Morgunblaðið - 27.10.2011, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 2011
EXECUTIVE
MBA
INFORMATION MEETING
Tuesday November 1st at 17.00 - 18.00 at the Hotel Hilton
Reykjavik Nordica, Surlandsbraut 2, Reykjavik.
• Executive MBA
• Executive MBA in Shipping, Offshore and Finance
• Executive MBA in Energy
• Executive Master of Management in Energy
All programmes are part-time and in English. Registration: www.bi.no/mba
EFMD
FRÉTTASKÝRING
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Leiðtogi íslamska flokksins Ennahda
í Túnis lofaði í gær að mynda meiri-
hlutastjórn innan mánaðar eftir að
yfirvöld birtu kjörtölur sem bentu til
þess að hann hefði sigrað í fyrstu
þingkosningum í landinu eftir upp-
reisn sem hófst í janúar og varð til
þess að einræðisherra landsins
hrökklaðist frá völdum.
Uppreisnin í Túnis var upphafið að
arabíska vorinu svonefnda og þetta
eru fyrstu þingkosningarnar sem
uppreisnaraldan í Norður-Afríku og
Mið-Austurlöndum hefur getið af
sér. Þótt Túnis sé að mörgu leyti sér
á parti geta kosningarnar þar gefið
vísbendingar um framvinduna í þess-
um heimshluta, einkum um styrk ísl-
amskra hreyfinga.
Talning atkvæðanna tekur langan
tíma en fyrstu kjörtölur benda til
þess að íslamski flokkurinn Ennahda
hafi fengið meira en 40% þingsæt-
anna. Ólíklegt þykir þó að flokkurinn
fái meirihluta á þinginu vegna kosn-
ingareglna sem ætlað er að hindra að
einn flokkur geti haft bæði tögl og
hagldir á þinginu.
Nýja þingið á að semja nýja
stjórnarskrá og skipa ríkisstjórn,
auk þess sem það fer með löggjafar-
valdið. Leiðtogar Ennahda segjast
vilja vinna með öllum flokkum á
þinginu til að semja stjórnarskrá sem
verði öðrum löndum í Norður-Afríku
og Mið-Austurlöndum góð fyrir-
mynd.
Boðar ekki sjaríalög
Stefnuskrá Ennahda ber merki
þess að samfélagið í Túnis er verald-
legra en í mörgum öðrum löndum í
þessum heimshluta. Í kosn-
ingastefnuskrá flokksins er ekkert
minnst á sjaríalög þótt leiðtogi
flokksins, Rached Ghannouchi, hafi
talað fyrir umbótum á samfélaginu á
grundvelli sjaríalaga á áttunda ára-
tug aldarinnar sem leið. Hófsamleg
stefna Ghannouchi hefur orðið til
þess að honum hefur verið bannað að
ferðast til Írans og Sádi-Arabíu, að
því er fram kemur í grein í The New
York Times.
Í stefnuskránni boðar flokkurinn
„hófsamt íslam“ og lofar að virða
réttindi og frelsi annarra trúflokka
og minnihlutahópa.
Flokkurinn kveðst vilja tryggja að
konur hafi sama rétt og karlar til at-
vinnu og menntunar og leggst gegn
því að konur séu þvingaðar til að vera
með slæður.
Flokkurinn hefur lofað að berjast
gegn spillingu í stjórnkerfinu og
kveðst vilja að stjórnarskráin tryggi
lýðræðislegar kosningar til þings
sem kjósi forseta landsins til fimm
ára. Sami maðurinn geti aðeins gegnt
forsetaembættinu í tvö kjörtímabil,
eða í tíu ár.
Ennahda hefur lofað félagslegu
húsnæði, umbótum til að tryggja öll-
um aðgang að heilsugæslu, aukinni
félagslegri aðstoð og hærri lág-
markslaunum. Flokkurinn hefur
einnig heitið því að virða alþjóðlega
sáttmála og sækjast eftir nánari
tengslum við Evrópusambandið.
Um 19% vinnufærra landsmanna
eru án atvinnu og Ennahda stefnir að
því að minnka atvinnuleysið í 8,5%
ekki síðar en árið 2016. Hann hefur
lofað 590.000 nýjum störfum.
Flokkurinn kveðst stefna að 8%
hagvexti á ári, meðal annars með því
að efla ferðaþjónustuna.
Segja samstarf nauðsynlegt
Fréttaveitan AFP hefur eftir sér-
fræðingum í málefnum Túnis að leið-
togar Ennahda eigi einskis annars
úrkosti en að vinna með öðrum flokk-
um á þinginu. Til að standa við loforð
sín í efnahagsmálum þurfi íslamski
flokkurinn einnig að forðast hvers
konar aðgerðir sem geti fælt frá er-
lenda fjárfesta og ferðamenn.
Fréttaskýrendurnir segja að
einnig sé hugsanlegt að vinstri-
flokkar reyni að mynda meiri-
hlutastjórn til að hindra að En-
nahda komist til valda. Tveir
vinstriflokkar og
flokkur, sem teng-
ist einræðisherr-
anum fyrrverandi,
eru helstu keppi-
nautar Ennahda,
samkvæmt fyrstu
kjörtölum.
Íslamskur flokkur með hóf-
sama stefnu sigraði í Túnis
Reuters
Sigur Stuðningsmenn íslamska flokksins Ennahda fögnuðu fyrir utan höfuðstöðvar hans í Túnisborg í fyrrakvöld.
