Morgunblaðið - 14.10.2011, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 14.10.2011, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Jura kaffivélar Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Það virðist ekkert vera að draga úr ásókn Norðmanna í að fá Íslendinga í vinnu og lítið hefur dregið úr áhuga Íslendinga á að fara þangað. Vinnu- málastofnun og EURES, evrópsk vinnumiðlun, standa nú í áttunda skipti fyrir starfakynningu þar sem verða tíu norsk fyrirtæki að leita eftir íslensku vinnuafli, aðallega menntuðu fólki. „Nú er byggingarbóla í Noregi og þeir voru líka að finna nýja olíulind þannig að það er mikil uppsveifla. Fyrirtækin sem koma núna eru að leita eftir menntuðu fólki, t.d. húsa- smiðum, verkfræðingum, kerfisfræð- ingum og heilbrigðisstarfsfólki. Á síð- ustu kynningu í apríl kom sveitarfélag í Noregi sem var ein- göngu að leita að leikskólakennurum og svo hafa mjög margir meiraprófs- bílstjórar verið ráðnir út,“ segir Dröfn Haraldsdóttir, verkefnisstjóri EURES og ráðgjafi. Sóknin í að komast út hófst eftir hrun. Árið 2008 mættu 2.500 manns á kynningu sem var met. Síðan hafa mætt um 1.000 til 1.500 manns á hverja kynningu. „Það mætti bara einn einstaklingur á fyrstu kynn- inguna sem var haldin 2006 en þá vor- um við í því að flytja inn vinnuafl. Það var í kjölfar hrunsins sem okkar norsku kollegar höfðu samband og vildu koma á samstarfi. Kynningarn- ar eru haldnar tvisvar á ári og oft eru þetta sömu fyrirtækin sem koma.“ Ekki atvinnulausir sem vilja út Menntað fólk yfir þrítugt er stærsti hópur þeirra sem flytjast út að sögn Drafnar. Það glímir yfirleitt ekki við atvinnuleysi hér heima. „Á síðustu kynningu spurðum við fólk hvort það væri í vinnu, því við viljum helst að þetta sé fólk af atvinnuleysisskrá sem fer út, en það kom okkur á óvart að allir sem við töluðum við voru í vinnu. Þeir voru bara búnir að gefast upp á ástandinu hér og farnir að hugsa sér til hreyfings. Við erum líka hreinlega ekki samkeppnishæf í launum. Fólk tvöfaldar oft launin við að fara út. Þeir norsku atvinnurekendur sem sækja hingað fá líka það fólk sem þeir leita að og koma því aftur og aftur í leit að góðum starfskröftum.“ EURES-kynningin fer fram í Ráð- húsi Reykjavíkur í dag frá kl. 17 til 20 og á morgun frá kl. 12 til 18. Eru með vinnu en fara samt  Menntað fólk yfir þrítugt sem er í vinnu leitar helst að betra lífi í Noregi Morgunblaðið/Árni Sæberg Sækja út Hjúkrunarfræðingar fara mikið til Noregs til að vinna. 380 Íslendingar fluttu til Noregs á 2. ársfjórðungi 2011. 320 fluttust þangað á 1. ársfjórðungi. 1.000 Gera má ráð fyrir að rúmlega þús- und manns flytjist þangað í ár. Um 10.000 Íslendingar búa alls í Noregi. 1.539 fluttu þangað á árinu 2010. ‹ TIL NOREGS › » Það var líflegt þegar Dóri DNA og Bergur Ebbi Benediktsson úr Mið-Íslandi tróðu upp á bóka- stefnunni í Frankfurt í gær með Noru Gomr- inger. Þar kynntu þau verkefni sem sex íslenskir og þýskir listamenn hafa brætt saman frá í maí. Bergur Ebbi sagði að þau vildu færa þýskum les- endum Íslendingasögurnar, ekki aðeins fá þá til að lesa orðin – heldur borða þau. Sá gjörningur kom í hlut Dóra DNA, enda sagðist hann ekkert þekkja til Íslendingasagnanna: „Í mínum huga hófst íslensk bókmenntasaga með afa mínum [Halldóri Laxness], en fyrir það voru aðeins bændur á Íslandi sem stunduðu hrossarækt.“ Svo lagði hann Íslendingasögurnar sér til munns, eft- ir að hafa rifið þær í bita og kryddað vandlega. Morgunblaðið/Kristinn Borðaði Íslendingasögurnar en kryddaði þær fyrst Það er engum vafa undirorpið að Páll Magnússon hafi verið hæfastur umsækjenda um starf forstjóra Bankasýslu ríkisins. Hann uppfylli laga- og aðrar hæfniskröfur sem gerðar voru. Þetta kemur fram í svarbréfi stjórnar stofnunarinnar til Steingríms J. Sigfússonar fjármála- ráðherra. Fór ráðherrann fram á skýringar á ráðningunni í kjölfar harðrar gagn- rýni á ráðninguna. Hefur því verið haldið fram að Páll hafi hvorki reynslu né menntun til starfsins. Í rökstuðningi stjórnar Banka- sýslunnar fyrir ráðningunni kemur fram að Páll hafi verið metinn hæf- astur af þeim fjórum umsækjendum sem taldir voru hæfir til starfsins. Er hann sagður uppfylla þær kröfur sem lög áskilji um mennt- un og sérþekk- ingu á banka- og fjármálum. Hann hafi starfað sem bæjarritari og sviðsstjóri hjá Kópavogsbæ, setið í stjórnum fyrir- tækja, þar á meðal Landsvirkjunar og verið þar stjórnarformaður. Þá hafi hann verið aðstoðarmaður ráð- herra í iðnaðar- og viðskiptaráðu- neyti. kjartan@mbl.is Segja engan vafa um hæfni Páls  Bankasýslan rökstyður ráðningu Páll Magnússon Maðurinn sem lést í vinnuslysi á Djúpavogi í fyrradag hét Jón Ægir Ingimund- arson. Hann var 41 árs gamall og lætur eftir sig sambýliskonu og tvö börn. Bænastund var haldin í Djúpa- vogskirkju í gærkvöldi til minningar um Jón Ægi. Slysið bar að með þeim hætti að krani á landi sem verið var að nota til þess að losa salt úr skipi í höfninni brotnaði og féll ofan á Jón Ægi sem var þar að störfum. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Eskifirði sem rannsakar slysið ásamt Vinnueftirlitinu er ekk- ert sem bendir til þess að ofálag hafi verið á krananum. Að öðru leyti var ekki hægt að veita frekari upplýs- ingar um framvindu rannsókn- arinnar. kjartan@mbl.is Lést í vinnu- slysi á Djúpavogi Jón Ægir Ingimundarson „Þetta hefur eflaust verið hörku- bardagi því skrækirnir í þeim voru miklir þegar ég varð fyrst var við þá. Þegar ég sá betur til þeirra var annar að lenda með hinn í klónum og byrjaði strax að rífa hann í sig,“ sagði Kristján Phillips sem varð vitni að því þegar fálki drap annan fálka á Húsavík í gær. Þurfti fálkinn að hrekja í burt tvo hrafna sem gerðust aðgangsharðir um tíma áður en hann byrjaði að gæða sér á bráð sinni. Fuglaáhugamenn á Húsavík sem fréttaritari mbl.is talaði við telja þetta sjaldgæft en þeir hafa aldrei orðið vitni að því að fálki veiði sér annan fálka til matar. Sá fálka drepa annan fálka sér til matar á Húsavík Morgunblaðið/Hafþór

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.