Húsfreyjan - 01.04.1961, Síða 4
Heimsókn
ó fœðingarheimili
Seint í vetur fór ég í heimsókn til ung-
frú Huldu Jensdóttur, forstöðukonu fæð-
ingarheimilis Reykjavíkurbæjar við Ei-
ríksgötu, til þess að eiga við hana sam-
tal fyrir Tímann. Notaði ég þá tækifærið
og spjallaði við hana um fleira en það,
sem féll innan ramma blaðagreinar, með
það fyrir augum að fá að birta það í Hús-
freyjunni.
Á þessu fæðingarheimili eru 22 legurúm
og 3 fæðingarrúm af sérstakri gerð, sem
ungfrú Hulda segir að hafi reynzt mjög
vel í alla staði. Allt er þarna hýrlegt og
snyrtilegt með afbrigðum og húsnæði vel
hagnýtt. Starfslið segir forstöðukonan að
sé einkar samstarfsþýtt og vel verki far-
ið.
Undanfarin ár hefur víða verið rætt og
ritað um það, að eftir að myglulyfin komu
til sögunnar, hafi sýklar, sem erfitt er að
sigrast á, gert víða vart við sig á fæð-
ingarstofnunum. Hver er yðar reynsla í
viðureigninni við þá? spyr ég.
Enn sem komið er höfum við ekki þurft
að berjast við neitt slíkt. En sýklar koma
allsstaðar á stjá, þar sem börn fæðast, án
þess að um sóðaskap sé að ræða. En hrein-
læti, ekki sízt frá móðurinnar hendi, er
jú það, sem bezt heldur þeim niðri, eða
gerir þá óvíga.
Einhvers staðar las ég, að í Svíþjóð
væru konur hvattar tO þess að fæða börn
sín fremur í heimahúsum en á fæðingar-
stofnunum. Hver er yðar skoðun?
Um þetta eru ekki allir sammála. Sjálf
er ég því mjög hlynnt þar sem aðstæður
leyfa. Með því meina ég fyrst og fremst
Yfirljósmóðir og aðstoðarljósmóðir
að nóg hjálp fáist og friður, svo að konan
geti hvílst vel, en á slíku er sjaldnast völ
hér.
Hvað segið þér um brjóstameinin, sem
svo oft er minnst á?
Mér virðist, að þar sem ég þekki til
erlendis, séu þau ekki eins tíð og hér
hjá okkur. Aðalástæðan fyrir brjósta-
meinum virðist mér vera óaðgætni og
þekkingarskortur á heppilegri meðferð
brjóstanna.
Hvað er það, sem barnshafandi konur
eiga fyrst og fremst að hafa hugfast um
meðferð brjóstanna?
Til dæmist ætti á meðgöngutíma og
eftir fæðingu að nota góð brjóstahöld, svo
að brjóstin tapi ekki lagi sínu. Á seinni
hluta meðgöngutímans ætti að styrkja
geirvörturnar og á þann hátt búa þær
undir það, sem bíður þeirra, þegar bam-
ið fer að sjúga. Svo ætti að láta barnið
sjúga örstutta stund til að byrja með, og
smá lengja tímann. Þannig á að venja
4
Húsfreyjan