Birtingur - 01.04.1956, Blaðsíða 30
Samband listiðn-
aðarmanna
Ein merkilegasta tilraun í byggingarlist frá þessum tíma og að
sumu leyti í tengslum við Art Nouveau er hús listaháskólans í Glasgow
eftir Rennie Mackintosh. Hann mætti eins og oft vill verða litlum skiln-
ingi í föðurlandi sínu, en hafði þeim mun meiri áhrif utan þess, einkum í
Þýzkalandi, þar sem sýningar voru haldnar á verkum hans. Mackintosh
varð einskonar tengiliður milli sundurleitra tilrauna nítjándu aldar og
markvissrar leitar tuttugustu aldar.
Um líkt leyti og sýningar á verkum Mackintosh voru á ferðinni, gaf
starfsmaður þýzku utanríkisþjónustunnar út bók, er nefndist Das eng-
lische Haus og vakti ásamt sýningum Mackintosh geysimikla athygli.
Nú tóku tilraunirnar, sem gerðar höfðu verið í Englandi, Belgíu og
Frakklandi, að bera árangur í Þýzkalandi, og má með nokkrum sanni
segja, að vagga nútíma byggingarlistar standi í Þýzkalandi.
Næsti áfanginn var stofnun sambands listiðnaðarmanna og húsa-
meistara, Deutscher Werkbund, árið 1907. 1 stað þess að skeggræða um
gildi og þörf formsins sem frumeindar allra mótunarlista, létu félagar
sambandsins hendur standa fram úr ermum, efndu til sýninga og brýndu
Nouveau stíll: Stigahtis eftir
Victor Horta
1893