Morgunblaðið - 14.10.2011, Síða 26

Morgunblaðið - 14.10.2011, Síða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2011 ✝ Ingvar Ólafs-son fæddist í Reykjavík 27. nóv- ember 1960. Hann lést á gjörgæslu- deild Landspítal- ans hinn 6. október 2011. Foreldrar hans voru Ólafur Ágúst Örnólfsson frá Suðureyri við Súg- andafjörð, fæddur 3. ágúst 1923, dáinn 4. janúar 1990 og Kristín Ingvarsdóttir frá Hafnarfirði, fædd 25. júní 1922, dáin 16. janúar 1991. Bræður Ingvars eru Bjarni Grétar, fæddur 1948, eiginkona Sigrún Ólafsdóttir, og Örnólfur Jóhannes, fæddur 1955. Kona hans er Arnfríður Anna Jóns- dóttir. Fyrri kona Ingvars var Arn- hildur Ásdís Kolbeins. Þau eignuðust tvo syni; Ásgeir Bjarna, f. 5. desember 1982, og ittu eru Hekla og Katla, Ester Valgerður, fædd 22. júlí 1987. Ingvar átti heima í Hlíða- hverfinu öll uppvaxtarárin og gekk í Hlíðaskóla. Hann lauk landsprófi frá Vörðuskóla 1976 og hóf nám við Menntaskólann við Hamrahlíð sama ár en hvarf frá námi. Eftir það stundaði hann ýmis störf til sjós og lands. Frá árinu 1982 varð starfsvettvangur hans á sviði tölvumála hjá ýmsum stofnunum og fyrirtækjum. Haustið 2005 söðlaði Ingvar um og hóf nám í tölv- unarfræðum við Háskólann í Reykjavík og lauk þaðan BS- gráðu 2008. Eftir útskrift starf- aði Ingvar sem tölvunarfræð- ingur, fyrst hjá Landspítala – háskólasjúkrahúsi og síðar hjá Actavis. Ingvar verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju í dag, föstudaginn 14. október 2011, og hefst athöfnin klukkan 13. Kristófer Guðna, f. 27. október 1986. Eftirlifandi eig- inkona Ingvars er Kolbrún Olgeirs- dóttir kennari, fædd 22. nóvember 1956. Foreldrar hennar voru Ol- geir Kristinn Ax- elsson frá Reykja- vík, fæddur 6. apríl 1921, dáinn 9. júní 2008 og Ester Vilhjálms- dóttir frá Reykjavík, fædd 4. júní 1931. Dóttir Kolbrúnar og Ingvars er Kristín Sóley Ingv- arsdóttir, fædd 12. júní 1995. Ingvar gekk í föðurstað þrem- ur börnum Kolbrúnar. Þau eru Guðmundur Þór, fæddur 15. apríl 1983, unnusta hans er Ragnheiður Benediksdóttir, Örn, fæddur 29. apríl 1985, unnusta hans er Birgitta Ás- björnsdóttir, barn þeirra er Askja Bjargey og dætur Birg- Mig langar í nokkrum orðum að minnast Ingvars föðurbróður míns sem nú er farinn frá okkur allt of fljótt. Þegar ég hitti Ingvar í sumar datt mér aldrei í hug að það væri í síðasta skipti sem ég hitti hann. Þegar ég horfi um öxl standa eftir fallegar minningar um góðan mann sem ég á ætíð eftir að sakna. Ein besta minningin mín um Ingvar er frá því fyrir um rúm- lega tveimur árum þegar þau Kolla og Kristín komu í heimsókn til okkar Bjössa á ferð sinni í Bandaríkjunum. Eins og allir vita var Ingvar haldinn græjudellu á alvarlegu stigi og þegar litla frænka flutti til gósenlandsins mikla sá minn maður sér leik á borði og spurði hvort hann mætti panta og senda á mig nokkra hluti sem hann myndi svo sækja þegar þau, fjölskyldan, kæmu út. Ég sagði að sjálfsögðu já en grunaði ekki hvað væri í vændum því innan skamms hafði litla íbúð- in mín breyst í hálfgert pósthús fyrir pakkana hans Ingvars og þeir streymdu inn