Birtingur - 01.12.1955, Blaðsíða 6

Birtingur - 01.12.1955, Blaðsíða 6
bráðabirgða, — og ríkir bubbar, sem höfðu meira framtak en landsstjórnin, fóru að láta tæta í sundur Laugarásinn til að geta byggt þar fín hús. Með hverju árinu krökkti meira á hæðinni fallegu, miðsvæðið niður að Þvotta- laugum þrengdist, svo ég hélt að ekki ætlaði að verða þar Guddusund eftirskilið. En allt í einu gerðust þau undrin sem sjaldgæf eru í skipulagsmálum Rvíkur; einhver sýnileg- ur eldklerkur (e.t.v. Jón heitinn Steingríms- son í gerfi skipulagsstjóra) brá upp hendinni og sagði hingað og ekki lengra! Daglega leit ég upp í holtið og sá mér til endurtekinnar furðu að ræman niður mitt holtið var enn ótætt. Breidd hennar er raunar ekki ýkja mikil, en hún gæti orðið þeim mun lengri, og er því enn ráð að efna hugmyndina ef vilji er til. Enda þótt þessi hugmynd hafi vaknað og sótt fast að mér, meðan ég fylgdist með hinni gífurlegu aðsókn að Kjarvalssýning- unni, mundi ég þó varla hafa hreyft henni hér, nema vegna þess að annað hefur komið til, sem gerir hana að brennandi dægurmáli og kallar á fylgd allra listunnandi manna. Þau góðu tíðindi hafa gerzt, að sett hefur verið niður nefnd skipuð garðyrkjumönnum, garðaarkitekt, grasafræðingi og húsameist- ara, og er tilgangur hennar sá að velja fram- tíðarsvæði undir bótaniskan garð, Gróður- garð Reykjavíkur. Hef ég fyrir satt að at- hygli allra þessara manna hafi beinzt að ein- um og sama stað; ræmunni niður af Laugar- ásnum og þvert yfir dalinn. Telja þeir hann betur fallinn en nokkurn annan stað í landi Reykjavíkur til fjölbreytilegs gróðurs, svo margskrúðugs, að þar megi rækta allt frá ís- lenzkum heiðarjurtum til suðræns hitabeltis- gróðurs með tilstyrk jarðhitans. Holt, móar, valllendi, mýri tekur þar hvað við af öðru, þverskurður allra gróðurskilyrða á Islandi. Að sjálfsögðu mundi framkvæmd þessa leiða af sér ýmsa breytingu eldri skipulagningar, t. d. yrði Laugarásvegurinn annaðhvort að fara undir svæðið um jarðgöng eða yfir það niðri í mýrinni. Þegar ég heyrði þessa gleðifrétt, að nefnd- in hefði verið sett á laggirnar og þegar ein- huga, sá ég allt í einu loftkastalann dala og setjast á jörðina: Þjóðlistasafn uppi í ásn- um, lága og fallega byggingu, og höggmynd- irnar síðan dreifa sér niður eftir slakkanum, umslungnar margvíslegum gróðri. Hér fall- ast tvær hugmyndir í faðma, og get ég ekki betur séð en þær séu hvor annarri til styrks og prýði. Hér reynir því á samheldni listamanna meir en nokkurntíma fyrr. Hér reynir á at- fylgi allra þeirra sem unna íslenzkri mynd- list góðrar aðbúðar og framþróunar. Hér gefst lag; nú er okkar að grípa það og koma stóru máli í 'höfn. Við opinbera valdhafa vil ég segja þetta, skyldi einhver slíkur lesa þessa grein: Hafi ykkur hingað til þótt skorta umboð til þess að verja fé alþjóðar í byggingu Þjóðlista- safns, þá hefur ykkur nú verið fengið það umboð rækilega í hendur. Þær tuttugu og fimm þúsundir manna sem sóttu Kjarvals- sýninguna hafa veitt ykkur það. Sennilega hafa engin menningaryfirvöld nokkurrar þjóðar fengið jafn skýlausa bendingu. Tækist okkur nú að hrinda þessu máli fram með einhug og samheldni, þá gætum við þótzt eiga það skilið að njóta slíks manns eins og Jóhannesar Kjarvals. 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.