Morgunblaðið - 14.10.2011, Page 28

Morgunblaðið - 14.10.2011, Page 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2011 ✝ Björn AndrésEiðsson fædd- ist í Hörgsholti í Miklaholtshreppi 13. júlí 1925. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Eir 7. október 2011. Foreldrar hans voru Eiður Sig- urðsson, f. 27. júní 1893, d. 1963 og Anna Björnsdóttir, f. 23. febrúar 1903, d. 2000. Systkini hans eru Guð- rún Hallfríður, f. 1924, Ingi- björg Stefanía, f. 1927, Sigrún Ragnhildur, f. 1933, d. 1972, Sigurður, f. 1936 og Sveinn Magnús, f. 1942, d. 2001. Þann 31. janúar 1953 kvænt- ist hann Sigurrós Gísladóttur frá Viðey, f. 28. ágúst 1926. Foreldrar hennar voru Gísli Gíslason, f. 14. maí 1871, d. 1948 og Svava Jónína Sigurð- ardóttir, f. 27. ágúst 1881, d. 1959. Björn og Sigurrós eign- uðust fimm börn. Þau eru 1) Svava, f. 1952, leikskólakenn- ari, maki Sigurbjörn Björnsson, f. 1953, læknir. Börn þeirra eru Sólveig, f. 1977, læknir, Björn, f. 1981, kennari, maki Sif Atla- dóttir, f. 1985, og Sigurrós María, f. 1985, nemi, maki Steinn Steinsson, f. 1977. 2) Eiður, f. 1953, húsasmíðameist- ari. Maki 1 Elín Thorarensen, f. 1956, kennari, þau skildu. Börn þeirra, María Helen, f. 1977, kennari, dóttir hennar Elfa Dís Hlynsdóttir, f. 2000. Sigurrós, grímsson, f. 1962, viðskipta- fræðingur. Börn þeirra, Guðjón Hrafn, f. 1985, nemi, Anna María, f. 1990, nemi, sambýlis- maður Einar Héðinsson, f. 1990 og Svava Rós, f. 1995, nemi. Björn ólst upp í Hörgsholti í foreldrahúsum þar sem hann sinnti bústörfum. Hann fór í hefðbundinn farskóla og 1943 fór hann í Héraðsskólann í Reykholti og var þar í tvö ár. Áhugi Björns á trésmíði byrjaði snemma, því hann tók þátt í byggingu á félagsheimilinu Breiðablik í Miklaholtshreppi og nýbýli að Lækjamótum fyrir foreldra sína. Haustið 1952 flutti hann suður til Reykjavík- ur með unnustu sína og Svövu, dóttur þeirra. Er til Reykjavík- ur kom byrjaði Björn að starfa hjá Trésmiðjunni Víði og var þar í tvö ár. 1955 hóf hann störf hjá Steypustöðinni í Reykjavík. Árið 1963 ákvað Björn að læra húsasmíði, þá kominn með fimm börn, og stundaði hann námið utan skóla og gerði það með miklum ágætum. Björn starfaði við smíðar í 20 ár. Árið 1986 varð hann umsjónarmaður Heilsu- verndarstöðvarinnar og bygg- ingar Heilsugæslunnar í Reykjavík. Frá 1991 starfaði hann hjá Hjúkrunarheimilinu Eir allt til 2006. Hann dvaldi þar síðasta æviárið. Birni þótti vænt um heimasveit sína og starfaði hann í Félagi Snæfell- inga í Reykjavík og sat í stjórn þess. Björn hafði m.a. áhuga á hestamennsku, söng og bridge- spili en vinnan var ávallt núm- er eitt hjá honum. Útför Björns fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 14. októ- ber 2011, og hefst athöfnin kl. 13. f. 1981, íslensku- fræðingur, sam- býlismaður Svavar Steinarr Guð- mundsson, f. 1980, sonur þeirra Kári Steinarr, f. 2008. Maki 2 María Magðalena Guð- mundsdóttir, f. 1966, húsmóðir. Börn þeirra Karit- as, f. 1988, kenn- ari, Ingibjörg Stef- anía, f. 1990, nemi, sambýlismaður Andri Axelsson, f. 1984 og Monika, f. 1997. 3) Gísli, f. 1955, kennari, maki Anna Dórothea Tryggvadóttir, f. 1960, nemi. Börn þeirra, Tryggvi Dór, f. 1981, nemi, Sigurbjörn, f. 1984, nemi, sam- býliskona Ragnheiður Eiríks- dóttir, f. 1986, Ingibjörg Huld, f. 1991, nemi, sambýlismaður hennar Örnólfur Þorleifsson, f. 1988, sonur þeirra Róbert Kári, f. 2010 og Elmar Gísli, f. 1996. 