nánast dag- lega. En ég gleymi ekki hvernig hann ljómaði eins og lítið barn á jólunum þegar hann kom svo til mín og sótti góssið. Það var ynd- islegt að fá þau þrjú í heimsókn og þetta er góð minning um frænda minn sem ég mun aldrei hitta aftur. Önnur yndisleg minning um Ingvar er frá því í fimmtugsaf- mælinu hans fyrir tæplega ári. Það er gaman að muna eftir Ingv- ari svona glöðum og kátum eins og hann var þetta kvöld, umvaf- inn góðum vinum og ættingjum. Þannig vil ég alltaf muna hann. Ingvar var góður frændi. Ef maður lenti í tölvuvandræðum var Ingvar ávallt boðinn og búinn að hjálpa. Það var alltaf gaman að hitta hann og spjalla og í minn- ingunni hló hann mikið og hlát- urinn hans heyri ég enn óma í hausnum á mér. Það er svo sorg- legt og ósanngjarnt að hann hafi verið tekinn svona snemma frá okkur. Elsku Kolla, ég votta þér og börnunum ykkar Ingvars mína dýpstu samúð. Ég hef hugsað mikið til ykkar síðustu daga og vona að þið finnið styrk til að komast í gegnum þessa erfiðu tíma. Missir okkar allra er mikill en ykkar þó mestur. Eftir lifir minningin um yndislegan mann sem ég er glöð að hafa fengið að kynnast. Margrét Halla Bjarnadóttir. Við systur, mamma og svilar Ingvars sitja við eldhúsborðið, Ingvar glaðhlakkalegur að útbúa eitthvað ljúffengt handa okkur og Kolla sér um að allt gangi upp. Þetta er bara ein af mörgum myndum frá góðum stundum sem við áttum saman. Það er ótrúlegt og óhugsandi að við séum að kveðja Ingvar í dag langt fyrir aldur fram. Ingvar og Kolla systir okkar kynntust fyrir rúmum 18 árum og hafa gert margt saman á þess- um tíma. Þeirra sameiginlega gleði var Kristín Sóley sem nú er 16 ára en á vissan hátt sameinaði hún barnahópinn þeirra, strák- ana hans Ingvars og börn Kollu. Ingvar og Kolla nutu lífsins, þau ferðuðust mikið, en ferðalög voru m.a. þeirra sameiginlega áhuga- mál. Í sumar fóru þau til Berlínar og Tallinn og létu gamlan draum um Parísarferð verða að veru- leika. Ingvar átti óteljandi áhuga- mál, hann var einstaklega fróður, vel lesinn og hafði gott vald á ís- lenskri tungu. Það var mjög gott að leita til Ingvars og hann hefur aðstoðað og lesið yfir ófáar mast- ers- og BA-ritgerðir þó að hann hafi sjálfur ekki lokið við mast- erinn. Það voru ekki bara hans vinir sem leituðu til hans og nutu aðstoðar, einnig vinkonur Kollu og fjölskyldan. Þar kom enginn að tómum kofunum. Hann elskaði rökræður og var stundum óþol- andi „besserwisser“ sem ekki var til í að gefa eftir. Ingvar var tækninörd og tækjaglaður með eindæmum. Það er okkur systrum og mömmu minnisstætt þegar við vorum saman í Boston og það vantaði hleðslutæki fyrir farsíma. Kolla leysti málið en Ingvar hafði sent hana með hleðslutæki með 10 leggjum fyrir mismunandi sím- tæki, þetta lýsir Ingvari meira en mörg orð. Tónlist átti hug hans allan, hann söng í tveimur kirkju- kórum og síðustu ár hefur hann verið að læra á gítar. Kolla og Ingvar voru komin á fullt í golfið með okkur systrum og svilum og nutum við margra góðra stunda í sumar á golfvellinum. Ingvar var mikill áhugamaður um matar- gerð og voru þau hjónin