Morgunblaðið - 27.10.2011, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 2011
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Kistumelur 9, 230-4346, Reykjavík, þingl. eig. KLÖPP - fasteignir ehf.,
gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., mánudaginn
31. október 2011 kl. 13:30.
Kistumelur 9, 230-4347, Reykjavík, þingl. eig. KLÖPP - fasteignir ehf.,
gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., mánudaginn 31.
október 2011 kl. 13:40.
Kistumelur 9, 230-4349, Reykjavík, þingl. eig. KLÖPP - fasteignir ehf.,
gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., mánudaginn
31. október 2011 kl. 13:50.
Kistumelur 9, 230-4350, Reykjavík, þingl. eig. KLÖPP - fasteignir ehf.,
gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., mánudaginn
31. október 2011 kl. 14:00.
Kistumelur 9, 230-4351, Reykjavík, þingl. eig. KLÖPP - fasteignir ehf.,
gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., mánudaginn
31. október 2011 kl. 14:10.
Kistumelur 9, 230-4352, Reykjavík, þingl. eig. KLÖPP - fasteignir ehf.,
gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., mánudaginn
31. október 2011 kl. 14:20.
Kistumelur 9, 230-4353, Reykjavík, þingl. eig. KLÖPP - fasteignir ehf.,
gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., mánudaginn
31. október 2011 kl. 14:30.
Kistumelur 9, 230-4354, Reykjavík, þingl. eig. KLÖPP - fasteignir ehf.,
gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., mánudaginn
31. október 2011 kl. 14:40.
Kistumelur 9, 230-4355, Reykjavík, þingl. eig. KLÖPP - fasteignir ehf.,
gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., mánudaginn
31. október 2011 kl. 14:50.
Kistumelur 9, 230-4356, Reykjavík, þingl. eig. KLÖPP - fasteignir ehf.,
gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., mánudaginn
31. október 2011 kl. 15:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
26. október 2011.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Skógarhlíð 6,
Reykjavík, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Bakkastígur 5, 200-0277, Reykjavík, þingl. eig. Árni Jóhannesson,
gerðarbeiðandiTollstjóri, mánudaginn 31. október 2011 kl. 10:00.
Blesugróf 12, 203-8344, Reykjavík, þingl. eig. Guðmundur Björn
Sigurðsson og Natalia Vico Vadillo, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf.,
mánudaginn 31. október 2011 kl. 10:00.
Blöndubakki 5, 204-7370, Reykjavík, þingl. eig. Rúnar Hrafn
Sigmundsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 31.
október 2011 kl. 10:00.
Boðagrandi 6, 202-4338, Reykjavík, þingl. eig. Björgvin Schram,
gerðarbeiðandiTollstjóri, mánudaginn 31. október 2011 kl. 10:00.
Gautland 1, 203-6924, Reykjavík, þingl. eig. Ingibjörg Hlíðkvist
Ingadóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 31. október
2011 kl. 10:00.
Laufengi 15, 221-6238, Reykjavík, þingl. eig. Alexander Örlygsson,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 31. október 2011
kl. 10:00.
Laufengi 29, 203-9448, Reykjavík, þingl. eig. Laufengi 29 ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 31. október 2011
kl. 10:00.
Laxatunga 8, 230-7924, Mosfellsbæ, þingl. eig. þrotabú B.M. Vallá hf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 31. október 2011
kl. 10:00.
Laxatunga 10, 230-7926, Mosfellsbæ, þingl. eig. þrotabú B.M. Vallá
hf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 31. október 2011
kl. 10:00.
Njörvasund 34, 202-0723, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Rafn Rafns-
son, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Blönduósi, mánudaginn
31. október 2011 kl. 10:00.
Samtún 28, 200-9557, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Guðrún
Snæbjörnsdóttir, gerðarbeiðendur NBI hf. og Vörður tryggingar hf.,
mánudaginn 31. október 2011 kl. 10:00.
Skólavörðustígur 19, 200-6141, Reykjavík, þingl. eig. Sigurður Pálmi
Ásbergsson, gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg ogTollstjóri,
mánudaginn 31. október 2011 kl. 10:00.
Sóleyjarimi 17, 227-6137, Reykjavík, þingl. eig. Axel Þór Guðmunds-
son, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., mánudaginn 31. október 2011
kl. 10:00.
Teigagerði 15, 203-4868, Reykjavík, þingl. eig. Haraldur Sighvatsson,
gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg, Sparisjóður Reykjavíkur/nágr. hf.
og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, mánudaginn 31. október 2011
kl. 10:00.
