Líf og list - 01.02.1951, Blaðsíða 4

Líf og list - 01.02.1951, Blaðsíða 4
THOMAS CRAVEN: Síðasti Bóheminn MODIGLIANI- Sonur Montmartre. YRSTA tug þessarar aldar var andlega sinn- uðum mönnum í Frakklandi mjög hugleikin dægradvöl að níð'a niður Gyðinga og allt, sem var júðskt. I þann tíð er þessi óheilnæma, and- lega íþrótt átti sem mestu fylgi að fagna meðal þeirra, bar svo við eitt sumarkvöld, að tveir kon- ungssinnar sátu inni á þéttskipuðu kaffihúsi á Place du Tertre og gerðu sér til dundurs að herma öllum nærstöddum þessa kenning um andúð á Gyðingum. Þeir skemmtu sér konunglega og nutu þess í ríkum máli, að liella sér yfir „guðs útvöldu þjóð'“, svo að alhr heyrðu til. Við borð þar rétt hjá sat ungur maður. í fvlgd með honum var seiðfögur, ljóshærð stúlka, er greiddi fyrir pyls- urnar, sem hann hafði staflað á diskinn hjá sér. IJngi maðurinn hafði hlustað á skammarununa um hríð af lítilli þolinmæði, en brátt kom að því, að gremjan og fyrirlitningin náði á honum yfirtökunum, svo að’ upp úr sauð. Hann var sér- kennilegri og meir áberandi en títt er um unga menn — auðsýnilega ábyrgðarlaus bæði á sál og líkama — skilgetinn sonur Montmartre og sam- dauna lífinu þar. Það leyndi sér ekki á klæða- burði hans og hirðuleysislega, síða hárinu, að hann var listamaður eða eitthvað þaðan af verra. I stað venjulegs hálsbindis bar hann rauð’an silki- klút, í stað jakka gamlan peysugarm, sem honum hafði verið gefinn og var honum allt of stór, og molskinnsbuxurnar hans voru allar ataðar máln- ingarklessum. Af óeðlilegum gljáa í augunum og kinnfiskadregnu andlitinu mátti greinilega marka, að hann þjáðist af lungnatæringu, sem hann hafði aukið á með daglegum skammti af koníaki og hashiseitri. Ljóshærða stúlkan virtist mjög ást- fangin af honum og fylgdist í mikilli hrifni með sívaxandi reiði hans og fyrirlitningu, brosti til hans, örvaði hann og brýndi hann til stórræða. Skyndilega stökk hann á fætur, knúinn öllu þjóð- arstolti sínu, og hrópaði (hann talaði sterkum, ítölskum hreimi): „Ég er Gyðingur! Ég svara þessum svívirðing- um ykkar með því að berjast við ykkur. Ég skora á ykkur að standa á fætur og berjast við mig! Um leið drep ég tvær skræfur!“ Ungi maðurinn var grannur og langt frá því að' vera kraftalega vaxinn, en í rödd hans fólst sú innblásna, gneistandi grimmd og sú sannfær- andi ósvífni, sem jafnan boðar blóðfórn. Allir viðstaddir spruttu úr sætum og biðu vonglaðir þess, sem gerast kynni — en kohungssinnarnir sátu sem fastast. ,Jjengi lifi Gyðingaþjóðin!“ hrópaði ungi mað- urinn. Hann var greinilega albúinn til þess að vega mann og annan, en Ljóska hans virtist láta sér nægja sá siðferðilegi sigur, sem liann hafði borið úr býtum, og leiddi hann út úr salnum. Þeg- ar út á götuna kom, hvíslað'i. hún ýmsuni falleg- um orðum í eyra honum um karlmennsku hans og hetjudáðir, sem honum þótti ljúft að heyra — hann var alltaf veikur á svelh’nu, þar sem konur voru annars vegar. Hún fór með hann rakleitt inn á eina skuggaknæpuna, þangað sem einmana skáldrónar og misskildir listamannaræflar og kon- ur, sem hafa orðið hart úti í lífinu, venja komur sínar, þar sem heimsleiðum, sundurtættum strand- mönnum, sem aldrei eiga fyrir fábrotnasta og ó- dýrasta málsverði, tekst alltaf einhvern veginn að herja út fé fyrir þeirri huggun, sem þeir leita í ei t url y f j a neyzl u. Æskuárin á Ítalíu. ANN hét Amedeo Modigliani og fæddist 1884 í Toscana, sem kölluð hefur verið vagga vestrænnar listar. Móðir hans, sem var borin og barnfædd í Livorno, taldi sig vera í ætt við hol- lenzka Gyðinginn og heimspekinginn mikla Spi- noza. Ættmenn föður hans höfðu flutzt búferl- um úr Gyðingahverfi Rómaborgar til Norður- Ítalíu. Á fjórtánda ári Modiglianis dundu yfir hann hastarleg veikindi. Þá fékk hann ákafa löng- un til þess að mála. Móður hans fannst það mikið gleðiefni, því að hún unni hounm ekki einungis hugástum, heldur tilbað hann. Fyrst í stað naut hann tilsagnar hjá landslagsmálara í Livorno. En árið 1900 fékk hann snert af lungnaberklum og 4 LÍF og LIST

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.