Birtingur - 01.04.1956, Blaðsíða 45

Birtingur - 01.04.1956, Blaðsíða 45
dráp scr til afþreyingar. Vér skiljum við Schweitzer, er hann stendur á áttræðu. Hann hefir þá fyrir nokkru hlotið friðar- verðlaun Nóbels og heldur nú í október 1955, frá Lambar- ene til Evrópu. Bókin er hratt og fjörlega skrifuð. Mynd tekur við af mynd, af leiftri leiftur. Maðurinn Schweitzer stígur fram af síðum bókarinnar, og lestur hennar er framar öllu kvöldstund með Schweitzer. Þeim kynnum gleymir enginn né verður samur eftir. Ein ljósmynd margra og ágætra, sem í bókinni eru, verður minnisstæð. Htin er af Schweitz- cr á svölum ráðhúss Óslóar. Hún líkist í senn Þorgeirsbola Jóns Stefánssonar og cngilmynd cftir Michelangelo. Mildin, elskan, miskunnsemin er sem ívaf ægilcgs ógnarkraftar. í kaflanum „Einvera frumskógarins" er gerð grein fvrir heimspekilegri liugsun Schweitzers. Einnig er frá Jífsskoð- un lians greint í kaflanum „Frá bæjardyrum" og á víð og dreif f bókinni. Hagsýni útgefanda mun liafa ráðið því, að þessu efni eru ekki gerð fyllri skil og bókinni fyrst og fremst ætlað að vera kynnisbók um manninn sjálfan. Niðurstaða Schweitzers er sú, að kjarni allrar siðfræði sé Jotning fyrir llfinu. Ehrfurclit vor dem Leben, lotning fyrir öllu því sem andann dregur. Það er því jafnsaknæmt að drepa bakterí- tir sem menn. En lífið er sjálfu sér sundurþykkt úr því notkun sótthreinsandi Iyfja getur talizt til sektar. Fróðlegt liefði verið að heyra gagnrýni próf. Sigur- björns. Sekt er síður siðfræðilegt en trúfræðilegt ltugtak. Hér skortir því næsta skrefið, sem er endurlausnin undan sektinni. Er lííið þannig hugsað, að í því búi endurlausn? Er lífið Guð? Hugsun Schweitzers minnir mig rnjög á Kant, og fróð- legt ltefði verið að fá þessum spurningum svarað í bókinni. Bókin er að ytra liúnaði með glæstum brag og ber vitni liinni öru þróun í íslenzkri bókagerðartækni. Prentvillur að heita má engar og leturgerð einkar geðþekk auganu. Þórir Þórðarson. /■----------------------------------------------\ BIRTINGUR Ritstjórn: Einar Bragi (áb.), Geir Kristjánsson, Tjarnargötu 10A, Hörður Ágústsson, Laugavegi 135, Jón Óskar, Blönduhlíð 4, Thor Vilhjálmsson, Karfa- vogi 40 - sími 3700. Afgreiðslumaður: Hanncs Sigfússon, Vesturgötu 65. Kemur út fjórum sinnum á ári. Árgangur til áskrif- enda kr. 80.00. Lausasöluverð kr. 25.0Q lieftið. Efni í ritið sendist einhverjum úr ritnefndinni. Hörður Ágústsson gerði kápuna. — Hjörleifur Sig- urðsson valdi lit. — Birgir Eydal prentaði ritið. Myndamót: Litróf h.f. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. v_______________________________________________' Til lesenda Birtings Með þessu hefti er áskrift- argjald fyrir 1956 fallið i gjalddaga. Þess er vœnst að áskrifendur Birtings létti innheimtustarfið með þvi að greiða gjaldið af sjálfs- dáðum i Bókabúð Braga Brynjólfssonar Hafnarstrœti, ellegar afgreiðslumanninum, Hanncsi Sigfússyni, Vestur- gtitu 65. 43

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.