dugleg við að bjóða vinum og fjölskyldu í mat. Gestrisni Ingvars var mikil og oft glatt á hjalla hjá okkur. Við kveðjum góðan mann og einstakan vin og þökkum allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Guð gefi ykkur, elsku Kolla, Kristín Sóley, Ásgeir, Kristófer, Guðmundur, Ester og Örn styrk til þess að takast á við þennan mikla missi. Við skiljum ekki alltaf lífið og það er ekki allt- af sanngjarnt en þið eigið hvert annað og getið sameinast í minn- ingu um góðan mann sem við munum minnast með hlýju alla okkar daga. Valgerður Olgeirsdóttir, Edda Olgeirsdóttir, Sigríður Olgeirsdóttir og fjölskyldur. Við Ingvar vorum vinir í yfir 40 ár. Við kynntumst þegar við vor- um átta ára. Ég var nýlega flutt- ur frá Vestmannaeyjum, að byrja í Hlíðaskóla og aðlagast nýju um- hverfi. Þessi ljóshærði strákur með gleraugu var svo vel að sér um marga hluti að ég hlaut að fyllast aðdáun. Hann var líka svo skemmtilegur og góður félagi og við urðum vinir. Og svo nánir vin- ir urðum við að við gerðum eig- inlega allt saman. Við vorum saman í Hlíðaskóla, í landsprófi og þaðan fórum við í MH og Hamrahlíðarkórinn og löngu síð- ar í Dómkórinn. Saman byrjuð- um við að djamma og skoða stelp- ur og saman fórum við til Kaupmannahafnar sumarlangt um tvítugt. Við æfðum saman borðtennis, fórum í sund, í ung- lingavinnuna, á þjóðhátíð og margt fleira. Öll okkar unglings- ár vorum við saman upp á nánast hvern einasta dag og stóðum saman gegn vonsku heimsins sem svo margir unglingar þurfa að upplifa. Okkar vinátta hélst alla tíð og hafði ég væntingar um að við gætum gert eitthvað sam- an á efri árum en það verður ekki af því. Ingvar var mjög greindur og hafði einstaka lestrarhæfileika. Hann var snemma farinn að kynna sér margt fleira en krakk- ar á hans aldri voru að pæla í. Hann miðlaði því gjarnan til ann- arra við mismiklar undirtektir. Mér fannst þetta svo merkilegt að einn strákur skyldi vita svona margt og jók það enn meir að- dáun mína á honum. Hann pældi í öllu, vísindum, listum, kvikmynd- um, bókmenntum, tónlist og var eiginlega alæta í þessum efnum. Hann varðveitti þennan eignleika alla tíð og kenndi mér svo margt og kynnti mér alls kyns hluti sem mér hafði aldrei dottið í hug að spá í. Ingvar var góðum gáfum gæddur og miklum viljastyrk ef því var að skipta. Hann sýndi það og sannaði þegar hann tók upp á því að fara í háskólanám í tölv- unarfræði 45 ára gamall sem hann lauk með glæsibrag. Upp úr tvítugu fór Ingvar að búa, gifti sig og eignaðist tvo góða drengi. Það hjónaband end- aði með skilnaði og skildi eftir sig djúp sár sem tóku tíma sinn að gróa. Daginn sem ég gifti mig kom Ingvar að minni beiðni til mín og hjálpaði mér við að klæð- ast kjól og hvítu. Hann mætti síð- an til brúðkaupsins með glæsi- lega konu upp á arminn. Það var Kolla sem síðan varð eiginkona hans, ást og hamingja allt til síð- asta dags. Kolla, sem kemur úr samheldinni og skemmtilegri fjölskyldu, færði honum svo margt sem hann hafði farið á mis við áður. Hún kallaði fram allt það besta í Ingvari og kveikti í honum kátínu, lífsgleði og