4) Anna, f. 1958, tækniteiknari, maki Róbert B. Agnarsson, f. 1957, viðskiptafræðingur. Börn þeirra, Helga Sif, f. 1981, bankastarfsmaður, maki Ragn- ar Már Sverrisson, börn þeirra Rómeó Máni, f. 2004, Emilía Embla, f. 2009, Gunnar Freyr, f. 1986, nemi, sambýliskona Harpa Hrund Hinriksdóttir, f. 1987, sonur þeirra Lúkas Myrkvi, f. 2008 og Andri Björn, f. 1989, söngvari. 5) Sigurrós Birna, f. 1961, leikskólakenn- ari, maki Guðmundur Kr. Hall- Kynni mín af Birni Eiðssyni hófust um miðjan áttunda ára- tuginn, þegar ég og Svava, elsta dóttir hans og Sigurrósar Gísla- dóttur eiginkonu hans, fórum að rugla saman reitum. Allt frá fyrstu kynnum áttum við einstök samskipti sem entust fram á síð- asta dag. Tengdapabbi var í mín- um huga ímynd Íslendingsins sem á síðustu öld braust fram úr litlum efnum úr sveitasamfélag- inu, fluttist til borgarinnar, stofnaði fjölskyldu og kom sér vel fyrir. Þau fluttu í gott raðhús í Bústaðahverfinu og bjuggu þar mestalla sína búskapartíð. Á þessum árum starfaði Björn við almenn verkamannastörf í bygg- ingaiðnaðinum, og vann þá gjarnan svo langa vinnudaga að fjölskyldan sá hann vart heima. Síðar settist Björn, þá kominn nær fertugu, á skólabekk og nam húsasmíði og í framhaldi af því varð hann meistari í greininni. Á sama tíma hafði fjölskyldan stækkað, börnin orðin fimm og Sigurrós lengst af útivinnandi. Samstillt fjölskylda sem tókst á við lífsbaráttuna með jákvæðu hugarfari. Þetta er sú saga sem endurspeglar tilveru margra Ís- lendinga í dag, saga kynslóðar- innar sem skóp þá velferð sem við búum nú við. En Björn var ekki aðeins í mínum huga einstakur fjöl- skyldufaðir og tengdafaðir, held- ur tókust með okkur góð kynni og síðar vinskapur sem reyndist mér mikils virði. Hann var ein- staklega traustur maður, varkár og íhugull og að sama skapi góð- ur verkmaður, sérlega vandvirk- ur og afkastamikill. Þá var hann hlýr og gamansamur og náði fyr- irhafnarlaust sérstökum tengslum við barnabörnin sem löðuðust að honum. Á því tíma- bili sem fjölskylda okkar Svövu dvaldi í útlöndum, komu tengda- foreldrarnir oft til okkar og á þeim tímum styrktust enn vin- áttuböndin. Aldrei stóð á að veita aðstoð við flutninga, hlaða í gáma og dytta að á heimilinu þegar honum fannst tengdasonurinn ekki ráða einn við verkið. Eftir heimkomu, þegar fjölskyldan hóf stund á hestamennsku, aðstoðaði Björn okkur í fyrstu við gegn- ingar og fór síðar að bregða sér á bak eftir 40 ára hlé frá hesta- mennsku. Loks keypti hann sinn eigin hest, sem hann hafði mikla ánægju af. Í kringum þetta sam- eiginlega áhugamál náði vinskap- urinn enn að styrkjast og minn- ingar úr hestaferðum og frá öðrum samverustundum hrann- ast upp og vekja hlýjar tilfinn- ingar. Síðasta rúma áratug starfsævinnar vann Björn fyrst sem eftirlitsmaður að byggingu hjúkrunarheimilisins Eirar og síðar sem umsjónarmaður bygg- inga heimilisins. Þar lágu leiðir okkar einnig saman á sameigin- legum vinnustað, þannig að sam- skipti okkar voru mikil í gegnum tíðina. Síðustu árin glímdi Björn við erfið veikindi sem hann tókst á við af æðruleysi. Í veikindunum stóð Sigurrós, tengdamamma mín, eins og klettur við hlið manns síns og studdi hann í veik- indum sínum með dyggri aðstoð fjölskyldunnar. Síðasta rúma ár- ið bjó hann á Eir og fékk þar góða umönnun. Kæri tengdapabbi, bestu þakkir fyrir langan og góðan vin- skap, minningin um þig mun lifa. Sigurbjörn Björnsson. Nú er ég aldinn að árum. Um sig meinin grafa. Senn er sólarlag. Svíður í gömlum sárum. Samt er svo gaman að hafa lifað svo langan dag. Enn syrtir af nótt, til sængur er mál að ganga – sæt mun hvíldin eftir vegferð stranga – Þá vildi ég, móðir mín, að mildin þín svæfði mig svefninum langa. (Örn Arnarson) Nú er hann tengdapabbi far- inn