8 11. Be3 a6 12. Hc1 Bxc3 13. Hxc3 Rg6 14. Re2 0-0 15. a3 Bd7 16. Hb3 b5 17. Dc2 Db6 18. g3 Hac8 19. Hc1 Ra5 20. Hc3 Hxc3 21. Dxc3 Hc8 22. Db4 Hxc1+ 23. Rxc1 Rb7 24. Dc3 Re7 25. Be2 a5 26. Rd3 Rc6 27. b4 axb4 28. axb4 h6 29. h3 Kf7 30. g4 Re7 31. g5 hxg5 32. Bxg5 Dc6 33. Dd2 Da6 Staðan kom upp í Evrópukeppni tafl- félaga í Rogaska Slatina í Slóveníu. Al- þjóðlegi meistarinn Stefán Kristjánsson (2.485) hafði hvítt gegn Tyrkjanum Ah- met Yurtseven (2.327). 34. Bh5+! g6 svartur hefði einnig tapað eftir 34. … Kf8 35. Bxe7+ Kxe7 36. Dg5+ Kf8 37. Rc5. 35. Bxe7 Da1+ 36. Kh2 Dxd4 37. Dg5 og svartur gafst upp. Stefán tefldi á fyrsta borði fyrir Taflfélag Bolungarvík og stóð sig vel, fékk helming vinninga og sam- svaraði frammistaða hans árangri upp á 2.570 skákstig. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.