trú á lífið og tilveruna. Og sama árið og Ási minn fæddist eignuðust þau Kristínu Sóleyju sem var yndi og augasteinn föður síns. Ingvar var hamingjusamur maður síðustu 18 ár ævinnar. Það er svo sárt og svo ósann- gjarnt að hann skuli deyja svona ungur, maður í blóma lífsins. Það eru margir sem þarfnast hans og missa svo mikils. Mér þótti afar vænt um þennan dreng og því er tilfinningin sár. En minningar um allar þær stundir sem við átt- um saman bjarga því sem bjarg- að verður. Það að eiga vináttu manns, svo góða og svo lengi er ómetanlegt og fyrir það verð ég ævarandi þakklátur. Blessuð sé minning Ingvars Ólafssonar. Ólafur Ástgeirsson. Okkur hjónin langar að segja nokkur orð um vin okkar Ingvar, en það er einkennileg og óraun- veruleg tilfinning að hann sé far- inn langt um aldur fram. Ingvar var góður vinur, hlýr og einstak- lega greiðvikinn. Alltaf var hann tilbúinn að aðstoða, svo ekki sé talað um ef það var um einhvers konar tölvumál að ræða, þá mun- aði hann ekki um að koma og redda málunum. Það er margs að minnast því margt skemmtilegt gerðum við hjónin með þeim Ingvari og Kollu. Skemmtilegar sumarbú- staðaferðir, þar sem við nutum samverunnar og elduðum saman og borðuðum góðan mat, og oft hittumst við og þá til skiptis hjá okkur eða þeim og grilluðum saman og skemmtum okkur. Einnig fórum við nokkrar ferðir saman til útlanda og í eina ferð þar sem við tókum flug og bíl og keyrðum um Evrópu og er sú ferð sem og hinar ógleymanleg. Það var mikið gaman að ferðast með Ingvari þar sem við höfðum skemmtilegan ferðafélaga svo og algjöran fararstjóra því hann var alltaf búinn að undirbúa sig vel og kynna sér alls kyns hluti og staði sem skemmtilegt var að skoða. Og gaman er að segja frá því að þegar við vorum í Evrópuferðinni munaði hann ekki um að fara úr þýskunni yfir í frönskuna með sínum skemmtilega og tilheyr- andi hreim. Við kveðjum góðan vin til margra ára með sárum söknuði en minningin um góðan vin mun vara að eilífu. Takk fyrir allt og allt. Elsku Kolla, við vottum þér og fjölskyldunni okkar dýpstu sam- úð og Guð styrki ykkur og styðji. Gyða og Sigurður. Yndislegur vinur, Ingvar Ólafsson er látinn, aðeins fimm- tugur að aldri. Söknuðurinn er mikill og erfitt að skilja hvers vegna maður á besta aldri er hrifinn burt frá ást- kærri fjölskyldu sinni og vinum, langt fyrir aldur fram. Ég hugga mig við góðar minningar um ein- staklega mætan mann sem ég bar mikla virðingu fyrir. Ég kynntist Ingvari fyrir 18 árum þegar vinkona mín Kolbrún Olgeirsdóttir kynnti mig fyrir kærasta sínum og síðar eigin- manni. Ég man að ég hugsaði að þarna færi traustur og góður maður sem ætti eftir að reynast vinkonu minni vel. Sú varð raun- in. Þau hjónin voru höfðingjar heim að sækja. Veislurnar og heimboðin eru ógleymanleg og þar var Ingvar einatt hrókur alls fagnaðar. Hann hafði yndi af að búa til góðan mat og bjóða til veislu af rausnarskap. Þar var einatt mikið hlegið og spjallað um landsins gagn og nauðsynjar fram á rauða nótt. Ingvar var vel menntaður og ákaflega fróður og kom iðulega með skemmtilegt og áhugavert