Morgunblaðið - 14.10.2011, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 14.10.2011, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2011 NÝLEGIR GÆÐABÍLAR Á GÓÐU VERÐI Audi A6 3.2 Quattro Árgerð 2004, bensín, sjálfsk. Ekinn 79.000 km Ásett verð: 2.990.000,- BMW 320 S/D E90 Árgerð 2006, bensín, sjálfsk. Ekinn 76.000 km Ásett verð: 2.650.000,- VW Tiguan Sport Árgerð 2008, bensín, sjálfsk. Ekinn 40.000 km Ásett verð: 4.590.000,- MM Pajero 3,2 Intense Árgerð 2007, dísel, sjálfsk. Ekinn 78.000 km Ásett verð: 4.990.000,- MM Pajero, 3.2 Instyle Árgerð 2008 dísel sjálfsk. Ekinn 69.000 km Ásett verð 6.490.000,- María Ólafsdótttir maria@mbl.is Þ egar ljóst varð að ekki væri lengur fjárhags- legur grundvöllur hjá Íþrótta- og tóm- stundaráði Reykjavíkur fyrir því að halda Nema hvað?, spurningakeppni grunnskólanna í Reykjavík, ákvað Hannes Daði Har- aldsson að taka keppnina upp á sína arma. Hannes Daði er nemandi í leiðsögumannanámi og vinnur meðal annars á frístundaheimili. Metþátttaka í ár „Fyrir tveimur árum hafði ég verið í sambandi við Breiðholtsskóla um að þjálfa lið hans. Síðan fékk ég símtal frá þeim um áramót og þeir tjáðu mér að keppnin yrði ekki hald- in. Ég sendi þá tölvupóst á alla skólana í Reykjavík til að athuga hvort það væri enn áhugi fyrir þess- ari keppni. Svo reyndist vera og þá ákvað ég að taka þetta í mínar hend- ur og fékk skólana til að hýsa þetta sjálfa. Fyrsta árið tóku 14 skólar þátt og 15 í fyrra en í ár var ákveðið að halda keppnina á landsvísu. Því taka nú alls 63 skólar úr öllum lands- hlutum þátt og hefur þar með orðið algjör sprenging í þátttöku,“ segir Hannes Daði. Hann sér um alla framkvæmd keppninnar á hverjum stað og semur einnig spurningarnar. Rúmlega 3200 spurningar Mikil vinna liggur að baki spurningagerðinni enda þarf að búa til rúmlega 3200 spurningar fyrir keppnina í ár. Hannes Daði hefur fengið góða hjálp frá vinum sínum sem einnig hafa tekið þátt í keppn- unum sem dómararar. En langmest gerir hann þó sjálfur og koma spurn- ingarnar úr öllum áttum. Alveg bannað að hringja í vin Fyrir Spurningakeppni grunnskólanna þarf að búa til rúmlega 3200 spurningar. Það er Hannes Daði Haraldsson sem sér í þriðja sinn í ár um alla framkvæmd keppninnar. Alls taka nú 63 grunnskólar um land allt þátt í keppninni og hefur fjöldi þátttakenda aukist verulega frá síðasta ári. Hannes Daði segir þessa skemmtilegu keppni skapa aukna samstöðu innan skólanna. Morgunblaðið/Golli Atorkusamur Hannes Daði Haraldsson skipuleggur keppnina frá a til ö. Á köldum og dimmum haustkvöldum er gott að kúra undir sæng eða teppi og vafra á netinu. Við slíkar aðstæður er óhætt að mæla með vefsíðunni kuddlekittens.com, en þar segir af kettlingum tveim, þeim Komfy og Kozy, sem birtast á síðunni í nýrri teiknimyndasögu þrisvar í hverri viku. Þetta eru skondnir kettlingar sem þurfa að takast á við hitt og þetta. Í sögunum kemur líka fyrir ormur nokkur sem býr í holu ofan í jörðinni en kettlingarnir fara í taug- arnar á honum og hann kýs frekar að lesa en leika við þá. Svo er það Kett- lingakonungurinn (King Kitty) sem ríkir yfir Kettlingaborg, en hann á tvær dætur, Prinsessukettlinga. Eins og í öllum ævintýrum er líka hinn ómissandi vondi kettlingur, Monster Kitty, eða Skrímslakettlingurinn. Kettlingar þessir eru skemmtilegir, hver með sínum hætti. Vefsíðan www.kuddlekittens.com Þrjár sólir Engan skal undra að Komfy og Kozy hafi orðið heitt þennan dag. Knúsukettirnir krúttlegu Eitt af því sem við getum ekki breytt í þessu lífi (alla vega ekki með stutt- um fyrirvara) er veðrið. Og nú þegar Airwaves stendur sem hæst og fólk þarf að hlapa milli margra staða til að njóta alls þess sem er í boði á tón- listarhátíðinni, þá er um að gera að láta ekki rokið og rigninguna draga sig niður. Þetta er allt spurning um hugarfar. Aðalatriðið er að vera í vatnsheldum flíkum og skóm, koma sér upp litríkum pollagalla og fá lán- uð eða kaupa sér glaðleg gúmmístíg- vél. Eða bara vatns- og vindhelda úlpu svo ekki verði kalt að standa í biðröðum. Sá sem treystir sér til að ráða við regnhlíf í þessum veðurham ætti hiklaust að vaða út með eina slíka, ekki aðeins veita þær gott skjól fyrir dropum og roki heldur geta þær líka leitt til mjög skemmtilegra sam- skipta, því ólíklegasta fólk á það til að leita undir regnhlífar hjá öðrum. Gaman og gott er að veita öðrum skjól og fá kannski koss að launum. Endilega … … elskið rign- inguna og rokið Smart Smá rigning ætti ekki að hafa nein áhrif á útlitið með svona græju. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.