Birtingur - 01.12.1967, Blaðsíða 13
siði, blandin nöpru háði. Um skeið var þessi
kvikmynd algerlega bönnuð, og var það mest-
megnis fyrir sakir afskiptasemi lögreglustjóra
nokkurs, Chiappe að nafni. Bunuel svaraði svo
fyrir sig rúmum þrjátíu árum síðar, þegar
pólitískir öfgamenn ganga í skipulagðri fylk-
ingu í lokaatriði kvikmyndarinnar Úr dag-
bók herbergisþernunnar, hrópandi:
„Lifi Chiappe".
Með næstu kvikmynd sinni, Landi án
brauðs (Tierra sin Pán, gerð 1932), segir
Bunuel skilið við surrealismann. Þett er heim-
ildarkvikmynd um fátækrahéraðið Las Hur-
des og lýsir neyð íbúanna af miskunnarlausu
raunsæi. Bunuel beitir engum bellibrögðum,
hann lætur kvikmyndavélina lýsa hljóðlátlega
eymd fólksins; hvernig það berst áfram í líf-
inu, næringarlaust og í rifnum fatagörmum
innanum skuggalegt og ógnþrungið umhverf-
ið, þar sem dauðinn bíður á næsta leyti eins-
og þögull áhorfandi. Kvenfólkið þvær flík-
urnar af fjölskyldunni í sömu lækjarsprænu
og menn svala þorsta sínum.
En nú voru talmyndirnar komnar til sögunn-
ar og flestir snillingar þöglu myndanna hurfu
í peningagin gróðahyggjumanna í Hollywood,
sem litu á kvikmyndir frá sjónarmiði hagnað-
ar og gáfu skít í alla snillinga og sjálfstæða
listsköpun. Bunuel fór til Hollywood, að ráði
Chaplins, en fékk þar engri mynd að stjórna
Atriði úr nýjustu mynd Bunuels, „Belle de Jour".
Helztu leikendur: Catherine Deneuve, Jean Sorel,
Michel Piccoli, Genevive Page, Francisko Rabal.
Atriði úr „Gullöldinni" (L’Age d’Or).
III RTINGUR