frá okkur. Það er mikill miss- ir að honum fyrir alla sem hann þekktu. En hann var eflaust orð- inn nokkuð þreyttur á jarðvist- inni eftir erfiða tíma, þar sem hann missti ýmislegt af þeim lík- amlegu eiginleikum, sem við þurfum öll til að njóta lífsins. En slíkum úrvalsmanni verður örugglega fagnað innilega á nýj- um stað. Húsasmíðameistarinn Björn var mikill hagleiksmaður. Og alltaf var hann boðinn og búinn til að hjálpa börnum sínum og tengdabörnum við alls kyns hluti, ekki síst þá er sneru að smíðunum sem hann kunni upp á tíu. Ég mun aldrei gleyma því þegar ég og Anna vorum að byrja að búa í litlu, hlýlegu íbúð- inni á Ásvallagötunni, sem móðir Björns átti. Þá áttum við hjóna- leysin engin húsgögn til að stilla upp í íbúðinni og litla aura til að bæta úr því. Fyrir eitt orð smíð- aði Björn með sonum sínum sófa- sett ásamt tveimur borðum. Þessi laglegu húsgögn nýttust okkur í langan tíma. Eins var það löngu síðar þegar við hjónin réðumst í það stórvirki að smíða sumarbústað og Björn þá orðinn eldri herramaður. Þá krafðist Björn þess að fara sem oftast með okkur í hálfkaraðan bústað- inn til að leiðbeina okkur og að- stoða við framkvæmdirnar. Það er gott að eiga friðsælan sama- stað fyrir fjölskylduna þar sem handverk Björns og hans góði andi svífa yfir vötnum. En Björn var ekki aðeins vits- munamaður á sviði smíða. Við hann var hægt að tala um alla hluti, stóra sem smáa. Þar fór greindur og lífsreyndur maður, sem gaman var að spjalla við. Og svo hafði hann þennan líka fína húmor, sem aldrei hvarf. Ekki einu sinni þegar skynfæri hans voru farin verulega að gefa sig. Alltaf var stutt í strákinn og brosið hjá gamla manninum. Samferðamenn Björns allir munu sakna Björns. Hann var góður vinnufélagi, iðinn og sam- viskusamur. En hann var líka samviskusamur og indæll gagn- vart fjölskyldu sinni og tengda- fólki. Það var auðvelt að elska mannvininn Björn Eiðsson. Öll börn í fjölskyldunni löðuðust að honum og elskuðu hann inn að beini. Hann hafði þessa góðu áru, sem allir þrá að vera í návist við. Þá er lítilli kveðju minni til Björns að ljúka. En minningin um yndislegan tengdaföður mun aldrei hverfa og áhrif hans á hug minn munu vara alla mína ævi. Ég þakka þér fyrir allt sem þú gafst mér, kæri tengdafaðir. Megir þú hvíla í ró og friði í fal- legri sveit þar sem sól skín í heiði. Róbert B. Agnarsson. Mín fyrstu kynni af Birni voru snemma á níunda áratugnum þegar ég kynntist Siggu dóttur þeirra Björns og Sigurrósar. Myndaðist fljótt með okkur trygg og góð vinátta sem aldrei sló skugga á. Með þeim hjónum áttum við margar góðar stundir saman, m.a. annars í ferðalögum víðsvegar um landið ásamt öðr- um samverustundum. Björn hafði ávallt góða nær- veru og var þægilegur í um- gengni. Hann var natinn við börnin, gaf sér ávallt tíma í að hlusta á þau, segja þeim sögur, lesa og syngja fyrir þau og jafn- vel bregða sér á leik með þeim. Hann varði miklum tíma í að kenna börnunum hvernig ætti að fara upp og niður stigann í Ás- garði svo enginn færi sér að voða. Björn var ákveðinn og stefnu- fastur maður, stóð gjarnan fast á sínum skoðunum en tók samt rökum ef eitthvert vit var í þeim. Hann var ekki maður margra orða en þegar hann lagði eitt- hvað til málanna var hlustað til þess sem hann sagði. Kynni okk- ar urðu meiri þegar ég aðstoðaði Björn við smíðar og „handlang- aði“ hjá honum. Ég einsetti mér að láta hann ekki segja mér sama hlutinn tvisvar en það var eitthvað sem ég held að hann hafi kunnað að meta. Allt sem Björn tók sér fyrir hendur leysti hann af dugnaði, nákvæmni og reglu. Þetta á