Birtingur - 01.12.1967, Blaðsíða 7

Birtingur - 01.12.1967, Blaðsíða 7
hún ákvarðast af þýðingu sinni en ekki sann- leikanum. Þar má nefna goðsögnina um Óð- in, Jesú, Napóleon eða Stalín. Hver þjóð og hver pólitísk hreyfing skapar sína eigin goð- sögu, segir Kolakowski: þær eru konkret kerf- isbinding gildanna, þær eru með öðrum orð- um safn þeirra gilda sem ekki koma fyrir í abstraktformi heldur líkamnast í einstökum persónum eða einstaklingsbundnum aðstæð- um og miða að því að treysta samstöðuna í þeim þjóðfélagshópi sem skapaði þær. Hins- vegar er útópian að sögn Kolakowskí summ- an af viðurkenndum gildum sem eru tengdar þjóðfélagsaðstæðunum og eru talin vera óframkvæmanleg en þó sett fram sem stefnu- mið. Hann nefnir söguna um Paradís sem dæmi um goðsögn en myndina af þúsund ára ríki Jesú sem útópíu. Og segir að hingað til hafi engin þjóðfélagsleg fjöldahreyfing getað verið án útópíu og engin komizt af án goð- sögunnar. Sjóndeildarhringurinn breytist sífellt, á morg- un verður hann annar en í dag, annars verður nótt og dauði. Og draumurinn um morgundaginn helgar daginn í dag, það mark sem við höfum fyrir augum. En viðleitnin á ekki að beinast að því að yfirstimpla daginn á morgun með deginum í dag heldur að nota skynsemina með gagnrýninni og hugmynda- fluginu til að undirbúa daginn á morgun. Kolakowski varð kunnur í Póllandi kornung- ur í októberbyltingu Pólverja 1956, þá var hann einn af forustumönnum hinnar miklu endurskoðunar og stýrði hinu merka stúd- entatímariti Po Prostu sem gegndi miklu hlutverki í þeim umbrotum, þetta tímarit kemur ekki lengur út. Útvarpið í Varsjá sagði við stjórnarskiptin: við höfum farið yfir Rú- bíkon, (það var fljótið sem Sesar fór yfir þegar hann sagði að teningunum væri kastað og sigraði Pompejus nokkru síðar): okkar vor er í október. Kolakowski skrifar fleira en heimspeki. Hann hefur samið leikrit og ýmiskonar þætti, svo sem: Þegar Lúther talar við kölska. Það heyrist bara í Lúther sem sallar á þann gamla af mikilli mælsku og rekur ofan í hann brigzl- yrði: hyskni? þú ætlar þó ekki að koma með það, það væri þér til skammar, jafnvel þér blygðunarlausum lygaranum . . . öfund? Jrú hlýtur að vera alveg genginn af göflunum, gamli svikahrappur, hvað og hvurn ætti ég að öfunda? ég hef allt sem ég þarf, skilurðu það ekki? ég hef guð, hvurs annars ætti ég að þarfnast? kannski ég ætti að öfunda þig? Ha? Ætti ég að öfunda þig af galdrabrellun- um og töframættinum, færni þinni í að vekja ótta, blekkja og freista? Það er einsog maður ætti að fara að öfunda helvíti þegar maður býr í himnaríki. Þú ert kolbrjálaður, þetta er BIRTINGUR 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.