Birtingur - 01.04.1956, Side 31
Rennie Mackinlosh:
Listaskólinn í Glasgow
1899
fyrir mönnum nauðsyn þess, að listin væri höfð með í ráðum við iðnfram-
leiðsluna og yrði þannig að nýju þáttur í daglegu lífi mannsins. Hreyfing
þessi vann mikinn og verðskuldaðan sigur: Peter Behrens, merkasti húsa-
meistari meginlandsins var ráðinn starfsmaður rafmagnshringsins mikla,
A. E. G., og ekki aðeins sem húsameistari, heldur var honum falið að
teikna og móta framleiðsluvörur hans, jafnvel auglýsingar. Ráðning
þessi markaði tímamót.
Jafnframt unnu ýmsir brautryðjendur hver í sínu lagi að sameig-
inlegu markmiði: þar má nefna Henri van de Velde, er snúið hafði baki
við Art Nouveau og tekið að glíma við alvarlegri viðfangsefni, sérstak-
lega eftir að hann var skipaður forstöðumaður listaskólans í Weimar, Otto
Wagner og Joseph Hoffmann í Austurríki, H. P. Berlage í Hollandi.
Hjá sumum réð ekki annað en meðvitundin um að þeir væru að móta
hús eftir eigin höfði en ekki í þrælsótta við fortíðina; hjá öðrum var um
að ræða markvissa leit að nýjum formum og hugmyndum, sem telja má
grundvöll nútíma byggingarlistar. Ný listform voru að skapast með
nýrri öld, og þau voru ekki lengur tengd íbúðarhúsum einum, heldur
einnig verksmiðjum, sjúkrahúsum, skólum: húsum sem setja sterkastan
29