Morgunblaðið - 27.10.2011, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.10.2011, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 2011 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Ú t er komin í vand- aðri útgáfu bókin Hugarró eftir Rob Nairn í þýðingu Árna Óskarssonar. Í bókinni eru kynnt grundvallarlög- mál búddatrúar og hvernig hug- leiðsla fer fram. Þá eru í bókinni æfingar í hugleiðslu og henni fylgir hljómdiskur með hugleiðslu- tónlist sem Beggi Morthens hefur samið og flytur. Vandað er til útgáfunnar í hvívetna og er bókin skreytt með málverkum eftir myndlistarmann- inn Tolla, sem er maðurinn að baki verkinu. Hann hefur sjálfur lagt stund á búddisma og hug- leiðslu um árabil. Tolli segir að eftir að hann tók að iðka búddisma hafi hann rekið sig á það að eina grunnritið sem til var á íslensku um búdd- isma hafi verið lítill bæklingur frá Námsgagnastofnun þar sem verið var að kynna trúarbrögðin á ein- faldaðan hátt. Hann kveðst hafa notið leiðsagnar Völu og Halldórs í Friðar- og hugleiðslumiðstöðinni við valið á þessari bók til útgáfu á íslensku. „Okkur vantaði bók sem fjallar um búddisma og hugtök sem þvælast fyrir mörgum, eins og karma og dharma, hér er það útskýrt,“ segir Tolli og styður fingri á bókina. Hugleiðsluhópar í fangelsum „Ég hef verið að iðka hug- leiðslu með Friðar- og hugleiðslu- miðstöðinni en hún er í sterkum tengslum við samfélag tíbetskra búddista í Skotlandi,“ segir hann. „Þar er framarlega í flokki suður- afrískur afbrotasálfræðingur, Rob Nairn, sem er höfundur þessarar bókar. Nairn hefur iðkað hug- leiðslu í áratugi. Hann sagði árið 1979 upp störfum sem prófessor við Háskólann í Höfðaborg til að sinna þessu verkefni, og sér- staklega til að þróa og kenna hug- leiðsluaðferðir. Hann er nú lektor við Háskólann í Aberdeen og hef- ur þróað aðferð sem kölluð er „mindfullness-meditation“. Það er nú þriggja ára námsgrein þar við skólann.“ Tolli kýs að kalla þetta núvitundarhugleiðslu en aðrir tala um gjörhygli. Hann segir að í bókinni sé að finna sagnfræði og heimspeki búddismans, auk þess sem hún er ítarleg handbók í hugleiðslu. „Mér fannst svo merkilegt hvernig þetta sameinast allt í þessari bók. Ég hef líka látið þýða aðra handbók í hugleiðslu en hana hef ég meðal annars notað með góðum árangri með hugleiðsluhóp- um sem ég hef unnið með í fang- elsum,“ segir hann. Tolli segist hafa unnið með góðu fólki í 12- spora kerfinu í fangelsum og síðar með hugleiðslu á Litla-Hrauni í ein þrjú ár og svo líka núna í fang- elsinu á Bitru. „Þessi hugleiðsla virkar, klár- lega,“ segir hann sannfærandi. Máttur fyrirgefningarinnar Tolli hefur líka haldið fyrir- lestra fyrir hópa innan fyrirtækja. „Þá styðst ég við núvitundarhug- leiðslu sem ákveðna lausn, en fyr- irlestrarnir hafa fjallað um mátt fyrirgefningarinnar og kærleikans, og réttinn til hamingju sem grund- vallast á því að þú tekur ábyrgð á eigin lífi og þá þarftu einhvern áttavita, eitthvert kort að styðjast við. Þar hefur búddisminn ým- islegt til málanna að leggja.“ – Nú er oft spurt hvort búdd- ismi sé aðferð til að lifa lífinu eða trúarbrögð. Hvað er búddisminn? „Ég held að bókin veiti mikið til svar við þessu,“ svarar Tolli. Vettvangur til að finna hamingju „Þessi hugleiðsla virkar, klárlega,“ segir myndlistarmaðurinn Tolli en hann hefur um árabil lagt stund á hugleiðslu og búddisma. Hann hefur einnig kynnt hug- leiðsluaðferðir í fyrirlestrum og unnið með föngum í hugleiðsluhópum. Tolli hefur nú gefið út þýðingu á bók um búddísk fræði og hugleiðslu, sem prýdd er mál- verkum hans sjálfs og fylgir henni diskur með hugleiðslutónlist. Morgunblaðið/Ómar Málaður Búdda „Sumar myndanna styðjast við gamlar tíbetskar helgi- myndir en eru þó í raun bara expressjónískt malerí,“ segir Tolli. Á síðu Emily Post eru útlistaðar siða- reglur sem kurteisu og siðsömu fólki ber að fara eftir. Reglurnar eru fjöl- margar og er þeim skipt í nokkra flokka, t.d. félagslíf, brúðkaup, tækni, fjölskyldur og daglegt líf. T.a.m. er fjallað um hvernig eigi að kynna fólk, halda veislu, skipta gjöf sem maður er óánægður með, búa sig undir atvinnuviðtal, binda enda á Facebook-vináttu, gefa þjórfé og svo má lengi telja. Sagt er frá því hvernig eigi að leggja rétt á borð, hvernig best sé að vekja athygli nágrannans á vandamáli sem má rekja til hans, hvenær sé við hæfi að klappa á tón- leikum og hvernig eigi að bregðast við þegar einhver ryðst fram fyrir mann í röð svo fátt eitt sé nefnt. Þeir allra áhugasömustu geta svo keypt bækur Emily Post þar sem fjallað er um breytta siði og venjur á 21. öldinni. Vefsíðan www.emilypost.com Morgunblaðið/Golli Flott Emily Post leggur línurnar um hvernig skuli leggja á borð í matarboði. Leiðarvísir um hvernig skal haga sér í ýmsum aðstæðum Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Fjarðarkaup Gildir 27.