Birtingur - 01.12.1967, Side 4

Birtingur - 01.12.1967, Side 4
THOR VILHJÁLMSSON: KOLAKOWSKI HeimsblöÖin hömpuðu nýju nafni þegar þau sögðu frá því í haust að heimspekiprófessor- inn Leszek Kolakowski hefði verið rekinn úr kommúnistaflokki Póllands fyrir skoðanir sem hann lét uppi í fyrirlestrum sem hann flutti við háskólann í Varsjá þar sem hann véfengdi það að flokkurinn þyrfti endilega að hafa rétt fyrir sér a priori, gagnrýndi kenn- ingar um óskeikulleika flokksforystunnar, ein- földun og afskræmingu marxískrar söguskoð- unar í áróðurs- og blekkingaskyni og stund- um til sjálfblekkingar. Hver er þessi Kolakowski? Hann er innan við fertugt og einn skarpasti endurskoðunarsinni meðal pólskra menntamanna. Hann er marx- isti sem getur ekki sætt sig við að kenning- arnar steinrenni og verði að fjötrandi kredd- um í stað þess að vera það frelsandi afl sem til stóð. Hann er víðmenntaður maður sem getur vitnað jöfnum höndum í heimspeki bókmennt- ir og söguna þegar hann fjallar um þjóðfélags- mál, skrifar ljóst og fjörlega um efni sem hafa oft verið kærkomið leiksvið fyrir hina drep- leiðinlegustu drundhjassa. Sumir halda nefni- lega að það sé ekki hægt að vera annað en leiðinlegur þegar um sum efni er fjallað en það er afleit kenning. Hvaða efni skyldu það vera? Ja það eru þjóðfélagsmál bindindismál uppeldismál híbýlaprýði sjávarútvegurinn og þessi andskotans rekstursgrundvöllur sem er farg á heilanum á sumum mönnum í staðinn fyrir að vera undir fótunum á þeim hjólun- um eða kjölnum, flest þjóðþrifamál og hnign- un góðra siða og yfirleitt þau málefni sem eru tekin gild sem efni í leiðara dagblaðanna, æ þessi seigdrepandi hátíðleiki, þið vitið hvað ég meina. Þegar sumir menn fara að skrifa um marx- isma hvort sem þeir eru með honum eða móti renna upp úr þeim marklausar glósur og vél- ræn orðasambönd svo að þeir geta svæft heil þjóðlönd með romsum sínum. í nafni marx- ískrar fræðimennsku höfum við heyrt langar þulur þar sem hver mennskur lífsglampi slokknar og við sitjum í svartamyrkri dauðra kennisetninga og finnum bara grjótharðan legsteininn yfir Karli Marx undir bossanum og hugsum: hvort þessi steinn sé til að fergja Karl niður í gröf sinni svo hann trufli ekki þuluna með því að minna á að kenningin átti að efla hugsunina og gera liana að sívirku baráttutæki í þágu mannlegs lífs, að díalektísk efnishyggja og marxísk söguskoðun eru rann- sóknar- og vísindatæki til að prófa og efla liugsjónina en ekki trúarlegt viðurværi í kyrr- sætinu eða einskonar friðþægingarátómat þar sem andinn gleymist og skriffinnskan hleður himinháa múra svo að eðlilegar leiðir týnast og maðurinn er staddur andspænis ópersónu- legu valdi í áttalausu völundarhúsi. 2 BIRTINGUR

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.