Morgunblaðið - 27.10.2011, Blaðsíða 14
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Fátt er mikilvægara í lífinu en gæta
þess að nútíminn sé viðunandi og huga
verður að framtíðinni. En alls ekki má
gleyma að hlúa endrum og sinnum að
fortíðinni.
Um síðustu helgi var í Hofi boðið
upp á hollt og skemmtilegt afturhvarf;
Óðurinn til Ingimars Eydal, tónlistar-
manns, kennara, framsóknarmanns
og Skódaeiganda var framúrskarandi
skemmtun. Tilefnið var að 75 ár voru
liðin frá fæðingu Ingimars en hann
lést langt um aldur fram, aðeins 56 ára
gamall.
Gunnar Gunnarsson, organisti í
Laugarneskirkju og óformlegur læri-
sveinn Ingimars á sínum tíma, var
„Ingimars ígildið“ eins og kynnirinn
Margrét Blöndal orðaði það og Sig-
urður Flosason „lék“ Finn heitinn Ey-
dal, bróður Ingimars.
Söngvararnir Stefán Hilmarsson
og Guðrún Gunnarsdóttir sungu lista-
vel ýmis lög, eins og þeirra var von og
vísa, og þá ekki síður heiðursgestirnir,
Helena Eyjólfsdóttir og Þorvaldur
Halldórsson, sem bæði gerðu garðinn
frægan með Hljómsveit Ingimars Ey-
dal. Helena flutti t.d. Á skíðum
skemmti ég mér og Þorvaldur Á sjó –
nema hvað.
Karl Olgeirsson var tónlistar- og
hljómsveitarstjóri og með honum
léku, auk Gunnars og Sigurðar, Jón
Rafnsson, Hannes Friðbjörnsson og
Jón Elvar Hafsteinsson. Mæðginin
Inga Dagný Eydal, dóttir Ingimars,
og sonur hennar, Ingimar Björn Dav-
íðsson sungu bakraddir og reyndar
eitt djasslag saman.
Ingimar heitinn var svo sjálfur yfir
og allt um kring ef svo má segja. Mar-
grét rifjaði upp af honum skemmti-
legar sögur og á stóru tjaldi á sviðinu
voru birtir viðtalsbútar við hann úr
sjónvarpsþáttum, og bútar úr við-
tölum við fólk sem talaði um Ingimar.
Ekki fór á milli mála að viðstaddir
höfðu einstaklega gaman af því sem
var í boði. Fullt hús var á fyrstu tón-
leikunum af þrennum, þegar ofanrit-
aður var á staðnum; fólk dillaði sér í
sætunum og söng með gömlu lög-
unum sem Ingimar og hans fólk
trylltu lýðinn með á sínum tíma.
Margir sáu örugglega fyrir sér
gamla, langa stigann úr anddyri Sjall-
ans upp á aðalhæðina. Sumir kannski
hlaðna vegginn flotta við einn bar-
inn …
Inga Dagný og Margrét Blöndal
eiga þakkir skilið fyrir framtakið.
Væri ekki hægt að heiðra minningu
þeirra bræðra beggja með árlegri
samkomu, t.d. djasshátið? Hvernig
hljómar Eydal 2012?
Frumsýning verður annað kvöld
á sjóntónleikum LA og Hunds í óskil-
um í Samkomuhúsinu. Ber sam-
koman heitið Íslenski fjárhundurinn
– saga þjóðar. Þar fara þeir Eiríkur
G. Stephensen og Hjörleifur Hjartar-
son í gegnum Íslandssöguna á hunda-
vaði í tali og tónum.
Eiríkur og Hjörleifur eru höf-
undar verksins en leikstjóri og
dramatúrg sýningarinnar Benedikt
Erlingsson. Í tilkynningu segir að
Hundur í óskilum hafi spilað „á fjöl-
mörgum árshátíðum banka og fjár-
málastofnana og lagt þannig sitt af
mörkum til íslenska bankahrunsins.“
Óhætt er að hlakka til …
Sjötta hljómplata Hjálma, Órar,
er væntanleg. Fyrstu útgáfutónleikar
Hjálma af því tilefni verða á Græna
hattinum annað kvöld og aðrir á laug-
ardagskvöldið.
Hvernig hljómar Eydal 2012?
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Á Skódanum Hópurinn sem kom fram á tónleikunum, ásamt Ástu Sigurð-
ardóttur, ekkju Ingimars. Hljómsveitarstjórinn Karl Olgeirsson fyrir miðju.
Eydal Ingimar heitinn og Ásta kona
hans Sigurðardóttir á tjaldinu, Inga
Dagný og Ingimar Davíð á sviðinu.
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 2011
PIPA
R\TBW
A
•
SÍA
•
112938
Global Economic Challenges
and Fostering Future Prosperity
Dr. Nemat Shafik aðstoðarframkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,
flytur erindi í röð hátíðarfyrirlestra rektors á aldarafmæli skólans:
Fyrirlesturinn fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu
föstudaginn 28. október nk. kl. 12.00.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Nú þegar svartasta skammdegið
fer að skella á vill lögreglan minna
á mikilvægi endurskinsmerkja fyr-
ir gangandi vegfarendur í umferð-
inni. Foreldrar eru hvattir til að
setja endurskinsmerki á fatnað
barna sinna sem oftar en ekki eru
dökkklædd á ferð. Þá sé ekki síður
mikilvægt að fullorðnir noti þennan
einfalda öryggisbúnað sér einnig til
verndar. Hlauparar og hjólreiða-
menn eru líka minntir á mikilvægi
endurskinsmerkja.