-29. okt. verð nú áður mælie. verð Nauta T bone úr kjötborði ........... 2.798 3.498 2.798 kr. kg Lambaprime úr kjötborði ............ 2.598 3.197 2.598 kr. kg Lambasvið frá Fjallalambi ........... 248 449 248 kr. kg Súpukjöt frosið .......................... 598 698 598 kr. kg Cheerios, 992 g ........................ 798 998 804 kr. kg FK ís vanilla/súkkulaði, 2 ltr ....... 298 488 149 kr. ltr Ostur sveitabiti 17% .................. 998 1.298 998 kr. kg Meðalstór egg, 10 í pk. .............. 298 368 298 kr. pk. bakarahveiti, 2 kg...................... 98 198 48 kr. kg sykur ........................................ 129 189 129 kr. kg Hagkaup Gildir 27.-30. okt. verð nú áður mælie. verð Holta leggir ferskir í magnp. ........ 629 898 629 kr. kg Holta úrb. skinnl. bringur magnp. 2.283 2.854 2.283 kr. kg Nautaats hakk........................... 1.119 1.598 1.119 kr. kg Nautaats gúllas ......................... 1.749 2.498 1.749 kr. kg Nautaats snitsel ........................ 1.749 2.498 1.749 kr. kg Nautaats piparsteik ................... 2.099 2.998 2.099 kr. kg Myllu kornbrauð......................... 259 399 259 kr. stk. Myllu baguettebrauð, 400 g ....... 199 279 199 kr. stk. Krónan Gildir 27.-30. okt. verð nú áður mælie. verð Folaldasnitsel............................ 1.798 1.998 1.798 kr. kg Folaldagúllas ............................ 1.798 1.998 1.798 kr. kg Folaldainnralæri ........................ 2.598 2.898 2.598 kr. kg Folaldapiparsteik....................... 2.598 2.898 2.598 kr. kg Folaldafilet................................ 3.498 3.898 3.498 kr. kg Folaldalundir............................. 3.598 3.998 3.598 kr. kg Folaldahakk .............................. 538 598 538 kr. kg Sóma pítsa, 2 teg. ..................... 498 595 498 kr. stk. ÍM kjúklingavængir..................... 299 398 299 kr. kg ÍM kjúklingaleggir ...................... 698 899 698 kr. kg Nóatún Gildir 27.-30. okt. verð nú áður mælie. verð Lambaprime ............................. 2.998 3.498 2.998 kr. kg Grísasteik að hætti Dana............ 1.399 1.998 1.399 kr. kg Húsavíkur hangilæri, 1/1 ........... 2.248 2.498 2.248 kr. kg Ungnautahamborgari, 120 g ...... 249 289 249 kr. stk. Ýsuflök roðlaus beinlaus............. 1.398 1.652 1.398 kr. kg ÍM kjúklingur ferskur ................... 758 948 758 kr. kg Kjörís vanilluís ........................... 498 638 498 kr. stk. Meistara möndlukaka ................ 499 675 499 kr. stk. Þín verslun Gildir 27.-30. okt. verð nú áður mælie. verð Svínahnakki úrb. úr kjötborði ...... 1349 1.854 1.349 kr. kg Svínakótilettur úr kjötborði.......... 1.349 1.854 1.349 kr. kg Svínalundir úr kjötborði .............. 1.998 2.598 1.998 kr. kg Kjúklingalæri/leggir frá Ísfugli ..... 879 1.099 879 kr. kg Sprite Zero, 2 ltr ........................ 259 310 130 kr. ltr Weetos heilhveitihringir 375 g..... 599 649 1.598 kr. kg Burtons Toffypops kex, 120 g...... 149 229 1.242 kr. kg Hatting pítubrauð, frosin, 6 stk.... 289 379 49 kr. stk. Patak’s sósur, 500 g .................. 389 485 778 kr. kg Chicago T. pepper. pítsa, 340 g... 649 845 1.909 kr. kg Helgartilboðin Morgunblaðið/Eggert Glæsiverk til sölu Ármúla 36 • 108 Reykjavík • Sími 568 3890 SMIÐJAN Listhús - Innrömmun Opið alla virka daga frá kl. 10-18. Vegna mikillar eftirspurnar leitum við að verkum eftir gömlu meistarana. StórvalSvavar Guðnason Kjarval Ásgrímur Jónsson Í tilefni af 20 ára afmælis Smiðjunnar Listhús bjóðum við 20% afslátt af innrömmun út nóvember Einnig verk eftir Tolla Jón Engilberts Sigurbjörn Jónsson Þorvald Skúlason Guðbjörgu Lind Pétur Gaut Jóhannes Geir Valgarð Gunnarsson Gunnlaug Blöndal Þiðrik Hansson Hafstein Austmann Hörð Ágústsson M b l1 30 72 43

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.