Húsfreyjan - 01.04.1961, Blaðsíða 7

Húsfreyjan - 01.04.1961, Blaðsíða 7
Garðapokablóm: 10—-12 cm, m. gul blóm, breiðist út. Garðasól: 20—35 cm, blómsæl jurt, blóm í mismunandi litbrigðum. Geldingahnappur: 12—-15 cm, myndar þétta kolla, bleik blóm, ísl. jurt. Geitabjalla: 15—20 cm, afar sjaldgæf, en fögur, hefur bláleit blóm. Hjartaklukka: 15—30 cm, afbrigði með bláum og hvítum blómum. Holtasóley: falleg ísl. jurt, er sómir sér vel í steinbeði. Jarlaspori: 30—40 cm, með rauð blóm, afar fögur jurt. Júliulykill: mjög lágvaxin prímulutegund með rauðblá blóm. Yfirleitt eru margar tegundir lykla góð- ar steinbeðsplöntur eða í kanta t. d. Lauf- eyjarlykill, Mörtulykill, Sifjarlykill og Höfuðlykill. Lyklar þrífast bezt í djúpum nokkuð rökum jarðvegi. Músagin er mjög lágvaxin skriðul planta með bláleit blóm. Mura: fleirri tegundir í ýmsum litum, eru flestar mjög harðgerðar og auðræktaðar. Helstu tegundir: silkimura, jarðarberjamura og blendingsmura, verða 20—40 cm háar. Rottueyra: myndar þéttar breiður af loðn- um blöðum, ber hvít blóm, er auðveld í ræktun, hæð 15—25 cm. Steinbrjótar: flestar tegundir eru afar léttræktaðar og blómsælar jurt- ir. Helstu tegundir eru: Berg- steinbrjótur, þúfusteinbrjótur, klettafrú, mosasteinbrjótur og skuggasteinbr j ótur. Hnoðrar: Hér má rækta fjölmargar teg- undir. Hnoðrar eru einhverjar þær beztu plöntur sem völ er á fyrir steinbeð. Fáar plöntur eru gæddar þeim hæfileikum að þekja eins skjótt það pláss sem þeim er ætlað, og hnoðrar gera. Flestar hnoðrategundir eru mjög lágvaxnar og skriðular, frá 5—15 cm á hæð. Þær teg- undir sem aðallega má mæla með, eru: helluhnoðri, klappa- hnoðri, tindahnoðri, fjalla- hnoðri, urðahnoðri, burnisrót, berghnoðri, spaðahnoðri og steinahnoðri. Allt eftir tegund- um, bera hnoðrar gul, hvít eða bleikrauð blóm, og eru yfirleitt blómsælar jurtir. Af hávaxnari fjölærum jurtum má í fyrsta lagi benda á ýmsar algengar og gamalreyndar tegundir eins og: Sporasóley (vatnsberi): sem fyrir hittist í ýmsum litbrigðum. Lúpinur: sem einnig eru til í margvísleg- um litum. Fegurstar eru sk. regnbogalúpínur, en þær eru jafnframt mjög viðkvæmar í ræktun; þola t. d. illa mikinn raka og umhleypingasamt veð- urfar. Venusvagn: er algengastur í bláum lit, en fyrír hittist einnig í öðrum litbrigðum, t. d. gult. Silfurhnappur: þrifst hvar sem er, en á það til að breiðast út og verða vandræðajurt. Má nokkuð fyr- irbyggja útbreiðslu hans, svo og annarra plantna, er hafa svip- aða tilhneigingu, með því að grafa botnlausa fötu niður í kring um plönturnar. Biskupsbrá: er nokkuð algengt körfu- blóm með rauðum og bleikum blómum. Verður um 50—60 cm á hæð. Riddaraspori: Finnst i fleiri afbrigðum, er verða yfirleitt hávaxin og gróskumikil. Litir aðallega bláir og hvítir. Doronicum eða gemsufífill: Gul blóm. blómgast mjög snemma vors. Fjallakornblóm: er afar auðvelt í fjölgun og ræktun, en getur orðið erfitt í görðum innan um annan gróð- ur. Er til í bláum, rauðum og hvítum lit. Jakobsstigi: er til í bláum og hvitum lit. Húsfrcyjan 7

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.