Morgunblaðið - 14.10.2011, Page 40

Morgunblaðið - 14.10.2011, Page 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2011 Hún er eðlilega búin aðvera þónokkur, spennaní garð þess sem hér er tilumfjöllunar. Því að hvað er þetta nákvæmlega? Tónleikar, upplifun, kennsla? Og hvað er þetta Biophilia? Plata, „app“, hug- myndafræði? Allt þetta og meira til kannski? Það er verið að fara í saumana á þessu öllu í greinaskrifum sem nú standa yfir um allan heim en beinum nú sjónum að tónleikahluta Biophili- unnar – metnaðarfyllsta verkefni Bjarkar hingað til á ferlinum – en á tónleikavettvanginum víkja orð og útskýringar fyrir tilfinningalegri upplifun á því sem Björk er að reyna að koma á framfæri með Biophili- unni. Og þó … í upphafi og á milli laga koma reyndar nokkur vel valin orð og það úr munni sjálfs Davids Atten- boroughs. Rödd hans kynnir hvert og eitt lag sem tengist Biophiliuplöt- unni og hugmyndinni á bak við það. Fyrsta lagið var „Thunderbolt“ og við það fór í gang ógurleg maskína sem hékk í lofti, hólkur líkt og úr Frankensteinmynd. Inni í honum slógu eldingar svo taktinn. Já, eins og sjá má voru þetta engir venjulegir tónleikar. Björk er að fara inn á lendur sem hafa hingað til verið ókannaðar í dægurtónlist sam- tímans. Það er nánast með hreinum ólíkindum, svona þegar maður hugs- ar um það, að Björk njóti svona mik- illar hylli um allan heim á sama tíma og hún gerir hluti sem eru í ljós- árafjarlægð frá því sem telja mætti „markaðsvænt“. Þessi listamaður virðist búa yfir töfrum – og aðdrátt- arafli – sem fær mann ennþá og allt- af til að klóra sér í hausnum. Engir venjulegar tónleikar, sagði ég. Lykillinn að þeirri upplifun sem fólk varð fyrir í Hörpunni á miðviku- daginn liggur m.a. í því hvernig svið- ið er sett upp. Björk stendur í miðju salarins á hringlaga sviði sem er svo umkringt undarlegustu hljóðfærum, sum þeirra smíðuð sérstaklega fyrir tónleikana. Áhorfendur hverfast svo um þennan hring og eru því í mikilli nálægð við söngkonuna allan tím- ann. Hún nýtur síðan fulltingis stúlknakórsins Graduale Nobili sem í eru 24 meðlimir og þeir Matt Ro- bertson (tölvur og hljómborð) og Manu Delago (ásláttur) sjá svo um að fylla upp í rest. Við þetta bætast svo skjáir sem lyfta undir framvindu laganna með sjónrænum hætti. Á tónleikunum mætast þannig margir og ólíkir þættir í einum skurðpunkti og áhrifin eru ekkert minna en mögnuð. Eftir nokkur lög af Bio- philiu-plötunni fóru tónleikarnir á annað stig þegar „Hidden Place“ af hinni frábæru Vespertine var flutt. Lagið smellpassaði í Biophiliubún- inginn og sama má segja um önnur eldri lög, glúrnar útsetningar sem taka mið af Biophiliuheimi settu einkar áhugaverðan snúning á smíð- arnar. „Isobel“, „Mouth’s Cradle“ og „Where Is the Line“ nutu góðs af þessu en ég verð að viðurkenna að ég hafði mest gaman af „Vertebræ by Vertebræ“ sem Björk og Jónas Sen fluttu saman af miklu listfengi. Í þessu umhverfi og saman með vír- uðum semballeik Jónasar var þetta svolítið eins og að horfa á atriði úr einhverri mynd eftir David Lynch – framleiddri af Salvador Dali! Þetta var eitthvað svo innilega súrrealískt og flott. Björk sjálf var rólegri og yfirveg- aðri en hún hafði verið þegar verkið var frumflutt í Manchester í sumar. Þetta þýddi að hún var tilfinnanlega öruggari og gat hellt sér í lögin af óhindruðum krafti. Í uppklappi renndi hún sér t.d. í „One Day“ af Debut við undirleik Delago sem lék undursamlega á hið torkennilega hljóðfæri „hang“. Stórkostlegur flutningur. Ég var að sjá þessa tónleika í ann- að sinn, þannig séð, hafði séð Björk flytja efnið í Manchester í sumar. Hrærður gekk ég úr salnum – hvernig ætli þeim sem voru að upp- lifa þetta í fyrsta sinn hafi liðið? Eftir alla þessa lofgjörð, þennan á stundum tilfinningaþrungna texta og allar þessar stjörnur sem hanga með dómnum, kannt þú að spyrja, lesandi góður: „Bíddu, er sem sagt allt sem Björk gerir óumdeild snilld?“ Og svar mitt er: „Uuu … já.“ Þangað sem enginn annar þorir Harpa (Silfurberg) Björk bbbbb Biophilutónleikar Bjarkar Guðmunds- dóttur í Hörpu, Silfurbergi, miðvikudag- inn 12. október. ARNAR EGGERT THORODDSEN TÓNLEIKAR Ljósmynd/Ari Magg Snilld Björk Guðmundsdóttir gefur sig alla fyrir framan pendúlana góðu sem spiluðu mikilvæga rullu í „Solstice“. - CHICAGO READER HHHH - NEW YORK TIMES HHHH HHHH- A.E.T MORGUNBLAÐIÐ - K.I. PRESSAN.IS HHH FOOTLOOSE kl. 5:40 - 8 - 10:30 2D 10 JOHNNY ENGLISH REBORN kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 2D 7 BANGSÍMON Ísl. tal kl. 4 - 6 2D L KONUNGURLJÓNANNA Ísl. tal kl. 4 3D L REAL STEEL kl. 5:30 - 8 - 10:30 2D 12 KONUNGURLJÓNANNA Ísl. tal kl. 3:30 2D L REAL STEEL kl. 8 - 10:30 2D VIP DRIVE kl. 8 2D 16 CONTAGION kl. 8 - 10:30 2D 12 ALGJÖR SVEPPI kl. 4 - 6 2D L CONTAGION kl. 5:50 2D VIP CRAZY,STUPID,LOVE kl. 10:30 2D 7 ÞÓR kl. 3:30 - 5:40 3D L KONUNGUR LJÓNANNA kl. 3:30 Ísl. tal 3D L FOOTLOOSE kl. 5:40 - 8 - 10:30 2D 10 ALGJÖR SVEPPI kl. 3:30 - 5:40 2D L BANGSÍMON Ísl. tal kl. 3:30 - 5:40 3D L DRIVE kl. 8 - 10:20 2D 16 REAL STEEL kl. 8 - 10:40 2D 12 CRAZY, STUPID, LOVE kl. 8 2D 7 CONTAGION kl. 10:30 2D 12 / EGILSHÖLL/ ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL á allar sýningar merktar með grænuSPARBÍÓ 3D 1.000 kr. SÝND Í EGILSHÖLL OG KEFLAVÍK ROWAN ATKINSON HHH - K.I. -PRESSAN.IS Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Fyrsta íslenska teiknimyndin í fullri lengd og 3-D FRÁBÆ R TÓN LIST- MÖGN UÐ DANSA TRIÐI -ENTERTAINMENT WEEKLY HHHH SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLLI, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLLI, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI NÝJASTA ÆVINTÝRIÐ UM BANGSANN SEM ALLIR ELSKA ÍSLENSK TAL LADDI - EGILL ÓLAFSSON - ÖRN ÁRNASON TÖFRANDI FJÖLSKYLDUSTUND FRÁ DISNEY

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.