Birtingur - 01.12.1955, Blaðsíða 42

Birtingur - 01.12.1955, Blaðsíða 42
Strandið Hannes Sigfússon: STRANDIÐ I>að skilur Hanncs Sigfússon frá flestura öðrura ungura mönnum hcrlendis sem ég hef lesið skáldsögur eftir und- anfarin ár eða öllu heldur reynt að lesa eftir: að hann iiefur upplifað eitthvað sjálfur. Saga lians StrandiÖ ber svo mjög af þeim skáldsögum ungra manna sem liafa í seinni tíð verið að vekja umtal manna, oftast að þarflausu. (Nýlega kom út ein slík hermisaga þar sem stíllinn var tekinn að láni frá þeim höfundi sem var mest stæld- ur erlendra liöfunda um skeið og það var tízka cn þegar það hætti að vera tizka í útlandinu þá tók sá prúði landi vor sig til og ritdómarar hór voru ekki lietur að sér en svo að þeir luku sumir lofsorði á og manninum var boðið í langt ferðalag). Bók Hannesar er eftir hann sjálfan. Hún er cin þeirra fágætu bóka sem höfundur verður að skrifa. Höfundur á þá eina leið til að kafna ekki í martröð sinni. I>að er margt gott i þessari bók þótt heildarniðurstöðuáhrif séu ekki sterk. Sumstaðar lýta endurtekningar liana og höf- undur gerir sig stundum sekan um að þvinga symbolistik sína, líkingamál sitt. En það eru margar hnitmiðaðar og sterkar lýsingar sem standa djúpskynjaðar og skáldlegar og myndvísi H. S. er stundum hrífandi. Eflaust mætti sitthvað frekar að finna: bókin vill losna sumstaðar úr reipum, ýmislegt orkar tvímælis og kemur mér þá einkum í hug kaflinn um vonbiðla hins dular- fulla arfs, — en æ ég nenni ekki að fara út ( það. Þessi bók hefur þá kosti að vel má mæla með því að hún sé lesin af þeim sem hirða um íslenzkar bókmenntir. T. V. A hnotskógi Ljóðal>ýðingar eftir Helga Hálfdanarson. Útgefnar af Heimskringlu 1955. „Og hér eftir leikur enginn vafi á þvf hver sé arftaki Magnúsar heitins Ásgeirssonar á islcnzku skáldaþingi. Helgi gengur rakleiðis til sætis og skipar það mcð sóma.“ Helgi Sœrnundsson í ritdómi um Á Hnolskógi, Alþýðubl. 19. nóv. 1955. Maður hrekkur við og spyr: Er öndvegi Magnúsar þegar skipað? Er tap vort bætt að fullu? Hefur islenzkri ljóðlist bætzt nýr snillingur jafnskjótt og meistarinn kvaddi? Eða er þetta bara venjulegt fleipur íslenzks rit- dómara sem úthlutar „fálkaorðum" fyrir kurteisissakir? Því miður — ég hef opnað bókina. Á blaðsíðu 28 kveður Wilhelm Arent: „Dreyminn æskudagur! hvar dylurðu þig? Hvc himinninn fagur fjarlægist mig! Úti brosa blóm á baðmi grænuin — I.jóð mitt er hjóm og hjaðnar í blænum." svo er það kvæði búið . Ég fletti bókinni. Ég leita árangurslaust að stórlnotnu kvæði sem gæti réttlætt umsögn ritdómarans. Nei. Hér eru að vísu stór nöfn: Rilke, Eliot, Pound, Rimbaud. En að fótstalli þessara meistara hefur Helgi Hálfdanarson lagt brotasilfur. Það glitrar að visu á málminn á stöku stað, t. d. í I.ébarðanum eftir Rilke: „Það á sér stað, að augans fortjald stfgur eitt andartak. — Og mynd sem fyrir bar í gegnum liinu fjaðurstillta flýgur að fylgsnum hjartans, — hverfur þar." Þrjú smákvæði eftir Eliot eru þýdd af nokkurri íþrótt, en gefa tvímælalaust villandi hugmynd um verðmxtustu einkenni þessa höfuðskálds. Sama máli gcgnir um Ezra Pound, nema hvað verr er þýtt og kvæðin vesældarleg. Eitt þeirra gæli borið titil fyrir þeim öllum: Rissl — Eftir Rimbaud þýðir Helgi Hálfdanarson tvö smákvæði, rímuð, sennilega frá þeim tíma er höfundur var um fermingu. Annað þeirra, „í grænu kránni", er að vísu skemmtilegt í þýðingunni — en Rimbaud liélt áfram að yrkja í nokkur ár eftir þetta og lánaðist þá að skapa þau verk sem halda nafni hans á lofti. Hann er af sum- um talinn faðir nútímaljóðsins, endaþótt þýðingarsýnis- horn Hclga gcfi litla hugmynd um það. Magnús Ásgeirsson — hann kynnti okkur erlenda ljóð- snillinga eins og sá sem valdið hefur. Einari Bcnediktssyni tókst ekki að kynna Omar Khayam islenzkum ljóðavinum á þann hátt að eftirminnilegt yrði. Það tókst Magnúsi Ásgeirssyni. Hvað vissum við um Alexander Blok cf Magn- úsar hefði ekki notið við? En Alcxander Blok hefur verið góðvinur íslenzkra skálda í bráðum tvo áratugi. Það er undarlegt — og þó höfum við fæstir Jcsið liann á erlendu 40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.