innlegg í umræðuefn- ið, sem varð til þess að samræð- urnar náðu nýjum hæðum. Ég minnist með hlýju skemmtilegrar ferðar sem vina- hópurinn fór til Póllands haustið 2007, en nýjasta áhugamálið var golf sem átti hug okkar allan. Það var mikið rætt og stefnt að stórum sigrum á því sviði. Þá átti ég því láni að fagna að kynnast Ingvari mjög vel þegar hann hjálpaði mér við rannsókn sem ég var að vinna að við Háskóla Ís- lands. Þeir dagar eru mér ógleymanlegir og dýrmætir því ekki aðeins var frábært að njóta leiðsagnar hans, fróðleiks og færni á því sviði, heldur undum við okkur lengi við að ræða málin, spá og spekúlera og velta upp hugmyndum. Þá var mikið hlegið við eldhúsborðið og maulað á ein- hverju góðgætinu sem Ingvar töfraði fram af sinni alkunnu snilld. Við, sem urðum þeirrar gæfu njótandi að þekkja Ingvar, erum lánsöm. Við kynntumst manni sem hafði svo marga góða og eft- irsótta eiginleika. Hann var fyrst og fremst góður maður, mikill gleðigjafi og hvers manns hug- ljúfi. Hann laðaði fólk að sér með glaðlegu og hlýju viðmóti, já- kvæðni og hjálpsemi. Vildi allt fyrir alla gera og gaf þá gjöf sem er dýrmætari en margt annað; hrós, hvatningu og einlæga vin- áttu. Ég mun alla tíð varðveita minninguna um yndislegan vin og bið Guð að veita fjölskyldu hans styrk á sorgartíma. Blessuð sé minning Ingvars Ólafssonar. Kristín Helgadóttir. Það eru bráðum 40 ár síðan sá sem þetta skrifar hitti Ingvar fyrst, á haustkvöldi í Hlíðunum. Hann var á 12. ári, þybbinn, með gleraugu og síðast en ekki síst með munninn fyrir neðan nefið. Hann ávarpaði nýbúann í Máva- hlíð í 3. persónu, með hæfilegri lítilsvirðingu. Kynnin urðu smám saman meiri og upphaf skóla- göngu í Menntaskólanum við Hamrahlíð markaði upphaf vin- skapar sem hefur staðið allar göt- ur síðan. Árin liðu og hvor fór í sína átt. Eftir áratug eða svo lágu leiðir saman á ný og þá var þráðurinn tekinn upp, eins og ekkert hefði í skorist. Vináttan hefur haldist æ síðan og aldrei borið skugga á. Það var gaman að hafa verið með í för þegar fundum Ingvars og Kollu bar saman. Ingvar lét það þá þegar uppi að nú vissi hann hvað hann vildi. Áður en langur tími leið var hann orðinn ómiss- andi hluti af stórfjölskyldu Kollu, þeim góða og samheldna hópi. Tengslin við Ingvar breyttust með tíð og tíma; vinirnir urðu fjölskyldufeður og héldu sam- bandinu áfram á þeim nótum. Við slíkar aðstæður stækkar vináttan þegar best lætur, makar og börn bætast inn í myndina. Hjá Ingv- ari var kynslóðabilið heldur ekki til baga, hann náði auðveldlega til barna og unglinga. Þess vegna syrgir hann öll fjölskyldan hér á Njarðargötu. Hugurinn er hjá Kollu og börnunum öllum. Það var einhvern veginn dæmigert fyrir Ingvar að heilsa manni með kveðju sem hljómaði alltaf jafn notaleg: „Sæll bróðir“. Þau orð gáfu gjarnan fyrirheit um að nú ætti að fara að slá upp veislu eða bara fara í heita pott- inn í Kópavogslauginni. Allt að einu varð samveran og spjallið sem fylgdi trygging fyrir skemmtun og ánægju. Já, bróðir; þín verður sárt saknað. Oddgeir. Elsku vinur, eitt er víst að lífið er hverfult