Morgunblaðið - 27.10.2011, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 2 7. O K T Ó B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 252. tölublað 99. árgangur
SÍGILDIR
SÖNGVAR
THE SUPREMES
LÍFEYRIS-
SPARNAÐUR
OG TRÖLL
TOLLI IÐKAR
BÚDDISMA OG
HUGLEIÐSLU
VIÐSKIPTABLAÐ OG
FINNUR.IS BÓKIN HUGARRÓ 10FRUMSÝNING Á MORGUN 37
Tvær konur búsettar á Íslandi af erlendu bergi brotnar
hafa verið úrskurðaðar í gæsluvarðhald til 2. nóvember
grunaðar um stórfelldan þjófnað úr verslunum á höfuð-
borgarsvæðinu. Við húsleitir fann lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu mikið magn af fatnaði sem talinn er
vera þýfi. Er verðmætið talið á annan tug milljóna.
Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka
verslunar og þjónustu, segir að allt að sex milljarðar
króna tapist á hverju ári vegna þjófnaðar úr verslunum
á Íslandi. Í 80-90 prósentum tilvika þar sem miklum
verðmætum sé stolið sé um að ræða brotafólk af er-
lendum uppruna.
Gagnrýnir hann hvernig tekið er á þessum málum og
bendir á að aðeins sé ákært í um tuttugu prósentum til-
fella. „Við erum alltaf að heyra af niðurfellingu á mál-
um þar sem fjárhagslegir hagsmunir eru verulegir og
tjónið er jafnvel á þriðju milljón króna. Það er fjandi
blóðugt ef svo er.“ »4
Morgunblaðið/Júlíus
Sex milljarðar tapast
á hverju ári vegna þjófnaða
Þýfi Lögreglumenn á svæðisstöð lögreglunnar í Kópavogi með mikið af fatnaði sem fannst við húsleitir.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Martin Wolf, aðalhagfræðingur Fin-
ancial Times í Bretlandi, segist ekki
sjá neitt að því að Íslendingar haldi
fast í krónuna, ,,minnsta gjaldmiðil í
heimi“. Hún hafi
reynst þeim
ágætlega. „Ég er
hrifinn af sjálf-
stæðum gjald-
miðlum, vil að
þeir séu til og
geti lagað sig að
aðstæðum. Ég
held að allir sem
tóku upp evruna
hafi í reynd verið
að taka upp gjaldmiðil Þýskalands.“
Wolf sagði á fundi hjá VÍB, fjár-
festingaþjónustu Íslandsbanka, í
gærkvöldi að Íslendingar ættu ekki
að ganga í Evrópusambandið, þeir
myndu ekki hafa nein áhrif þar.
Hann sagði einnig að menn mættu
ekki gleyma því að ef þeir tækju upp
annan gjaldeyri yrðu þeir að hlíta
því að gengið sveiflaðist ekki endi-
lega eins og þeim hentaði. Sam-
félagið yrði að hafa geysimikinn
sveigjanleika til að bera, þegar
kreppti að heima fyrir af ein-
hverjum ástæðum gæti eina lausnin
verið að lækka launin.
Wolf sagðist leggja til, bæði hér
og í Bretlandi, að skilið yrði á milli
hefðbundinnar lánaþjónustu banka
og fjárfestingastarfsemi. Miklu
skipti að auðlindir þjóða væru nýtt-
ar þannig að þjóðin hagnaðist á
þeim. Tryggja yrði að áhættu og
hagnaði yrði deilt með viðunandi
hætti. Oft væri misbrestur á því. »6
Sjálfsagt að
halda fast
í krónuna
Segir Ísland ekkert
erindi eiga í ESB
Martin Wolf
Samþykkt var á leiðtogafundi Evr-
ópusambandsins í gær að stækka
björgunarsjóð ESB úr 440 millj-
örðum evra í yfir eina billjón evra.
Gert er ráð fyrir að bankar á evru-
svæðinu fái átta mánuði til að safna
106 milljörðum vegna taps sem þeir
kunna að verða fyrir.
Takist bönkunum ekki sjálfum að
auka eigið fé sitt fá ríkissjóðir ein-
stakra landa heimild til að leggja
þeim lið. Ef þeir hafa ekki bolmagn
til þess verða fjármunir úr björgun-
arsjóði evrunnar nýttir til þess.
