Birtingur - 01.12.1967, Blaðsíða 15
geisanna í Hollywood. 1 þessari aðstöðu stjórn-
ar hann tveim til þrem myndum á ári og eru
flestar þeirra lítt minnisverðar. Verður því
hér stiklað á stóru og rétt drepið á þær helztu.
Subida al Cielo er gamanmynd um ungan
sakleysingja, sem hlýtur dágóða lífsreynslu
meðan hann ferðast í almenningsvagni.
Róbinson Krúsó er gerð eftir hinni heims-
frægu sögu Daniel Defoes. Þrátt fyrir sölu-
varningsbraginn hefur Bunuel tekizt vel að
lýsa hinum einmana manni 1 baráttunni við
náttúruöflin. E1 er bezta mynd Bunuels frá
þessu tímabili, fyrir utan Los Olvidados,
og er sögð vera realistísk endurgerð á L’Age
d’Or. Hún er óvenjuleg sálfræðileg frásaga
af kirkjunnar þjóni, sem þjáist af ólæknandi
afbrýðisemi. La Vida Criminal de Arc-
hibaldo de la Cruz er í svipuðum dúr og
El, en öllu léttari og er talin með skemmti-
legri kvikmyndum Bunuels. Hún segir frá
litlum dreng, sem hefur fengið spiladós að
gjöf, er hefur þann eiginleika að geta búið
öllum þeim bana, sem eigandinn óskar sér.
Hann óskar kennslukonunni dauða, og hún
verður fyrir slysaskoti í götuóeirðum. Þessi
atburður hvílir á honum einsog mara, og hann
losnar ekki úr „álögunum" fyrr en á fullorð-
insaldri, kvæntur maður, þegar hann loks
áræðir að henda spiladósinni í sjóinn.
Eftir að hafa stjórnað einni kvikmynd í Frakk-
landi, snýr Bunuel aftur til Mexfkó og gerir
La Mort en ce Jardin um flótta fimm
manna gegnum frumskóg í Suður-Ameríku.
Þetta var 1956 og tveim árum síðar kom N az-
ar in.
En áður en ég vík að Nazarin, langar mig
til að minnast örlítið á tvær kvikmyndir, sem
Bunuel gerði seinna. La Fiérre monte á
E1 Pao er sakamálamynd með Gérard Philipe
í aðalhlutverki. The Young One er mynd
um 15 ára gamla stúlku, sem er flekuð af
óprúttnum náunga, er síðar fær ofsalegt sam-
vizkubit, ekki sízt, þegar prestur nokkur kem-
ur til sögunnar. En kvikmyndin snertir einnig
kynþáttamismuninn, þar sem negri er saklaus
dæmdur a£ tveimur hvítum meðbræðrum.
„Maður fer ósjálfrátt að hugleiða, eftir að
hafa séð þessa mynd, hvað Bunuel gæti gert
úr Lolitu, ef hann fengi tækifæri til þess,“
skrifaði brezki gagnrýnandinn John Russell
Taylor.
Nazarin er saga um uppgjafa prest, sem
lifir samkvæmt boðskap kirkjunnar og reynir
statt og stöðugt að umbæta mannfélagið. En
„laun heimsins eru vanþakklæti“, og prestur,
sem ekki þekkir heiminn í sinni réttu mynd,
mætir hvarvetna almennu ranglæti og er að
lokum hnepptur í fangelsi fyrir engar sakir.
í þessari kvikmynd sýnir Bunuel fram á, að
dýrlingurinn og glæpamaðurinn séu báðir
BIRTINGUR
13