jafnt við um í starfi og í hinu daglega amstri. Ungur missti Björn heyrn á öðru eyra vegna veikinda, ásamt því að heyrn á hinu var mjög skert. Þetta háði honum alla tíð, sérstaklega í margmenni. Saman háðum við saman einskonar vindmyllu-baráttu við bæði tæknina og kerfið. Ófáar ferð- irnar fórum við saman í Heyrn- ar- og talmeinastöðina þar sem tækin voru prófuð og keypt – allt var reynt til þess að bæta heyrn- ina. Björn var söngelskur maður og söng í kór um tíma en sá sig síðan tilneyddan að leggja þá iðju til hliðar m.a. sökum bágrar heyrnar. Það mátti oft heyra þegar Björn var ekki fjarri því hann var sífellt flautandi lagstúf svo heyrðist langar leiðir. Fallinn er frá einstakur maður sem hafði góð áhrif á þá sem hann umgekkst. Börnin hændust að honum og við hin eldri virtum hann. Við gengum oft fjallið sam- an en það var þér miserfitt, þá áðum við á bekk og spjölluðum saman. Það voru gæðastundir. Ég votta öllum ættingjum og vinum hans samúð mína. Kveðja. Þinn tengdasonur og vinur, Guðmundur Hallgrímsson. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Vald. Briem) Far þú í friði, elsku pabbi, tengdapabbi, afi og langafi, og hafðu þökk fyrir allt. Þess óska: Gísli, Anna Dóra, Tryggvi Dór, Sigurbjörn, Ragnheið- ur, Inga Huld, Örnólfur, Elmar Gísli og Róbert Kári. Elskulegur afi okkar, með söknuði kveðjum við þig í dag. Þakklátar fyrir hinar fjölmörgu minningar sem við eigum um þig. Ótal minningar úr Ásgarðinum, þar sem alltaf ríkti gleði. Þar fengum við barnabörnin að leika okkur í kjallaranum á verkstæð- inu þínu, smíða og dytta að ýmsu og svo gæða okkur á kræsing- unum hennar ömmu. Okkur þótti það mikil forréttindi að fá ykkur ömmu ein í heimsókn til okkar í Svíþjóð. Þar áttum við góðar stundir, ferðuðumst og nutum nærveru ykkar. Mikil var til- hlökkunin að fá ykkur og sökn- uðurinn mikill þegar þið fóruð. Við systur ásamt bróður okkar vorum líka svo heppin að fá að starfa þér við hlið á Eir, þar sem þú reyndir að kenna okkur þín vönduðu vinnubrögð. Nákvæmni og vandvirkni voru þitt aðals- merki og erum við lánsöm ef við höfum lært að tileinka okkur brot af þeim eiginleikum þínum. Elsku afi, það var alltaf svo gott að vera nálægt þér. Hvort sem það var í hesthúsinu, á Eir eða við eldhúsborðið með spil, krossgátu eða kapal og snúðana hennar ömmu. Þínar dótturdætur, Sólveig og Sigurrós María. Elsku afi minn, það er með mikilli sorg í hjarta sem ég kveð þig. En um leið vil ég gleðjast yf- ir þeim forréttindum sem ég hef notið, að vera bæði barnabarn þitt og um leið mikill vinur. Meira að segja gekk ég einhvern tíma svo langt að kalla þig minn allra besta vin. Þær eru og verða mér alltaf ógleymanlegar stund- irnar sem við eyddum saman í Ásgarðinum, í vinnunni á Heilsu- verndarstöðinni þegar ég var bara smástrákur, samvinna okk- ar í Eir og ótalmargar sundferð- ir. Eftirminnilegast af öllu eru þó líklega stundirnar sem við eydd- um í bílnum þínum þar sem við sungum hástöfum saman. Þú söngst virkilega vel, en ég líklega afar illa, en þú lést mér alltaf líða eins og ég væri með englarödd. Ég upplifi það alltaf sem ein- stök forréttindi að hafa átt heim- ili fjarri mínu eigin heimili, heima hjá ykkur ömmu í Ásgarð- inum. Ég hugsa að á sumrin hafi ég eytt að minnsta kosti þriðju hverri nótt heima hjá ykkur og ég reyndi alltaf að plata ykkur til að vaka frameftir með mér og spila Ólsen eða leysa krossgátur. Það var fátt betra en að sitja við eldhúsborðið, drekka ískalda mjólk og háma í sig snúðana hennar ömmu og spila við ykkur. Ég veit ekki hvort öllum barnabörnum þínum hefur liðið