Vættaborgir 59, 223-3339, Reykjavík, þingl. eig. Helgi Guðbergsson,
gerðarbeiðandiTollstjóri, mánudaginn 31. október 2011 kl. 10:00.
Þórðarsveigur 15, 226-5832, Reykjavík, þingl. eig. Erlingur
Sigurðsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn
31. október 2011 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
26. október 2011.
Raðauglýsingar
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
...þú leitar og finnur
Bridsdeild Breiðfirðinga
Nú er lokið hjá okkur fjögurra
kvölda tvímenningskeppni og úrslitin
urðu þessi:
Magnús Sverriss. – Halldór Þorvaldss. 1085
Þórður Ingólfss. – Björn Arnarsson 1041
Oddur Hanness. – Árni Hannesson 1023
Unnar A. Guðmss. – Hulda Hjálmarsd. 994
Ragnar Haraldss. – Bernhard Linn 988
Sunnudaginn 23.10. var spilað á níu
borðum.
Úrslit í N/S:
Magnús Sverriss. – Halldór Þorvaldss. 271
Hulda Hjálmarsd. – Unnar Guðmss. 256
Þórarinn Bech – Sveinn Sigurjónss. 230
A/V:
Björn Arnarss. – Jörundur Þórðarson 269
Bergljót Aðalstd. – Björgvin Kjartanss. 238
Bernhard Linn – Ragnar Haraldsson 234
Sunnudaginn 31.10. verður spilaður
eins kvölds tvímenningur. Spilað er í
Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14 á sunnu-
dögum klukkan 19.
Eldri borgarar Hafnarfirði
Þriðjudaginn 25. október var spilað á
17 borðum hjá FEBH með eftirfarandi
úrslitum í N/S:
Ólafur Gíslason – Guðm. Sigurjónsson 382
Júlíus Guðmundss. – Óskar Karlss. 355
Þorleifur Þórarinss. – Björn Árnas. 341
Óskar Ólafsson – Hrólfur Gunnarss. 340
Knútur Björnss. – Sæmundur Björnss. 336
A/V:
Ólöf Hansen – Þorvaldur Þorgrímss. 397
Birgir Sigurðss. – Jón Svan Sigurðss. 373
Bragi Björnsson – Bjarnar Ingimars 362
Guðrún Gestsd. – Skarphéðinn Lýðss. 359
Tómas Sigurjónss. – Björn Svavarss. 329
Bridsfélag Reykjavíkur
Haustsveitakeppni er hafin og eftir
fyrsta kvöld er þétt á toppnum.
Staðan er þessi:
Sparisjóður Siglufjarðar 59
Íslenskt grænmeti 56
Garðs Apótek 52
Málning 52
Sveitakeppnin í Gullsmára
Eftir sex umferðir í sveitakeppni fé-
lagsins (af 13) er staða efstu sveita
þessi:
Sveit Þorsteins Laufdal 115
Sveit Guðrúnar Gestsdóttur 106
Sveit Þorleifs Þórarinssonar 105
Sveit Ármanns J. Lárussonar 100
Sveit Guðrúnar Hinriksdóttur 98
Sveit Lúðvíks Ólafssonar 98
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Sérðu ljós í
Fljótsheiðinni? Jú, það er að koma
bíll niður heiðina og beygir í norð-
ur. Það eru örugglega þau, það er
fólksvagn, bjalla. Bíllinn rennir
upp brekkuna og „út í hús“. Torfi
og Fríða eru komin með krakkana
heim í Öndólfsstaði. Við bíðum en
megum ekki fara strax og taka átt
í gleðinni sem er um það bil að
hefjast hjá afa og Gunnu. Fríða er
litla systir hans pabba og Torfi
sem er maðurinn hennar færði
með sér ferskan andblæ inn í
vanabundið hversdagslífið heima í
sveitinni. Það brakar í gömlum
stiganum þegar Torfi kemur niður
og heilsar á sinn einstaka góðlát-
lega hátt, öllum eins, börnum og
fullorðnum. Torfi er á leið í syðra
húsið með eitthvað í hendinni og
okkur grunar að það sé myglaður
ostur handa mömmu, góðgæti
sem fæst bara á Akureyri.
Torfi kom ekki bara með ost
eða eitthvað annað óvænt. Um
áramót kom hann alltaf með flug-
elda, sem voru fátíðir á okkar
heimili. Það brást heldur ekki að
Torfi mætti á hvítri nælonskyrtu
og með uppbrettar ermar þegar
aðrir voru í þykkum vetrarúlpum.
