Birtingur - 01.04.1956, Blaðsíða 25

Birtingur - 01.04.1956, Blaðsíða 25
liðin ár; við höfum jafnvel hlotið að berjast í návígi við vopnað lið draugahirðarinnar. Sú sýn hefði einnig orðið þér þung að sjá æsku lands þíns una við allt fremur en góðar sög- ur og fögur ljóð, vita margan ungan þegn rækja betur hina nýju dönsku íslendinga en ástkæra ylhýra málið. Nei, Jónas, við skulum ekki rekja raunir okkar, né tíunda þann skaða sem við höfum beðið. En það er mikill léttir að mega tala við þig yfir aldar sund, eins og þú sitjir hinumegin við borðið. Vittu og að hér eru alltaf menn sem halda hugsjón þína í heiðri. Dýpst inni hljótum við að trúa því að læging íslands á líðandi árum sé él eitt. Það er ekki nógu gaman að lifa á Islandi nú um stundir; en ég held við séum ekki upp úr því vaxin að stælast við stríð, herðast í þreng- ingum. Og við snúum okkur til þín, Jónas, og leitum ásjár í ljóði þínu: Sú er hin mikla blessan bezt allra þeirra, er meira megna en munninn fylla og sínu gegna, að þegar þeir deyja, þá er hún mest. Hver, sem vinnur landi og lýð, treysta skal, að öll hans iðja allt hið góða nái að styðja þess fyrir hönd, er hóf hann stríð. Glaðari huga snúum við aftur heimleiðis af fundi þínum. Sá hefur talað sem við trúum bezt. Ljóð þitt er eins og bergmál okkar eig- in raddar í myrkrinu: nóttin titrar af lífi. Mér verður hugsað til annars efnis, Jónas. Þú ortir eittsinn fagurlega um vísindin, kvaðst þau efla alla dáð og vef ja lýð og láð farsældum. Og hæfileg voru orð ykkar félaga í ávarpsorðum Fjölnis: ,,Ekkert lýsir betur mannlegri hátign en hvernig allir hlutir, dauð- ir og lifandi, eru komnir í mannsins þjónustu. Hann temur jafnvel yfirgang og ofurefli höf- uðskepnanna, og leiðir þær til að fremja sinn vilja og flýta sínum fyrirtækjum......Meira að segja: maðurinn veitir einni höfuðskepnu sigur yfir annarri, og lætur eina stemma stigu fyrir hinnar yfirgangi. Jörðina lætur hann varna sjónum að vaða upp á landið, og fljótunum að streyma út úr farveg sínum.... Eldinn, höfuðfjanda vatnsins, láta þeir reka skipin móti stormi og straumi, milli, boða og skerja, og hver veit hvað þess muni langt að bíða, að þeir taki sig með öllu upp yfir sjóinn, og fari siglandi í loftinu?“ Það liðp 70 ár, Jónas; og nú eru loftförin orðin skip og hestur landa þinna. Mannleg hátign hefur líka mælt upp sólina, brotið ódeilið í þúsund mola, og skipting mánans stendur fyrir dyrum — hver sem kann að kasta eign sinni á tunglskinið. Verksmiðjur okkar eru teknar að framleiða vélheila, sem taka þeim gamla fram um margt; vélheili getur t. d. svarað því án umhugsunar á hvaða vikudegi árið 1 byrjaði — það var laugar- dagur. Svo vitur er þessi heili, og mun vél- smíði ýmsra líkamshluta fleygja mjög fram í náinni framtíð. Sumir halda að það verði erfiðast með hjartað. Hitt sætir þó söguleg- ustum tíðindum að við höfum fundið aðferð til að sprengja hnöttinn í loft upp og eyða öllu jarðlífi; og svo undarlega er högum okkar nútímamanna háttað að það er á valdi örfárra manna að drýgja þessa dáð. Við göng- um ekki til kosninga um eyðingu okkar eða framhaldslíf á jörðinni. Nú er þar komið, Jónas, að við erum tekin að óttast okkar eig- in mátt; okkur stendur stuggur af þekkingu okkar og getu. I hundrað ár höfum við öll trúað því að framþróunin væri einskonar náttúrulögmál, líf okkar stefndi rakleitt á fullkomleikann. Hinar nýju horfur hafa kraf- izt endurmats á þessari trú; nú spyrjum við hver um annan þveran: Hver segir að fram- þróun sé náttúrulögmál ? Hver segir að þroski okkar hafi ekki þegar náð hæsta marki ? Hvað gæti staðið í vegi fyrir því að við 23

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.