Húsfreyjan - 01.12.1951, Blaðsíða 14

Húsfreyjan - 01.12.1951, Blaðsíða 14
sé gagnslaust að vera að hjálpa einum og einum, það þurfi að breyta þjóðskipu- laginu. Stjórnir landanna eiga að leysa úr vandamálunum, og mannúðarstarf á að vera ríkisrekstur. Ef til vill verður það þannig í framtíðinni, en nútímans ríki og stjórnir standa í stríði og deil- um og auka því fremur liið auma ástand, en að þau bæti úr því. En ekki þætti mér ósennilegt, að ein- bver binna snauðu og umkomulitlu kynni að sakna vinar í stað, ef ekki væri leng- ur um persónulegt samband að ræða við þá, sem vegna samúðar og skilnings á kjörum þeirra óska að rétta bjálparhönd. Það er stundum andkalt á opinberum skrifstofum. Efalaust eru það konur, sem fyrst og fremst vinna ótilkvaddar að mannúðar- málum. Flest kvenfélög beita sér að rneira eða minna leyti fyrir því að bjálpa bág- stöddum. Konumar, sem sagt er um, að „vafstrist“ í ýmsu utan síns eiginlega verkabrings, eru oftast þessir dásamlegu „aðrir“, sem koma til bjargar, 'þar sem hjálpin þolir enga bið eftir bættu stjórn- arfyrirkomulagi. Það er ekki skemmti- Iegt starf að heimsækja þá, sem barðast verða úti í lífsbaráttunni, því að það er sárt að vita, bve bjálpin nær skammt, en þó má bún ekki gleymast. Um jólin er mönnum sérstaklega um- bugað að reyna að gleðja sem flesta. Á veltiárunum voru Islendingar svo örir á fé, að sjaldan eða ef til vill ablrei var beðið árangurslaust um bjálp handa bág- stöddum. Því miður var eins og eittbvað af skynsemi manna færi forgörðum í peningaflóðinu. Menn sóuðu stórfé eng- um til gagns, en mörgum til tjóns. Nú er fjaran komin að flóðinu löknu. Sem betur fer eru menn saml ennþá örir á fé til líknarstarfsemi. Margir liinna snauðu eru móttækilegri fyrir gleðileg jól beldur en þeir, sem búa við allsnægtir á heimilum, þar sem jólagleðin er að meslu fólgin í jólagjöf- um, veizlum og vökum. Það liefir komið fyrir, að jólagjöf frá Mæðrastyrksnefnd befir borið með sér meiri blessun en pen- ingar einir fá veitt. Ein af konunum, sem unnið hefir á vegum Mæðrastyrks- nefndar, segir svo frá: „Okkur bafði verið sagt frá einstæð- ingsekkju með börn, sem aldrei befði leitað bjálpar, en væri nauðuglega stödd. Ég heimsótti bana að kvöldi dags. Bama- bópurinn horfði á gestinn þögulum spurn- araugum, en í augum og svip konunnar lýsti sér þvílík þreyta og vonleysi, að mér féllust næstum hendur að afbenda benni þessa litlu gjöf, sem ég bafð'i með- ferðis. En þegar ég rétti benni umslagið með kveðju Mæðrastyrksnefndar, var sem andlit konunnar ummyndaðist. Hún tók til máls, en það var eins og bún talaði ekki til mín, heldur við einbver ósýni- leg máttarvöld. „Ó!“ sagði bún, „þið vitið ekki, bvað þið liafið gefið mér. 1 morgun leið mér svo óumræðilega illa, það var að grípa mig beiskja gagnvart lífinu og tilverunni, ég liugsaði, að ber- ist mér engin hjálp, a. m. k. svo að börnin mín þurfi ekki að vera svöng um jólin, þá getur Guð ekki verið til, eða bann er ekki góður. Þið hafið gefið mér aftur það traust, sem befir verið minn aðalstyrkur í lífsbaráttunni. Mér er ekki gleymt“. Kennslukona sagði mér frá dreng, ekki fullra 10 ára að ablri. Hann ólst u])]» lijá efnuðum foreldrum og naut allrar þeirrar umhyggju, sem ofurviðkvæm móð- urást vill veita barni sínu. En eitt var það, sem drengurinn þráði og bonuni var ógjarnan látið í té. Það var að mega frjálst og óhindrað umgangast börnin, sem bann lék sér við úti, og vera gestur á fátækum heimilum þeirra. Þessi þra var svo sterk, að bún blandaðist á binn 14 7IÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.