Morgunblaðið - 27.10.2011, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.10.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 2011 Búin var til sérstök Bankasýslatil að fara með eigenda- tengsl ríkisins við bankana þrjá sem urðu til haust- ið 2008. Lands- bankinn var einn í ríkiseigu en hina tvo afhentu Jó- hanna og Stein- grímur J. vogunar- sjóðum og kröfuhöfum án samráðs við nokk- urn mann. Hafa hinir ógeðfelldu hákarlar efnahagslífsins þegar haft töluvert upp úr krafsinu.    Forstjóri Bankasýslunnar sagðistarfi sínu lausu og varð ekki annað lesið úr ummælum hans en að skort hefði á heilbrigt rekstrarumhverfi.    Stjórn Bankasýslunnar auglýstiþví eftir nýjum forstjóra og láðist að geta þess í auglýsingu að sá skyldi ekki vera síðri sam- fylkingarmaður en Óðinn á fréttastofunni og Gylfi hjá ASÍ. Þetta gat því aldrei endað vel.    Stjórnvöld landsins gerðu hrópað Bankasýslunni. Sú hafði vaðið í þeirri villu að mannaráðn- ing hennar skyldi vera fagleg. Stjórnin hrökklaðist burtu með uppsagnarbréfi.    Steingrímur J. kom í viðtal oghrósaði sjálfum sér fyrir hvernig hann hefði haldið á mál- inu. En hann sagðist auðvitað mundu virða ákvörðun stjórnar- innar. Það var dálítið skrítið, því bankasýslumennirnir voru ein- mitt að segja af sér vegna þess að ákvarðanir þeirra höfðu ekki verið virtar.    En Steingrímur meinti auðvit-að að hann myndi virða ákvarðanir stjórnarinnar – fyrir sér. Steingrímur J. Sigfússon Virðing Steingríms STAKSTEINAR Veður víða um heim 26.10., kl. 18.00 Reykjavík 6 skýjað Bolungarvík 6 skýjað Akureyri 6 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 8 alskýjað Vestmannaeyjar 6 alskýjað Nuuk -6 heiðskírt Þórshöfn 9 skúrir Ósló 6 súld Kaupmannahöfn 10 skúrir Stokkhólmur 7 léttskýjað Helsinki 7 skýjað Lúxemborg 11 léttskýjað Brussel 12 léttskýjað Dublin 11 léttskýjað Glasgow 8 léttskýjað London 12 léttskýjað París 13 skýjað Amsterdam 12 léttskýjað Hamborg 11 léttskýjað Berlín 12 skúrir Vín 9 skúrir Moskva 5 alskýjað Algarve 22 skýjað Madríd 15 léttskýjað Barcelona 20 léttskýjað Mallorca 21 léttskýjað Róm 18 léttskýjað Aþena 16 skýjað Winnipeg 3 skýjað Montreal 7 léttskýjað New York 13 léttskýjað Chicago 10 alskýjað Orlando 26 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 27. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:55 17:30 ÍSAFJÖRÐUR 9:10 17:24 SIGLUFJÖRÐUR 8:54 17:07 DJÚPIVOGUR 8:27 16:56 Álagningu opinberra gjalda er lokið á lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla, og 4. mgr. 71. gr. af fjármagnstekjum, og aðra þá sem lagt skal á vegna tekjuársins 2010 skv. VIII.-XIV. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra á www.rsk.is og www. skattur.is. Álagningarskrár, sem sýna álagða skatta á lögaðila í viðkomandi sveitarfélagi, liggja frammi á skattstofum eða sérstaklega auglýstum stöðum dagana 27. október til 10. nóvember að báðum dögum meðtöldum. Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur mánudaginn 28. nóvember 2011. Auglýsing þessi er birt, sbr. 98. gr. framgreindra laga. 27. október 2011 Auglýsing um álagningu opinberra gjalda á lögaðila árið 2011 Innanríkisráð- herra hefur birt frumvarp til um- sagnar um að hækka vitagjald um 5% þannig að það verði 136,62 krónur af hverju brúttótonni skips. Það myndi hækka um 6,50 krónur við breyt- inguna. Í frumvarpinu kemur fram að verði gjaldið hækkað um 5% megi áætla að greiða þurfi 33,7 milljónir af íslenskum skipum árið 2012 en alls verði innheimtar 270,6 millj- ónir í vitagjald, miðað við óbreytta skipaumferð og stærð skipaflota. Vitagjaldinu er ætlað að standa straum af kostnaði við rekstur og framkvæmdir á vegum Siglinga- stofnunar Íslands og skal greitt vitagjald af skipum sem sigla við Íslandsstrendur og hafa hér við- komu. Á vef innanríkisráðuneytisins kemur fram að fjárhæð vitagjalds var síðast breytt 18. desember 2010. Einnig er lagt til í frumvarp- inu lágmarksgjald verði hækkað um 5%, þ.e. í 5.145 krónur úr 4.900 kr. Þessi hækkun er sögð vera í samræmi við verðlagsbreytingar frá síðustu hækkun gjaldsins. Hækka á vitagjald um 5 prósent Skjólstæðingar Fjölskylduhjálpar Íslands fengu ókeypis hár- snyrtingu í gær. Félagarnir Gunnlaugur Hreiðar Hauksson og Hörður Freyr Harðar munduðu klippurnar. Þeir eru nemar á síðustu önn á hársnyrtibraut Tækniskólans og gáfu vinnu sína. Þetta var verkefni sem þeir unnu fyrir skólann. Að auki fékk fólk hársnyrtivörur að gjöf frá nokkrum fyrirtækjum. Hár- snyrting verður í boði alla miðvikudaga fram að jólum frá kl. 9- 17 í Eskihlíð í Reykjavík. Þá vill Fjölskylduhjálpin komast í samband við hár- greiðslufólk á Suðurnesjum sem eru tilbúið að gefa vinnu sína. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Fengu ókeypis hársnyrtingu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.