og enginn veit hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Veit ég þó að þú hefur alla tíð verið mér kær og traustur vinur. Þú varst ekki bara Ingvar sem bjó „ská“ á móti. Þú varst vinur sem ég gat leitað til. Þú varst vin- ur sem gaf mér ráð sem ég fylgdi eftir. Þú varst vinur sem var víð- sýnn, vel lesinn og uppfullur af fróðleik. Bjartsýnn á lífið og til- veruna og ávallt stutt í skopið. Stundirnar sem ég átti með þér og Kollu voru ófáar í gegnum árin og kalla þær minningar fram bros og hlýju í huga mínum. Ég er svo þakklát fyrir þá stund sem við áttum saman, þú, ég og Kolla síðastliðna menning- arnótt þegar við löbbuðum svo öll saman heim úr bænum og rædd- um um alla heima og geima eins og okkur einum var lagið. Þrátt fyrir að þér hafi verið kippt alltof snöggt í burtu frá fjöl- skyldu þinni og vinum veit ég að þú lætur gott af þér leiða á nýjum stað. Elsku Kolla og börn, minning um góðan mann lifir áfram í huga okkar og hjarta. Megi guð veita ykkur dug og styrk í sorg ykkar. Elsku Ingvar, guð geymi þig, kæri vinur. Sonja Jóhannsdóttir. Þær sviplegu fregnir bárust okkur að morgni mánudags í síð- ustu viku að okkar kæri vinur, Ingvar, berðist fyrir lífi sínu á gjörgæsludeild Landspítalans. Hann beið lægri hlut í þeirri bar- áttu og skilur eftir sig mikið tóm hjá okkur sem hnípin eftir lifum. Sár tregi býr í brjósti okkar og óbærilega tómlegt er að hugsa til þess að hann Ingvar smalar ekki vinahópnum saman í bráð, hlýr, hress og kátur, lífið og sálin í gleðskapnum. Við hlið hans er Kolla, ástin hans og ævifélagi, þau voru sem sköpuð hvort fyrir annað. Kærleikurinn sem ríkti milli þeirra duldist engum sem sá þau saman og þannig var það allt frá þeirra fyrstu kynnum. Bæði höfðu yndi af því að bjóða fólki heim og þær eru ófáar glæsiveisl- urnar sem haldnar hafa verið hjá greifahjónunum á Sæbólsbraut. Ingvar lét sig ekki muna um að grilla nokkur læri ofan í liðið og hann var sannkallaður snillingur í matargerð. Heimilið sitt prýddu þau fagurlega og hlýja þeirra um- vafði gestina. Ingvar var traustur maður og staðfastur og tók óhræddur á sig Ingvar Ólafsson Elsku afi minn, ég elskaði þig alltaf og dáði, ég er svo heppin að eiga frábærar minningar um þig. Minningar sem gleymast aldrei, eins og til dæmis bara núna í sumar þegar við fórum öll saman í hestaferð í Fjall í Kol- beinsdal, þar var hlegið saman og haft gaman af lífinu, þessari Sigurbjörn Þorleifsson ✝ SigurbjörnÞorleifsson fæddist í Lang- húsum í Fljótum 2. júlí 1944. Hann varð bráðkvaddur 23. september 2011. Útför Sig- urbjörns fór fram frá Sauðárkróks- kirkju 30. sept- ember 2011. ferð mun ég seint gleyma. Þú varst frábær maður, traustur og mun ég reyna að feta í fót- spor þín. Þú munt ætíð eiga stað í hjarta mínu, elsku afi minn. Þú varst ljós á villuvegi, viti á minni leið, þú varst skin á dökkum degi, dagleið þín var greið. Þú barst tryggð í traustri hendi, tárin straukst af kinn. Þér ég mínar þakkir sendi, þú varst afi minn. (Hákon Aðalsteinsson) Þitt ástkæra barnabarn, Sonja Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.