Birtingur - 01.04.1956, Qupperneq 22
JÓN ÓSRAR:
Borgarljós
Syfjuðum augum horfi ég út um gluggann
á borgarljósin titra fyrir neðan,
ég get ekki vakað, depurð sækir mig heim,
ó, borgarljós sem titra, þetta líf
sem hrærist fyrir neðan mig, ég spyr:
Ert það þú sem hreyfist, er það ég sem er kyrr?
því depurð sækir mig heim, mér finnst ég velkjast
á rekatimbri meðfram langri strönd,
og ég sé kyrr, en ströndin líði hjá;
því spyr ég: er það lífið sem fer hjá?
er það ég sem er kyrr? og lífið svarar: Já.
Nokkur orð um Bertolt Brecht
Bertolt Brecht, höfundur frásögunnar, fæddist 10. fcbrúar
1898 í Augsburg í Suður-Þýzkalandi, sonur verksraiðju-
stjóra f borginni. Hann gekk menntaveginn, lagði um hríð
stund á læknisfræði; síðasta ár heimsstyrjaldarinnnar fyrri
var hann aðsroðarmaður á herspítala. Síðan hefur hann
löngum helgað sig skáldskap, fckkst einkum við ljóðagerð
um sinn, en tók síðan að skrifa leikrit; og hafa þau borið
hróður hans lengst og víðast. Kunnustu kvæðabækur hans
munu vera Die Hauspostille og flokkurinn Die Erziehung
der Hirze; en fjöldi kvæða er einnig í flestum leikritum
hans. Ljóðasafnið Hundert Gedichte hefur stundum sézt f
bókabúðum í Reykjavík. Brecht hefur einnig samið óperu-
texta, og er Dreigroschenoper víðfræg.
Fyrstu leikrit Brcchts, Baal og Trommeln in der Nacht,
komu út árið 1922; en af sfðari leikritum skulu þcssi nefnd:
Die Heilige Johanna der Schlachthöfe, Furcht und Elend
des Dritten Reiches, Die Gewehre dcr Frau Carrar, Mutter
Couragc und ihre Kinder, Der kaukasische Kreidekreis,
Herr Puntila und sein Knecht Matti, Der neaue Schwejk.
Þá hefur Bertolt Brecht skrifað mikið af ritgerðum, þar á
meðal um leikstíl og leikhúsmál; en sjálfsagt á enginn leik-
höfundur sem nú cr uppi persónulegri leikstíl en Brecht.
Frumleikur hans er óumdeilanlegur. Og það er raunar
skoðun undirritaðs að hann sé, ásamt Scan O’Casey, mesta
leikskáld samtímans.
Bertolt Brecht fór landflótta undan Hitler — og dvaldist
síðan á Norðurlöndum, í Ameríku og Sovétríkjunum, unz
hann hvarf heim að enduðu stríði. Hann starfrækir sitt eig-
ið íeikhús í Austur-Berlfn, og heitir flokkur hans Berliner
Ensemble. Kona lians er Helenc Weigel, mikil lcikkona er
hefur borið vcrk manns síns fram til sigurs f ýmsum lönd-
um.
Þjóðleikhúsið ætti að sýna eitthvert hinna meiriháttar
leikrita Brcchts, og fá til leikstjórnar einhvem samstarfs-
mann hans er þekkir dramatískar hugmyndir meistarans til
hlítar — það yrði mikill viðburður. — B. B.
20