Minnt á merkin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sunnudaginn 26. október 1986 fór
fram hátíðleg vígsluathöfn í Hall-
grímskirkju. Þáverandi biskup Ís-
lands, Pétur Sigurgeirsson, vígði
kirkjuna með þátttöku margra
presta og leikmanna.
Á þessu hausti eru 25 ár liðin frá
vígslunni og verður þess minnst
með tveimur hátíðarmessum, þ.e.
Hallgrímsmessu fimmtudaginn 27.
okt. kl. 20. Það er dánardagur sr.
Hallgríms Péturssonar og hefur
þess gjarnan verið minnst með
messugjörð á þessum degi en þetta
er 337. ártíð sálmaskáldsins.
Einnig verður hátíðarmessa
sunnudaginn 30. okt. kl. 11. Þá pré-
dikar biskup Íslands, Karl Sigur-
björnsson, og prestar og djákni
Hallgrímskirkju þjóna fyrir altari
ásamt messuþjónum.
Mótettukór Hallgrímskirkju
syngur í báðum messunum undir
stjórn Harðar Áskelssonar kantors
og við undirleik Björn Steinars Sól-
bergssonar organista. Eftir mess-
urnar verður boðið upp á kaffi og
konfekt.
Um 1.000 manns koma að jafnaði
í Hallgrímskirkju á hverjum degi
yfir ferðamannatímann sem sífellt
verður lengri og lengri.
25 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju
Morgunblaðið/Ásdís
Í dag, fimmtudaginn 27. október,
verður 10 ára afmælishátíð Ás-
landsskóla í Hafnarfirði.
Af því tilefni munu nemendur og
starfsmenn mæta spariklæddir í
skólann.
Dagskráin hefst kl. 8.10 á afmæl-
ismorgunstund á sal skólans og
munu allir nemendur og starfs-
menn mæta til athafnarinnar.
Þar verður meðal annars gamli
skólasöngurinn kvaddur/sunginn
ásamt því að hljómsveitin Polla-
pönk leikur og syngur. Hljóm-
sveitin mun einnig frumflyta nýjan
skólasöng Áslandsskóla, sem sam-
inn var í tilefni afmælisins.
Í tilefni dagsins verður hátíðar-
matseðill fyrir nemendur og starfs-
menn.
Áslandsskóli og starfið þar þótti
talsverð nýjung þegar hann tók til
starfa. Erlendir gestir hafa gjarnan
heimsótt skólann. Friðrik, krón-
prins Danmerkur, og Mary kona
hans heimsóttu t.d. skólann árið
2008 ásamt forsetahjónunum.
Myndin var tekin við það tækifæri.
Morgunblaðið/Kristinn
Áslandsskóli heldur
upp á 10 ára afmæli
Sambíóin hafa bryddað upp á þeirri
nýbreytni að hafa sérstakar
Mömmumorgnasýningar sem reynst
hafa vinsælar. Næstu sýningar
verða föstudaginn 28. október kl.
10:30 og föstudaginn 4. nóvember
kl. 10:30 á myndinni Húshjálpinni,
The Help, í Álfabakka. Mömmu-
morgnar verða frábrugðnir hefð-
bundnum sýningum að því leyti að
hljóðstyrkur verður ekki eins og
gengur og gerist í bíó auk þess sem
það verður ljóstíra í salnum mæðrunum til halds og trausts. Það er gert
ráð fyrir því að mæðurnar þurfi að hafa nægt pláss í kringum sig og því
fær hver og ein móðir lágmark eitt sæti til að geyma bleiur, burðarstól,
yfirhafnir o.s.frv.
Mæðurnar ættu því að geta gert sér dagamun með börnunum og skellt
sér í bíó en miðaverð er 800 kr. Hægt er að tryggja sér miða í miðasölu
Sambíóanna og/eða á www.sambio.is.
Sambíóin efna til morgunsýninga fyrir
mæður – Dregið verður úr hljóðstyrk
Lagadeild Háskóla Íslands fagnar
aldarafmæli skólans með opnu húsi
í dag, fimmtudag. Þar verður lögð
áhersla á að kynna starfsemi deild-
arinnar fyrir almenningi.
Dagskrá lagadeildar stendur frá
12:00-16:00. Að lokinni hádegis-
hressingu í anddyri Lögbergs mun
Róbert R. Spanó, forseti lagadeild-
ar, flytja ávarp og opna upptökur
af námskeiðinu Inngangur að lög-
fræði á vef deildarinnar.
Á milli kl. 12:40 og 14:00 stendur
Úlfljótur, tímarit laganema, fyrir
hátíðarmálþingi. Kl. 14:30 verða
sýndarréttarhöld laganema í Lög-
bergsdómi. Þar verður tekist á um
það hvenær ummæli á Facebook
fara yfir mörk hins leyfilega.
Kynning á lagadeild
STUTT