á sama hátt og mér, en mér fannst vinasamband okkar vera ein- stakt. Þegar ég og Sif ætluðum að stinga af og gifta okkur núna í janúar þá fékkst þú að vita af því fyrstur af öllum, því að ég gat ekki hugsað mér að láta mig hverfa svona án þess að vera bú- inn að tilkynna þér um áform okkar. Vissulega var mikill daga- munur á þér síðustu mánuðina en að einn af þínum allra bestu dögum á árinu hafi verið dag- urinn sem við buðum þér svo að fagna brúðkaupinu okkar í sum- ar, var sú allra besta gjöf sem ég gat hugsað mér. Það fylgir því mikil pressa að verða mögulega kallaður í fram- tíðinni „afi Björn“ eða „afi Bjössi“, því að við systur mínar og öll hin barnabörnin þín litum svo mikið upp til þín og okkur þykir ennþá svo mikið vænt um þig. Ef barnabörnum mínum mun þykja jafnvænt um mig og mér þykir um þig þá verð ég afar ríkur maður. Það hvílir þungt á mér að hafa ekki geta verið nærri þér und- anfarna mánuði þar sem ég hef verið búsettur erlendis en það hefur varla liðið sá dagur sem ég hef ekki hugsað til þín og ég hef spurt mömmu og pabba um hvernig líðan þín væri. Alltaf lifði ég í voninni um að fá að hitta þig að minnsta kosti einu sinni enn þó að ég vissi að það styttist með hverjum deginum í að þú myndir yfirgefa okkur. Við síðustu heim- sóknirnar mínar til þín var heils- an hjá þér misjafnlega góð en eitt var alltaf til staðar, þinn ynd- islegi húmor. Ég vona bara svo innilega og trúi því að þú sért nú á betri stað og einhvern daginn munu leiðir okkar aftur liggja saman og við getum setið saman og hlegið dátt. Hvíldu í friði, elsku besti afi minn, þinn afastrákur, Björn (Bjössi). Ég sé hann ennþá í huga mér, brosandi andlit, grátt hár. Ég vildi hann væri ennþá hér, ég vildi hann gæti þurrkað þessi tár. Brosinu mun ég aldrei gleyma, og í hjarta mínu ávallt geyma. Í huga mínum sé ég mynd en bara eina, og tárunum er erfitt að leyna. Ég vil þig aftur, afi minn, ég verð alltaf afastrákurinn þinn. Elsku Bjössi afi okkar, nú ertu farinn á vit ævintýranna í fyrirheitna landinu. Eftir langa ævi meðal okkar allra þar sem þú hefur kennt okkur margt, kennt okkur hvað það er sem líf- ið hefur upp á að bjóða og um- fram allt hvað fjölskyldan og náunginn skipta miklu máli. Þú fórst fyrir fjölskyldunni í öll þessi ár með eindæma dugnaði sem við systkinin reynum að hafa að leiðarljósi í okkar lífi. Við munum öll eftir afa brosandi með kaffibollann og mjólkurkexið, að leysa krossgátu með skrúf- blýantinum sínum. Við munum eftir því hvernig afi gamli kitlaði okkur með skegginu sínu. Við munum eftir Blesa og því hversu gaman afa fannst að hugsa um hestinn sinn. Við munum eftir þeim óratíma sem eytt var í kart- öflurnar, setja niður og taka upp og þurrka, brjóstsykrinum í bíln- um og eftir gamla manninum sem lýsti upp herbergið hvar sem hann kom, enda öllum mönnum hjartahlýrri. Þessa hjartahlýju munum við bera með okkur um ókomna framtíð. Takk, elsku afi, fyrir ár- in sem við áttum með þér. Hvíl í friði. Helga Sif, Gunnar Freyr og Andri Björn Róbertsbörn Elsku afi. Það hryggir mig mikið að þú skulir vera farinn frá okkur og munt þú eiga stað í hjarta mínu um ókomna tíð. Eins og ég á erfitt með að sætta mig við að þú sért farinn, þá auðveldar það mér daginn að vita að þú ert á góðum stað og hefur það vonandi betra. Sem lít- ill gutti gat maður ekki annað en litið aðdáunaraugum á þig. Þenn- Björn Andrés Eiðsson HINSTA KVEÐJA Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Hvíl í friði, elsku langafi, Rómeó Máni, Lúkas Myrkvi og Emilía Embla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.