Ekki liggur endanlega fyrir hvað-
an fjármunir í björgunarsjóðinn eiga
að koma og fleira er óljóst. Á fund-
inum var rætt um að sjóðurinn gæti
veitt bönkum sem ætla að lána Ítalíu
og Spáni tryggingu. Upphaflega var
fyrirhugað að afskrifa 21% af skuld-
um Grikklands en nú er rætt um 50-
60% afskriftir.
Stjórnvöld á Ítalíu hafa kynnt nið-
urskurðartillögur sem m.a. fela í sér
að lífeyrisaldur hækki í 67 ár. Búist
er við að hörð pólitísk átök verði um
tillögurnar.
MSkuldsett lausn »Viðskipti
Margfalt
stærri
sjóður
Reuters
Fundur Angela Merkel og
Christine Lagarde ræðast við.
Sjóðurinn veiti Ítalíu
og Spáni tryggingu
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Landhelgisgæslan stendur frammi
fyrir miklu vandamáli um áramót
þegar önnur þyrlan, TF LÍF, fer í
endurbyggingu og verður því ónot-
hæf í að minnsta kosti þrjá mánuði.
Gert er ráð fyrir að það kosti um 100
til 150 milljónir króna að leigja sam-
bærilega þyrlu í þrjá mánuði en slík-
ar upphæðir eru hvorki á lausu né
þyrlur til leigu í svo skamman tíma.
Ekkert í sjónmáli
Georg Kr. Lárusson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, segir að þyrl-
ur Gæslunnar séu mjög góðar en
ekki sé hægt að treysta því að þær
séu alltaf í lagi. Þegar aðeins ein
þyrla sé til staðar sé ekki flogið
meira en 20 mílur frá ströndu. Eins
og staðan sé nú blasi mikið vandamál
við um áramót, en verið sé að reyna
að leysa málið. „En það er ekkert í
sjónmáli,“ segir hann og vísar til
þess að þó að stjórnvöld hafi sýnt
málinu skilning séu ekki til peningar.
Í öðru lagi sé ekki hægt að kaupa
þyrlu með svona skömmum fyrir-
vara og leigumarkaðurinn sé mjög
þröngur. Mjög erfitt sé að leigja
þyrlu í þrjá mánuði vegna þess að
eigendur vilji leigja þessi dýru tæki
til lengri tíma og séu almennt búnir
að því. Takist að finna vél sé leigan
ekki undir 100 til 150 milljónum. Því
sé ljóst að margt þurfi að breytast
fljótt til að koma í veg fyrir stórt
vandamál sem annars blasi við.
Ískaldur veruleiki
Ekkert íslenskt varðskip hefur
verið á hafinu umhverfis landið síðan
í vor, en Gæslan hefur gert út sjó-
mælingabátinn Baldur eftir föngum.
Georg segir að auk þess hafi
áherslum í flugi verið breytt. Allt æf-
ingaflug á þyrlum sé úti á sjó til eft-
irlits með landhelginni en ekkert
skip hafi verið til að bregðast við því
sem þyrlur hafi ekki getað brugðist
við. Svona sé ískaldur veruleikinn en
Gæslan hafi tekið á honum með því
að breyta verklagi og hafa betra eft-
irlit og yfirsýn með öðrum hætti. Ný
tækni í fjareftirlitsbúnaði hafi verið
nýtt auk þess sem rekstur á radar-
kerfum og upplýsingakerfum á
Keflavíkurflugvelli sem tengjast
Nato hafi opnað nýja möguleika við
eftirlit. „Þetta hefur blessast og er á
meðan er,“ segir hann.
Vantar þyrlu um áramót
TF LÍF verður í endurbyggingu erlendis í að minnsta kosti þrjá mánuði
Erfitt að leigja þyrlu í svo skamman tíma og peningar ekki á lausu
Morgunblaðið/RAX
Aðstoð Aðeins ein þyrla verður til
taks hérlendis í a.m.k. þrjá mánuði.
–– Meira fyrir lesendur
FYLGIR MEÐ
MORGUNBLAÐINU
Í DAG