Húsfreyjan - 01.04.1961, Side 14
Sænsk leikíimi á skrifstofum
*
iiftir Carul Marlin
(Þó að talað sé um leikfimisæfingar á
skrifstofum í þessari grein, er ekki síður
ástæða til að iðka þær í heimahúsum, því
alkunna er að heimilisstörf veita ekki
alltaf þá hreyfingu, sem æskileg er fyrir
líkamann.)
Nú er sænsk leikfimi ekki lengur jafn
alþekkt og hún var fyrir tveimur eða
þremur áratugum, þegar svo að segja
hver maður teygði vöðvana eftir hennar
fyrirmælum.
Enn eru þó sænskir íþróttaflokkar á
ferð um heiminn og sýna ágæti þess leik-
fimiskerfis, sem Henrik Ling mótaði, en
eins og verða vill, þá hefur áhugi hins al-
menna borgara dofnað fyrir þessari hreyf-
ingu, sem krafðist þess, að hann byrjaði
dag hvern með líkamsæfingum og hengdi
leikfimistæki í baðherbergisloftið.
Þó að leikfimin ráði ekki lengur ríkjum
á heimilunum, þá er hún tekin að hasla
sér völl á vinnustöðunum. Mörg sænsk
stórfyrirtæki eru farin að gefa starfsliði
sínu tíu mínútna frí daglega til þess að
iðka einfaldar afslöppunaræfingar.
Þetta hlé er gefið til þess að auka lík-
amlega vellíðan fólksins, sem aftur birtist
í auknum vinnuafköstum, forða fólkinu
frá ofþreytu vegna einhæfra hreyfinga.
Á stríðsárunum síðustu, var þessi ný-
breytni tekin upp hjá skrifstofufólki Aat-
vidabergs verksmiðjanna í Svíþjóð, en
þær eru meðal stærstu véla- og húsgagna-
framleiðenda þar í landi.
Síðustu áratugi hefur verið lögð aukin
áherzla á vellíðan fólks á vinnustöðum,
m.a. lögð meiri rækt við húsbúnað, lýs-
ingu, loftræstingu og litaval, og í Sví-
þjóð hafa farið fram vxsindalegar rann-
sóknir á þeirri áreynslu, sem fylgir hvers-
konar skrifstofuvinnu. Fundin hefur ver-
ið upp vél, sem mælir þá orku, sem hin-
ar ýmsu hreyfingar við skrifstofustörf út-
14
Húsfreyjan