Birtingur - 01.12.1967, Page 43

Birtingur - 01.12.1967, Page 43
 KURT ZIER: „HVERSU ÓHEPPILEGT ÞAÐ ER AÐ HAFA ENGAN MÁLARA“ Hugleiðingar um Þórarin Þorláksson i tilefni af 100 ára afmælissýningu hans i Listasafni íslands Það var Jón Þórarinsson, þingmaður Kjósar- og Gullbringusýslu, er mælti þessi orð á Al- þingi sumarið 1895, við umræður um fjár- veitingu til Þórarins Þorlákssonar til listnáms erlendis. Þær eru góð, jafnvel átakanleg heim- ild um það hversu ástatt var um list, hver þjóðfélagsleg forsenda henni var búin á þeim dögum, er Þórarinn Þorláksson ákvað að helga sig algerlega myndlist. I ofangreindum alþingisumræðum var að sjálfsögðu varað við að „kasta peningum til ónýtis“. Öllu meira einkennandi og athyglisverðari finnst mér þó ummæli Jóns Þórarinssonar: „íslenzkir foss- ar, fjöll og sveitir eru alltaf við höndina." Sannarlega! Hví hefðu þessi orð ekki getað verið mælt löngu fyrr? Sennilega vegna þess, að í þeim kemur fyrst fram sú mikilvæga breyting á afstöðu manna til náttúrunnar, sem gerzt hafði á 19. öld og er forsenda og frumskilyrði fyrir þróun myndlistar á íslandi. Þessi breyting sem hér er lýst með svo hvers- dagslegum og berum orðum, hafði verið und- irbúin í verkum íslenzkra Ijóðskálda allt frá dögum Jónasar Hallgrímssonar og er fólgin í því, að maðurinn hafði öðlazt nýtt viðhorf til náttúrunnar, viðhorf sem gerði honum kleift að horfa á hana óliáður og óhræddur, virða hana fyrir sér með gleðitilfinningu, dást að henni, gæða hana tign og fegurð. Með öðr- um orðum: Þola mynd af „landsins forna tjanda" jafnvel á stofuveggjum. Þannig var jarðvegurinn undirbúinn fyrir íslenzka lands- lagslist og myndlist yfir höfuð. Hvernig sem þvi er varið, Þórarinn Þorláks- son er sendur út til Kóngsins Kaupmanna- hafnar þrítugur maður, til að nema þar mál- aralist sem hverja aðra iðn. Vandast nú málið bæði fyrir Þórarni og íslenzkri myndlist, því hvað hefði getað gerzt ef Þórarinn og vel- gjörðarmenn hans hefðu ekki verið haldnir þeirri óskeikulu trú, að til væri staður, hinn eini rétti, þar sem hægt væri að læra hina einu réttu myndlist, það er að segja Akadem- ían í Kaupmannahöfn? Eg vil ekki láta hjá líða að benda á þetta, því að um 1900 hefði vel verið hægt að nema annars staðar og þá aðra list. Meðal annars stóð franski impress- ionisminn þá í fullum blóma. Reyndar var baráttan milli þess gamla og nýja, milli tveggja gerólíkra og andstæðra stefna, hafin er Þ. Þ. kom til Kaupmannahafnar. I Akademíunni sátu þá að völdum hinir viðurkenndu borgaralegu málarar þess tíma. Listfræðsla og smekkur þeirra byggðust á hálf- rómantískri, hálfklassiskri hefð, sem hafði ein- mitt um þær mundir náð lágmarki. Aðalein- kenni hennar var innantóm kenning urn BIRTINGUR v,r Laugardal 1924 olía 47x104 - hluti úr ínynd 41

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.