Boðar lýðræði, trúfrelsi og stjórnarskrá sem verði arabaríkjum til eftirbreytni
„Sigur Ennahda verður ekki til þess að stjórnarskráin byggist að miklu
leyti á íslam,“ hefur blaðamaður Los Angeles Times í Túnis eftir
lagaprófessornum Nidhal Makki. „Leiðtogar flokksins vilja borgaralegt
ríki, ekki íslamskt. En sigur Ennahda hefur örugglega áhrif á arabaheim-
inn. Hann verður til þess að ráðamenn nokkurra landa í heimshlutanum
grípa nú til þess ráðs að herða tök sín á löndunum til að koma í veg fyr-
ir að íslamistar verði of valdamiklir eins og í Túnis og Egyptalandi.“
Þótt Ennahda boði hófsama stefnu hefur sigur hans í Túnis valdið
mörgum andstæðingum íslamskra flokka í Egyptalandi miklum áhyggj-
um. Íslömsku flokkarnir telja einnig að niðurstaðan í Túnis sé vísbend-
ing um það sem koma skal í Egyptalandi. Þeir segja að sigur íslamsks
flokks í Túnis, sem er tiltölulega frjálslynt land í trúmálum, sýni hversu
mikið aðdráttarafl íslam hafi í arabaheiminum.
„Það sem gerðist í Túnis er merki um að flokkar með íslamskan bak-
grunn eða íslamska hugmyndafræði nái miklum árangri í kosningunum í
Egyptalandi,“ hefur The Wall Street Journal eftir talsmanni eins af ísl-
ömsku flokkunum.
Aðrir benda þó á að stefna Ennahda er hófsamari en annarra ísl-
amskra flokka í þessum heimshluta. Bræðralag múslíma, sem fer
fyrir stærsta pólitíska bandalaginu í Egyptalandi, hefur barist fyr-
ir því að stjórnarskrá landsins byggist á sjaríalögum, ólíkt Enn-
ahda.
„Ennahda getur starfað í frjálslyndri ríkisstjórn. Bræðralag
múslíma getur það ekki,“ hefur The Wall Street Journal eftir
Emad Gad, kristnum Egypta sem er í fram-
boði fyrir flokk jafnaðarmanna.
Bræðralag múslíma hefur þó myndað
kosningabandalag með nokkrum flokk-
um, sem aðhyllast veraldlegt stjórnkerfi,
og hefur léð máls á samstarfi við aðra
flokka á þinginu eftir kosningar sem
hefjast í næsta mánuði.
Segja sigurinn sýna aðdráttar-
afl íslam í arabaheiminum
ENNAHDA MEÐ HÓFSAMARI STEFNU EN BRÆÐRALAG MÚSLÍMA
Rached
Ghannouchi
Muammar Gadd-
afi, fyrrverandi
einræðisherra
Líbíu, var auð-
ugasti maður
heims, að sögn
bandaríska dag-
blaðsins Los
Angeles Times.
Blaðið segir að
Gaddafi hafi ver-
ið um það bil þrisvar sinnum auð-
ugri en Carlos Slim, kaupsýslumað-
ur í Mexíkó sem var efstur á lista
tímaritsins Forbes í vor yfir auð-
ugustu menn veraldar. Los Angeles
Times segir að auður Gaddafis og
sjóðir, sem hann réð yfir, hafi num-
ið jafnvirði alls 23.000 milljarða
króna.
Gaddafi sagður hafa
verið langauðugasti
maður heimsins
Muammar Gaddafi
LÍBÍA
Fyrsta áætlunar-
ferð Dreamliner,
nýrrar tegundar
Boeing-þotu, var
farin í gær frá
Tókýó til Hong
Kong á vegum
japanska flug-
félagsins All
Nippon Airways.
Fyrsta Dream-
liner-þotan var
tekin í notkun þremur árum á eftir
áætlun vegna vandamála hjá Bo-
eing. Hún er einkum smíðuð úr létt-
málmum, eyðir 20% minna elds-
neyti og getur flogið lengri
flugleiðir án millilendingar en sam-
bærilegar vélar.
Fyrsta áætlunarferð
Dreamliner-þotu
Farþegar í fyrstu
ferðinni.
JAPAN
Norðursambandið á Ítalíu, flokkur
Umberto Bossi, neitaði í gær frétt
um að Bossi hefði samið við Silvio
Berlusconi forsætisráðherra um að
hann segði af sér. Dagblöðin La Re-
pubblica og La Stampa sögðu að
Bossi og Berlusconi hefðu gert
leynilegan samning um að forsætis-
ráðherrann segði af sér í desember
eða janúar og efnt yrði til þing-
kosninga í mars, gegn því að
Norðursambandið samþykkti
breytingar á lífeyriskerfinu.
Slagsmál brutust út á ítalska
þinginu í gær þegar minnst tveir
þingmenn Norðursambandsins réð-
ust á stjórnarandstæðing.
Heit umræða Mikil spenna er á ítalska
þinginu vegna efnahagsvandans.
Neita frétt um að
Berlusconi fari frá
Reuters
ÍTALÍA
Lögreglan á Sikiley hefur sent
konu tilkynningu um að henni beri
að greiða stöðumælasekt að and-
virði 32.000 evra, eða rúmra fimm
milljóna króna. Þegar konan kvart-
aði yfir reikningnum kom í ljós að
lögreglan hafði reiknað 2.000 ára
vexti á sektina fyrir mistök, þ.e.
reiknað vexti frá árinu 208 í stað
2008. „Þegar konan opnaði um-
slagið og sá stöðumælasektina féll
hún í öngvit og var flutt á sjúkra-
hús,“ sagði dagblaðið Repubblica.
Fékk sekt með vöxt-
um frá árinu 208
ÍTALÍA