Torfi
Sigtryggsson
✝ Torfi Sig-tryggsson
fæddist á Akureyri
26. febrúar 1947.
Hann lést á Sjúkra-
húsinu á Akureyri
12. október 2011.
Útför Torfa var
gerð frá Akureyr-
arkirkju 24. októ-
ber 2011.
Svo skaut hann rakett-
unum upp úr tómri
appelsínflösku og allur
krakkaskarinn horfði
dáleiddur á því flug-
eldasýningin var svo
ótrúlega mögnuð og
henni stjórnað af því-
líkri snilld. Myndavélin
var aldrei langt undan
og höfum við stórfjöl-
skyldan fengið að njóta
þeirra einstöku verð-
mæta sem Torfi festi á filmu í ár-
anna rás.
Þegar við uxum úr grasi áttum
við margar góðar stundir með
Torfa og Fríðu. Oft voru það lang-
ar og ljúfar nætur þar sem mikið
var spjallað, rifjað upp, spekúlerað
og hlegið. Þau voru höfðingjar
heim að sækja og vildu allt fyrir
alla gera.
Torfi var oft með heimspekileg-
ar vangaveltur um lífið og til-
veruna en var um leið góður spyrj-
andi og hlustandi. Hann hafði
einstaklega gaman af því að að
vera gestgjafi og var heimsborgari
í eðli sínu. Torfi var líka mikill
framfarasinni og óhræddur við
nýjungar. Hann var fyrsti maður-
inn sem við þekktum sem eignaðist
tölvu og þá breyttist hann í yfir-
náttúrulega veru sem ýtti á takka
og spurði tölvuna einfaldra spurn-
inga, en tækið svaraði um hæl og
út úr því valt stjörnuspá allra fjöl-
skyldumeðlima.
Nú kveðjum við séntilmanninn
Torfa með söknuði og þökkum fyr-
ir allar þær góðu stundir sem við
fengum að njóta með honum.
Elsku Fríða frænka, Gunna,
Kiddi, Védís, Árni Kár og fjöl-
skyldur. Megi allir heimsins kraft-
ar styrkja ykkur á þessum erfiðu
tímum.
Öndólfsstaðakrakkar,
Arngerður, Sólveig, Sighvatur,
Þórveig, Aðalsteinn og Alma.
Það var á þingi Sambands
byggingamanna seint á sjöunda
áratugnum að leiðir okkar Torfa
Sigtryggssonar lágu fyrst saman.
Hann var í fulltrúahópi smiða frá
Akureyri en ég frá Trésmiðafélagi
Reykjavíkur. Báðir vorum við þá
nýlega smognir í gegnum nálar-
auga sveinsprófsins.
Norðlendingarnir voru gaman-
samari en við flestir og það sem
meira var: Þeir köstuðu fram vís-
um þegar þeim þótti svo við horfa.
Með okkur Torfa tókst strax ágæt-
ur kunningsskapur, en ekki grun-
aði okkur þá að innan fárra ára
lægju leiðir okkar saman innan
Trésmiðafélags Akureyrar. Til
þess að gera nýkominn til Akur-
eyrar tók ég við af honum sem for-
maður félagsins, og gerðist mæl-
ingamaður félagsins.
Hann var einstakur samstarfs-
maður, glaðlyndur, úrræðagóður
og mér, sem var nýliði á eyfirskum
slóðum, sérlega ráðhollur. Þetta
litla félag tók nú verulegan fjör-
kipp og þar var Torfi sannarlega
betri en enginn. Fjárhagurinn
batnaði og innan tíðar eignaðist fé-
lagið húsnæði við Ráðhústorg.
Torfi sá um fjármálin og fylgdist
með framkvæmdum. Engir átti
stærri hlut en hann í því að þetta
tókst, og er ég þá ekki að gera lítið
úr öðrum stjórnarmönnum.
Félagsleg starfsemi stórjókst
við það að komast í eigið húsnæði.
Meðal þess var stórátak í því að
félagsstjórnin kæmist í betra sam-
band við félagsmenn. Stofnað var
til svokallaðra hangikjötsfunda,
sem haldnir voru í hádeginu. Fé-
lagsmenn voru kallaðir saman í
samkomusal félagsins sem tók
starfsmenn þriggja fjögurra
vinnustaða í einu. Hlutur Fríðu,
konu Torfa, var ekki smár í að vel
tókst til. Hún sá um veitingarnar.
Félagið styrktist verulega við
þetta. Torfi sat fyrir svörum fé-
lagsmanna, ekki síst um lífeyris-
mál. Á þennan hátt fengu fé-
lagsmenn upplýsingar um mál
sem þeim lágu á hjarta,
Er þá komið að því sem alla tíð
vakti aðdáun mína. Torfi varð
meðal fremstu forystumanna líf-
eyriskerfisins, þótt hann stýrði
þeim dvergsjóði sem Lífeyrissjóð-
ur trésmiða á Akureyri var, og
hann hefði ekki formlega menntun
á þessu sviði. Um þetta leyti var
tölvuvæðingin að halda innreið
sína, og var í þeim hópi sem tók
ákvarðanir um innleiðingu tölvu-
vinnslu á vegum lífeyrissjóðanna.
Tíminn leiddi svo í ljós að örsmáir
lifeyrissjóðir áttu ekki framtíð fyr-
ir sér. Þá fluttu þau hjón til Vest-
mannaeyja og Torfi stýrði lífeyr-
issjóði Eyjamanna árum saman.
Þetta er það sem lýtur að
félagsmálum og er ekki lítils virði.
Hitt er þó enn meira virði að hafa
eignast hann og fjölskylduna að
vinum. Hann hafði frábært skop-
skyn og einstakt hæverskt bros.
Hlátur hans var smitandi og varð
til þess að á skrifstofunni var alltaf
ljúft andrúmsloft og samstarf
bæði ánægjulegt og árangursríkt.
Að hafa átt Torfa Sigtryggsson
að vini og samstarfsmanni er verð-
mæt lífsreynsla, sem skilur eftir
sig eyðu og trega, en um leið þakk-
læti fyrir glaðlega og gefandi
daga.
Ég sendi Fríðu, börnunum og
öllum afkomendum og vanda-
mönnum mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Helgi Guðmundsson.
Henný var stóra systir mín, hef haft hana
alla mína stuttu ævi og á eftir að sakna
hennar restina af henni. Ég á fullt af góðum
minningum sem ég mun ekki gleyma. Hún
var og mun alltaf vera æðisleg manneskja.
Hvíldu í friði elsku systir, ég mun aldrei
gleyma þér og stundunum sem við áttum
saman.
Guðdís Benný.
Þorbjörg Henný
Eiríksdóttir
✝ Þorbjörg Henný Eiríksdóttir fæddist íReykjavík 3. mars 1994. Hún lést í bíl-
slysi á Fagradal 12. október 2011.
Jarðarför Þorbjargar Hennýjar fór fram
frá Eskifjarðarkirkju 22. október 2011.
Mig langar að
segja nokkur orð um besta vin
minn, hann Þóri Halldórsson
(Tóta), ég kynntist honum fyrir
40 árum þegar hann var að
byggja hús sitt í Huldulandi 22.
Þá hittumst við og hann bauð mér
að koma og skoða hús sitt, sem ég
gerði og hjálpaði eitthvað til við
bygginguna, síðan kemur að því
að ég fer að huga að byggingu
míns húss í Mosfellsdal, en þá var
hann boðinn og búinn til aðstoð-
ar. Eftir það hjálpuðumst við að –
og aldrei féll skuggi á. Ætíð var
Þórir Ó.
Halldórsson
✝ Þórir ÓlafurHalldórsson
fæddist 1. apríl árið
1937 í Reykjavík.
Hann lést sunnu-
daginn 16. október
2011.
Útför Þóris fór
fram frá Fossvogs-
kirkju 25. október
2011.
hann mættur þó
fluttur væri í sitt
hús mér til aðstoðar
sem var mikill og
ótrúlegur léttir mér
og mínum á þeim
tíma.
Vinskapur okkar
hefur alla tíð verið
afskaplega einlægur
og aldrei borið
skugga á. Á fyrri ár-
um vorum við bíla-
dellukallar og fórum marga
Hafravatnshringina. Eftir að við
eltumst urðu bíltúrarnir styttri,
ókum gjarnan Laugaveginn og
enduðum yfirleitt hjá Sægreifan-
um þar sem okkur var jafnan vel
tekið. Ég mun sakna hans ótrú-
lega mikið.
Að endingu sendi ég fólkinu
hans Tóta mínar allra bestu sam-
úðarkveðjur og óskir og þakka
innilega allt gott. Megi hann hvíla
í friði.
Kristján Ólafsson (Stjáni).
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, "Senda inn minningargrein",
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar